Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Blaðsíða 60
Tvctaldur
i. viriníifgur
*•£.
mm
XmeR
Hmigurduy
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Finnur Ingólfsson. DV-mynd Daníel
Rafmagni
hleypt á
Noröurál
DV, Grundartanga:
Straumprófanir fóru fram í álveri
■- Æforöuráls hf. á Grundartanga í gær
og heimsóttu iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, Finnur Ingólfsson, ráðu-
neytismenn og forráðamenn Lands-
virkjunar svæðið en framleiðslan sjálf
fer ekki af stað fyrr en 10. júní.
„Tilfinningin er mjög góð, ekki síst
i ljósi þess sem á undan er gengið. Það
voru átök um stofnun þessa fyrirtæk-
is en sem betur fer hefur dregið úr
þeim. Þetta er að takast á ótrúlega
skömmum tíma og gott ef þetta er
ekki íslandsmet. Menn þekkja það
ekki annars staðar í heiminum að
: '^'ggingu hafi verið lokið á þrettán
mánuðum frá þvi fyrsta skóflustung-
an var tekin," sagði Finnur Ingólfs-
son, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
við DV á Grundartanga í gær. -DVÓ
Spjallað við feg-
urðardrottningu
Spjallið heitir ný spjailrás á net-
miðlinum Vísir.is sem opnar kl. 16 í
dag, laugardag. Þá gefst gestum ein-
stakt tækifæri til að spjalla við ný-
kjörna fegurðardrottningu íslands
en hún var krýnd á Broadway í
gærkvöld. Leiðin inn á spjallrásina
er einföld. Sláið inn slóðina
_Výww.visir.is og smellið í SPJALL-
lí). Sjá einnig bls. 15. -hlh
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag, laugardag, frá kl. 9-14.
Lokað á morgun, hvítasunnudag.
Opið verður á mánudag, annan í
hvítasunnu, frá kl. 16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin laug-
ardag, frá kl. 6-14.
Lokað sunnudag og mánudag.
Opið á þriðjudag, frá kl. 6-20.
DV kemur næst út eldsnemma að
morgni þriðjudagsins 2. júní.
^ Siminti er 550 5000.
liipiill m
WMBb.
Æ ***** ' JjS
Þessir brosmildu, blautu strákar úr Breiðagerðisskóla voru í skólaferðalagi við, eða öllu heldur, í Laugarvatni í vikunni og létu ekki fötin tefja sig við sund-
iðkun. Skólasystkin þeirra á bryggjunni höfðu allan varann á og settu upp björgunarvestin þótt eitthvað virðist stelpurnar hafa þurft að tala um fyrir strákn-
um að koma út í bátinn. Skólastarfi á íslandi lauk víðast hvar f vikunni og því ekki furða að börnin brosi breitt. DV-mynd E.ól.
Siguröur Þórðarson ríkisendurskoðandi:
Bankaráð lok-
aði málinu
Ríkisendurskoðun hefur á síðustu
dögum sætt gagnrýni fyrir að hafa
komist að þeirri niðurstöðu í skýrslu
29. mars 1996 að fyllsta ástæða væri
„fyrir bankaráð Landsbankans að láta
kanna með einum eða öðrum hætti
starfshætti fyrrum framkvæmdastjóra
Lindar hf. og grípa síðan til viðeigandi
ráðstafana" og hafa síðan fallist um-
yrðalaust á niðurstöðu bankaráðs
Landsbankans frá því í september
sama ár, að ekkert skuli aðhafst frek-
ar í málinu. DV spurði Sigurð Þórðar-
son ríkisendurskoðanda um málið.
- Af hverju lokar Ríkisendurskoðun
Lindarmálinu með bréfi tO bankaráðs
Landsbanka Islands þann 1. nóvember
1996 og ákveður að aðhafast ekkert
frekar í málinu, í stað þess að nota
sjálfstætt vald sitt til að setja málið í
opinbera rannsókn eins og fyrri
skýrsla Ríkisendurskoðunar frá 29.
mars 1996 hafði gefið tilefni til?
„í skýrslu bankaráðs Landsbankans
frá 26. september 1996 svarar banka-
ráðið þeim hlutum sem við bentum á í
fyrri skýrslu okkar og við svörum svo
því í bréfi okkar, dagsettu 1. nóvem-
ber, til bankaráðsins. Það sem skeður
er að við fáum upplýsingar um að
bankaráðið hafi tekið þetta mál tU um-
fjöUunar og er með ákveðnar niður-
stöður í því og við höfðum ekki nein-
ar athugasemdir við þær. Svo einfalt
er það.“
- En hefur Ríkisendurskoðun ekki
sjálfstætt vald tU að taka þetta mál
upp? „Þetta var greinargerð sem við
sendum frá okkur og beiðni um hana
kom frá bankaráðinu. Við vorum að
skoða upplýsingar um ákveðin gögn
sem þeir voru með tU umfjöllunar og
vorum að segja okkar álit á því. Síðan
tekur bankaráðið þetta tU umfjöllun-
ar, tekur ákvarðanir, skýrir þær fyrir
okkur og við höfum ekki athugasemd-
ir við framgang málsins."
- Haflð þið heimUd tU að fara fram
á opinbera rannsókn, ef þið teljið ykk-
ur verða vara við tUefni tU slíks í at-
hugunum ykkar á fyrirtækjum?
„Við gætum gert það.“
- Þannig að þið hlítið þarna niður-
stöðu bankaráðs: „Við hlítum ekkert
niðurstöðu eins eða neins! Við bara
metum það hvaða afstöðu stjóm og
bankaráð Landsbankans tók tU þess-
ara efnisatriða sem voru til umfjöllun-
ar.“
- En þið voruð búnú að leggja sjálf-
stætt mat á málið í fyrri skýrslu:
„í fyrri skýrslunni vomm við bara
með ábendingar. Við sögðum að menn
ættu að skoða málin nánar, sem
bankaráðið gerði. Það kom með sínar
ástæður íyrir að þeir vUdu gera hlut-
ina með þessum hætti."
- Komu tU einhver pólitísk afskipti
eða þrýstingur á Ríkisendurskoðun
við afgreiðslu þessa máls eins og
Sverrir Hermannsson, fyrrum banka-
stjóri, heldur fram í Morgunblaðinu í
dag?
„Sverrir Hermannsson má hafa
skoðanir á þessu eins og mér og öUu
öðm sem viðkemur stofnuninni og ég
læt það kjurt liggja. Hann er ekki Guð
í mínum huga,“ sagði Sigurður. -phh
Helgarveðrið:
Blíða suðvest-
anlands
Um hvítasunnuhelgina verður
hið faUegasta veður á Suður- og
Vesturlandi og er búist við að
léttskýjað verði aUa helgina.
Hlýtt verður að deginum en frem-
ur svalt að næturlagi.
Um helgina verður fremur
svalt á Vestfjörðum. Inn til
landsins getur þó orðið ágætt
veður en fremur svalt. Svalt verð-
ur á Norðausturlandi.
Þegar líða tekur á helgina
verða norðaustan 3-5 vindstig á
öUu landinu.
Veðrið í dag er á bls. 65.
Lenti undir heyrúllu:
Stúlkan slapp
ótrúlega vel
- segir faðirinn
7 ára stúlka slapp ótrúlega vel eft-
ir að hún lenti undir tæplega 400
kUóa heyrúUu. Slysið átti sér stað á
þriðjudag á bænum RaufarfeUi við
HvolsvöU.
„Ég var nýbúinn að taka heyrúUu
úr stæðunni sem er á hlaðinu. Stúlk-
an og bróðir hennar voru að leika
sér þarna við stæðuna. Þá datt rúUa
úr stæðunni og fór yfir stúlkuna. Ég
var staddur þarna rétt hjá og brá
auðvitað mjög mikið. Ég og konan
mín vorum eðlUega mjög hrædd um
að eitthvað alvarlegt hefði komið
fyrir hana. Sem hetur fer var það
ekki og ég tel að hún hafi sloppið
ótrúlega vel miðað við að þessar rúU-
ur eru tæplega 400 kUó að þyngd,“
segir Kristinn Stefánsson, faðir
sfúlkunnar. Hún var send á Sjúkra-
hús Reykjavíkur en hún kom heim
á RaufarfeU í fyrrakvöld.
„Stúlkan fann strax tU í bakinu
eftir slysið. Við fórum með hana á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Þar var hún
sett í röntgenmyndatökur. Sam-
kvæmt niðurstöðum úr þeim er hún
með mar á mjóhryggnum en hún
slapp við beinbrot. Þetta er hættuleg-
ur leikstaður og maður hefur bent
börnunum á það. Hins vegar er það
mín sök að hafa ekki gengið betur
frá heyrúUunni i stæðunni.,“ segir
Kristinn. -RR
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐVR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FVRIR HÓPA