Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
Fréttir
Lögregla gengur hart fram gegn hraðakstri:
Þyngri refsingar
Lögregla um allt land hefur geng-
ið mjög hart fram í því að sekta og
jafnvel svipta ökumenn fyrir
hraðakstur og önnur umferðarlaga-
brot að undanfömu.
Aðgerðir lögreglu koma í kjölfar
nýrrar reglugerðar þar sem refsing-
ar við brotum á umferðarlögum eru
þyngdar. Lögreglan í Reykjavík
stöðvaði til að mynda trúlega fjöru-
tíu ökumenn vegna hraðaksturs á
einum sólarhring í síðustu viku.
„Það er rétt að við höfum verið
mjög harðir í að taka ökumenn fyr-
ir of hraðann akstur að undan-
förnu. Við erum einfaldlega að
fylgja eftir umferðarlögum. Svipt-
ingarmörkin eru miklu neðar en
áður. Ökumenn eru sviptir á 61
km. hraöa á götum þar sem hraða-
takmörk eru 30 km. eins og t.d. í
Hamrahlíðinni. Þar hafa margir
ökumenn verið sviptir að undan-
förnu. Ökumönnum finnst það
mörgum mjög óréttlátt en þeir eru
að keyra á yfir tvöföldum há-
markshraða. Það er ekki okkar
vilji að svipta ökumenn heldur að
þeir fari varlega og virði umferöar-
lög. Þá er tilgangnum náð,“ segir
um við ýmsar refsingar, m.a. þessar
sektir. Þeir sem ekki virða umferða-
reglur eru sektaðir. Til að geta
fylgst betur með ökumönnum voru
tekin nokkur umferöalagabrot út úr
reglugerð og lagðir punktar við. Þaö
er ekki nóg að ökumenn borgi ítrek-
að sektir fyrir ítrekuð brot heldur
safnast á þá punktar. Eftir vissan
punktafjölda fá ökumenn aðvörun
og ef þeir halda áfram að brjóta lög-
in þá eru þeir sviptir ökuréttindum
í 3 mánuði. Það er mjög mikilvægt
að fólk átti sig á því að þetta er ekki
einkamál lögreglunnar gegn al-
menningi heldur er þetta allra mál
að umferðarreglur séu virtar," segir
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Ríkislögreglustjóraemb-
ættinu. -RR
Grænt ljós á hrossaútflutning:
Hátt í 1000 hross
bíða útflutnings
DV; Akureyri:
Dýralæknanefnd Evrópusam-
bandsins og íslensk yfirvöld hafa
náð samkomulagi um að útflutning-
ur íslenskra hrossa til Evrópu megi
hefjast að nýju en hann hefur legið
niðri frá því skömmu eftir áramót
þegar hrossasóttarinnar varð vart
hér á landi. Útflutningurinn verður
heimilaður frá öllum landshlutum
en fariö að sérstökum reglum sem
settar verða.
Til stóð fyrir skömmu að hefja út-
flutning hesta frá þeim svæðum þar
sem sóttarinnar hafði ekki orðið
vart, s.s. á Norður- og Austurlandi
en þá stakk sóttin sér niður í Skaga-
firði og útflutningsáform lögðust af.
Sóttin hefur hins vegar lítið sem
ekkert breiðst út og ekki orðið vart
í Húnavatnssýslum eða í Eyjafirði.
Talið er að um þúsund hross bíði
útflutnings en útflutningurinn verð-
ur jafnt heimilaður frá svæðum þar
sem hrossasóttin hefur stungið sér
niður og frá „ósýktum svæðum". Það
skilyrði mun þó vera sett að hrossin
hafi sannarlega verið frí frá sóttinni
í um 4 vikur og áður en hrossin
verða flutt út verða þau sett í sóttkví
í einhvem tíma.
Þessi niðurstaða styrkir mjög
mótshaldið á Melgerðismelum þar
sem Landsmót hestamanna hefst eft-
ir tæpan mánuð. Vitað er að fjöldi
útlendinga kemur á mótið og margir
þeirra kaupa sér hross þar til að
taka með sér heim sem fyrst.
-gk
Þessi tjaldur hefur engan beyg af tröliaukinni hjólaskóflunni sem mokar til
risastórum björgunum á grjótgeymslusvæði borgarinnar í Örfirisey. Hann hef-
ur valið sér varpstað á miðju athafnasvæðinu þar sem jörðin nötrar undan
átökum vinnuvélarinnar og stórir grjótflutningabílar koma og fara allan liö-
langan daginn. Stjórnandi hjólaskóflunnar hefur merkt hreiður tjaldsins til aö
grjótflutningabílarnir geti forðast þaö og fuglinn situr hreyfingarlaus á eggj-
unum sínum þremur þar tii fótgangandi menn nálgast. Þá kemur aö honum
styggð og hann foröar sér. DV-mynd Hilmar Þór
Lögregla hefur að undanförnu gengiö hart fram í því að stöðva ökumenn og
sekta fyrir of hraðann akstur.
Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð-
stjóri í lögreglunni í Reykjavík.
Áhrif á hegöun í umferöinni
„Lögreglan er ekki að velta sér
upp úr peningafjárhæðunum. Það
er ekki verið að sekta peningana
vegna. Málið gengur út á að hafa
árif á hegðun fólks í umferöinni og
auka umferðaröryggi. Til þess höf-
Allir heilir í Kirkjuhúsinu
Listin er ómetanleg. Það er vart
hægt að hugsa sér líf og tilveru án
hennar. Eins og gengur er það þó mis-
merkilegt sem á borð er borið. Lista-
hátíð í Reykjavík, sem haldin er á
tveggja ára fresti, færir okkur það
sem best er gert úti í hinum stóra
heimi. Það kemur i veg fyrir einangr-
un landans í menningarlegu tilliti.
Þannig muna menn einstaka toppa
frá fyrri listahátíðum, listræna við-
burði sem upp úr standa. Hæst ber
manninn með vafða tillann héma um
árið. Hann lét íslenskt sumarveöur
ekkert á sig fá. Þrátt fyrir norð-
angarra spókaöi hann sig í Austur-
stræti ber að öðru leyti en því að
hann vafði manndóm sinn sjúkra-
bindi. Þetta tiltæki vakti eftirtekt
enda vora aðrir úlpuklæddir. Þrátt
fyrir sjúkrabindið var talið að limur
mannsins væri heill. Hann vafði
hann aðeins i listrænum tilgangi.
Stöku maður hneykslaðist á þessu
hátterni en var þá vinsamlega bent á
að listrænt séð væri hugarheimurinn
þröngur og hann í alla staöi afturhaldssamur. Þá
umsögn vilja menn ekki fá um sig og þvi lofa þeir
hið listræna framtak, hvort sem um bera menn
er að ræða eða annað.
Það átti einmitt við um stórkostlega listrænan
viðburð á nýliðinni Listahátíð i Reykjavík. Menn
áttu ekki til orð um framleika listamannanna
sem sýndu glerlistaverk í Kirkjuhúsinu á Lauga-
vegi. Glerlistaverk þetta innihélt saur, þvag og
blóð. Dásömuðu allir þaö andríki sem fylgdi verk-
inu ef frá era talin nokkur börn sem
spurðu hvort kúkað og pissað hefði
verið í glasið. Það var sussað á
blessuð bömin enda eru þau óvitar í
listinni. Einkum var talið lofsvert af
listamönnunum að ná þessum sýnum
sem glatast dag hvem og hverfa til
sjávar.
Það er til marks um það hve vel
tókst til um þetta verk að það sprakk
á síðasta degi Listahátíðar. Með því
móti var á táknrænan hátt bundinn
endi á hinn mikilsverða viðburð. List-
rænir óvitar sögðu að innihald verks-
ins hefði spýst á sýningarglugga og
nærliggjandi húsgögn. Fnykurinn
hefði verið þvílíkur að harðgerðustu
karlmenn kúguðust.
Þvílíkar sögusagnir bera auðvitað
merki vanþroska í listum enda voru
þær bomar til baka. Listrænn ráðu-
nautur sagði að vísu að spranga heföi
myndast í glerlistaverk þetta og því
fylgdi óhjákvæmilega fyla.
Hvað annað? Þolir fólk virkilega
ekki listræna lykt? Listráðunauturinn
lét þess meira að segja getið, án þess að það skipti
verulegu máli listrænt séð, að starfsmenn Kirkju-
hússins væru nokkuð heilir eftir atburðinn.
Megum við fá meira að heyra og meira að sjá
svo viö þroskumst listrænt. Dagfari
Stuttar fréttir i>v
17 milljóna tap
Hafnarfjarðarbær verður að
endurgreiða um 17 milljónir
króna vegna úr-
skurðar félags-
málaráðuneytis-
ins um að bær-
inn skuli endur-
greiða 20% ofá-
lagt holræsa-
gjald. Gísli Jóns-
son prófessor kærði álagninguna
á sínum tíma. Fjarðarpósturinn
sagði frá.
Dræmt í Þverá
Laxveiði hefur verið dræm í
Þverá frá því að veiði í henni
hófst fyrir rúmri viku. Áin hefur
verið vatnslítil og skilyrði ekki
nógu góð að sögn fréttablaðsins
Skessuhorns. Veiði var hins veg-
ar betri í Norðurá, en viðitíminn
í henni hófst á sama tíma og í
Þverá.
Ólympíumót
Ólympíumót 60 þjóða í eðlis-
fræði verður haldið á islandi
2.-10. júlí. 180 skólanemar víðs
vegar úr heiminum taka þátt í
mótinu, þeirra á meöal íslenskir.
íslensku þátttakendurnir fimm
undirbúa sig nú fyrir mótið að
sögn fféttavefs Morgunblaðsins.
Félagsmannatryggingar
Félagsmannatryggingar eru
komnar á dagskrá hjá Alþýðu-
sambandinu. Fulltrúi sænska al-
þýðusambandsins hefur kynnt
reynslu Svía af félagsmannatrygg-
ingum. Hún er sú að bæði félags-
menn og samböndin hafi hagnast
á þeim. Vinnan sagði frá.
28 hraöakærur
Lögreglan á Hólmavík hefur
kært 28 ökumenn fyrir hraðakst-
ur innan umdæmisins. Fréttavef-
ur Morgunblaðsins sagði frá.
Gott á fjárfesta
Góður gangur i framkvæmdum
við álver Norðuráls á Grandar-
tanga hefur að
mati Finns Ing-
ólfssonar við-
skiptaráðherra
góð áhrif á er-
lenda fjárfesta á
íslandi. Aðeins 13
mánuðir liðu frá
því fyrsta skóflustungan var tekin
að álverinu þar til það var gang-
sett. Viðskiptavefur Vísis sagði frá.
Ró á markaði
Rólegt er á hlutabréfamarkaði
áfram eins og undanfama daga.
Viðskipti með hlutabréf námu að-
eins rúmum 10 milljónum í gær
en nokkur utanþingsviðskipti
áttu sér stað með hlutabréf í
Granda hf. Viðskiptavefur Vísis
sagði frá.
Krónan styrkist áfram
íslenska krónan heldur áfram
að styrkjast og komst gengisvísi-
talan í gær niður í 111,66 stig. Við-
skiptavefur Vísis sagði frá.
Árnes í hagnað
Árnes hf. verður rekið með
hagnaði á þessu ári að sögn Lúð-
víks Barkar Ámasonar fram-
kvæmdastjóra í Sunnlenska
fréttablaðinu. Ætlunin er að auka
veltuna um 36% á árinu eða um
400 milljónir króna.
36 garðyrkjufræðingar
36 nemendur útskrifuðust ný-
lega frá Garðyrkjuskóla ríkisins
að Reykjum í
Ölfusi af fimm
námsbrautum.
13 eru innritaðir
á blómaskreyt-
ingabraut á
næsta námsári,
12 á garðplöntu-
braut, 12 á skrúðgarðyrkjubraut,
átta á umhverfisbraut og sex á yl-
ræktarbraut. Skólastjóri er Grét-
ar J. Unnsteinsson.
7% arður
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind er
nú næststærsta hlutafélag lands-
ins með 8.700 hluthafa. Fyrir aðal-
fundi félagsins, sem haldinn verð-
ur 23. júní, liggur tillaga um að
greiða 7% arð til hluthafa. Hlut-
höfum fjölgaöi á árinu um 1.800.
-SÁ