Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
7
sandkorn
RÚV á perunni
Innan ríkissjónvarpsins ræða
menn um að Heimdellingurinn
Hjálmar Blöndal, fyrrverandi leið-
togi MH-inga, sé með stofnunina á
heilanum. Þegar MH
tapaði á sínum tíma í
spmmingakeppni
framhaldsskólanna,
Gettu betur, eins og
frægt varð, kenndi
hann sjónvarpinu
um. Þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn
tapaði borgar-
stjórnarkosning-
unum hélt Hjálmar áfram og kenndi
fréttastofunni um. Gárungarnir
segja að Davíð Þór Jónsson, sem
Hjálmar beindi mjög spjótum aö
vegna spurningakeppninnar, hafi
sagt að þegar Hjálmar tapaði í
bridge kenndi hann líka ríkissjón-
varpinu tun...
Frekar Sigrúnu
Rimma mikil er sögð vera innan
R-listans um það hver verði leiðtogi
listans og forseti borgarstjórnar.
Árni Þór Sigurðsson er sagður
hugsa til þess með
mikilli ógleði að
Helgi Hjörvar
hreppi vegtylluna og
vill allt til vinna að
svo fari ekki, meira
að segja það að
framsóknarkonan
Sigrún Magnús-
dóttir setjist í for-
setastólinn. Reyndar mun-
aði ekki svo miklu í prófkjöri R-list-
ans í vor því vegna hina flóknu og
ógagnsæju prófkjörsreglna stendur
Sigrún næst forsetastólnum á eftir
Helga Hjörvar, þrátt fyrir að Guð-
rún Ágústsdóttir hafi fengið flest
atkvæði i fyrsta sætið af þátttakend-
um í prófkjörinu.
100 milljónir fyrir lítið
í útflutningsgeiranum eru menn
orðnir nokkuð hugsi yfir þátttöku
íslands í heimssýningunni í Portú-
gal sem nú stendur. Kostnaðurinn
sé orðinn um 100
milljónir en nánast
víst sé að ekki ein
einasta af þeim
krónum muni skila
sér aftur. Skýring-
ar á því séu ein-
faldar: Um 80%
sýningargesta eru
heimamenn, 10%
Spánverjar og afgangurinn
ferðamenn af ýmsu þjóðerni. Fyrir
sýninguna var á vegum Útflutn-
ingsráðs og framkvæmdastjóra þess,
Jóns Ásbergssonar, útbúið mjög
mikið af kynningarefni sem dreift
er til sýningargesta í íslenska sýn-
ingarskálanum. Það efni er allt á
ensku sem allt að 90% sýningar-
gesta skilja ekki. Ekkert áætlunar-
flug er á milli íslands og Portúgal og
nánast engir Portúgalar ferðast til
íslands og þátttaka í sýningunni
ekki líkleg til að bæta neinu við í
þeim efnum. íslendingar flytja út til
Portúgals nokkurn saltfisk en þátt-
taka i heimssýningunni þykir held-
ur ekki líkleg til að bæta neinu þar
við. Spurningin er því til hvers var
í þetta lagt, nema þá helst til þess að
íslenskir ferðamenn í Portúgal gætu
kynnt sér íslensk málefni?
Of geltinn
Steingrímur J. Sigfússon er með
kraftmestu þingmönnum. Hann hef-
ur eins og fleiri stjómarandstæðing-
ar haldið uppi öflugu málþófi í vor.
Uppreisn stjórnarand-
stöðunnar hefur
pirrað mjög stjórn-
armeirihlutann.
Þannig var haft eftir
einum ráðherran-
um þegar Stein-
grímur lét móðan
mása að hann
væri eíns og íslensk-
ur fjárhundur. Þjóðlegur, loðinn og
snuddgreindur en alltof geltinn...
Umsjón Stefán Ásgrímsson
Netfang: sandkorn @ff. is
f Nýr afgreiðslutími verslana
Hagkaups:
Fréttir
Svanhildur Konráðsdóttir: „Aðsókn
framar vonum á skemmtilega Lista-
hátíð.“
héldu áfram eins og t.d. ýmsar
myndlistarsýningar og söngleikur-
inn Carmen Negra, þar sem miða-
sala væri á vegum Islensku óper-
unnar, og gestakomum á Listahátíð
því í raun ekki lokið.
Svanhildur sagði að Listahátíð
hefði einkennt mikil fjölbreytni:
„Yfirskrift hátíðarinnar var „Þar
sem straumar rnætast" og má hik-
laust segja að hún hafi uppfyllt það.
Hér voru fulltrúar margra ólíkra
Signý Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíöar:
Listahátíð réttum
megin við núllið
- skemmtileg hátíö, sagöi Svanhildur Konráðsdóttir
„Listahátíð réttum megin við strikið
- vonandi," sagði Signý Pálsdóttir,
framkvæmdastjóri Listahátíöar.
ist undantekningarlaust mjög vel og
sömuleiðis voru dómar gagn-
rýnenda mjög lofsamlegir. Við erum
hæstánægð með það og teljum ein-
faldlega atburðina hafa verið hvern
öðrum betri.“
„Það lítur mjög vel út og við
erum næstum örugglega réttum
megin við strikið. Það er nú það
sem alltaf er stefnt að,“ sagði Signý
Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Lista-
Skeifan, Smáratorg, Akureyri, Njarðvík:
Virka daga til 20:00
Laugardaga: 10:00-18:00
Sunnudaga: 12:00-18:00
Kringlan 2. hæð:--------
Mán. - fim. 10:00-18:30 i
Föstudaga: 10:00-19:00 j
Laugardaga: 10:00-18:00 j
Sunnudaga: 13:00-17:00 j
HAGKAUP
Aljtaf betri kaup
„Aðsóknin var mjög góð og fór
fram úr björtustu vonum,“ sagði
Svanhildur Konráðsdóttir, fjöl-
miðlafulltrúi Listahátíðar 1998, í
gær þegar DV forvitnaðist um
hvernig hún hefði lukkast. Hún
sagði að erfítt væri að fullyrða um
heildarfjölda gesta að svo stöddu en
þó væri ekki vanætlað að á bilinu 40
til 50 þúsund manns hefðu sótt við-
burði hátíðarinnar. Einnig bæri að
líta á það að sum atriði Listahátíðar
þjóða og sum atriðin mjög langt að
komin, nánast frá öllum heimshorn-
um; s.s. Kína, Afríku, S-Ameríku og
Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt. í
annan stað var hátíðin að okkar
mati mjög fjölskylduvæn og einfald-
lega skemmtileg. Það var kannski
helsta einkennið."
Svanhildur treysti sér ekki til
þess að gera upp á milli einstakra
atriða hátíðarinnar um það hvað
hefði staðið upp úr. „Þetta heppnað-
hátíðar. „Ekki eru allir reikningar
komnir í hús en þar sem bæði miða-
sala og öflun styrkja var yfir áætlun
erum við bjartsýn á að dæmið gangi
upp. Á það ber þó að líta að þetta er
dýr hátíð og alltaf getur eitthvað
óvænt komið á daginn. Þannig að
enn þá er ekkert hægt að segja með
vissu um þessi mál.“
-fin
Versta grá-
sleppuver-
tíðin í 41 ár?
DV, Akranesi:
Grásleppuvertíðin hefur verið
óvenju léleg víðs vegar um land
og dæmi eru um að veiðin sé um
15% af því sem hún var í fyrra.
Margir grásleppukarlar á Akra-
nesi eru hættir veiðum vegna
ástandsins en aðrir þráast við en
vertíðinni lýkur 20. júní. Menn
segja að þetta sé versta vertíðin í
að minnsta kosti 41 ár.
Á Patreksfirði hefur veiðin
minnkað úr 200 tunnum i tæpar
80 tunnur, Á Barðaströnd úr 200
niður í 30, í Stykkishólmi úr 185
tunnum niður í 25 tunnur, Á Rifi,
Arnarstapa og Ólafsvfk úr 465
tunnum niður í 60 tunnur og á
Akranesi úr 650 tunnum í 100
tunnur.
-DVÓ
Togari rann
úr slippnum
Óhapp varð við Reykjavíkur-
höfn í gær þegar rækjutogarinn
Helga RE rann óvænt út úr slippn-
um.
Verið var að hifa rækjutogarann
upp í slippinn þegar óhappið varð.
Talið er að bilun hafi átt sér stað í
spili í slippnum. Helga RE rann út
úr slippnum en skipverjum tókst
að koma vél togarans í gang áður
en illa fór. Lóðsinn var einnig
staddur þar rétt hjá og gat aðstoð-
að togarann.
-RR
HnfSntúni 17 • 10S Rnvkinvík • *>ími SS7-6700 X SS7-S7S7 • Fnx: SS7-Ú708
Hringdu og fáðu
scndan bœkliní.
Grdðslnskllmálar jjð allra hæfi.
\ Skuldabrcf til
B allt aá 16 mán.
SER
IMMIV
stadgreitt