Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1998, Qupperneq 32
52
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 TfcV
onn
Ummæli
Tilvcran
„Tilveran er merkileg
blanda af að vera
einmanaleg og
áhugaverð. Mað-
ur er mikið einn
en þó kynnist
maður mörgu
fólki.“
Kristinn Sig-
mundsson óp-
erusöngvari, í DV.
Styð Sverri bróður
„Mér rennur blóðið til
skyldunnar og ég styð strák-
inn... Ég þverfóta ekki fyrir
fólki sem brosir út að eyrum
og lýsir stuðningi við Sverris-
framboð."
Halldór Hermannsson, skip-
stjóri á ísafirði, í DV.
Gargandi meistara-
stykki
„Ég hef verið mjög siðsam-
ur i allri minni
kvikmyndagerð
og það sama er
að segja um
þessa mynd.
Þetta er bara
lítil hugmynd
sem varð, eins
og Hilmar Örn
segir, að gargandi meist-
arastykki."
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndaleikstjóri um erótíska
stuttmynd sína, í Morgun-
blaðinu.
Útflutningurinn
á poppi
„Það skiptir ekki máli þó
fullir Englendingar hlusti á
íslandi. Það var hallærislegt
að slá ryki í augun á fólki
með því að segja að þetta sé
einhver útflutningshátíð."
Gunnar Hjálmtýsson, tón-
listarmaður og popp-
skríbent, um Popp í Reykja-
vik, í Degi.
Kann vel við mig
á toppnum
„Ég kann afar
vel við mig í
topppsætinu og
vil halda þvi.“
Páll Guðlaugs-
son, þjálfari
Leifturs á
Ólafsfirði, í
Morgunblað-
Heilbrigðisvísindi í
fjölmiðlum
„Fyrir utan fastan þátt um
lækningadóma í Morgunblað-
inu, virðist svo sem sérfræð-
ingar um kynlíf séu þeir einu
sem íslenskir fjölmiðlar telja
sig hafa þörf fyrir í heilbrigð-
isvísindum."
Árni Björnsson læknir, í DV.
Ástand fjallvega
Vegir á skyggðum svæðum eru lokaðir allri umferð þar til annaö veröur auglýst
HOTi
DV-graf IH
Örn Þorsteinsson myndhöggvari:
Petta er sýningarárið mikla
„Uppistaðan á þessum tveimur sýn-
ingum er verk sem ég hef verið að
gera á undanfórnum tveimur árum.
Ég opnaði fyrst sýninguna í Listasafni
Sigurjóns þar sem ég sýni myndverk
úr ýmsum málmum auk formynda úr
vaxi. í Kringlunni eru auk sams kon-
ar verka einnig verk úr grjóti. Má
segja að þar séu verk sem ég varð að
bera út úr Sigurjónssafni vegna þess
að þau komust þar ekki fyrir,“ segir
Öm Þorsteinsson myndhöggvari en
verk hans eru áberandi í listalífinu í
Reykjavík um þessar mundir. Því auk
þess sem hann er með tvær sýningar
á verkum sínum þá á hann eitt verk á
útisýningunni Strandlengjunni þar
sem fjöldi myndhöggvara sýnir verk
meðfram strandlengjunni frá Foss-
vogi í Skerjafjörðinn.
Um verk sitt, Selinn, sem er í
Nauthólsvík segir Örn: „Þetta er
mynd sem ég hjó í granítstein frá
Grænlandi. Þennan stein, sem er
rúmt tonn að þyngd, tók ég með mér
þegar ég hafði lokið við að vinna
verk sem ég var fenginn til að gera í
Grænlandi og vil ég segja að þar sé
móðursteinninn. Mér finnst sem
þessi tvö verk kallist á. Ég var svo
heppinn að það var íslenskt fragtskip
við ströndina í Grænlandi og þeir
buðu mér að að taka fyrir mig eitt-
hvað til íslands. Ég tók boðinu fegins
hendi og lét þá fara með steininn sem
er í raun aðeins moli úr þeirri stóru
blokk sem ég var að höggva í. Þegar
kom að því að gera verk í sýninguna
meðfram ströndinni var ég var fljót-
ur að velja mér Nauthólsvíkina fyrir
verk mitt. Ég er alinn upp í Hlíðun-
um og var
þarna öllum Örn Þorsteinsson.
stundum sem drengur og þar sem ég
ætlaði alltaf að tileinka verkið börn-
um þá kom aldrei neinn annar stað-
ur til greina hjá mér. Það má geta
þess að verkið úti á Grænlandi, sem
er yfir tveggja metra hátt og fimm
metra langt, heitir Rússíbaninn og er
einnig tileinkað börnum.“
Maður dagsins
Þótt mikið sé um að vera hjá Erni
þessa dagana er hann strax farinn að
undirbúa næstu sýningu: „Haft
var samband við mig frá að-
standendum Listagilsins á
Akureyri og mér boðið að
halda sýningu í ágúst. Og
þar sem ég átti verk í fórum
mínum mun ég láta þau á
sýninguna ásamt einhverju
af þeim verkum sem eru til
sýnis nú. Það má segja að
þetta sé sýningarárið
mikla hjá mér.“
Öm er mik-
ill áhuga-
maður um hlaup: „Ég hef hlaupið
mikið á síðustu árum, á að baki
mörg maraþonhlaup. Þessi áhugi
minn á hlaupum hófst í Mætti árið
1991 þegar ég og eiginkona mín,
María Þórarinsdóttir, fórum inn í
skokkhóp þar. í fyrsta hlaupinu
fann ég að þetta var eitthvað sem
átti við mig og við hjónin höfum
verið að skokka síðan. í fyrra hljóp
ég „Laugaveginn" og hafði mjög
gaman af og þykir mér miður að
geta ekki gert það í sumar
en vegna anna hef ég
hugsað mér að taka
það rólega í
hlaupum, fara
aðeins í hálft
maraþon í
Reykjavíkur-
maraþoninu."
-HK
Ný umferðar-
merki
"* Vegagerðin og Umferðar-
ráð hafa lagt til við dóms-
málaráðuneyti að ný um-
ferðarmerki verði tekin
upp í umferðarmerkja-
reglugerð. Nú þegar hafa
nokkur þessara merkja
verið tekin í notkun. Til
fróðleiks fyrir lesendur DV
verða þessi merki birt með
skýringum næstu daga.
Það skal tekið fram að
texti, sem skýrir merkið,
kann að breytast við end-
anlega ákvörðun. Við byrj-
um á því að birta tvö bann-
merki.
Akstur bifreiða með vatns-
spillandi farm bannaður.
Merki þetta er einkum
notað á svæðum þar sem
grunnvatn er notað til
1
neyslu. í
sérstökum
tilfellum
má nota
merkið
utan slíkra
svæða ef aðrar ástæður
valda mengunarhættu.
Umhverfi
Akstur bifreiða með hættu-
legan farm bannaður.
Merki þetta er notað þar
sem nauðsynlegt er að
banna eða takmarka umferð
með hættulegan farm, t.d.
sprengiefni, bensín eða ann-
að elds-
neyti. Þetta
getur t.d.
átt við í
jarðgöng-
um.
Myndgátan
Kastað Út á klakann. Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Síðasta sýningin á Grandavegi 7
verður annað kvöld.
Granda-
vegur 7
Annað kvöld verður aukasýn-
ing í Þjóðleikhúsinu á Grandavegi
7. Þetta er saga sem nær yfir
landamæri lífs og dauða. Fríða,
aðalpersónan, er skyggn og dag-
inn sem keyrt er yfir hundinn
hennar þyrpast ástvinir og ætt-
ingjar á vettvang - lífs sem liðnir.
Hjá þeim leitar hún styrks í erfið-
leikum sínum og sorg en lífið
heldur áfram og ástin knýr dyra í
fyrsta sinn. Leikgerðin er eftir
Kjartan Ragnarsson og Sigríði
Margréti Guðmundsdóttur og
unnin upp úr skáldsögu Vígdísar
Grímsdóttur sem hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin 1994.
Leikhús
Meðal leikara eru Margrét Vil-
hjálmsdóttir, Bergur Þór Ingólfs-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jó-
hann Sigurðarson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Valdimar Öm
Flygenring. Leikstjóri er Kjartan
Ragnarsson. Tónlistin er eftir Pét-
ur Grétarsson og hefur hún verið
gefin út á geislaplötu.
Bridge
Til þess að spila trompsamning
þarf yfirleitt að hafa fleiri tromp
heldur en andstæðingarnir. Á því
em þó nokkrar undantekningar,
sérstaklega þegar tromp sóknarinn-
ar liggja að mestu leyti á annarri
hendinni og eru að mestu í háspil-
um. í þessu spili var þó staðan önn-
ur en Daninn Johannes Hulgaard
endaði í þessu spili í 4 spöðum á
suðurhöndina. Hulgaard þurfti smá-
hjálp frá andstöðunni til þess að
vinna spilið. Sagnir gengu þannig,
norður gjafari og NS á hættu:
4 K3
*4 ÁG
* K10764
* 8542
4 G1074
*<• 985
♦ D93
* ÁD9
4 ÁD82
*4 643
4 Á8
* KG107
Norður Austur Suður Vestur
1 4 pass 1 4 pass
2 * pass 2*4 dobl
pass pass 3 * pass
3 grönd 4 4 pass p/h 4 * pass
4 965
«4 KD1072
♦ G52
* 63
NS voru greinilega í vandræðum
með að velja lokasamning þar sem
punktastyrkur var til staðar en
áhyggjur af hjartalitnum. Vestur
fékk að eiga fyrsta slaginn á hjarta-
kónginn en
annan slag-
inn átti sagn-
hafi á ásinn í
blindum.
Hann spilaði
nú laufi úr
blindum og
austur gerði þau mistök að setja
strax ásinn. Austur skipti yfir í
tígul sem Hulgaard drap á ás,
trompaði hjarta, tók spaðakóng,
svínaði laufi, tók síðan slagi á ás og
drottningu i spaða og spilaði síðasta
spaðanum. Austur var inni, átti
ekki eftir hjarta og vömin fékk því
ekki nema 3 slagi.
ísak Örn Sigurðsson