Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 DV
fréttir
Tryggingatannlækni á
að víta fyrir lagabrot
fyrir að breyta meðferðaráætlunum og ljótan munnsöfnuð, segja tannlæknar
Tannlæknamir þrettán sem stóðu
fyrir ályktun sem dagaði uppi á löng-
um fundi þeirra í síðustu viku segj-
ast mótmæla þeirri skoðun sem fram
kom í DV á laugardag að þeir hafi
viljað láta reka Reyni Jónsson trygg-
ingatannlækni burtu frá Trygginga-
stofnun. Þeir viðurkenna þó að þeir
vilji sjá nýjan mann í stöðu hans.
Tannlæknarnir segjast þeirrar skoð-
unar að yfirmenn tryggingatann-
læknis þurfi að áminna hann um að
sýna tannlæknum og viðskiptavin-
um þeirra tilhlýðilega kurteisi. f
samtölum hafi hann oft viðhaft ljót-
an munnsöfnuð og bréflega megi
greina offors og dónaskap. Embætti
tryggingatannlæknis þurfi lika að
endurskipuleggja og skilgreina. Sum
verk embættismannsins séu þess eðl-
is að hann beri að víta. Þau séu ekki
annað en lögbrot.
„Það er algjörlega óviðunandi
ástand sem ríkir í viðskiptum tann-
lækna við embætti tryggingatann-
læknis,“ segir Þórarinn Sigþórsson
tannlæknir. Hann segir jafnframt að
það sé alrangt mat sem fram kom í
fféttum DV að Reynir sé ekki gagn-
rýndur nema af tilteknum minni-
hlutahópi 13 tannlækna. Þórarinn
segist geta fullyrt að megn óánægja
ríki með störf Reynis í röðum tann-
lækna og sjúklinga þeirra um landið
allt. Nú síðast hafi fundur í Tann-
læknafélagi Norðurlands á Akureyri
samþykkt harðorða ályktun þar sem
fram koma kvartanir í garð embætt-
is tryggingatannlæknis. Það muni
koma í ljós á aöalfundi Tannlæknafé-
lags íslands sem haldinn verður í lok
október hversu víðtæk óánægjan er.
Tannlæknamir þrettán sem ósk-
uöu eftir að ályktað yrði um störf
tryggingatannlæknis á fundi í Tann-
læknafélagi íslands á fimmtudags-
kvöldið neita því að ályktunin feli í
sér að Reyni Jónssyni verði sagt upp
störfum í Tryggingastofnun. í henni
standi ekkert um uppsögn. Þeir neita
því þó ekki að þeir mundu fagna öðr-
um manni í starf hans og séu hreint
ekki einir á báti með þá skoðun.
Þórarinn segir að tryggingatann-
læknir hafi brotið lög með þvi að
breyta umsóknum frá sér og öðrum.
Honum sé fullkomlega óheimilt að
breyta meðferðaráætlunum og leggja
þar ofan í kaupið til meðferðir sem
sérfræðingar í stéttinni segi gjör-
samlega úreltar.
Gunnar Þormar tannlæknir sagði
í samtali við DV aö fundur tann-
lækna hefði aðallega verið boðaður
til að fjalla mn kjaramál tannlækna.
Þar hafi komið fram megn óánægja
með það hvemig stjóm Tannlækna-
félagsins hefur haldið á launamálun-
um. Málefni tryggingatannlæknis
hafi vissulega fengið mikið rými í
umræðunum og flest borið að sama
brunni í þeim lunræðum.
„Það var aðeins einn maður á
fundinum sem mælti gegn öllum hin-
um, vildi að farið yrði varlega í sak-
imar vegna samninga við Trygg-
ingastofnun, en það var líka eina
röddin sem heyröist sem ekki gagn-
rýndi störf og framkomu trygg-
ingatannlæknis. Það er óhætt að full-
yrða að ekki einn einasti maður á
fundinum mælti honum bót. Það
sem við viljum er að starfssvið trygg-
ingatannlæknis verði skilgreint nán-
ar. Maðurinn hefur enga yfirburða-
þekkingu á tannlækningum, hann
hefm* starfað á þröngu sviði tann-
lækninga en situr síðan í sæti sínu
og stjómar þaðan hvemig menn eigi
að meðhöndla sjúklinga sína. Hann
er kominn langt út fyrir sitt svið, því
verður ekki unað lengur og því verð-
ur að breyta,“ sagði Gunnar.
DV leitaði viðbragða Reynis Jóns-
sonar tryggingatannlæknis en hann
vildi ekki tjá sig um málið. -JBP
Átak gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum:
„Oþolandi og á
ekki að líðast“
Samtök verslunarinnar, Félag ís-
lenskra stórkaupmanna og Verslun-
armannafélag Reykjavíkur standa
fyrir sameiginlegu átaki gegn kyn-
ferðislegri áreitni á vinnustöðum
með útgáfu á upplýsingaefni. Ætlun-
in er að veggspjald með skilaboðun-
um „Kynferðisleg áreitni - snertir
fleira en þig gmnar“ veröi hengt upp
i öllum verslunarfyrirtækjum í land-
inu. Það verður gert til að vekja fólk
til umhugsunar um málið í von um
að hægt sé að sporna við því. Þess
má geta að árið 1992 var kynferöisleg
áreitni gerð refsiverð með lögum.
„Kveikjan að þessu máli er að
ýmsir aðilar höfðu samband við okk-
ur og sögðu frá reynslu sinni þar
sem upp höfðu komið vandamál á
vinnustað er vörðuðu kynferðislega
áreitni," segir Stefán Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Samtaka verslun-
Mánud. - föstud.
Fimmtudagar
Laugardagar
Sunnudagar
10:00
10:00
11:00
13:00
18:00
20:00
16:00
16:00
TM - HUSGOGN
W
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
arinnar. „Þeir leituðu til
félagsins í von um að fá
upplýsingar mn hvernig
þeir ættu að bregðast við.
Sama var uppi á teningn-
um hjá Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur."
Ákveðið var að stofna
sérstakan vinnuhóp sem
hefur m.a. útbúið bæk-
ling þar sem fjallað er um
kynferðislega áreitni á
vinnustað. í honum er
m.a. lýst í hverju kyn-
ferðisleg áreitni felst. Þar
stendur: „Kynferðisleg
áreitni getur m.a. birst
sem: Óæskileg líkamleg
snerting, viðkoma eða
klapp. Óvelkomnar að-
dróttanir, brandarar, at-
hugasemdir um útlit og
grófur munnsöfnuður.
Tvíræð og niðurlægjandi
tilboð. Klámmyndir á
vinnustað. Krafa um kyn-
ferðislegt endurgjald.
Líkamleg valdbeiting."
í bæklingnum stendur einnig að
kynferðisleg áreitni geti leitt til
streitu, reiði, þunglyndis, svefnleysis
og streitutengdra sjúkdómseinkenna
s.s. höfuðverks, húövandamála, melt-
ingartruflana o.fl. Kynferðisleg
áreitni hefur einnig áhrif á líðan ein-
staklingsins á vinnustað, afköst og
ekki síður á vinnuandann.
„Við teljum að áreiti af þessu tagi
sé óþolandi og eigi ekki að líðast á
vinnustöðum. Við vitum til þess að
vinnuveitendur hafa misst fólk úr
vinnu sem hefur hreinlega flúið úr
starfi vegna svona vandamála án
þess að vinnuveitendumir hafi haft
hugmynd um að eitthvað óeðlilegt
væri í gangi sem hugsanlega hefði
mátt bregðast við.“
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
segir að í þjóöfélaginu sé vaxandi
umræða um kynferðislega áreitni á
vinnustöðum.
„Þetta birtist okkur með tvennum
hætti. Annars vegar með því að við-
komandi manneskja hefur sagt upp
vegna þess aö hún hefur ekki haft út-
hald i þá áreitni sem hún hefur orð-
KfNFERÖISLh
Á R E11N i
- i' N £ R 1 I S f L t I R e.
E N Þ I b ö R U N A R
Veggspjaldið sem verður innan tíðar komið á
marga vinnustaði.
ið fyrir á vinnustaðnum. Hins vegar
eru dæmi um að viðkomandi mann-
eskju hefur verið sagt upp vegna
þess að hún vildi ekki una áreitn-
inni.“
Magnús segir að eflaust sé meira
um kynferðislega áreitni á vinnu-
stöðum en menn hafi gert sér grein
fyrir.
„Kannanir í sumum Evrópulönd-
um hafa sýnt að kynferðisleg áreitni
á vinnustöðum sé miklu meiri en
menn hafa gert sér grein fyrir.“ Töl-
ur í Evrópu sýna að allt að 10-40%
kvenna hafa orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni á vinnustað. „Flest lönd
í Evrópusambandinu hafa gripið til
ráöstafana með löggjöf, fræðsluher-
ferð eða leiðbeinandi reglum fyrir
vinnustaði og menntastofnanir. Inn-
an Evrópusambandsins er nú unniö
að sérstakri tilskipun um kynferðis-
lega áreitni sem mun væntanlega
einnig taka til Evrópska efnahags-
svæðisins. Það er því ljóst að margar
þjóðir líta á þetta sem mjög alvarlegt
vandamál, vilja sporna gegn því og
gera ráðstafanir til þess að þetta
verði í sem minnstum rnæli." -SJ
Þráhyggjumaður
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
hefur um árabil verið talinn einn
helsti hugmyndafræðingur Sjáifstæöis-
flokksins í hinum ýmsu málum. Áber-
andi hefur verið hve ákafur þessi fyrr-
um talsmaður fijálshyggj-
unnar hefur verið í vöm
sinni fyrir kvótakerfið
sem hann telur skólabók-
ardæmi um giftusama
framkvæmd frjálshyggj-
unnar. Þá hefur undan-
farin misseri fátt kom-
ist að hjá hugmynda-
fræöingnum annað en Jón Ólafsson
sjónvarps- og Skífumógúll. Meðal sjálf-
stæðismanna heyrast þær raddir að
Hannes sé ekki frjálshyggjumaður
frekar en Steingrímur J. Sigfússon
og heldur beri að kenna hann við þrá-
hyggju. Tími sé kominn fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn til að losa sig við hann og
þar með þau óþægindi sem fylgi síend-
urteknum tuggum Hólmsteinskunnar...
Aftur á þing
A Norðurlandi vestra em ýmsir farn-
ir að renna hýru auga til efsta sætis á
lista sameinaðra vinstrimanna. Alþýöu-
bandalagsmenn eiga fyrir þingmanninn
Ragnar Arnalds sem ætlar að hætta.
Sveinn Allan Morthens,
sem vék sér tímabundið i
Þjóðvaka, vill nú efsta
sætið sem allaballi og
sama máli gegnir um
Önnu Kristfnu Gunn-
arsdóttur, fyrrum bæj-
arfulltrúa á Sauðár-
króki. Alþýðufiokks-
menn náðu ekki manni síðast. Nú er
hins vegar gamall þingmaður þeirra
kominn á kreik og vill endurheimta sæt-
ið. Það er Siglfirðingurinn Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson sem Stöð 2 gerði
frægan um árið meö því að sýna í upp-
hafi hvers fréttatíma myndskeið af því
þegar Jón gekk af miklu kappi á hurð-
ina inn i þingsalinn svo glumdi í...
Kvensamur klerkur
Læknirinn söngelski á Flateyri,
Lýður Árnason, nýtur hylli í héraði
sínu fyrir sönglist. Hann er ásamt fé-
lögum sínum á fleiri sviðum afþreying-
ariðnaðarins og hefur gert nokkrar
stuttmyndir sem hlotið
hafa athygli. Nú mun
hugmyndin sú aö gera
mynd hvar kemur við
sögu prestur. Tii þess að
hafa ailt sem eðlilegast
! bað Lýður séra Baldur
Vilhelmsson, prófast
og gleðigjafa í Vatns-
firði, að taka að sér hlutverk „kynvillts
klerks". Baldur er sagður hafa brugðist
ókvæða við bón læknisins og þvertekið
fyrir að leika slikan ódrátt. Læknirinn
baö Baldur aö anda rólega, annað
prestshlutverk væri á lausu í mynd-
inni þar sem til sögu kæmi „kvensam-
ur og drykkfelldur klerkur". Þessu
fagnaði prófasturinn mjög og vildi vita
hvar og hvenær tökur hæfust...
Stuð á Árna
Hinn öflugi leiðtogi sjálfstæöis-
manna í Kópavogi, Gunnar Birgis-
son, sækir fast að fyrsta sæti á þing-
lista flokksins effir að Ólafur G. Ein-
arsson, þingforseti og efsti maður list-
ans um árabil, ákvað að
hætta. Sterk staða Gunn-
ars í Kópavogi mun þó
tæpast duga því einhug-
ur virðist vera að skap-
ast um Áma M.
Mathiesen. Gunnar
mun þó örugglega ná
öruggu sæti ofarlega á
listanum. Ásgerður HaUdórsdóttir af
Seltjamamesi er talin geta komið á
óvart en hún er eina konan fyrir utan
Sigríði Önnu Þórðardóttur, sem
margir spá öðm sæti. í Grindavik er
einnig ungur maður, Stefán Tómas-
son, sonur Tómasar Þorvaldssonar,
sem hefur komið sterkur inn í umræð-
unaog vili annað tU þriðja sætið. Hann
gæti öllum á óvörum skotist upp á
milli þingmanna...
Umsjón Reynir Traustason
<
1
I
i
í
í
1
1
1
1
1
1
Netfang: sandkom @ff. is