Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 stuttar fréttir Misnotaði milljarðalán Ríkissaksóknari Rússlands og forseti neöri deildar rússneska þingsins sökuðu í gær seðlabanka landsins og fyrri ríkisstjómir um að hafa misnotað milljarðalán frá erlendum lánastoftiunum. Sviptur þingheigi Albanska þingið svipti í gær Sali Berisha, fyrrverandi forseta Alban- íu og leiðtoga stjómarandstöð- unnar, þinghelgi. Þar með verður hægt að ákæra hann fyrir til- raun til uppreisn- ar. Berisha hvatti í gær Fatos Nano 1 forseta tU að segja af sér. Talebanar leita til SÞ Leiðtogi talebana í Afganistan, iMohammad Omai', hvatti í gær Sameinuðu þjóðimar, SÞ, tU að aðstoða við að leysa ágreining þeirra við íran. Genfarlögga í verkfalli S Lögreglan í Genf fór í eins dags verkfali í gær. Yfirvöld skulda í lögreglumönnum 400 þúsundir yf- irvinnustunda. Skotið á flóttamenn Lögreglan í Nepal skaut á 52 I flóttamenn frá Tíbet. Einn lést og | annar særðist. Átök á Vesturbakkanum I Átök urðu mUli hundraða | stuðningsmanna Hamassamtak- anna og ísraelskra hermanna á f Vesturbakkanum í gær. Forseti í skilnaðarmáli Forseti Austurríkis, Thomas KlestU, og kona hans, Edith, hafa skUið eftir 40 ára hjónaband. Ed- ith flutti út fyrir 5 ámm eftir að hún frétti um framhjáhald eigin- 1 mannsins. Japansstjórn gefur sig Japansstjóm hefur látið undan stjómarandstöðunni og ákveðið að draga úr völdum fjármálaráðu- neytisins í málefnum banka og Qármálamarkaða. Hoppaði af kæti Elísabet Englandsdrottning, sem er í heimsókn hjá soldáninum í Bmnei þar sem hún snæddi steik af gulldiskum, varð svo hrifin af námskeiðum þar í landi fyrir konur um hættur og kosti hjóna- bandsins að hún hoppaði af kæti. Stakk drottning upp á því við utanríkisráðherra sinn, Robin Cook, að slík námskeið yrðu haldin í Bretlandi. Þrjú af fjórum bömum drottningar hafa skUið við maka sína. Netþjónusta í Danmörku: Lítill arður Mestur vaxtarhraði atvinnu- greinar i Danmörku er í hvers konar netþjónustu, fréttaflutningi og kynn- ingarstarfsemi á Netinu, samkvæmt könnun sem gerð var meðal 266 fyrir- tækja í slíkri starfsemi. Gert er ráð fyrir því að í ár velti atvinnuvegur- inn 250 mUljörðum danskra króna sem er um helmingsaukning miðað við fyrra ár. Starfsmannafjöldi hefur einnig aukist um helming. Verr gengur hins vegar með arð- semi fyrirtækja í netþjónustu því að aðeins 84 af þeim 266 sem þátt tóku í könnuninni skUuðu hagnaði á síðasta ári og ekki útlit fyrir að þeim fjölgi á þessu ári. Hagnaðurinn var heldur ekki mikiU, eða að meðaltali um 100 þúsimd danskar krónur eftir skatta. Könnunin var gerð að frumkvæði tveggja meginsamtaka netþjónustufyr- irtækja í Danmörku og voru spum- ingalistar sendir út tU samtals 460 fyr- irtækja en aðeins 266 þeirra svömðu og veittu upplýsingar um veltu, fjölda starfsmanna og eignarhald. Upptakan gerð opinber Myndbandsupptakan með vitnisburöi Bilis Clintons Bandaríkjaforseta um samband hans og Monicu Lewinsky veröur gerð opinber á mánudaginn. Símamynd Reuter. Dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings ákvað í gær að gera opinbera á mánudaginn mynd- bandsupptöku með vitnisburði BiUs Clintons Bandaríkjaforseta frammi fyrir ákærukviðdómi Kenneths Starrs saksóknara í ágúst síðastliön- um. Auk þess var ákveðið að gera opinberar yfir 2000 síður af gögnum rannsóknar Starrs á sambandi for- setans og Monicu Lewinsky, fyrrver- andi lærlings í Hvíta húsinu. Monica Lewinsky kom tvisvar fyrir ákærukviðdóm Starrs. FuUyrt var í gær að lýsingar hennar á sam- bandi hennar og Clintons í skýrslu Starrs væru sakleysislegar væru þær bornar saman við óritskoðuðu gögnin. Skýrsla Starrs byggir aðal- lega á framburði Monicu en hún byggist einnig á þeim stefnumótum sem hægt er að fá staðfest í dagbók Hvíta hússins um heimsóknir og vitnisburði starfsmanna hússins. En Monica mun einnig hafa lýst í smáatriðum 10 til 15 kynlífssamtöl- um sínum við forsetann í sima. Monica er jafnframt sögð hafa lýst einu tilfeUi þar sem hún og forset- inn notuðu annað leikfang en vind- Uinn umrædda. Demókratar eru æfir yfir birtingu gagnanna. Segja þeir lýsingarnar viðbjóðslegar og ekki skipta máli. Meira að segja repúblikanar hikuðu við að gera aUt opinbert af ótta við að þeir yrðu sakaðir um að dreifa klámi á Netinu og í öðrum fjölmiöl- um. Það hæfir ekki þeirri mynd sem flokkurinn reynir að búa tU af sjálfum sér. Repúblikanar óttast einnig að birting myndbandsupp- tökunnar og gagnanna komi niður á þeim í kosningabaráttunni sem stendur fyrir dyrum. Auk þeirra gagna sem þingið hef- ur þegar fengið frá Starr viU for- maður dómsmálanefndar fuUtrúa- deUdar Bandaríkjaþings, Henry Hyde, sem varð ekki glaður er hann í vikunni neyddist tU að viðurkenna framhjáhald fyrir nokkrum áratug- um, einnig fá myndbandsupptöku með vitnisburði Clintons frá því 17. janúar síðastliðinn er hann tjáði lögmönnum Paulu Jones að hann hefði ekki staðið í kynferðislegu sambandi við Lewinsky. Sagði Hyde í gær að sú myndbandsupptaka yrði gerð opinber um leið og dómsmála- nefndin hefði skoðað hana. Sjónvarpspredikari, Robert SchuUer, lýsti því yfir í gær að hann héldi að Bandaríkjaforseti hefði verið að ljúga er hann neitaði í samtali þeirra að hafa áreitt Paulu Jones kynferðislega. Skömmu áður en tilkynnt var í gær að myndbandsupptakan yrði gerð opinber greindi talsmaður ítalska tískuhússins Gattinonis að Monica Lewinsky hefði samþykkt að koma fram á tískusýningu þess í MUanó í október. Aðspurður hvers vegna tískuhúsið hefði leitað tU Lewinsky sagði talsmaðurinn, Giovanni Ciacci, að hún væri búin að vera í Bandaríkjunum. „Hvað getur hún gert annað en að flýja tU Evrópu? Og hver vekur meiri athygli núna?“ Heimilishjálp Schyman: Sahlin ekki hneyksluð „Vegna þess sem ég hef gengið í gegnum vil ég ekki vera dómari í svona málum,“ sagði Mona Sahlin, fyrrverandi aðstoðarforsætisráð- herra Svíþjóðar, þegar hún var spurð um vandræði Gudrun Schy- man, leiðtoga Vinstriflokksins. Schyman gagnrýndi á dögunum þá sem ráða sér heimUishjálp gegn svörtum greiðslum. Stuttu seinna kom í ljós að hún hafði sjálf greitt frænku sinni þúsundkafl af og til fyrir þrif án þess að gera skattayfir- völdum grein fyrir því. Mona Sahlin, sem hrökklaðist frá völdum er í ljós kom að hún hafði oftar en einu sinni notað kritarkort ríkisins í eigin þágu og dregið að endurgreiða, bætir því þó við að röksemdafærsla Schyman verði að vera í takt við raunveruleikann. Mona er ekki hneyksluð á að Gudrun Schyman hafi ekki greint skattayfírvöldum frá greiðslunum fyrir þrifin. Mona hefur tekið þátt í kosninga- baráttu jafnaðarmanna að undan- fórnu. Augljóst þykir að hún hafi enn persónutöfra því húsfyllir hefur verið þar sem hún hefur komið. Kauphallir og vöruverð erlendis New York Dow Jonos J J Á S Sykur 400 300 200 ÍUU o^ 218 . $/t J J A S Kaffí 1500 mnn ÍUUU 500 0- $/t 1660 J J A S ; Frankfurt DAX40 Bertsin 95 okt. HongKong J Hang S«ng 20000 15000 10000' 5000 llsstsisBB - 7859,74 J J Á s Norska ríkis- stjórnin verst menntuð Nú hefúr enn eitt áfallið dun- s ið yfir norsku ríkisstjómina. | Hún er neðst á lista yfir mennt- I; unarstig 27 ríkisstjórna. Aðeins 39 prósent norsku ráð- j herranna eru með háskóla- gráðu. í átta löndum, þar á með- í al í Bandaríkjunum og Eng- landi, em allir ráðherramir út- | skrifaðir úr háskóla. Þetta er j niðurstaöa tveggja Svia sem stunda nám í stjómmálafræði S við Santa Monica Coflege í Kali- | förníu. Norska sfjómin er á j svipuðu stigi og almenningur í f Noregi. Um 40 prósent þjóðar- 1 innar hafa gengið í háskóla. Menntamálaráðherra Noregs, í Jon Lilletun, hefur ekki áhyggj- ur af falleinkunn norsku stjórn- S arinnar. „Ég hefði meiri áhyggj- ur ef allir ráðherramir væm há- I skólamenntaðir. Styrkurinn felst í því að menn em með | reynslu frá ólíkum sviðum," § segir hann í viðtali við norska j blaðið Verdens Gang. Of mikið heima- nám getur haft slæm áhrif ’ Skólabörn hafa löngum vitað I að of mikið heimanám getur j verið slæmt fyrir þau. Núna j hafa tveir fræðimenn frá Lund- únaháskóla tekið undir þessa j skoðun skólabamanna. ! Niðurstaða rannsóknar dokt- oranna Susan Hallam og Ric- hards Cowans er sú aö heima- j nám barna undir 12 ára aldri j geti leitt til gífurlegrar spennu j hjá fjölskyldum. Segja fræði- mennimir að heimavinna geti haft niðurdrepandi áhrif á fjöl- skyldulíf, sérstaklega um helgar, þegar fjölskyldur vilja verja tím- anum sem mest saman. Breska ríkisstjómin hefur ný- lega hvatt börn og foreldra þeirra til að grúfa sig yfir heimanámið á hverju kvöldi. j Stjórnvöld gáfu nýlega út leið- beiningar um heimanám fyrir j börn, allt niður í 4 ára. I leið- 5 beiningunum segir að bömin 1 eigi að lesa heima í 10 mínútur j á hverjum degi. Hættulegra fanga leitað í Svíþjóð Tveir af hættulegustu glæpa- j mönnum Svíþjóðar sluppu frá vörðum sínum þegar farið var með þá á pósthús í Örebro á Ifimmtudaginn. Á pósthúsinu áttu fangarnir að fá að greiða atkvæði í kosningunum sem haldnar verða á sunnudaginn. Annar fanganna, nasistaleiðtog- inn Niclas Löfdahl, sendi fyrr á þessu ári bréfasprengju til 1 dómsmálaráðherra Sviþjóðar, Lailu Freivalds. Hún særðist I ekki við tilræðiö. Fangamir voru vistmenn á geðsjúkrahúsi. Sjúkrahúsverðir fylgdu þeim á pósthúsið. Lög- ; reglan gagnrýnir að hún skuli 1 ekki hafa verið beðin um aðstoð úr því að ákveðið var að leyfa : mönnunum að greiða atkvæði ; utan sjúkrahússins. ígær taldi ;! lögreglan að Löfdahl hefði tekist I aö komast til Stokkhólms. Efást um einkavæðingu 1 Færeyjabanka I Bankastjóri Færeyjabanka, ; Jom Astrup Hcmsen, efast um að 1 bankinn verði einkavæddur þrátt fyrir tilmæli sérfræðinga. Hansen telur aö færeyskir j stjórnmálamenn hafist ekkert að í málinu vegna ósamkomulags í um einkavæðinguna. .n—,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.