Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Síða 15
15 s LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 Kárínur erfðanna Fyrir röskum tuttugu árum gáfu nokkrir stúdentar við Háskólann út gagnrýnið tímarit um raunvísindi. Við vorum öll ýmist í náttúrufræð- um eða verkfræði enda hét ritið því frumlega nafni: Náttúruverkur. Það voru ekki nema rétt tveir áratugir frá því Watson og Crick höfðu lýst uppbyggingu erfðaefnisins og fengið Nóbelsverðlaun fyrir, og erfðavís- indin voru í þann mund að taka á sig byltingarhaminn sem hefúr ein- kennt þau síðan. Framtíðarkárar Eitt af því sem við veltum fyrir okkur voru möguleikamir sem hin öra framþróun innan erfðafræðinn- ar gæti leitt til. Við lágum yfír text- um framtíðarspámanna sem sögðu réttilega fyrir að áður en öldin hnigi til viðar yrði búið að þróa tækni sem dygði til að kortleggja öll gen mannsins. í kjölfarið myndu hvers konar kárar fmna stök mein- gen sem eru undirrót að minnsta kosti 3-4000 sjúkdóma og heimur barnabama okkar yrði miklu betri. Sum okkar veltu þó fyrir sér skuggahliðum erfðavísindanna. Fútúristamir sáu fyrir sér einfóld próf, sem stórfyrirtæki myndu þróa til að hver og einn gæti prófað á sjálfum sér heima í eldhúsi hvort hann byggi yfir genum sem væra líkleg til að þróa með honum sjúk- dóma eða jafnvel draga til dauða fyrir aldur fram. Við vorum líka meðvituð um samspil umhverfis og erfða, og gerðum okkur grein fyrir að gen, sem við flestar aðstæður væru skaðlaus, gætu í tilteknu vinnuumhverfi leitt til þess að sjúk- dómar sem ella hefðu sofið átaka- lausum svefni, vöknuðu af dvala til þess eins að gera óskunda i líköm- um vinnandi fólks. í framhaldi af þessu vaknaði hin eðlilega ályktun að þróim erfðavís- indanna gæti leitt til eins konar genakorta fyrir sérhvem einstak- ling sem yrði hægt að nota til að segja fyrir um hæfni þeirra til að starfa í umhverfi við tilteknar að- stæður. Sumir hefðu ekki upplag til að vinna tiltekna erfiðisvinnu án þess að fá slitsjúkdóma meðan aðrir hentuðu ekki til að starfa við iðnað þar sem ákveðin efhi væra notuð. Skuggaleg ranghverfa I fýrstu fannst okkur þetta heill- andi dæmi um hvemig framþróun vísindanna gæti leitt til þess að sér- hver fyndi sér iðju sem yrði klæð- skerasniðin að arfgerð hans. Lífið yrði átakaminna, hættuiausara, og að lokum betra. En fljótlega sáum við á þessu skuggalega ranghverfu. Við krapp- ar aðstæður í efhahagslífi þjóðanna gætu atvinnurekendur hæglega not- að genaprófm til að velja þá sem hæfðu þeim til framieiðslunnar, en hafha hinum. Við ailar aðstæður, hvort heldur góðæri eða kreppu, myndu einstaklingar með erfðir sem líklegar væra til að leiða til erf- iðra og kostnaðarsamra sjúkdóma, lenda á öskuhaug varanlegs at- vinnuleysis. Enginn myndi vilja þá í vinnu. Við bárum þetta að lokum undir okkur miklu fróðari og lærðari menn í fræðunum. Þeim fannst þetta alltsaman heldur fráleitt. í fýrsta lagi væri allsendis óvíst að nokkum tíma tækist að einangra meingen í þeim mæli að hægt væri að spá fyrir um hvaða líkur væra á að menn fengju arfgenga sjúkdóma einhvem tíma á lífsleiðinni. í öðra lagi yrði aldrei hægt að þróa einfold próf sem gerðu kleift að kortleggja þannig erfðir hjá þorra vinnuafls þjóðanna. í þriðja lagi kæmi slíkt heldur aldrei til greina i siðuðu samfélagi. Við tókum þessi rök gild og hætt- um við að skrifa lærða grein í Nátt- úraverk um skuggahliðar erfða- fræða framtíðarinnar. í staðinn tókum við firnalangt viðtal um virkjanir við iðnaðarráðherra sem hét Hjörleifur Guttormsson. Erfðatengdar forvamir Hin skuggalega bakhlið á framtíð erfðafræðinnar sem við grilltum i yfir skræðum i bókasafni liffræði- deildarinnar reyndist hins vegar ekki jafn fráleit og okkm- vísari menn töldu þá. Engin vísindagrein er i dag i jafn örri þróun og erfða- vísindin. ísögunni verður næsti áratugur skráður sem skeið erfðalestursins, þegar loks varð hægt að spá í innsta kjama einstak- lingsins, skrá sérhvert gen hans og búa til genakort fýrir ófæddan ein- stakling sem speglar líkur á hvers konar sjúkdóma hann er líklegur til að fá í framtíðinni. Laugardagspistill Össur Skarphéðinsson ritstjóri Þegar forstjóri íslenskrar erfða- greiningar tók til vama fýrir um- deilt auglýsingaplagg sem deCode Genetics hafði sent á lyfjafyrirtæki, þar sem meðal annars var lýst að innan tiðar myndi fýrirtækið ráða yfir upplýsingum um arfgerð næst- um allra íslendinga, byggðist vöm- in meðal annars á hinni jákvæðu hlið altækrar vitneskju um erfðir mannsins. Hann benti á að flestir sjúkdómar lytu einhvers konar arf- gengi og með því að kortleggja gen einstaklinganna væri hægt að sér- sníða forvamir að þörfum sérhvers. í einni af hverjum fimm hundrað konum er að jafnaði að finna stökk- breytingu í stóra geni sem kallast BRCAl. Breyting í því getur haft í for með sér allt að 85% líkur á krabbameini i brjósti, og 50% á krabbameini í legi. Stökkbreyting í BRCA2 eykur einnig líkur á brjóstakrabba hjá konum, og veldur bijóstakrabba hjá körlum. Eykur það ekki líflíkur þeirra sem bera ofannefnd gen að vita af tilvist þeirra? Efalítið. Slík vit- neskja gæti orðið óþægileg og skap- að sáifræðileg vandamál. En hún myndi einnig gera þeim sem genin bera kleift að haga lifsstíl sínum með þeim hætti að draga sem mest úr líkum á að krabbameinið þróist. Mestu skiptir þó að vitneskjan um tilvist gensins gefur færi á að hafa ítarlegt eftirlit með heilsu þess sem ber genið. Því er líklegt að sjúkdóm- urinn finnist miklu fýrr en ella. Að sama skapi verður auðveldara að ráða niðurlögum hans. Kortlagning á genum ein- staklinga mun því leiða til að auð- veldara verður að koma við vömum gegn arfbundnum sjúkdómum með skipulegu eftirliti og með breyting- um á lífsstíl. Misnotkun á erfðaupplýsingum Greining á erfðum einstaklinga felur þó einnig í sér miklar hættur. Upplýsingar um líkur á erfðatengd- rnn sjúkdómum er auðvelt aö mis- nota gróflega með tvennum hætti: í fyrsta lagi geta atvinnurekendur notað þær til að sneiða hjá því að ráða starfsmenn sem að þeirra mati era óæskilegir. Það gætu bæði ver- ið einstaklingar með gen sem ykju likur á að viðkomandi þyldi illa til- tekin störf, og eins hinir, sem líkleg- ir væra vegna arfgerðar að fá arf- bundna sjúkdóma. Með slíkar upp- lýsingar í höndum myndu atvinnu- rekendur freistast til að sneiða hjá þeim starfsmönnum sem vegna arfgerðar væra líklegir til að verða „dýrir“ í rekstri fyrirtækja. Tryggingafélög myndu sömuleið- is geta notfært sér erfðaupplýsingar til að láta þá, sem vegna erfða væra líklegir til að fá erfiða sjúkdóma, greiða hærri iðgjöld. Þau gætu jafn- vel hafhað þeim alveg, eins og er þekkt meðal gyðinga af austur-evr- ópskum toga sem búa i Bandaríkj- unum, og hafa háa tíðni tiltekinna meingena. Genakort fyrir sérhvern ein- stakling getur því leitt til þess að líf sumra yrði miklu erfiðara fyrir vik- iö, jafnvel óbærilegt. Til að erfðavís- indin geti þróast eðlilega, og án þess að skapa nýjar hættur fýrir vemd og öryggi einstaklingsins, þarf þvi löggjafinn að grípa inn með lög- bundnum fyrirmælum um meðferð slíkra upplýsinga. Hann verður að banna þá misnotkun sem hér er lýst. Annars er hætta á að ný tegund mismunar, sem grundvallast á erfðum einstaklinganna, ryðji sér til rúms í heiminum. Hrollvekjandi framtíð í Bandaríkjunum hafa bæði stór- fýrirtæki og liftryggingarfélög gert sér grein fyrir þeim möguleikum sem fullkomnar upplýsingar um arfgerð einstaklinga búa þeim til að auka hagnað sinn á kostnað al- mennings. Þegar fyrir tíu áram gerði Northwestem National Life Insurance könnun meðal 400 stór- fýrirtækja á viðhorfum þeirra til notkunar á eríðaupplýsingum. Niðurstaðan var skuggaleg. Stjómendur 15% þeirra gerðu ráð fyrir að árið 2000 myndu þeir nota greiningu á erfðum umsækjenda - og fjölskyldumeðlima þeirra - til að velja sér starfsmenn. Sama ár leiddi könnun meðal 330 fyrirtækja og stofnana í ljós að 5% þeirra notuðu þá þegar einhvers konar erfðagrein- ingu við val á starfsfólki. Innan skamms verður hægt að greina hvert einasta gen mannsins og segja næsta nákvæmlega til um hvaða líkur era á arfbundnum sjúk- dómum. Þá mim viðleitni til að mis- nota erfðaupplýsingar með ofan- greindum hætti vitaskuld stór- aukast. Þróunin er þegar skelfileg. Fyrir tveimur árum var gerð könnun í Bandaríkjunum meðal fólks með þekkta arfbundna sjúkdóma og for- eldra barna með arfgerð, sem líkleg var til að leiða til sjúkdóma. Spurt var hvort meingenin hefðu leitt til mismununar. Af þeim 917 sem svör- uðu höfðu fleiri en 200 sætt einhvers konar mismunun. Könmm meðal starfsmanna í heilbrigðis- þjónustu, sem sinntu fólki sem ekki hafði sýnt merki sjúkdóma en var vegna arfgerðar sinnar líklegt til að fá þá síðar á ævinni, leiddi í ljós mýgrút dæma um mismunun af hálfu atvinnurekenda og tryggingafélaga. Bann við mismunun Þróunin hér á landi er líkleg til að verða svipuð. Nú þegar stefnir íslensk erfðagreining að því að kort- leggja gen allra íslendinga. Engum blandast hugur um að markmiðið er gott. En safn upplýsinga af því tagi býður upp á misnotkun. Þess vegna er tímabært að setja þegar lög sem banna hvers kyns mismunun á grundvelli erfða. Það er útilokað að heimila miðlægan gagnagrunn nema setja slík lög samhliða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.