Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Síða 20
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 I IV ★ 20 ir viðtal ---- Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, með nýtt leikrit: „Ég vona aö ég þurfl aldrei aö svara spurning- unni um hvort ég er mynd- listarmaöur eöa rithöfundur í einhverri alvöru. Ég byrj- aöi ellefu ára gamall aö teikna af ástriöu, skrifa og gefa út blöö og þetta hefur haldist í hendur síöan. Þetta var einu sinni raunveruleg spurning fyrir mig af því að ég hélt að ég þyrfti að svara henni. En ég er alltaf aö draga þaö og á meöan held ég áfram aö gera það sem mig langar til aö gera. Á meöan þaö er ekki bannað með lögum aö skrá sig meö tveimur starfsheitum í síma- skrána þá geri ég það. “ í gærkvöldi var frumsýnt nýtt ís- lenskt leikrit hjá Hafnarfjarðarleik- húsinu. Verkið heitir Við feðgamir og er eftir Þorvald Þorsteinsson sem eins og kunnugt er hefur fengist við myndlist og ritlist jöfnum höndum. Fyrri verk Þorvalds eru m.a. í til- eftii dagsins sem sýnt var á Óháðri listahátíð 1992, bamaleikritið Skila- boðaskjóðan sem sýnt var á Stóra sviöi Þjóðleikhússins 1993, Maríu- sögur sem sýndar vom íNemenda- leikhúsinu 1995 og Bein útsending sem sýnd var í Loftkastalanum í fyrra, auk þess sem Þorvaldur átti þrjú verk í Sunnudagsleikhúsi Sjón- varpsins á síðasta vetri. Þorvaldur er staddur í norrænni gestavinnustofu í 'Litháen þar sem hann er að ljúka við bamabók sem kemur út hjá Bjarti í haust. Hann er einnig að vinna að tveimur mynd- listarsýningum sem verða í Hollandi og Frakklandi á næsta ári. Þorvald- ur missir af frumsýningimni. Ómáluð íbúð í Sundunum „Leikritið gerist i ómálaðri íbúð í Sundunum þar sem feðgar em að flytja inn saman tímabundið," segir Þorvaldur. „Við þessar aðstæður þar sem verið er að taka upp úr kössunum má segja að skapist ákveðnar spum- ingar: T.d. hvað eigi að taka mikiö upp úr gömlum kössum og hvað eigi að láta liggja. Systir sonarins, íbúðareigandans, kemur einnig við sögu, enda þeir feðgar ekki vanir að gera mikið án þess að hún hafi hönd í bagga. Síð- an bætast óvæntir gestir í hópinn.“ Vanmáttarkennd og bitlaus verkfæri „Það má segja að það hafi aldrei kviknað eiginleg hugmynd að þessu verki. Þetta er eitt af þessum verk- um sem maöur sækir eitthvert ofan í maga. Ég lagði einfaldlega upp með þörf til að skapa aðstæður, myndir og tilfinningar sem snúast um þessa tegund samskipta. Það má segja að nokkur orð liggi til gmnd- vallar frekar en hugmynd: Vanmátt- urinn gagnvart aðstæðunum og í samskiptum við annað fólk, ekki síst sína nánustu; löngunin til þess að komast áleiðis með bitlausum verkfærum sem eru held ég ástand og aðstæður sem mjög margir em að glíma við. Að vita ekki alveg hvemig þeim líður, hvers vegna og þá ekki hvernig á að gera eitthvað í „Ég held að hið endanlega drama muni fara með mig en þangað til sætti ég mig við þau örlög að búa til leikrit sem fólk lætur eftir sér að skemmta sér yfir, þó með einhverja grunsamlega bakþanka í brosinu." DV-mynd E.ÓI. „Mér finnst beinlínis heillandi við leikhúsið að þar kemst maður ekki upp með að vinna með tánum og rassgatinu. Þar er ég miskunnarlaust dreginn til ábyrgðar og það finnst mér stundum vanta í myndlistarmannshlutverkið." Eggert Þorleifsson f hlutverki föðurins og Gunnar Helgason f hlutverki sonarins. DV-myndir Teitur Fjölskyldan bitastæður efniviður Oft er sett samansemmerki milli þess sem menn lifa og skrifa. Skyldi leikritið Við feðgamir vera byggt á eigin reynslu höfundarins? „Kannski ætlaði ég einhvern tíma að skrifa leikrit sem væri byggt al- gjörlega á eigin reynslu en ég held að ég sitji uppi með verk sem er að- eins hæfilega tengt minni eigin fjöl- skyldu. Það er mikil synd því að þar er svo mikill og bitastæður efnivið- ur. Þannig að enn verður fjölskylda mín að liggja óbætt hjá garði. Ég reyni þó að hafa ekki miklar áhyggjur af því hvaðan þetta kemur á meðan ég er að skrifa. En til þess að gæta allrar sanngimi, því að karlinn er kannski ekki sá sem feð- ur vilja líkjast, þá á hann fátt skylt með mínum föður. En vissulega er hann ekki alveg úr lausu lofti grip- inn fremur en annað í þessu verki.“ því að breyta ástandinu. Við grípum oft til furðulegustu verkfæra. Við erum oft að reyna að segja eitthvað raunverulegt sem við náum ekki utan um og endum kannski á því að sýna borvélina okkar. í þessu leikriti em ekki bor- vélar en það eru annars konar verk- færi sem hafa sum hver augljóslega verið sýnd mjög oft. Það er einn harmurinn í þessu verki hvað það er mikil framsóknarlykt af því og hvað það er búið að jaska út sumum tólunum sem verið er að reyna að nota til að segja frá líðan eða löng- unum. Það er óneitnalega grátbros- legt. Þetta leikrit er enn ein tilraunin hjá mér til að búa til harmleik sem endar í tragíkómedíu. Mér tekst aldrei að búa til dramað sem ég er alltaf að fara að búa til. Ég held að hið endanlega drama muni fara með mig en þangað til sætti ég mig við þau örlög að búa til leikrit sem fólk lætur eftir sér að skemmta sér yfir, þó með einhverja grunsamlega bak- þanka í brosinu." „Kannski ætlaði ég einhvern tima að skrifa leikrit sem væri byggt algjörlega á eigin reynslu en ég held að ég sitji uppi með verk sem er aðeins hæfilega tengt minni eigin fjölskyldu. Það er mikil synd því að þar er svo mikill og bitastæður efniviður. Þannig að enn verður fjölskylda mín að liggja óbætt hjá garði." DV-mynd Teitur Forspárgildi leikrita „Þetta verk er ekki unnið á ósvipaðan hátt og Maríusögur, út frá tilfinningalegri afstöðu frekar en löngun til að segja og ljúka sögu. Ég held að þau vinnubrögð bjóði upp á það að maður glæpist á að tala um eitthvað raunveru- legt. Svona vinnuaðferðir geta jafnvel haft forspárgildi. Sumt sem ég skrifaði um i Maríusögum kom á daginn tveimur árum síðar. Það voru ákveðnar spumingar og ákveðnar aðstæður sem verkið lýsti sem voru ómeðvitað í deigl- unni, en komu ekki upp á yfir- borðið fyrr en síðar. Ég hlakka til að vita hvað er á ferðinni í þessu nýja verki. Kannski kemst ég aldrei að því.“ Leikhúsið meiri raunveruleiki „í myndlistinni hef ég verið að glíma við ákveðin gildi í samfélag- inu, ákveðin samskiptaform þar sem ég stend meira fyrir utan og horfi og hef komist upp með að gera miklu minna. í myndlist þarf stundum að gera svo lítið til þess að gera mikið, til þess að eitthvert ómeðvitað ferli fari í gang sem ég stjórna ekki. í leikhúsinu kemst ég ekki eins auðveldlega hjá því að taka tilfinningalega afstöðu í hverju máli, í hverju augnabliki verksins, og ég þarf að klára hugs- unina nægilega vel til þess að leik- arar og leikstjóri geti unnið sína vinnu og mótað sína afstöðu. Það er eðli samtalsins og leikhússins að krefja mann stöðugt um af- stöðu. Mér finnst beinlínis heill- andi við leikhúsið að þar kemst maður ekki upp með að vinna með tánum og rassgatinu. Þar er ég miskunnarlaust dreginn til ábyrgðar og það finnst mér stund- um vanta í myndlistarmannshlut- verkið. Það er meira leikhús í þessu myndlistarstarfi en margan grunar. Leikhúsið er stundum meira í líkingu við raunveruleik- ann. Það er hin gamla klisju- kennda þverstæða í þessu. Annars finnst mér mjög erfitt að skrifa leikrit. í hvert skipti sem ég hef gert leikrit síðustu ár heiti ég mér því að gera þetta aldrei aftur. Mér finnst þetta einfaldlega svo krefjandi. Ég ber mikla virðingu fyrir leikhúsinu og flnnst þetta mikil ábyrgð því að það eru svo margir sem leggja allt sitt í þetta og verða að trúa manni og treysta. Þá getur verið erfitt að standa undir því og finna samsvörun milli sinna eigin takmörkuðu hæfileika og hinnar miklu upp- söfnuðu reynslu og hæfileika sem bíður manns inni í leikhúsinu." í afneitun Skyldi það ekki vera undarleg tilfinning að missa af frumsýningu eigin verks? „Ég á eftir að upplifa það. Mér finnst það mjög skrítin tilhugsun. Ég er í afneitun og er ekki húinn að horfast í augu við það að missa af frumsýningunni. En ég fer í leikhús. Ég er búinn að panta mér miða á sýningu Rimas Tuminas, hins mikla íslandsvinar, á fostu- dagskvöldiö þannig að ég verð í leikhúsinu. Að því gefnu að leik- húsheimurinn sé tengdur eftir ein- hverjum grunsamlegum leiðum og að æðakerfið sé virkt þá verð ég svona næstum því á sýningunni. Ég kemst alla vega ekki öllu nær því en svona.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.