Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
Haustlitaferð Útivistar í Bása:
Loftið tærara og birtan skarpari
- haustið góður tími til ferðalaga
Mörgum finnast feröalög og útivist
fyrst og fremst tengjast sumartíman-
um. Aðrar árstíðir gefa þó sumrinu
ekkert eftir hvað náttúrufegurð varð-
ar. Enda er það svo að sá árstími sem
nú fer í hönd er að sumra dómi
skemmtilegasta árstíðin og alls ekki
síðri en sumarið til að njóta útivist-
ar.
Á haustin skartar náttúran
sterkustum litum og fjölbreyttustum.
Loftið er oft tærara og birtan skarp-
ari en yfir sumartímann. Á svæðum
þar sem mikið er um lauftré og lyng
má jafnan sjá fegurstu haustlitina.
Ferðafélagið Útivist hefur staðið
fyrir hefðbundnum helgarferðum í
Bása á Goðalandi í allt sumar. Nú er
aðeins ein slík ferð eftir og er hún
fyrirhuguð um næstu helgi, 25. til 27.
september, í Goðalandi og friðuðum
afréttum að baki Eyjafialla- og Mýr-
dalsjökuls er að finna kjöraðstæður
til að njóta haustlitanna.
Gönguferðir og varðeldur
Eins og þeir vita sem heimsótt hafa
Bása er þar að finna stórbrotið lands-
lag, gróskumikinn gróður sem má að
nokkru þakka veðursæld i skjóli nær-
liggjandi jökla. Margar og fiölbreytt-
ar gönguleiðir eru í Básum og ná-
grenni og hægt að velja léttar og erf-
iðari ferðir; allt eftir viija og getu
hvers og eins. Þeir sem vilja dvelja í
skálanum geta einnig gert það en í
Básum hefur Útivist yfir að ráða 80
gistiplássum auk tjaldstæða.
Lagt verður upp í helgarferðina á
föstudagskvöld en fyrirhugað er að
verja laugardeginum öllum tii göngu-
ferða. Lengsta gönguferðin verður
væntanlega upp á Morinsheiði, upp
að heljarkambi og þaðan niður
Hvannárgil, niður á bak við Úti-
gönguhöfða og niður í Bása. Gert er
ráð fyrir að þessi gönguferð taki um
sex klukkustundir. Einnig verður
boðið upp á léttari gönguferðir og um
kvöldið verður kveiktur varðeldur. Á
sunnudagsmorgni er svo gert ráð fyr-
ir að fara í stutta gönguferð en hald-
ið verður heim á leið síðdegis og
áætluð koma til Reykjavíkur um
kvöldmatarleytið.
Básar á Goðalandi skarta sínu fegursta í sterkum litum haustsins.
Geisladiskurinn lceland Complete:
Vistvænn upplýsingamiðill
Iceland Complete er nafn á geisla-
diski sem ætlað er að geyma tæm-
andi upplýsingar um ferðaþjónustu
á íslandi. Á disknum verður hægt að
skoða alla gististaði landsins, veit-
ingahús, afþreyingu, vegakort og
myndir af þéttbýlisstöðum. Þá verð-
ur hægt að leika tónlist og mjmd-
bönd og allt þetta verður á þremur
tungumálum.
„Þetta er að mínu áliti stærsta
margmiðlunarverkefni sem unnið
hefur verið hérlendis. Smæð lands-
ins gerir það að verkum að við get-
um verið með tæmandi upplýsingar
um allt sem lýtur að ferðaþjónustu.
Við erum komin með tilraunadisk i
- tilraunaútgáfa lofar góðu
hendurnar og hann lofar mjög góðu
um framhaldið," segir Ingvar Jóns-
Mikið hefur verið lagt í fallegt og að-
gengilegt útlit á geisladisknum
lceland Complete.
son markaðsstjóri.
Áætlað er að fullbúinn komi
Iceland Complete út í febrúar á
næsta ári og verður honum dreift
frítt í 70 þúsund eintökum, innan-
lands og utan. Diskurinn verður síð-
an gefinn út árlega.
Ingvar segir að auk þess verði
upplýsingum disksins komið á Netið
en ekki verði hægt að skila sömu
gæðum út á Netið og einfalda verði
alla grafik. „Menn munu hafa að-
gang að öllum þeim upplýsingum
sem eru á disknum en við mælum
auðvitað með því að sem flestir
verði sér út um diskinn sjálfan þeg-
ar hann kemur út,“ segir Ingvar.
■H
Krakkaklúbbur DV og Háskólabíó bjóða öllum
Krakkaklúbbsmeðlimum á fjölskyldumyndina Paulie |
laugardaginn 19. september klukkan 3. Þið framvísið
Krakkaklúbbsskírteininu í miðasölu Háskólabíós og
fáið bíómiða sem gildir fyrir tvo (á meðan miðar
endast.) Páfagaukurinn Paulie er fyndinn, kjaftfor,
ósvifinn og sífellt í vandræðum. Frábær
fjölskylduskemmtun um símasandi páfagaukinn og
20 ára leit hans að æskuvinkonu sinni.
r •
HASKÓÍABÍÖ
Vitinn í Alexandn'u
Sex aldir eru liðnar síðan vit-
inn í Alexandríu hlunkaðist út í
Miðjarðarhafið af stalli sínum á
eyju faraóanna. Nú hefur
franski tískuhönnuðurinn Pi-
erre Cardin ákveðið að hanna
broddsúlu sem á að minna á
þetta horfna
undur en vit-
inn var eitt af
sjö undrum
veraldar í
fomöld. Hann
var reistur
árið 270 fyrir
Krists burð
og eyðilagð-
ist í jarð-
skjálfta á
fjórtándu
öld. Viti Car-
dins verður
síðan byggöur
steinsnar frá staðnum þar sem
upprunalegi vitinn stóð og er
áætlað að hann verði tilbúinn í
júní árið 2000.
Vitinn verður úr glerhúðaðri
steinsteypu. Hann mun endur-
kasta sólarljósi á daginn og raf-
ljós lýsa í honum á nóttunni,
líkt og uppranalegi vitinn var
þakinn speglum sem endurköst-
uðu sólarljósi á daginn en eldur
logaði í honum á nóttunni.
Að sögn Cardins er markmið-
ið ekki að endurbyggja vitann
nákvæmlega eins og hann var
þegar hann hrandi heldur finna
21. öldinni sams konar tákn
ijóss og friðar.
Ljósmyndun neðan-
sjávar
Neðansjávarljósmyndun er
grein sem hægt er að keppa um
heimsmeistaratitil í. Á tveggja
ára fresti flykkjast saman ljós-
myndarar í blautbúningum og
bítast um verðlaun. Keppnin
hefur áður verið haldin í Kyrra-
hafinu, Miðjarðarhafinu,
Rauðahafinu og Karíbahafmu,
en um þessar mundir er hún
haldin í Norðursjónum, nánar
tiltekið í Álasundi í Noregi.
Keppnin stendur fram á fóstu-
dag og þeir sextíu ljósmyndar-
ar, sem þátt taka, keppa í þrem-
ur flokkum: Gleiðhornamynd-
um, nærmyndum og skapandi
myndum.
Ferðamenn skoða
flakið af Titanic
Kvikmyndin um hið hörmu-
lega sjóslys, þegar skemmti-
ferðaskipið Titanic fórst árið
1912, virðist hafa hrundið af
stað æði meðal fólks sem á
peninga og er reiðubúið að
láta þá af hendi. Undan
ströndum Nýfundnalands er
um þessar mundir hægt aö fá
að skoða flak skemmtiferða-
skipsins, en það fannst árið
1985. Þetta er að vísu gegn
vægu gjaldi eða 32.500 Banda-
ríkjadalir (í íslenskum krón-
um er það u.þ.b. 2 milljónir og
340 þúsund).
Þeir sem hafa farið niður í
bleksvart hyldýpið með dverg-
kafbát segja að það sé æðis-
legt. Að hægt sé að sjá flöskur
og diska um allt og í návíginu
fari maður að skilja þennan
ótrúlega harmleik. Þeir lýsa
því einnig hvernig er að koma
niður á ryðgað baðker skip-
stjórans og hvernig er að finna
í mastrinu ummerki eftir
krákuhreiður. Þarna var eitt
sinn líf, en er þar ekki lengur.