Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1998, Side 19
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
19
Husqvarna
erlent fréttaljós
m
■■■
KtLYK.JAVIIVUKVt.CiI ÖZ
Laugardaginn lO.okt. og sunnud.ll.okt.
Fjöldi tilboða í
tilefni opnunarinnar
NONNABITI
Sérhœfðir í bátum
KJÖTVINNSLA
íslenskar gœöakjötvörur
Mona Sahlin
að svíkja fjölskylduna
aftur
ætlar ekki
Mona Sahlin hélt upp á endur-
komu sína í ráðherrastól í sænsku
ríkisstjórninni með því að horfa á
æfingaleik í fótbolta sem sonur
hennar tók þátt í. í stað þess að setj-
ast inn í stúdíó sænsku sjónvarps-
stöðvanna, sem allar kepptust um
að fá viðtal við hana, settist hún á
áhorfendabekk í úthverfi Stokk-
hólms með kaffibrúsa.
„Þetta er mikilvægara. Ég ætla
ekki að svíkja fjölskylduna aftur,“
sagði Mona Sa-
hlin með
áherslu. Hún er
hætt að vera
alltaf til taks.
„Ég er breytt
og þá hlýtur
einnig að vera
hægt að breyta
pólítísku hlut-
verki mínu.
Annars verð ég
ekki um kyrrt.
Ég er ekki sami
stjórnmálamað-
ur og ég var fyr-
ir nokkrum ár-
um,“ sagði
Mona skýrt við
blaðamann
sænska blaðs-
ins Aftonbladet.
Fyrir þremur
árum var Mona
aðstoðarforsæt-
isráðherra
Ingvars Carls-
sonar, fyrrver-
andi forsætisráðherra, og líklegur
eftirmaður hans. En þá kom skellur-
inn. Þann 7. október 1995 birtust
fréttir í fjölmiðlum um að Mona
hefði notað kritarkort ríkisstjórnar-
innar til einkanota. Hún keypti
meðal annars bleyjur og súkkulaði
út á kortið. Endurgreiðslurnar til
ríkisins drógust á langinn. Mona
kvaðst hafa tekið krítarkort hins
opinbera í mis-
gripum fyrir sitt.
eigið. Hún þykir
hafa gert mistök
með því að gera
ekki strax hreint
fyrir sínum dyrum
í stað þess a6
reyna að gera lítið
úr málinu. Fjöl-
miðlamenn hafa
sjálfír fullyrt að
Mona heföi orðið
forsætisráðherra hefði hún ekki
verið með málalengingar. Pressan
sætti sig ekki við hálfaumingjalegar
afsakanir aðstoðarforsætisráðherr-
ans og tókst að uppljóstra að Mona
skuldaði dagheimilisgjöld. Þar með
var sú ályktun dregin að óreiða
væri á fjármálum hennar. Eftir frí á
eyjunni Mauritius, sem margir
hneyksluðust á og sögðu óráðsíu
miðað við meinta fjárhagsstöðu að-
stoðarforsætisráðherrans, tilkynnti
Mona í nóvember 1995 að hún viki
úr embætti. Hún fór í frí og mætti
ekki aftur á þing fyrr en í febrúar
1996. í apríl
sama ár
hætti Mona
þing-
mennsku.
Haustið 1996
gaf Mona Sa-
hlin út bók
þar sem hún
skýrði frá
sinni afstöðu
til krítar-
kortsmálsins.
í september í
fyrra var
Mona kjörin
í fram-
kvæmda-
stjórn Jafn-
aðarmanna-
flokksins. í
janúar á
þessu ári
fékk Mona
rektorsstöðu
í skóla jafn-
aðarmanna.
Hún. tók þátt
í kosningabaráttu jafnaðarmanna í
haust. Ljóst var að persónufylgi
hennar var óbreytt. Húsfyllir var á
þeim fundum sem Mona tók þátt í.
Göran Persson, forsætisráðherra
Sviþjóðar, er sagður hafa gert sér
grein fyrir að Mona Sahlin myndi
gera gagn í nýrri ríkisstjóm hans á
margan hátt.
Nú er Mona Sahlin aðstoðarráð-
herra í nýju ofúr-
ráðuneyti sem
kemur í stað fjög-
urra annarra
ráðuneyta, at-
vinnumála, við-
skipta, innanrík-
ismála og sam-
göngumála. Að
sögn Görans Pers-
sons hefði Mona
alveg eins getað
orðið aðalráð-
herra í þessu ráðuneyti. Á borði
hennar verða mikilvæg mál, þróun
atvinnulífsins, rekstur lítUla fyrir-
______í_____
Erlent
fréttaljós
______
i- . ffsfilJr
■■'I
.*
tækja, svæðispólítík og rannsóknir.
Hún hefur ekki viljað ræða um
verkefnin í smáatriðum. Hún lætur
sér nægja að nefna nýja sýn á
stjómmálunum.
„Við verðum að þora að ræða um
það sem rekur fyrirtækin áfram,
um innflytjendur, konur, um sam-
kynhneigða, um alla sem hingað til
hafa verið hafðir á sérbási," sagði
Mona í viðtali við Aftonbladet.
Fyrsti vinnudagur Monu í nýja of-
urráðuneytinu byrjaði ekki mjúk-
lega. Forseti sænska alþýðusam-
bandsins, Bertil Jonsson, leyndi
ekki óánægju sinni með að Mona
Sahlin skyldi vera orðin ráðherra á
ný. Hann segir hana vera hægra
megin við Alþýðusambandið.
„Ég hafna hægristimplinum," sagði
Mona Sahlin. „Og hver hefur
ákveðið að það sé hægri stefna að
tala um að konur, innflytjendm' og
eigendur smáfyrirtækja eigi að
gegna stærra hlutverki í
pólítíkinni?" spurði hún.
Mona Sahlin kveðst vilja vera
umdeildur stjórnmálamaður. Hún
er bjartsýn á framtíðina en tekur
það fram að verði hún fyrir skelli á
ný verði það ekki jafn sárt og áður.
Sunnudaga (II fimmtudaga kl. 21.00-01:00
Fóstudaga og laugardaga kl. 21.00-03:00
SJá textavarp RUV bls 669
sqvarna aftur á Isl
© Husqvarna
Husqvarna eru sænsk heimilistæki í hæsta gæðaflokki. Husqvarna er á þúsundum íslenskra heimila
og fást nú aftur á íslandi. I Husqvarna-línunni eru eldavélar, ofnar, helluborð, viftur, kæliskápar,
frystiskápar, og uppþvottavélar.
Sjón er sögu ríkari.
Komið og kynnið ykkur Husqvarna