Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Side 11
Sæta stelpan með fallegu röddina og
kurteisu framkomuna hefur algjöriega
horfið. Það hefur varla sést til hennar
frá því um síðustu jól þegar hún kom
í stuttri auglýsingu og sagðist vera búin
að syngja inn á eitt stykki geisladisk
sem hún hélt á. Fókus kannaði málið og
spurðist fýrir um þessa stelpu.
Hvar er
Emilíana
Torrini
„Ég er nú bara héma í
London,“ segir Emilíana
Torrini poppsöngkona úr
GSM-sima á veitingastað í
London.
Og ertu búin aö vera lengi?
„Já. Ég er búin að vera
hérna í sex mánuði.“
Þá sest aö?
„Ég er allavega flutt hing-
að með allt mitt.“
En kemuröu ekki heim um
jólin og svona?
„Ég veit það ekki, kannski.
En ég er búin að kíkja heim
á þessum sex mánuðum."
Og hvaö ertu aö gera?
„Ég er eiginlega bara að
slappa af og hafa það gott. Bý
með vinkonu minni i Aust-
ur-London og eyði deginum í
að hanga á blómamörkuðum
og svona.“
Emilíana viðurkennir
líka, treglega þó, að vera eitt-
hvað að stússast í tónlist en
það kærir hún sig ekki um
að ræða.
Búiái í sœmilegu hverfi
þarna?
„Já. En það er samt frekar
ódýrt. En þetta er mjög fal-
legur og gamall bæjarhluti.
Jack The Ripper safnið er
hérna rétt hjá og þetta er
svona í þessum Viktoríustíl
allt saman,“ segir hún og fer
að hlæja. „Við vorum að fá
pitsurnar og þær eru eins og
fiskur í laginu."
Ertu ekki meö neina heim-
þrá eöa neitt svoleiöis?
„Auðvitað saknar maður
allra heima en þetta er eitt-
hvað sem er nauðsynlegt að
gera á meðan maður getur.
Gott að taka smáfrí frá ís-
landi.“
Þér líkar sem sagt vel?
„Já. Við erum að kynnast
nýju fólki og eignast fullt af
nýjum vinum sem eru alls
staðar úr heiminum," segir
Emilíana Torrini og tekur
bita af fiskilöguðu pitsunni
sinni. -MT
GLERAUGNAHÚS
ÓSKARS
LAUGAVEGI 8
101 REYKJAVÍK
©551 44 55
1 ,• * * ' SiiÉÍSm
6. nóvember 1998
f ó k u s