Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 23 íþróttir Tölfræð handboltans eftir fyrri umferö: Framarar skora mest Framarar hafa skorað flest mörk i vetur eða 28,0 að meðaltali en næstir koma Haukar með 27,1 mark í leik og topplið Aftureldingar er þriðja með 26,6 mörk. Selfyssingar skora fæst eða 22,9 að meðaltali en fyrir ofan þá eru HK og ÍBV, bæði með 23,1 mark að meðaltali í leik. Haukar fá flest á sig Haukar hafa nú tapað 5 deildar- leikjum í röð etir góða byrjun og þeir hafa fengið flest mörk á sig í deild- inni eöa 27,1 að meðaltali. ÍR-ingar og Gróttu/KR-menn koma þar fyrir ofan með 26,7 mörk á sig að meðaitali. Besta vömin er á Hliðarenda en Valsmenn hafa aðeins fengið á sig 21,0 mark aö meðaltali, næstir koma Eyja- menn með 23,0 mörk á sig og 3. er Mos- fellingar með 23,9 mörk á sig í leik. Valsmarkverðirnir öflugastir Guðmundur Hrafnkelsson hefur variö markvarða mest i deildinni þaö sem af er og er Valsmarkvarslan 44,7% i vetur sem sem er afar glæsi- legur árangur. Valsmarkverðir hafa varið 187 af 418 skotum sem hitt hafa mark þeirra. í öðru sæti er ÍBV með 40,0% skota en Stjarnan er i þriðja sæti með 39,8% skota varin. Toppliðið botnlið Topplið Aftureldingar hefur ekki byggt upp leik sinn í vetur á mark- vörslu. Markverðir liðsins hafa variö fæst skot i deildinni og hlutfailslega aðeins 34,9% skota sem skilar þeim í 10. sæti. Hlutfallslega fæst skot verfa markverðir Gróttu/KR eða 33,0% en i ellefta sæti eru markverðir HK með 34,6% skota varin. Vítabanarnir í Fram Markverðir Framara hafa varið flest víti í vetur eða 18 og þar af hef- ur Sebastian Alexandersson varið 15. Markverðir Gróttu/KR, Stjörnunnar og KA koma næstir með 11 víti. Birk- ir ívar Guðmundsson hjá Stjörnunni hefur varið 10 viti, Eyjamaðurinn Sigmar Þröstur Óskarsson er þriðji með 9 og fjórði besti vítamarkvörður- inn er Reynir Þór Reynisson hjá KA með 8 víti varin en aðeins þó í 6 leikj- um. Ef litið er á hlutfallsmarkvörslu i vitum hjá fimm bestu liðunum í deildinni er hún eftirfarandi: 34,6% Fram (18 af 52) 29,7% Grótta/KR (11 af 37) 26,5% Selfoss (9 af 34) 26,5% ÍR (9 af 34) 23,4% Stjaman (11 af 47) FH-ingar era slökustu vítamark- verðir en markverðir FH hafa aðeins varið 5 af 48 vítum sem hitt hafa markið hjá mótherfum eða 10,4%. Mosfellingar nýta færin Afturelding er með bestu skotnýt- inguna í deildinni af þeim skotum sem liðin ná á mark. Mosfellingar hafa nýtt 67,7% skota sinna en í 2. sæti er Fram með 67,1%. ÍR rekur lestina með 59,7% en skotnýting liða er: Afturelding (293/433) 67,7% Fram (308/459) 67,1% KA (279/443) 63,0% Valur (262/427) 61,4% ÍBV (254/414) 61,4% Selfoss (252/411) 61,3% Stjaman (272/445) 61,1% HK (254/416) 61,1% FH (263/431) 61,0% Grótta/KR (276/458) 60,3% Haukar (298/495) 60,2% ÍR (267/447) 59,7% Valsmenn misnota vítin Valsmenn nýta vítin verst ef litið er á hlutfallsmarkvörslu markvarða andstæðinga liðanna í deildinni. Alls hafa markverðir mótherja Vals varið 9 viti og Valsmenn hafa skorað úr 15 þannig að þeir nýta aðeins 62,5%. Topplið Aftureldingar nýtir vítin best eða 89,6% en þeir hafa skorað 43 en látiö mótherjana aðeins verja 5 víti. Efstu og neðstu lið eru: Afturelding (43/48) 89,6% Stjaman (34/40) 85,0% ÍBV (27/33) 81,8% FH (31/41) 75,6% Fram (33/48) 68,8% Valur (15/24) 62,5% Haukar fiska flesta út af Leikmenn Hauka fiska flesta leik- menn út af í deildinni en að meðaltali em andstæðingar þeirra út af í 9,1 mínútu í leik. í öðm sæti er Selfoss einum fleiri í 8,9 mínútur að jafnaði en sjaldnast em HK-menn fleiri eða aðeins 6 mínútur í leik. Mosfellingar em oftast út af eða í 9,5 mínútur í leik, FH kemur næst með 9,1 mínútu í leik. Prúðastir eru ÍR-ingar sem hafa aðeins verið i 5,3 mínútur einum færri að jafnaði í vetur. -ÓÓJ arsm Sendið til: íþróttamaöur ársins DV - Þverholti 11 105 Reykjavík Heimilisfang: ENGLAND 1. deild kvenna í körfuknattleik: Auðvelt hjá ÍS ÍS vann auðveldan sigur á Njarðvík í l.deild kvenna í körfu í gær. ÍS held- ur þar með öðru sætinu í deildinni eft- ir 9 leiki með 12 stig, 6 stigum á eftir toppliði KR. ÍS var fremra á flestum sviðum og Njarðvík sem hafði unnið 3 leiki í röð saknaði greinilega Mechelle Murray, sem er farin frá liðinu. ÍS leiddi með 15 stigum í hálfleik, 36-21, og sá munur hélst fram í miðjan seinni hálfleik er ÍS keyrði fram úr og vann loks með 37 stigum. María Leifsdóttir átti mjög góðan leik meö ÍS, gerði 18 stig og átti 6 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir átti 8 stoðsendingar auk 14 stiga, Signý Hermannsdóttir varði 3 skot og tók 11 fráköst og Lovísa Guðmundsdóttir varði 4 skot auk 8 frákasta og 12 stiga. Hjá Njarðvík átti Helga Jónasdóttir bestan leik, var stigahæst og tók með- al annars 18 fráköst, þar af 6 í sókn. Stíg IS: María Leifsdóttir 18, Alda Leif Jónsdóttir 14, Lovisa Guðmundsdóttir 12, Kristjana Magnúsdóttir 10, Signý Hermanns- dóttir 10, Hallbera Gunnarsdóttir 8, Valdís Rögnvaldsdóttir 6. Stig Njarðvíkur: Helga Jónasdóttir 10, Pálína Gunnarsdóttir 10, Eva Stefánsdóttir 6, Rannveig Randversdóttir 5, Gunnhildur Theódórsdóttir 4, Hafdís Ásgeirsdóttir 3, Amdis Sigurðardóttir 2. -ÓÓJ „Þetta var ekki svo erflð ákvörð- un. Ég er búinn að vera hér áður og auðvitað hafði það sitt að segja að ég valdi Val frekar en önnur lið og svo er ég auðvitað kominn af mikilli Valsfjölskyldu. Valur er félag á upp- leið og ég vil svo sannarlega taka þátt í að gera félagið að stórveldi á ný,“ sagði Kristinn í samtali við DV eftir undirskriftina. Kristinn er þriðji nýi leikmaður- inn sem gengur til liðs við Val en áður höfðu Einar Páll Tómasson, sem lék með Raufoss í Noregi, og ^ Arnar Gunnlaugsson: sigti hjá Leicester - talað um 300 milljónir króna Amar Gunnlaugsson heldur áfram að vekja áhuga liða í ensku A-deildinni. Nú er Leicester City komið með Arn- ar undir smásjána en liðið leit- ar þessa dagana að framherja til að leika við hlið hins skæða Emils Heskey. í ensku blöðunum i gær var greint frá því að Martin O’Neill, knattspyrnustjóri hjá Leicester, hefði um hrið fylgst með Amari og fréttir frá Fli- bert Street hermdu að Leicest- er væri tilbúið að greiða 2,5 milljónir punda fyrir Arnar eða nálægt 300 milljónum króna. Amar hefur svo sannarlega slegið í gegn með Bolton á tímabilinu. Hann hefur skorað 14 mörk og hefur oftar en ekki verið besti leikmaður Bolton í leikjum liðsins í B-deildinni. Arnar á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við félagið og þrátt fyrir nokkrar tilraunir hefur forráðamönnum Bolton ekki tekist að fá Amar til að rita nafn sitt undir nýjan samning við félagið. Ekkert heyrt frá Bolton „Ég hef svona aðeins heyrt af þessu úr blöðunum en for- ráðamenn Bolton hafa ekki tjáð mér um eitt eða neitt um þetta. Ég hafnaði nýjum samn- ingi við Bolton á dögunum. Þetta var tilboð sem hljóðaði upp á eitt ár til viðbótar en mér fannst tilboðið einfaldlega ekki nógu gott. Það er bara tvennt í þessu. Annaðhvort geri ég nýjan og góðan samn- ing við Bolton eða verð seldur. Það er auðvitað mjög gaman ef liðin í úrvalsdeildinni era að fylgjast með mér og það sýnir þá að maður er að gera góða hluti,“ sagði Amar í samtali við DV í gær. -GH Noregur - handknattleikur: Sú besta fær ekki leikbann Anja Andersen, besta handknattleikskona heims, þarf ekki að byrja á bekknum eftir jólafríið. Hún má leika áfram með norska liðinu Bækkelaget eins og ekkert hafi ískorist. Anja hafði fengið mánaðarleikbann fyrir að hafa farið niðrandi orðum um dómara nokkurn í sjónvarpsþætti. Aganefnd komst í haust að þeirri niðurstöðu að hin danska Anja hefði brotið reglur Handknattleikssambandsins norska og sýnt dómarastéttinni óvirðingu. Anja áfrýjaði til yfirdóms og sagði að verið væri að svipta hana tjáningar- og atvinnufrelsi. Hún sagði að handbolti væri atvinna sín og því varðaði það við landslög að banna henni að tala um atvinnu sína. I gær komst yfirdómur að sömu niðurstöðu. Anja má segja skoð- un sína. Margir hafa túlkað upphaflega dóminn sem hefndarað- gerð vegna þess að Anja hefur oft brúkað kjaft á leikvellinum, beint uppréttum fingri að dómurum og sagt þeim til syndanna. -GK/Noregi Búið er draga til 3. umferðar 1 ensku bikarkeppninni. Helstu leikir eru sem hér segir: Manchester Utd-Middlesbrough Aston Vilia-Hull Port Vale-Liverpool Preston-Arsenal Blackburn-Charlton Tottenham-Watford Oldham/Brentford-Chelsea Newcastle-Crystal Palace Bristol City-Everton West Ham-Swansea Sheffield Wednesday-Norwich Nottingham Forest-Portsmouth Leicester-Birmingham Southampton-Fuiham Wycombe/Plymouth-Derby Doncaster/Rushden&Diamonds-Leeds Wimbledon-Darlington/Man. City Bolton-Wolves Coventry-Macclesfield Manchester Vnited er í efsta sæti hjá veðbönkum um líklega bikarmeistara en 5:1 tippa á United. 6:1 spá þvi aö Arsenal eða Chelsea hampi bikarnum og 7:1 veöja á Liverpool. Stokeféll út úr bikarnum um helg- ina þegar liðiö lá á útivelli fyrir Swansea, 1-0. Lárus Orri Sig- urðsson lék allan tímann með Stoke. Asthildur Helgadóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, var um helgina valin í úrvalslið bandarísku háskólanna fyrir keppnistímabilið sem lauk nú í desember. Ásthildur er fyrsta íslenska stúlkan sem nær þessum ár- Oldham og Brentford skildu jöfn, 1-1, og veröa að eigast við að nýju en sigurvegarinn fær heimaleik gegn Chelsea i 3. umferðinni. Hermann Hreiðarsson tðk út leik- bann og lék þvi ekki með Brentford og Þorvaldur Örlygsson lék ekki með Oldham. Jóhann B. Guðmunds- son lék síðustu 20 mínút- urnar með Watford sem gerði 0-0 jafntefli við Barnsley í B-deildinni. Leeds og Newcastle hafa loks náð sam- komulagi um kaup- verð Leeds á enska landsliðsmanninum David Batty. Félög- in hafa komist að samkomulagi um 4,8 milljónir punda eða 530 milljónir Ss- lenskra króna. Batty gengst undir læknis- rannsókn í vikunni og í kjölfarið skrifar hann undir samning viö Leeds svo framar- lega að hann standist læknisskoðunina. Dean Saunders gekk í gær i raðir Benfica í Portú- gal frá Sheffield United. Greame Souness, knattspymu- stjóri Benfica, þekkir vel til Saunders sem lék undir stjóm Sou- ness hjá Liverpool og tyrkneska liðinu Galatasaray. Þess má geta aö Benflca er 11. liöið sem Saunders leikur með. -GH/VS/JKS Kristinn Larus- son klæddist Valsbúningnum á ný í gær og leist vel á að vera kominn aftur á Hlíðarenda. DV-mynd Hilmar Þór ;.. Pr Asthildur í úrvalið úr knattspyrnuliðum allra bandarísku háskólanna angri, sem er á margan hátt afar athyglisverður. Bandarík- in eiga besta kvennalandslið heims og það byggist yfirleitt upp á leikmönnum sem koma beint úr háskólaliðunum. Þá er mjög sjaldgæft að leikmaður á öðru ári komist i úrvalsliðið, sem yfn’leitt er skipað stúlkum á þriðja og fjórða ári í háskól- unum. Ekki er ólíklegt að þetta vekji áhuga bandarískra kvennaþjálfara á að fá fleiri ís- lenskar stúlkur í sín lið. -VS Jóhannes B. efstur Jóhannes B. Jóhannesson er stigahæstur í meistaraflokki að loknum fyrri hluta keppnistímabilsins í snóker. Hann varð i 3.-4. sæti í síð- asta móti ársins um helgina en þar vann Brynjar Valdimarsson sig- ur á Ásgeiri Ásgeirssyni í úrslitaleik, 6-2. Jóhannes er með 1.200 stig, Brynjar 990, Jóhannes R. Jóhannes- son 800, Bjarni Jónsson 390 og Sumarliði Gústafsson 370 stig. Fjórir neðstu af þeim 12 sem skipa meistaraflokkinn falla nú úr honum en í staðinn koma fjórir efstu menn úr 1 .flokki. Það eru Örvar Guðmundsson, Arnar Ricardsson, Jakob Hrafnsson og Heiðar Reynisson. Þá unnu fjórir sig upp í 1. flokk, þeir Sveinbjörn Hansson, Zopanías Árnarson, Magnús Hákonarson og Jónas Þór Jónasson. -VS Asthildur Helgadóttir er f úrvalsliði bandarísku háskólanna. Van Exel vill leika I Evrópu Nokkrir leikmenn NBA-deildarinnar í körfuknattleik, með Nick Van Exel i fararbroddi, hyggjast kæra NBA og bandaríska körfuknattleikssambandið sem meinar þeim að semja við lið í Evrópu. Verkbannið í NBA virðist engan enda ætla að taka og Van Exel vill fara að spila körfubolta, helst í Evrópu. -VS erfitt Kristinn Lárusson genginn í Val Kristinn Lárasson knattspyrnu- maður gekk í gær í raðir Vals- manna og skrifaði undir tveggja ára samning við Hlíöarendaliðið. Krist- inn, sem verður 25 ára gamall i næsta mánuði, er miðju- og sóknar- maður sem varð íslands- og bikar- meistari með ÍBV í sumar. Hann þekkir vel tii hjá Val því hann lék með liðinu í þrjú ár, 1993-1995, en lék áður með Stjöm- unni. Með þessum félögum hefur Kristinn leikið nákvæmlega 100 leiki í efstu deild. Sindri Bjamason, sem leikið hefur með Leiftri á Ólafsfirði, skrifað und- ir samning við Val en þeir eru báð- ir vamarmenn.Valsmenn hafa hins vegar misst Salih Heimi Porca til Breiðabliks. „Þetta er allt á góðri leið og er skref áfram í að bæta okkar leik- mannahóp. í fyrsta skipti í mörg ár hefur Valur náð að stækka sinn hóp og það er auðvitað fagnaðarefni,“ sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Vals, i samtali við DV. -GH Lesendur velja íþróttamann ársins - glæsileg verölaun til handa heppnum lesanda Að venju kemur það í hlut les- enda DV að velja íþróttamann árs- ins 1998. Þeir sem hafa áhuga á að vera með fylla atkvæðaseðilinn hér að neðan út og senda hann til DV. Beðið er um nöfn þeirra fimm íþróttamanna sem skarað hafa fram úr að mati lesenda DV. Frestur til að skila atkvæðaseðl- unum til DV rennur út á hádegi 30. desember klukkan 12. Þá verða at- kvæði talin. Nafn heppins lesanda verður dregið út og hann fær afhent glæsileg verðlaun. Iþróttamaður ársins fær einnig glæsileg verðlaun en verðlaunin verða kynnt fljótlega í DV. Það verð- ur síðan upplýst í DV í fyrsta blaði ársins 1999 hver verður kjörinn íþrótttamaður DV. Atkvæðaseðillinn verður birtur í DV alla virka daga þar til skilafrest- ur rennur út þann 30. desember. Einungis er hægt að greiða atkvæði í kjörinu með því að senda útfylltan atkvæðaseðii til DV. -JKS Carbone var hetjan Benito Carbone var hetja Shefíield Wednesday þegar liðið sigraði Notting- ham Forest, 3-2, í ensku knattspyrn- unni í gærkvöld. Carbone, sem hafði fyrir leikinn ekki skorað í 18 leikjum í röð, bætti um betur og skoraði tvö mörk í dýrmætum sigri Wednesday. Niclas Alexandersson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Wednesday en fyrri hálfleikur var að öðru leyti lítið fyrir augað. Sá síðari var allt annar og betri og mörkin létu ekki á sér standa. Carbone gerði annað mark Wednes- day á fallegan hátt áður en Thierry Bonalair minnkaði muninn fyrir For- est. Carbone var aftur á ferðinni á 59. mínútu þegar han skoraði þriðja mark- ið. Pierre van Hooijdonk skoraði ann- að mark Forest með skoti úr vítateign- um. Wednesday er í 14. sæti með 19 stig en Forest er sem fyrr i næstneðsta sæti með 11 stig. -JKS Tvö fyrirtæki, Sjóvá/Almennar tryggingar hf. og Austurbakki hf. - NIKE, bættust í gær í hina svo- nefndu Ólympíufjölskyldu. í henni eru nú fimm fyrirtæki sem eiga í samstarfí við íþrótta- og Ólympíusamband íslands um stuðn- ing við afreksíþróttir. Fjölskyldan verður ekki stækkuð frekar. Auk . þessara tveggja fyrirtækja vora fyrir íslandsbanki, Visa ísland og Flugleiðir. Samningarnir era metnir á 4 milljónir króna á ári og samtals leggur Ólympíufjölskyldan fram um 30 milljónir króna til af- reksstarfs ÍSÍ fram yfir Ólympíu- leikana í Sydney haustið 2000. -VS Iþrottama Nafn iþrottamanns Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, kynnir samstarfssamningana í gær. DV-mynd Hilmar Þór Olympíufjölskyldan stækkar A^OV.SKVlö ^ ^ <£> 0. F fV.V)G tyur '■mm íþróttir Bland * i P oka Ólafur Gottskálksson stóð að vanda í marki Hibemian sem sigraði Green- ock Morton á útivelli 1 skosku B- deildinni í knattspyrnu um helgina. Hibernian er efst i deildinni með 38 stig, Falkirk kemur næst með 35 stig og Ayr er þriðja sæti með 33 stig. Kúveit sigraði Sameinuðu arabisku furstadæmin, 21-20, í handbolta- keppni Asíuleikanna sem nú standa yfir i Tailandi. Kúveitar skoruðu sig- urmarkið á lokasekúndunni og i leikslok sauð upp úr á milli leik- manna liðanna. Svíinn Ola Janbecker sigraði í meistaraflokki karla á jólamóti Vegg- sports í skvassi sem fram fór um helgina. Janbecker sigraði Kim Magnús Nielsen í úrslitum, 3-0. Magnús Helgason varð i þriðja sæti en hann sigraði Heimi Helgason, 3-1. í A-flokki sigraði Viöar Jó- hannsson Bandaríkjamanninn lan Mac Dougall í úrslitum, 3-2. Hannes Tómasson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraöi í loftskamm- byssu á landsmóti Skotíþróttasam- bands íslands sem fram fór um helg- ina. Hannes hlaut samtals 672,4 stig sem er nýtt íslandsmet og með þess- um árangri náði hann ólympíulág- marki i greininni. Anton Konráós- son, SKÓ, varð annar með 647,1 stig og í þriðja sæti hafnaði Jón S. Ólafs- son, IFL, með alls 639 stig. Ingibjörg Ásgeirsdóttir, IFL, sigraði i kvennaflokki en hún hlaut samtals 445,1 stig. Kristina Sigurðardóttir, IFL, varð önnur með 433,9 stig. í liðakeppninni fagnaði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur sigri en hún hlaut samtals 1651 stig. A-sveit Skot- félags Kópavogs varð önnur með 1605 stig og B-sveit Skotfélags Reykjavíkur i þriðja sæti með 1492 stig. í sigur- sveit Skotfélags Reykjavikur voru: Hannes Tómasson, Guðmundur Kr. Gislason og Kjartan Friðriksson. Carl J. Eiriksson, SÍB, varð hlut- skarpastur í keppni með loftrifflum. Carl hlaut samtals 610,4 stig. Arfinn- ur Jónsson, SFK, varð annar með 602 stig og Einar Steinarsson, SFK, þriðji meö 601,4 stig. Það var Gígja Gunnarsdóttir úr Ár- manni sem sigraði í kvennaflokki á íslandsmótinu í júdó en ekki Gyöa Gunnarsdóttir eins og fram kom í blaðinu i gær. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Hollenska knattspyrnuliðið Sparta Rotterdam rak í gær þjálfarann, Hans var der Zee. Sparta, sem aldrei hefur fallið úr efstu deild, hefur geng- ið illa og er í 16. sæti af 18 liðum í deildinni. Hertha Berlin, lið Eyjólfs Sverris- sonar, keypti i gær pólska sóknar- manninn Piotr Reiss frá Lech Pozn- an. Magnús Sigurðsson handknattleiks- maður hefur framlengt samning sinn við þýska B-deildarliðið Willstatt til ársins 2001. Magnús slasaðist illa fyr- ir skömmu og leikur ekki meira á þessu tímabili, eins og áður hefur komið fram í DV. Roy Hodgson, sem var á dögunum sagt upp störfum hjá Blackburn í Englandi, var i þýskum fjölmiðlum i gær orðaður við þjálfarastöðuna hjá Stuttgart i Þýskalandi. Winfried Schafer hætti þar fyrir helgina. Leikmenn þýska meistaraliðsins í handknattleik, Kiel, sátu í gærkvöld veðurtepptir í rússnesku borginni Volgograd. Þeir áttu að spila þar við heimamenn í meistaradeild Evrópu á sunnudag en leiknum var aflýst þar sem dómararnir og eftirlitsmenn komust ekki til Volgograd frá Moskvu. islendingaliðin Eisenach og Wupp- ertal eru bæði að reyna að fá til sín rússnesku skyttuna Sergei Pogor- elov frá Volgograd. Pogorelov var i heimsmeistaraliði Rússa i fyrra og hefur áður spilað með Lemgo. Jorn Jamtfall, markvörður Rosen- borg, var besti markvörður norsku A- deildarinnar í knattspyrnu i ár, sam- kvæmt útreikningum Nettavisen. Mótherjar Rosenborg fengu sex marktækifæri á móti hverju marki sem þeir náðu að skora hjá Jamtfall. John McEnroe er ekki hættur að rífa kjaft þó hann angri ekki lengur tenn- isdómara. í viðtali við þýska blaðið Der Spiegel í gær lýsti hann yfir áhuga á að verða næsti forseti Al- þjóða tennissambandsins og sagði að þeir sem þar réðu ríkjum nú væru allir heiladauðir. -GH/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.