Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 Afmæli Vigfús Friðjónsson Vigfús Friðjónsson útgerðarmað- ur, Sléttuvegi 11, Reykjavík, er átt- ræður í dag. Starfsferill Vigfús fæddist í Langhúsum í Fljótum og ólst þar upp til tólf ára aldurs. Þá flutti hann með foreldr- um sínum til Siglufjarðar. Hann lauk gagnfræðaprófi á Siglufirði 1935 og verslunarprófi frá Sam- vinnuskólanum í Reykjavík 1938. Vigfús starfaði á skrifstofu Síldar- útvegsnefndar 1938-41 og var kaup- maður, útgerðarmaður og síldarsalt- andi á Siglufirði á árunum 1941-70. Hann starfrækti sildarsöltunarstöð í Grimsey og víðar frá 1957, var stofnandi og aðaleigandi íslensks fisks hf. á Siglufirði, byggði síldar- söltunarstöðina Berg hf. á Reyðar- firði, ásamt öðrum, og starfrækti hana um árabil. Eftir að sildarsöltun lauk stjómaði Vigfús síldarleiðangri við strendur Labrador í Kanada sumrin 1973-74 á vegum National Sea Cor- poration í Halifax, sá um uppsetningu síldarverk- unarstöðva á Nýfundna- landi og Nova Scotia sumarið 1975, á vegum Canadian Saltfish Cor- poration í St. John’s og hafði umsjón með og stýrði síldarverkun við Lawrence-flóann vestanverðan á vegum rikisstjórnarinnar í Quebec- fylki í Kanada. Vigfús var fyrsti formaður íþróttabandalags Siglufjarðar. Hann hefur átt sæti í stjórnum Skíðasam- bands Islands, Skíðafélags Siglu- fjarðar, skátafélagsins Fylkis, skiða- félagsins Skíðaborgar, Taflfélags Siglufjarðar og Alþýðuflokksfélags Siglu- fjarðar og fleiri félaga. Vigfús var bæjarfulltrúi á Siglufirði fyrir Alþýðu- bandalagið 1958-62, sat í stjórn Sparisjóðs Siglu- fjaröar og í hafnarnefhd Sigluíjarðar 1958-62. Hann var fyrsti umboðs- maður Toyota-bifreiða á íslandi. Fjölskylda Vigfús kvæntist 16.10. 1946 Huldu Sigurhjartardóttur, f. 28.1.1920, hús- móður. Hún er dóttir Sigurhjartar Bergssonar, rafstöðvarstjóra á Siglufirði, og Sigríðar Sigurðardótt- ur húsmóður. Börn Vigfúsar og Huldu eru Guð- brandur Orri, f. 10.7.1942, viðskipta- fræðingur, kvæntur Unni Kristins- dóttur og eru börn þeirra Vigfús og Hulda en unnusta Vigfúsar er Björg Rós Guðjónsdóttir; Friðjón Óli, f. 12.1. 1946, verslunarfræðingur en sambýliskona hans er Unnur Öl- versdóttir kennari og er sonur Frið- jóns Óla Pétur, kvæntur Þórhildi Ingadóttur bankastarfsmanni og em börn þeirra Óli Arnar, Ingi og Helga; Sigríður Margrét, f. 2.5. 1954, BA í heimspeki og stjómmálafræði en sambýlismaður hennar er Guðni Hjörleifsson og er dóttir Sigríðar Margrétar Oddný Eva. Systkini Vigfúsar vora sex talsins og eru þrjú þeirra á lífi. Foreldrar Vigfúsar voru Friðjón Vigfússon, bóndi í Langhúsum í Fljótum og siðar verkamaður á Siglufirði, og k.h., Ólína Margrét Jónsdóttir húsfreyja. Vigfús Friöjónsson. St. Kristinn Hugason Kristinn Hugason, hrossaræktar- ráðunautur Bændasamtaka íslands, Löngumýri 7, Garðabæ, er fertugur í dag. Starfsferill Kristinn fæddist á Akueyri og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1978, búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1979, lauk búfræðikandidatsprófi frá Bú- vísindadeildinni á Hvanneyri 1983, M.Sc.-prófi í búfjárkynbótafræði frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar í Uppsölum 1986 og hefur sótt fjölda endurmenntunarnámskeiða innan- lands og erlendis. Kristinn var kennari við Bænda- skólann á Hólum 1983-84, ráðunaut- ur Búnaðarfélags íslands um kyn- bætur hrossa 1986-89, hrossaræktar- ráðunautur Búnaðarsambands Eyjafjaröar, framkvæmdastjóri Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þingeyinga, stundakennari í hrossarækt við Bændaskólann á Hólum og á Hvanneyri, hrossabóndi og tamningamaður og er hrossa- ræktarráðunautur Búnaðarfélags Islands (nú Bændasamtaka íslands) frá 1989. Kristinn hefur á starfstíma sínum lagt áherslu á endurskipulagningu dómsaðferða, tölvuvæðingu skýrslu- halds og útgáfumál. Hann hefur skrifað fjölda greina um hrossarækt sem birst hafa í innlendum og er- lendum tímaritum, hefur tekið sam- an og ritstýrt ársritinu Hrossarækt- in og bókunum Kynbótadómar og sýningar og Um kynbætur hrossa. Þá hefur hann beitt sér fyrir gerð og útgáfu tölvuforrita um hrossarækt, nú síðast Islands-Feng. Kristinn hefur setið i ýmsum nefndum á vegum landbúnaðar- ráðuneytisins og umhverfisráðu- neytisins, t.d. um endursamningu laga um útflutning hrossa, og hefur setið í útflutnings- og markaðsnefnd hrossa frá stofnun hennar 1995. Hann hefur setið í stjóm hesta- mannafélagsins Léttis á Akureyri, í stjóm Félags búvisindamanna og er formaður þess, hefur um árabil ver- ið virkur félagi í FÍN, félagi ís- lenskra náttúrafræðinga, hefur set- ið i kjararáði félagsins og veitt for- stöðu samninganefnd landráðu- nauta. Hann er félagi í Rotaryklúbbnum Görðum frá 1997, situr í stjórn sjálfstæðisfélags Garðabæjar, situr í blaðstjórn Garða og er í kjördæmisráði Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi. Fjölskylda Kristinn kvæntist 2.5. 1993 Guð- laugu Hreinsdóttur, f. 8.9. 1960, full- trúa í tölvudeild Bændasamtaka ís- lands. Hún er dóttir Hreins Haralds- sonar sem er látinn, lengst af kennari við Vél- skóla íslands, og Ástu Jónsdóttur, húsmóður og matráðskonu. Dóttir Kristins og Guð- laugar er Rósa, f. 26.7. 1993. Börn Guðlaugar og stjúpbörn Kristins eru Hjalti Hreinn Sigmars- son, f. 4.10. 1980; Ásta María Sigmarsdóttir, f. 16.5. 1983; Sigrún Marta Sigmarsdóttir, f. 21.6. 1985. Systkini Kristins era Anna Guð- rún Hugadóttir, f. 20.10. 1947, náms- ráðgjafi í Garðabæ, gift Guðmundi Hallgrímssyni, f. 9.8.1939, lyfjafræð- ingi og eiga þau fjögur börn; dr. Hjalti Hugason, f. 4.2. 1952, prófess- or í kirkjusögu við HÍ, kvæntur Ragnheiði Sverrisdóttur, f. 19.1. 1954, djákna og fræðslufulltrúa á Biskupsstofu, og eiga þau tvö böm. Foreldrar Kristins eru Hugi Kristinsson, f. 24.6. 1924, hrossa- ræktandi og fyrrv. verslunarmaður, og Rósa Hjaltadóttir, f. 21.2. 1923, húsmóðir og fyrrv. verslunarmað- ur. Ætt Hugi er sonur Kristins, b. á Strjúgsá og síðar að Ytra-Dalsgerði í Eyjafiröi, Jónssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Þor- móðsstöðum í Sölvadal í Eyjafirði, af Hvassafells- ætt. Rósa er dóttir Hjalta, húsgagnasmíðameistara á Akureyri, Sigurðsson- ar, b. á Merkigili í Eyja- firði, Sigurðssonar, b. á Sauðadalsá á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu, Sigurðssonar, af Kata- dalsætt. Móðir Sigurðar á Merkigili var Magðalena Tómasdóttir, Sigurðssonar. Móðir Hjalta var Guðrún Rósa Pálsdóttir, b. á Kjartansstöðum í Skagafirði, Pálssonar og Guðbjargar Björns- dóttur. Móðir Rósu var Anna Jónatans- dóttir, b. á Litla-Hamri í Eyjafirði, Guðmundssonar, b. á Uppsölum, Jónatanssonar. Móðir Önnu var Rósa Júlíana Jónsdóttir, b. á Kot- unsstöðum í Fnjóskadal, af Drafla- staðaætt. I tilefni afmælisins og vegna þess að Kristinn lætur brátt af starfi hrossaræktarráðunautar Bænda- samtaka íslands bjóða þau Kristinn og Guðlaug ættingjum, vinum og samstarfsfólki til móttöku í veislu- sal Háskóla íslands í húsnæði Reykjavíkurapóteks, Austurstræti 16, á fimmtu hæð, á afmælisdaginn 8.12. kl. 17.00-19.00. Kristinn Hugason. Ágústa Jóhannsdóttir Ágústa Jóhannsdóttir húsmóðir, nú vistmaður á dvalarheimili aldraðra I Borgarnesi, Borgar- braut 65, Borgarnesi, varð áttræð á laugardag- inn. Starfsferill Ágústa fæddist á Fag- urhóli I Ólafsvík. Hún var í bamaskóla í Ólafs- vik frá tíu ára og til fjórt- án ára aldurs. Ágústa og eiginmaður hennar hófu búskap sinn í Borgar- nesi 1941. Hún var matráðskona á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi á áranum 1976-81. Fjölskylda Ágústa giftist 26.12. 1942 Skarp- héðni Kristni Guðmunds- syni, f. að Hamri í Hraun- hreppi 17.1. 1921, d. 25.6. 1976, bifreiðarstjóra. Dóttir Ágústu er Hanna Sigríður Olgeirsdóttir, f. 5.3. 1939, gift Friðjóni Jónssyni, f. 26.10.1931, og eiga þau fimm böm. Synir Ágústu og Skarp- héðins Kristins era Ágúst Skarphéðinsson, f. 30.6.1942, búsettur i Borg- amesi, kvæntur Erlu Jónsdóttur, f. 18.11. 1946, en fyrri kona Ágústs er Jónína Guð- rún Nóadóttir, f. 11.10. 1944, og eiga þau fjögur börn; Jóhann Mar Skarp- héðinsson, f. 17.6. 1952, búsettur í Borgarnesi og á hann fimm börn. Böm Hönnu Sigríðar og Friðjóns eru María Lóa, f. 21.6. 1960, búsett á Sauðárkróki en maður hennar er Sveinbjörn Ragnarsson, f. 15.10. 1958, og eru böm þeirra Hákon Ingi, f. 30.10.1979, íris Ösp, f. 29.6.1981, og Davíð Hannes, f. 28.3.1990; Jón Unn- ar, f. 15.1. 1964, búsettur í Svíþjóð, en sambýliskona hans er Hulda Vil- hjálmsdóttir, f. 23.12. 1966, og eru böm þeirra Andrea Lind, f. 30.4. 1994, og Alexandra Dögg, f. 11.6. 1998; Heiða Björg, f. 15.6.1967; Linda Kristín, f. 17.11. 1975, búsett á Sauð- árkróki, en sambýlismaður hennar er Sveinn Brynjar Pálmason og er dóttir þeirra Iðunn Lilja, f. 11.6. 1998; Linda Elínborg, f. 17.11. 1975, búsett á Sauðárkróki, en sambýlis- maður hennar er Viktor Pétursson Börn Ágústs og Jónínu Guðrúnar Nóadóttur eru Svandís Lóa, f. 16.9. 1965, búsett í Búðardal, en maður hennar er Þórarinn Steingrímsson, f. 25.3.1964, og eru börn þeirra Guð- rún Rakel, f. 12.8. 1982, nemi, Ellen Ósk, f. 8.4. 1985, Karen Ýr, f. 5.1. 1991, Telma Björg, f. 9.3. 1992, og Arnar Ingi, f. 22.9. 1997; Jóhann Pét- ur, f. 2.8.1967, en kona hans er Hall- dóra Ragnarsdóttir, f. 9.4. 1965, og era synir þeirra Markús Ingi, f. 31.8. 1990, og Ragnar Skarphéðinn, f. 2.10. 1993, d. 20.5. 1997; Ágústa Kristín, f. 24.7. 1974, búsett í Kópvogi, en sam- býlismaður hennar er Hilmar Guð- mundsson, f. 18.1. 1967, og er sonur þeirra Guðmundur Högni, f. 28.10. 1996;Jónína Kristín, f. 30.1. 1983, nemi I Reykjavík. Böm Jóhanns Mar eru Bjarki Már, f. 5.9.1973, búsettur á Húsavík, en sambýliskona hans er Erla Dögg; íris Heiður, f. 13.8. 1976, búsett á Höfn; Gauti, f. 13.4. 1981; Sindri, f. 31.5. 1990; Elísa, f. 23.3. 1992. Systkini Ágústu vora átta talsins en hún á nú tvær systur á lífi. Þær era Inga Jóhannsdóttir, búsett í Borgarnesi; Þórunn Jóhannsdóttir, búsett í Ólafsvík. Foreldrar Ágústu vora Jóhann Pétur Ágústsson, f. 14.7. 1892, og María Kristborg Magnúsdóttir, f. 17.6. 1894. Ágústa Jóhannsdóttir. DV Til hamingju með afmælið 8. desember 80 ára Valgerður Árnadóttir, Lönguhlíð 3, Reykjavík. 75 ára Guðmunda Ámadóttir, Aðalstræti 9, Reykjavík, varð sjötíu og fimm ára í gær. Hún dvelur um þessar mundir hjá dóttur sinni og tengdasyni í Kaliforníu. Guðjón Þ. Tómasson, Hringbraut 89, Reykjavík. Einar H. Eiriksson, Reynigrund 3, Kópavogi. Jónas Jónasson, Munkaþverárstræti 44, Akureyri. Sigurður Hannesson, Víðilundi 5, Akureyri. 70 ára Brynhildur Jensdóttir, Álftamýri 4, Reykjavík. Guðjón Ottósson, Gullsmára 5, Kópavogi. Katrín Þómý Jensdóttir, Laugarvegi 37, Siglufirði. Kristinn G. Karlsson, Hátúni 11, Eskifirði. Hann er að heiman. 60 ára Pálína Guðný Þorvarðardóttir, Höfðagötu 19, Stykkishólmi. Kristján Vilmundarson, Marbakka 2, Neskaupstað. Svandis Unnur Siguiðardóttir, Strembugötu 25, Vestmannaeyjum. 50 ára Jón S. Thoroddsen, Gnoðarvogi 38, Reykjavík. Ragnar Halldór Hall, Grandarlandi 2, Reykjavík. Ásta G. Sigurðardóttir, Akraseli 12, Reykjavík. María Ögmundsdóttir, Holtsgötu 4, Njarðvík. Björg Sigriður Guðmundsdóttir, Skólastíg 24, Bolungarvík. Friðrik Steinsson, Hafranesi, Fáskrúðsfiröi. 40 ára Sigurður Stefán Jónsson, Njálsgötu 83, Reykjavík. Valur Arnórsson, Ofanleiti 17, Reykjavík. Guðrún Þorvaldsdóttir, Rekagranda 1, Reykjavík. Þórarinn Jón Þórarinsson, Safamýri 15, Reykjavík. Gunnar Skagfjörð Gunnarsson, Viðarási 65, Reykjavík. Þorsteinn Kristinn Adamsson, Hrafnhólum 6, Reykjavík. Anna Elín Bjarkadóttir, Melabraut 20, Seltjax-namesi. Efemia Guðbjörg Bjömsdóttir, Freyjugötu 3, Sauðárkróki. Hrafn Sigurðsson, Möðruvallastræti 5, Akureyri. Hólmfríður I. Eiríksdóttir, Fosshóli, Ljósavatnshreppi. Svavar Gíslason, Oddabraut 13, Þorlákshöfn. Smá dtt miltí himin. auglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.