Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Blaðsíða 36
>stölur laugardagiim: 02. i
TT 6 Tl9 i 25
iFRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5af 5 1 3.210.740
2. 4af S*<& 4 85.020
3. 4 af 5 100 5.860
4. 3 af 5 2.551 530
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
vikunnai-: j 5 j 2 f 9 f 7 f 0 j
550 5555
MANUDAGUR 4. JANUAR 1999
Fiktað hjá Davíð:
Arásarboði
fór í gang
r Árásarboði, tengdur beint við
höfuðstöðvar lögreglunnar i Reykja-
vík, fór í gang á heimili forsætisráð-
herra síðdegis í gær. Að sögn lög-
reglu mun gestkomandi barn hafa
verið að fikta í árásarboðanum og
þusti lögreglulið á staðinn. í atgang-
inum lenti lögreglubifreið í árekstri
á mótum Snorrabrautar og Hring-
brautar en engan sakaði.
Árásarboðinn hefur verið tengd-
ur aftur. -EIR
•w
Jim ásamt unnustu sinni við guia
Benzinn rétt áður en lagt var í'ann.
Jim Rogers:
Milljóna-
mæringur í
hrakningum
„Við lentum í ógurlegum snjóbyl
á Möðrudalsöræfum og urðum að
yflrgefa Benzinn," sagði milljóna-
mæringurinn Jim Rogers sem lagði
upp í heimsreisu sína frá Reykjavík
á dögunum. Sem kunnugt er af frétt-
um ferðast Jim á sérútbúnum gul-
um Mercedez Benz-bíl og reyndi að
komast frá Egilsstöðum til Akureyr-
, ^ar í gær.
„Við urðum að skilja bílinn eftir.
Það var ekki möguleiki að halda
áfram. Lögreglan kom okkur til
hjálpar og svo komu þeir með
Benzinn á vörubílspalli núna rétt
áðan,“ sagði Jim þegar DV ræddi
við hann seint i gærkvöldi. Jim var
þá búinn að koma sér vel fyrir á
veitingastofu Hótel Héraðs á Egils-
stöðum og nýbúinn að opna rauð-
vinsflösku. „Ég veit ekki hvort ég
reyni aftur á morgun. Það var búið
að vara mig við en ég tók ekki mark
á því. Ég hef lært margt um íslenskt
veður síðustu stundirnar," sagði
Jim Rogers.
Guli Benzinn mun vera
óskemmdur eftir bylinn á Möðrudal
>«*>g Jim Rogers kampakátur þrátt
fyrir allt. -EIR
ÞAE> HEFUR VANTAÐ
3AKVÖRÐ í SÓFANN!
Flugvél snúið við:
Eldur í
hreyfli
Eldur kom upp í hreyfli í flugvél
Flugfélags íslands í gær um 20 mín-
útum eftir að hún fór í loftið frá Eg-
ilsstöðum. Vélin var á leið til Akur-
eyrar um kl. 18 í gær þegar eldurinn
kom upp. Flugstjóra vélarinnar
tókst að slökkva eldinn en vélinni
var flogið aftur til Egilsstaða. Sex
farþegar voru í vélinni sem lenti á
flugvellinum án vandræða og án
þess að neinn sakaði. Ekki er vitað
um eldsupptök en vélin bíður þess
að verða skoðuð. Farþegarnir voru
fluttir með annarri vél til Akureyr-
ar skömmu síðar. -hb
Reykj avíkurborg:
Dýrara í sund
Jón Ólafsson tónlistarmaður faðmar Felix Bergsson leikara í hófi sem haldið var að lokinni frumsýningu leikritsins
Hinn fullkomni jafningi í fslensku óperunni í gærkvöld. Felix er höfundur og eini leikari verksins sem fjallar um
homma í Reykjavík samtímans. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. DV-mynd HH
A-flokkar auglýsa
eftir frambjóöendum
Aðgangseyrir að sundstöðum
Reykjavíkurborgar hækkaði um
áramótin. Verð einstakra miða
stendur í stað en kort hækka veru-
lega. Þannig hækkar þrjátíu miða
kort úr 3000 krónur í 3600 krónur
eða um 20%. Tíu miða kort hækkar
úr 1200 krónum í 1300 krónur og tíu
miða kort fyrir börn hækkar úr 350
krónum í 400 krónur. Þá hækkar
leiga á sundfotum úr 170 krónum í
200 krónur. Árskortin lækka hins
vegar og kosta nú 15000 krónur en
kostuðu 17500 krónur.
Sem fyrr sagði er verð á einstökum
miðum óbreytt; 165 krónur. -EIR
- Kvennalistakonur í Reykjavík bjartsýnar á að semjist
Fótbolti í reyk
A-flokkarnir munu báðir senda
fjölmiðlum auglýsingar í dag þar
sem þeir auglýsa eftir frambjóð-
endum sem tilbúnir eru að taka
þátt í prófkjöri
flokkanna í
Reykjavík vegna
samfylkingar í al-
þingiskosningun-
um í vor. Ekki er
vitað hvað
Kvennalistinn
hyggst gera. Pró-
kjörið er opið og Birgir Dýrfjörð.
almennt og fer
fram 23. eða 30. janúar næstkom-
andi en framboðsfrestur er til kl.
17 þann 8. janúar næstkomandi.
Að sögn Birgis Dýrfjörð, sem
hefur unnið að undirbúningi og
samningum vegna samfylkingar-
innar fyrir Alþýðuflokkinn, er
flokksaðild ekki skilyrði fyrir kjör-
gengi samkvæmt samkomulagi
flokkanna tveggja. Hver flokkur
fyrir sig á að velja 6 til 9 frambjóð-
endur en ekki taldi Birgir líklegt
að svo margir sæktu um. En ef svo
yrði þá yrðu flokkarnir með ein-
hverjum hætti að úrskurða um
hverjir fari fram fyrir þeirra hönd.
Jóhanna Sigurðardóttir á kost á
að fá 4. sætið á framboðslista og
þarf því ekkert að hafa fyrir hlut-
unum. Henni hefur verið formlega
boðið pláss í flokkskassa síns
gamla flokks. Jóhanna ætti þvi að
eiga víst þingsæti á næsta kjör-
tímabili. Jóhanna
hefur hins vegar
látið uppi að hún
vilji fá sína mæl-
ingu í prófkjöri,
bás fyrir sig, en
ekki mun unnt að
verða við þeirri
ósk.
okkur eru málin enn í gerjun. Mér
finnst það mjög líklegt að við ræð-
um við fulltrúa Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags á næstu dögum,
þó hefur enginn fundur verið boð-
aður enn,“ sagði Kristin Blöndal
myndlistarmaður sem situr í
samninganefnd Kvennalistans í
Reykjavík. „Ég er frekar bjartsýn á
að þetta leysist en auðvitað er
hugsanlegt að þetta fari á hinn veg-
inn,“ sagði Kristín í gærkvöld.
-JBP
Eldur kviknaði í potti á eldavél
við Eiðistorg I Reykjavík síðdegis i
gær. Húsráðandi sat í stofu ásamt
félögum sínum og fylgdist með
viðureign Manchester United og
Middlesborough þegar eldurinn
kom upp. Var spennan það mikil að
félagamir tóku ekki eftir því að
kviknað var í fyrr en eldtungurnar
voru farnar að hita á þeim bakið.
Félögtmum tókst að slökkva eld-
inn áður en slökkviliðið kom á vett-
vang. „Þeir horfðu á seinni háifleik
í reyk,“ sagði slökkviliðsmaður i
samtali við DV. -EIR
„Ég veit ekkert Kristfn Blöndal.
um Kvennalist-
ann, þær geta komið eins og aðr-
ir,“ sagði Birgir Dýrfjörð í gær-
kvöldi. Hann sagðist ekki hcifa
heyrt neitt um vilja kvennanna en
undirbúningur undir framboð
samfylkingarinnar eru á fleygi-
ferð.
„Þessar auglýsingar koma
manni töluvert á óvart. En hjá
Blaðagámar sprengdir
í stað póstkassa
Póstþjónustan á höfuðborgar-
svæðinu læsti póstkössum um ára-
mótin til að hlífa þeim og inni-
haldi þeirra fyrir sprengingum. í
staðinn réðust sprengjuvargar á
blaðagáma og höfðu slökkviliðs-
menn i nógu að snúast vegna þess.
Blaðagámar eru illa varðir fyr-
ir sprengjum og getur hætta skap-
ast þegar í þeim kviknar enda
mikOl eldmatur í þeim. Engin
slys hlutust þó af blaðagáma-
sprengingum tmi áramótin.
-EIR
Veðrið á morgun:
Hiti um eða
undir frost-
marki
Á morgun er gert ráð fyrir
minnkandi norðaustanátt á öllu
landinu. Smáél verða norðaust-
an- og austanlands en annars
verður úrkomulaust og allviða
léttskýjað. Hiti verður um eða
undir frostmarki.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Maggi
-gœði, úrval og gott verð
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 nv véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
n
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
i