Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999 33 Fréttir Verslunarferðir til útlanda: Flogið á vit ævintýranna Heimsækja ættingjana á íslandi Mæðgurnar Sigrún Hansen og Sigrún Jónsdóttir skera sig úr far- þegahópnum frá Glasgow að því leyti að þær nýttu sér ferðina til að heimsækja ættingja sína hér á landi. Þær hafa nefnilega verið bú- settar á eyjunni Mön í írlandshafi siðustu fjögur ár. Eyjalífíð á vel við þær og voru þær útiteknar og hraustlegar og hefðu eins getað ver- ið að koma frá sólarströnd. „Við erum komnar til að heim- sækja alla ættingjana. Ætlunin er að vera hér á landi í tæpar þrjár vikur og búa hjá fjölskyldunni í Hafnarfirði. Við fórum i verslunar- leiðangur í Glasgow á leiðinni hing- að. Það er gríðarlega mikið af góð- um verslunum í borginni og þægi- lega stutt á milli þeirra. Það auð- veldar allt að hafa stuttar fjarlægðir og ég læt aldrei hjá líða að kíkja í búðir þegar ég á leið um borgina," sagði Sigríður. Ekki meira mál en að skreppa bæjarleið Tveggja daga verslunarferð til Glasgow er fljót að líða en vinkon- urnar Ásdís Ármannsdóttir úr Sandgerði og Fanney Magnúsdóttir frá Keflavík voru hæstánægðar með ferðina. Ásdís var sjálfskipaður leið- sögumaður í ferðinni enda hennar þriðja skipti en Fanney var að fara í fyrsta sinn. „Þetta er ekki meira mál en að skreppa bæjarleið að fara til Glas- gow,“ sagði Sigurrós, móðir Ásdís- ar, en hún var að sækja þær í Leifs- stöð „Við erum báðar í vinnu í vetur og þess vegna gátum við leyft okkur að gera innkaup í búðunum úti. Ætli við verðum ekki að viður- kenna að við höfum keypt talsvert mikið í ferðinni. Það er alveg frábært að versla í Glasgow og mikið af skemmtilegum búð- um,“ sögðu Ásdís og Fanney. Aðspurðar hvort þær teldu sig hafa gert góð kaup svör- uðu þær játandi. Margir hlut- ir væru miklu ódýrari en hér heima. „Við gerðum lítið annað en vera í búðum enda tíminn mjög knappur í ferðinni. Við nutum þess bæði kvöldin að fara fínt út að borða en það er nóg af góðum veitingastöðum í borginni. Við gætum ekki ver- ið ánægðari með þessa ferð,“ sögðu vinkonumar einum rómi. Erum ekki verslunarglaðar Þær Eygló Sigurjónsdóttir og Jak- obína Jónsdóttir hafa oft ferðast saman. Þær eru starfsfélagar og búa í Keflavík. „Við ákváðum að skreppa í nokkra daga og lyfta okk- ur upp,“ sögðu þær Eygló og Jak- obína. Þær hafa oftsinnis heimsótt Glasgow og eru öllum hnútum kunnugar þar í borg. „Við erum langt frá því að vera verslunarglaðar. En við fórum auð- vitað aðeins í búðir og gerðum nokkum verðsamanburð. Það kom á daginn að margt af því sem við vorum að leita að reyndist ódýrara í Glasgow en hér heima.“ í fyrri ferðum hafa þær haft fyrir sið að skreppa út fyrir borgina og meðal annars heimsótt Edinborg. „Við erum vanar að leita uppi sýn- ingar og skemmtilega menningar- viðburði og skoða merkar bygging- ar. Við ákáðum hins vegar að fara ekki út fyrir borgina í þetta sinn en ferðin í heild var mjög vel heppn- uð,“ segir Jakobína Jónsdóttir að lokum. Vorum aðallega á pöbbunum „Við keyptum dálítið af jólagjöf- um og einnig aðra hluti. Þetta var þó alls ekki verslunarferð heldur miklu frekar kærkomið frí og skemmtiferð," sagði Helgi Rafnsson Helgi Rafnsson og Þórdís Sigurjónsdóttir fóru í skemmtiferð til Glasgow. Sigrún Hansen og Sigríður Jónsdóttir voru ánægðar að koma i heimsókn til íslands. Árið um kring fjölmenna íslend- ingar til útlanda í skemmti- og verslunarferðir auk þeirra fjöl- mörgu sem stefna til suðrænna landa um stórhátíðir. Mörgum sögum fer af innkaupa- gleði landans og því kaupæði sem rennur á þá þegar þeir stíga inn úr dyrum stórverslana, hvort heldur er í Glasgow, Newcastle eða Dublin. En er ekki orðin breyting á eftir að almennt verðlag hér á landi hef- ur lækkað á síðastliðnum árum? DV ræddi við nokkra íslendinga nýkoma frá Glasgow og komst að þeirri niðurstöðu að innkaup væru ekki aðalatriðið í ferðinni heldur og ekki síður að lyfta sér upp i skamm- deginu. Móðir Ásdísar, Sigurrós Tafjörd, var að taka á móti þeim Ásdísi og Fanney f Leifsstöð. Eygló Sigurjónsdóttir og Jakobína Jónsdóttir voru að koma frá Glasgow. Dætur þeirra, þær Ester Rúnarsdóttir og Guðný Guðmundsdóttir, voru að sækja þær á flugvöllinn. en hann var að koma ásamt Þórdísi Sigurjónsdóttur úr þriggja daga ferð til Glasgow. Þetta var fyrsta ferð Þórdísar til Skotlands en Helgi hafði farið einu sinni áður. Þótt þau hafi ekki dval- ið mikið í verslunum sögðust Þórdís og Helgi viss um að margt væri ódýrara í Glasgow en hér heima. Þó væru hlutir, eins og til dæmis ýmis konar merkjavara, sem væri jafn- dýr og jafnvel dýrari en hér. „1 svona stuttri ferð gefst ekki tími til að gera margt. Við ákváðum að fara ekki út fyrir borgina í þetta sinn. Við létum líka söfn og sýning- ar bíða betri tíma. Það má segja að við höfum aðallega verið á pöbbun- um og reynt að slappa af,“ segir Helgi og kímir. Þórdís og Helgi sögðust almennt ánægð með ferðina enda hefðu þau verið á fínu hóteli með ágætri þjón- ustu. -AG Þú sest inn í heitan og notalegan bílinn, þegar þú hefur lokiö viö morgunkaffiö og þarft ekki aö skafa rúðurnar. Verö 18.000 kr. meö ísetningu. H. Hafsteinsson, sími 895 0900 Fjarstýröur ræsibúnaður/samlæsingar I Cart umboðsskrifstofa íslenskra listamanna Ó s k u m í s I e n s k u m listamönnum, G&G VEITINGAR, HÓTEL L0FTIEIÐIR m œœ FÍNN MIDILL VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF styrktaraðilum þ e i r r a o g þjóðinni allri farsældar á n ý j u á r i . vegabréf íslenskrar listar árið 1999 SlMAR 552 6296 • 862 8023 f NÝtJU LJÓBt wivWiiNwie í NÝJU UÓSI ÆKf éSÆ ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLA6IÐ HF MYNDSKJÓÐAN MARGMIÐLUN TVG - ZIMSEN tf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.