Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Side 19
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999
23
Fréttir
Þú getur þakkaö fyrir þitt hlutskipti
Gefum bágstöddum von
Body Pump Fitubrennsla
Fyrirlestur einu
sinni í mánuði
Kickbox
Tae Kwon Do
TíLBOg
Spinning
Eróbikk
Tækjasalur Einkaþjálfun
Fitubrennsla
Kynntu þér einkaþjálfunarnám frá
Suðurlandsbraut 6 (bakhús) * Sími 588 8383
f NYTT >
Átakskeppni GYM 80
Vegleg verðlaun í
V boði. >
International sproTtfsclénce assosiation
Viðskiptablaðið, Vísir.is og TölvuMyndir með viðskiptavef á Vísi.is:
••
Oflug upplysingaveita
Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri TölvuMynda, l.t.v., Örn Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptablaðsins, og Þorvaldur Jacobsen, fram-
kvæmdastjóri Vísir.is, handsala samkomulag um myndun öflugs upplýs-
ingavefs um viðskipti og atvinnulíf á Vísi.is
Gíróseðlar liggja frammi í
öllum bönkum, sparísjóðum
og á pósthúsum. ^
fyrir atvinnulífið
„Samstarf þessara þriggja fyrir-
tækja skapar grundvöll til þess að
byggja upp framúrskarandi þjón-
ustu við íslenskt atvinnulíf og alla
þá sem vilja fylgjast með í hröðum
heimi viðskipta," sagði Örn Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri Við-
skiptablaðsins, eftir að Viðskipta-
blaðið, Vísir.is og TölvuMyndir
höfðu gert með sér samkomulag
um að sameina Viðskiptavef Við-
skiptablaðsins og Fjármálatorg
TölvuMynda í einn öflugan upplýs-
ingavef um viðskipti og atvinnulíf
á Vísi.is
Með sameiningu Viðskiptavefs
Viðskiptablaðsins, sem heldur úti
öflugri fréttaþjónustu um viðskipti
og efnahagsmál á visir.is, og Fjár-
málatorgs TölvuMynda, fjarmal.is,
sem veitir ítarlegar upplýsingar af
Verðbréfaþingi íslands og fjár-
málamörkuðum, er lagður grunn-
ur að uppbyggingu öflugrar upp-
lýsingaveitu um viðskipti og
avinnulíf á Internetinu. Viðskipta-
vefurinn verður hluti af netmiðlin-
um Vísi.is sem á síðustu mánuðum
hefur styrkt sig í sessi sem öflug-
asti netmiðill landsins.
„Viðskiptablaðið hefur verið
leiðandi í umfjöllun um efnahags-
mál og atvinnlíf á íslandi, Tölvu-
Myndir er eitt stærsta hugbúnað-
arfyrirtæki landsins sem m.a. hef-
ur sérhæft sig í þjónustu við fjár-
málamarkaðinn og sjávarútveg.
Vísir.is hefur á skömmum tima
fest sig í sessi sem stærsti íslenski
netmiðillinn. Sameiginlega geta
þessi fyrirtæki tryggt að Viðskipta-
vefurinn bjóði upp á besta mögu-
lega aðgang að hagnýtum upplýs-
ingum fyrir atvinnulífið, lifandi
tengingu og upplýsingar af inn-
lendum sem erlendum fjármála-
mörkuðum, öfluga fréttaumfjöllun
og greiningu á upplýsingum,"
sagði Örn. Hann sagði enn fremur
að notendur Vísis.is gætu vænst
þess mjög fljótlega að sjá árangur
af samstarfi Viðskiptaþlaðsins,
TölvuMynda og Vísis.is. -hlh
FáskrúösQ öröur:
Sjúkrabílstjórar
segja upp
DV, Fáskrúösfirði:
Allir sjúkrabílstjórar á Fá-
skrúðsflrði sögðu upp störfum firá
og með áramótum. Ástæðan er
kjaradeila. Fyrir ári var gerður
samningur milli RKÍ og ríkisins
um tilhögun sjúkraílutninga í
landinu. í samningi þeim er kveð-
ið á um að sjúkraílutningamenn
séu starfsmenn heilsugæslustöðva.
Bilstjórarnir benda á að ekki hafi
verið aukið fjármagn til heilsu-
gæslustöðvanna til að standa
straum af auknum kostnaði vegna
þessa.
Þeir hafa veitt Landssambandi
slökkviliðsmanna samningsumboð
fyrir sig svo hægt sé að gera einn
kjarasamning á landsvísu fyrir
alla sjúkrabílstjóra á landsbyggð-
inni. Þrátt fyrir margítrekaðar til-
raunir til að fá fulltrúa ríkisins að
samningaborði hefur það ekki tek-
ist. Sveitarstjóri Búðahrepps hefur
ásamt Landssambandi slökkvið-
liðsmanna sent bréf til RKÍ og
Landssamband slökkviliðsmanna
sent heilbrigðisráðherra bréf
vegna málsins, án þess að fá svar.
Sjúkrabílstjórar á Fáskrúðsfirði
höfðu fengið þóknun fyrir akstur
sjúkrabílanna í formi óskatt-
skyldra tekna. Hefur verið tekið
tillit til þess í þeim greiðslum en
nú er greiddur fullur skattur af
þessari þóknun án þess að hún
hafi nokkuð hækkað vegna skatts-
ins. Þetta eru þeir ekki ánægðir
með og hafa þess vegna sagt upp
störfum, þó þeir hafi í raun aldrei
skrifað undir neinn ráðningar-
samning og telja sig ekki samn-
ingsbundna þess vegna. Þess má
geta að sjúkrabílstjórar á Fá-
skrúðsfirði hafa einnig þjónað
heilsugæslustöðinni á Stöðvarfirði
með akstur sjúklinga. -ÆK
Afgreiðslustaðirsparisjóðanna verða lokaðir
í dag, mánudaginn 4. janúar.
Verið velkomin í Sparisjóðinn strax
í fyrramálið, þriðjudaginn S. janúar.
Sendum öllum landsmönnum óskir um
gæfuríkt ár og þökkum viðskiptin
á liðnu ári.
X
SIARISJQÐURINN
-fyrir pig og pína