Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999 Fréttir Pólitískar stöðu- veitingar í hámarki Ekkert lát varð á pólitískum stöðu- veitingum á árinu sem nú er nýliðið. Þær voru líklega jafnmargar og undan- farin ár ef ekki fleiri. Smiðshöggið var rekið með skipan Þorsteins Pálssonar í stöðu sendiherra íslands í London í lok ársins. Hann var ekki eini ráðherr- ann sem fór úr stjómmálum í stöðu innan hins opinbera - en hugsanlega sá síðasti á kjörtímabilinu. Margir vilja meina að það sé skylda að bjóða stjórmálamönnum bitlinga þegar þeir láta sig hverfa úr stjórmálunum. Þeir eigi það skOið og það gefi fordæmi um að fleiri þori að fara í stjómmál vit- andi að þeir eigi greiða leið að þægi- legri stöðu að pólitísku starfi loknu. Aðrir segja að í stöður hins opinbera eigi að ráða fólk sem hefur menntun í viðkomandi fagi og fólk sem hefur reynslu i þeim geira en ekki þreytta stjórnmálamenn. Þeir eigi að finna sér vinnu sjálfir, kjósi þeir að hætta. Halldór Jónatansson, fyrrv. forstjóri Landsvirkjunar, afhendir Friðriki Sophussyni lykla að skrifstofu forstjóra Landsvirkjunar. DV-mynd HH lenskri pólitík. Hann hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins, for- sætisráðherra og ráðherra í alls 10 ár. Hann er orðinn leiður og ákvað nú í lok ársins að ganga tfi liðs við Friðrik Sophusson og Guðmund Bjamason og láta skipa sig pólitískt í sendiherrastöðu í London. Þeir stjómmálamenn em teljandi á fingrum annarrar handar sem fmna sér starf hjá einkafyrirtækj- um. Þar em gerðar kröfur um að æðstu stjórnendur fyrirtækja séu menntaðir í viðkomandi fagi og hafi reynslu af slíkum störfum. Rík- ið gerir ekki slíkar kröfur. Markús Öm Antonsson, fyrrv. borgarstjóri, fór þó tO starfa hjá einkafyrirtæki eftir að hann lét af störfum sem borgarstjóri. Þar var Markús í nokkra mánuði þangað tO hann var pólitísk skipaður Útvarpsstjóri Rík- isútvarpsins. Þorsteinn Pálsson verður sendiherra í London. Ólafur G. Einars- son, formaður bankaráðs Seðla- bankans. Friðrik Sophus- son, forstjóri Landsvirkjunar. Guðmundur Bjarnason, for- stjóri íbúðalána- sjóðs. Jón Baldvin Hanni- balsson, sendi- herra í Was- hington. Steingrímur Her- mannsson, fyrrv. seðlabankastjóri. Markús Örn Ant- onsson útvarps- stjóri. Þreyttir ráðherrar Á árinu lýstu tveir ráðherrar, Friðrik Sophusson og Guðmundur Bjamason, því yfir að þeir létu af störfum sem ráðherrar. Þeir fengu báðir stöður innan hins opinbera sem þeir vom pólitísk skipaðir í. Friðrik sem forstjóri Landsvirkjunar og Guðmundur sem forstjóri nýstofn- aðs íbúðalánasjóðs. Þeir hafa báðir setið á þingi í um tuttugu ár og breyttu nú til og létu skipa sig í þægi- legar og virðulegar stöður innan hins opinbera. Það sama gerði Jón Bald- vin Hannibalsson, fyrrv. formaður Alþýðuflokksins og nú sendiherra í Washington. Hann var orðinn leiður og sagði íjölmiðlum, aðspurður um aðdraganda ráðningarinnar, að hann hefði verið „þó nokkuð langur“. Jón Baldvin benti m.ö.o. á að stjómmála- menn eru famir að skipuleggja það með jafnvel tveggja til þriggja ára fyrirvara hvert þeir fara að loknu pólitísku starfi. Þaö hlýtur að vera verulegt áhyggju- efni fyrir kjósend- ur þegar stjóm- málamenn láta sem ekkert sé en eru löngu búnir að ákveða næstu leiki í pólitísku lífi sínu. Forseti Alþing- is, Ólafur G. Ein- arsson, hættir nú í pólitík. En það er erfitt að hætta. Þess vegna þurfti að skipa Ólaf pólitískt sem formann bankaráðs Seðlabankans. Það átti ekki að skipa hagfræðing eða ein- hvern sem hefur reynslu og þekk- ingu á bankakerfinu heldur gamlan stjómmálamann. Sama var upp á teningnum þegar Steingrimur Her- mannsson, fyrrv. forsætisráðherra, varð seðlabankastjóri í tvö ár. Hann varð að enda feril- inn með pólitískri skipun i þægilega stöðu. Athygli vek- ur að það lítur út eins og engin sér- stök þörf hafi verið á því að hafa Stein- grím í Seðlabank- anum þar sem enn hefur ekki verið skipaður bankastjóri í hans stað. Kannski er verið að bíða eftir að næsti ráðherra láti af störfum. Sendiherrann í London Þorsteinn Pálsson hefur gegnt mörgum virðingarstöðum í ís- Sátt um skipanirnar? DV benti á það um miðjan nóvem- ber á síðasta ári fyrst allra fjölmiöla að Þorsteinn væri á leið til London og DV var sömuleiðis á undan öðrum að segja frá því að Friðrik Sophusson yrði næsti forstjóri Landsvirkjunar. Fjölmiðlar eru farnir að skynja hvenær stjórnmálamenn leggjast í helgan stein og gera þá sjálfkrafa ráð fyrir pólitískri stöðuveitingu og fara að skoða hvar em lausar stöður. Öðr- um stjórnmálamönnum virðist standa á sama þegar kollegar þeirra eru skipaðir í þægilegar stöður. Stjómarandstaðan segir ekki neitt og auðvitað ekki flokksfélagar hinna pólitískt skipuðu. Almenningur get- ur heldur ekkert sagt ef stjómmála- menn segja ekki neitt. Því er af öllu þessu ljóst að á nýju ári mun pólitísk- um stöðuveitingum ekki linna. Fréttaljós jr Island er landið fyrirmyndarland. Gera landið og kerfiö og kvót- ann og miðlæga gagnagranninn að útflutnings- vöru og selja landið og stjómviskuna og ráð- herrana. Þetta er bráðsnjöll hugmynd. íslenskt þjóðfélag er senn að verða svo fullkom- ið að ekki verður frekar að gert hjá okkar fremstu mönnum og fer þess vegna vel á því að þessir afreksmenn okkar verði lánaðir og jafnvel seldir úr landi til að boða þær aðferðir og kynna þá stjómvisku sem hefur borið okkur fram til þeirrar fullkomnunar sem nú blasir við. Er það svo sannarlega verðugt verkefni hjá for- sætisráðherra og öðrum ráðherrum ríkistjórnar- innar að markaðsvæða íslenska undrið með er- lendum vísindamönnum, sem ganga á þeirra fund, til eftirbreytni fyrir aðrar þjóðir sem eru svo ólánsamar að hafa ekki íslenska ráðherra, ekki kvóta og ekki kennitölur og ekki Kára til að skapa arð og réttláta tekjuskiptingu og gera sér mat úr sjúkrasögum þjóðar sinnar. Hér er mikið verk að vinna og marga fundi að halda til að selja íslenska fyrirmyndarríkið til út- landa en heil öld er fram undan og framtíðin blasir við. Hið fullkomna ísland, það lengi lifi, húrra, húrra, húrra. Og húrra fyrir forsætisráð- herra sem hefur leitt okkur til fyrirheitna lands- ins og húrra fyrir útlensku visindamönnunum sem bentu honum á þetta. Hvorki hann né aðrir landsmenn höfðu hugmynd um hvað við erum orðin fullkomin. Dagfari Um áramót gera menn upp gamla árið og það er gert með við- tölum við helstu ráða- menn þjóðarinnar sem segja frá því sem þeim finnst um árið. Og þeg- ar maður hefur heyrt i forsætisráðherra og lesið greinar eftir for- sætisráðherra og heyrt fjallað um störf forsæt- isráðherra fer það ekki á milli mála að þetta hefur verið gott ár. Það er satt að segja ekkert sem er að. Nema þá þetta fólk, þessir póli- tísku pótintátar, sem sífellt era að nöldra og leita uppi rifrildismál, án þess þó að leggja nokkuð til málanna sjálfir. Sem betur fer ráða þeir engu. Enda hefur þjóðin bragöist rétt viö. Hún hefur selt kennitölur sínar til að einkavæða ríkisbankana, hún hefur stutt þá viðleitni alþingis og ríkisvalds að styrkja und- irstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, með þvi að gefa kvótann og með miðlæga gagnagranninum höf- um við skapað nýja auðlind úr sjúkrasögum þjóð- arinnar. Samkvæmt því sem forsætisráðherra hefur sagt okkur dreifist þjóðarauðurinn með réttlátari hætti til íslendinga heldur en í nokkra öðra landi og nú er svo komið að útlenskir vís- inda- og viðskiptafræðingar era famir að ganga á fund forsætisráðherra til að fá aö selja ísland sem Stuttar fréttir i>v Beltin bjarga Nýleg rannsókn sýnir fram á að alvarlegum augnsköðum í umferðarslysum hefur fækkað um 2/3 eftir hert lög um bílbelta- notkun. Dagur segir frá. Sundlöggur Á nýársdag syntu fjórir lögreglu- menn nýárssund í Nauthólsvík. Með þessu vora þeir að endurvekja hefð sem ríkti hérlendis frá 1910 til þriðja áratugarins. Mbl greindi frá þessu. Metár í verðbréfum Á síðasta ári numu heildarvið- skipti á Verðbréfaþingi íslands rúmum 301 milljarði króna. Þetta eru mestu viðskipti með verðbréf á einu ári í sögu þingsins. Aukning- in frá árinu 1997 er nærri því 60%. Morgunblaðið sagði frá þessu. Lifandi draugar Sagnfræðingafélag fslands stend- ur fyrir hádegisfundi í Þjóöarbók- hlöðunni á þriðjudag. Yfirskrift fundarins er „Lifandi draugar of- sækja dauða Vestur-íslendinga" en það er Vigfús Geirdal sem mun tala um rannsóknir sínar á Vestur- íslendingum. Sala fsl. aðalverktaka Aðeins seldist mn 251 milljónar hlutafé í útboði á hlutabréfum ís- lenskra aðalverktaka í eigu ríkis- ins en samtals hafði 350 milljóna hlutafé veriö boðið til kaups. Út- boðinu lauk í síðustu viku. Mbl. greindi frá þessu. Nýr upplýsingavefur Geir H. Haarde fjármálaráð- herra opnaði skömmu fyrir áramót upplýs- ingavef ríkis- skattstjóra á Net- inu. Þar má finna allar helstu upplýsing- ar um skattamál. Mbl. sagði frá. Virk samkeppni Frá og með 15. janúar næstkom- andi geta símnotendur hringt til útlanda með því að nota númerið 1010, sem er forvalsnúmer Tals, í stað 00, sem er forvalsnúmer Landssímans. Landssíminn mun þó innheimta símtölin fyrir Tal. Með þessu segja talsmenn Tals að sé hafin virk samkeppni í útlanda- símtölum. Drykkjarfontakeppni Vatnsveita Reykjavíkur mun efna til hugmyndasamkeppni um gerð drykkjarfonta í Reykjavík. Mun fontunum verða komið fyrir á fjölförnum stööum í Reykjavík. Morgunblaðið greindi frá þessu. Úthlutað úr sjóði Fyrir skömmu fór fram árleg út- hlutun úr minningarsjóði Karls J. Sighvatssonar orgelleikara. Það var Agnar Már Magnússon sem hlaut námsstyrkinn. Styrkupphæð- in er 250.000 krónur. Morgunblaöið sagði ft-á. Grísabær stofnaður Nýtt hlutafélag var stofnað fyrir áramót um rekstur svinaslátur- húss og sölu á svínakjöti. Hluthaf- ar eru Grísaból sf. og Þríhymingur hf. og skiptist hlutafé jafnt á milli aðila. Nýja hlutafélagið heitir Grísabær ehf. og er þaö til húsa í Eirhöfða 12 í Reykjavík. •uiiumiu opjUliai Jóhanna Sigurðardóttir r: við forystu- menn Alþýðu- flokks, Alþýðu- bandalags og Kvennalista áður en hún svarar tilboði Alþýðuflokksins í Reykjavík um að taka þátt í j kjöri undir merkjum flokksin: óháðra. Dagur greindi frá. -I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.