Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Síða 15
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
15
Ef eitthvað er að konu þá hlýtur það að vera legið af því að legið er
konan.
kornunga kona lifir fyrir bamið.
Hennar eigið líf? Hvar er það og
skiptir það einhverju máli? Senni-
lega ekki.
Ungar stúlkur sem horfa á töfra-
kassann fá þessi skilaboð beint í
æð. Þú hefur blæðingar og það er
stærsta vandamál llfs þíns. Þetta
er svo mikið vandamál að konur
sitja á rökstólum yfir þessu. Þú
gætir fengið leghálskrabbamein.
Krabbameinsfélagið er duglegt að
hvetja konur að koma í skoðun.
Þú getur reyndar fengið fullt af
öðrum krabbameinum en þetta er
kynbundið. Það er ekki nóg með
að þú getir dáið úr því eins og hin-
um, þú gætir orðið ófrjó og það er
voðalegt. Og svo þegar þú ert búin
að sinna skyldu þinni við samfé-
lagið og framleiða eitt stykki þjóð-
félagsþegn þá ertu að sjálfsögðu
heimavinnandi og þú lifir og and-
ar fyrir bamið þitt. Bamið er þér
allt. Þú ert bara útungunarvél.
Legið er konan
Hluti fyrir heild (pars pro toto)
er algeng aðferð til að nefna og
skýra hluti. Legið er konan. Þetta
gengur svo langt að í Bandaríkjun-
um eru legnám miklu, miklu fleiri
en nauðsyn ber til. Einfaldlega
vegna þess að ef eitthvað er að
konu þá hlýtur það að vera legið
af því að legið er konan. Hofmann
sagði um mynd Klimts af Danae
að: „Kvenlíkaminn sem slíkur er
bara aukahlutur æxlunarfær-
anna.“ - Þetta gæti ekki verið bet-
ur orðað.
Ásta Svavarsdóttir
Það er sjónvarp inni
á hverju heimili og all-
ir horfa á það. Hver sá,
eða sú, sem segist ekki
horfa á sjónvarp lýgur.
Þetta er mjög einföld
staðreynd. Þ.a.l. er
sjónvarp mikill áhrifa-
valdur í okkar menn-
ingu og öllum hinum
vestræna heimi. Þetta
vita kaupahéðnar og
þess vegna eru auglýs-
ingar stór hluti sjón-
varpsefnis.
Hégóminn — fylgd-
armaður kvenna
Fyrir nokkrum áram
var gerð stórkostleg
uppgötvun i fram-
leiðslu dömubinda, það
vom sett á þau „vængir“. Flestall-
ar konur gátu fyrir löngu sagt
þessum mönnum að þetta vantaði
en þeim datt það loksins í hug
sjálfum og hafa ekki komist yfir
það síðan. Blæðingar kvenna hafa
alltaf verið feimnismál og margar
kenningar fram um það settar. Á
öldum áður máttu konur með tíðir
ekki meðhöndla mat og eiginmað-
urinn mátti ekki leggjast með
þeim. Þær voru óhreinar.
Gmndvallaratriði í dömubinda-
auglýsingunum er að það má eng-
inn vita að viðkomandi kona hafi
á klæðum. Ber að fagna hinni öru
jafnréttisþróun sem átt hefur sér
stað síðastliðin þúsund ár. Er þó
bæði rétt og skylt að taka fram að
eitt fyrirtækið notar rauðleitan
vökva í dæmi sínu
og nefnir blóð. Svo
koma ungar stúlkur
og tala fiálglega um
öryggið sem fylgir
hinum og þessum
bindum.
Miðað við þær
skeifilegu blæðing-
ar sem þessar stúlk-
ur virðast þjást af
mæli ég eindregið
með viðtali við
lækni tafarlaust. En
þess ber að geta að
með tiikomu þess-
ara öraggu binda
geta þær verið í
hvítum buxum all-
an mánuðinn. Get-
ur ung kona farið
fram á meira? Það
er sem sagt hégóminn sem er aðal-
atriðið, en eins og ailir vita þá er
hégóminn staðfastur fylgdarmað-
ur kvenna.
Bara útungunarvél
Og þá komum við að bleiuaug-
lýsingunum. Þar birtast okkur
ungar mæður sem segja okkur af
andvökunóttum og ógurlegum
áhyggjum vegna bleiuútbrota
barna þeirra. Það eru sennilega
feður að þessum
börnum en þeir
era væntanlega
úti á veiðum.
Samkvæmt þess-
um auglýsingum
þá skipta íslensk-
ir feður aldrei á
bömum sínum.
Og þegar móðir-
in áhyggjufulla
er að vagga út-
grátnu bleiuút-
brotabarni sínu í
innskoti þá er
vinnuþreyttur
faðirinn sofandi á sínu græna.
Nema að þessar auglýsingar séu
svo raunsannar að þetta séu allt
einstæðar mæður. Ég efast. Tók þó
steininn úr nýlega þegar enn ein
móðirinn birtist á skjánum með
þeim orðum: „Andri Dagur er mér
allt.“ Þvílíkt dásemdarlíf. Þessi
Kjallarinn
Ásta
Svavarsdóttir
bókmenntafræðingur
„Miðað vrð þær skelfilegu blæö-
ingar sem þessar stúlkur virðast
þjást af mæli ég eindregið með
viðtali við lækni tafarlaust. En
þess ber að geta að með tilkomu
þessara öruggu binda geta þær
verið í hvítum buxum allan mán-
uðinn. - Getur ung kona farið
fram á meira?“
Því blæðir, það fæðir
Vinstrihreyfingin-grænt framboð
Margir vinstrimenn bera þá von
í brjósti að nú sé barátta fyrir
hefðbundnum vinstri sjónarmið-
um að komast í góðan farveg.
Kannski fóram við að bjóða mark-
aðshyggjuöflunum og hentistefn-
unni byrginn. Vonandi sé 20 ára
undanhaldi vinstri manna lokið,
en öflug sókn þeirra framundan.
Með Vinstri hreyfingunni-grænu
framboði sé að renna í einn far-
veg, annars vegcir fiölþætt grasrót-
arbarátta fyrir vinstri sjónarmið-
um og hins vegar sumir þeir þing-
menn sem helst hafa stutt þessi
sjónarmið.
Mörkin milli vinstri og hægri
virðast reyndar oft óskýr enda
fiöldi auglýsingapólitíkusa sem
fiska á báðum miðum eftir því
sem hentar þeim best hverju
sinni.
Hver eru vinstri sjónarmiðin?
Vinstri sjónarmiðin eru sjónar-
mið jafnréttisins og hins mann-
- tímamót
eskjulega. Við viljum ábyrgjast
velferð hvert annars. Við berjumst
fyrir því að laun og kjör séu nógu
góð svo af þeim sé lifandi eðlilegu
lífi. Þetta á við um vinnandi fólk,
konur sem karla, en ekki síður um
gamalt fólk, öryrkja og nemendur.
Jafnrétti til bóknáms, iðnnáms og
listnáms án tillits til efnahags.
Vinstri menn vilja efla heilbrigðis-
þjónustuna og krefiast þess að
efnahagur ráði ekki hverjir njóti
hennar.
Vinstrimenn vilja jafnrétti til
þjóðfélagslegra
áhrifa. Þeir vilja
efla lýðræði
gagnvart vald-
höfum, lýðræði
gagnvart yfirráð-
um annarra yfir
okkur. Þeir vilja
brottfór hersins,
úrsögn úr hem-
aðarbandalaginu
NATO og era á
móti innlimun
þjóðarinnar í
Evrópusamband-
ið. Vinstri menn eru friðarsinnar,
vilja afvopnun hér sem erlendis og
eru á móti vopnaðri og efnahags-
legri kúgun.
Vinstrimenn vilja sameign og
samnýtingu á auðlindum landsins.
Þeir vilja byggðastefnu sem felur í
sér jafnrétti til búsetu. Vinstri
menn vilja bæta umhverfi manns-
ins og stuðla að náttúruvernd og í
samræmi við slíkar þarfir í lengd
og bráð að efla hérlendis nýtingu
í pólitík?
sjávarafurða og land-
búnaðar fremur en
að byggja á stóriðju.
Að olnboga sig
áfram
Markaðshyggju-
menn telja að fram-
farir verði mestar ef
hinum ríku er gert
sem auðveldast að
efla rekstur sinn og
auð. Alltaf muni eitt-
hvað hrjóta til hinna
i leiðinni. Markaðs-
hyggjan byggir á
augnabliksgróða og
er skammsýn. Að
hennar mati er alveg
voðalegt hvað mikið
fer í samfélagsþjón-
ustu, vegna hinna
sjúku, gömlu og til menntamála.
Þeim finnst þó allt í lagi að eitt-
hvað eyðist í þetta ef hinir ríku fá
sæmilega prósentu af peningnum
sem í þetta fer og geta þannig eflt
rekstur fyrirtækja sinna. Þetta
kalla þeir einkavæðingu. Þeir telja
að mikill peningur fáist í rekstur-
inn með því að selja landið undir
her og alþjóðlega auðmagnsrisa,
enda fá þeir mestallan hagnaðinn
af því.
En hvar stendur fólkið? - Því er
ekki að leyna að margt venjulegt
fólk tekur undir ýmis sjónarmið
markaðshyggjunnar, gegn eigin
hagsmunum. Mikil vinna og flóð
villandi upplýsinga fiölmiðlanna
gerir okkur erfitt að fóta okkur á
eigin stefnu. Henti-
stefhumenn, sem ráða
fyrir flokkum, sem
menn töldu áður að
mætti treysta, sveifl-
ast eins og gosar út frá
augnabliks hagsmun-
um sínum og ragla
menn bara í ríminu.
Tímamót í baráttu
vinstri manna?
Vinstrihreyfing-
in-grænt framboð
gæti táknað tímamót í
baráttu fyrir sjónar-
miðum vinstri
manna. En til þess að
svo verði þurfa vinstri
menn að taka virkan
þátt í uppbyggingu
hreyfingarinnar og
starfi. Hún þarf að verða okkar
umræðuvettvangur, hún þarf að
breiða út vinstri sjónarmið í kappi
við markaðshyggjuöflin, hún þarf
að móta baráttuleiðir. Hún þarf að
temja sér lýðræðisleg vinnubrögð
og opna umræðu, sams konar
vinnubrögð og hún ætlar að koma
á í þjóðfélaginu öllu. Hún má
aldrei leyfa belgingslegum frama-
gosum að koma í stað hreyfingar-
innar. Þetta gerðist í Alþýðu-
flokknum, í Alþýðubandalaginu og
nú í „samfylkingu þeirra". Við
erum á tímamótum. - Vonandi
tekst okkur með Vinstri hreyfing-
unni-grænu framboði að skapa
góðan vinstri flokk.
Ragnar Stefánsson
„Vinstrihreyfingin-grænt framboð
gæti táknað tímamót í baráttu fyr-
ir sjónarmiðum vinstri manna. En
til þess að svo verði þurfa vinstri
menn að taka virkan þátt í upp-
byggingu hreyfingarinnar og
starfí. Hún þarf að verða okkar
umræðuvettvangur... “
Kjallarinn
Ragnar
Stefánsson
jarðeðlisfræðingur
Með og
á móti
Var leikaðferð kvenna-
landsliðsins í handbolta
gegn Rússum rétt?
Theodór Guöfinns-
son, landsliðs-
þjálfari kvenna.
Varnarleikur-
inn gekk vel
„Ég var búinn að skoða marga
leiki rússneska liðsins af mynd-
böndum og hef auk þess séð það
spila sjálfur
nokkrum sinn-
um. Út frá því
lagði ég upp
leikaðferðirnar
fyrir þessa tvo
leiki um síð-
ustu helgi.
Vamarleik-
ur okkar gekk
að mörgu leyti
vel upp, og það
er staðreynd að
þegar frá eru
dregin hraðaupphlaupin fengum
við á okkur færri mörk en Rúss-
arnir úr uppstilltri vörn. Það
voru hraðaupphlaup Rússa sem
skildu á milli liðanna. Ég ákvað
að spila „aggressíva" 6/0 vörn
þar sem mikið væri keyrt út á
móti rússnesku skyttunum til að
stöðva þær, og síðan bakkað aft-
ur. Aðalmálið var að forðast sem
mest að okkar stúlkur lentu í
stöðunni einn gegn einum og það
tókst bærilega.
Sðknarleikúr okkar miðaðist
mest við að opna rússnesku
vömina á köntunum. Vandræðin
sem við lentum í voru fyrst og
fremst vegna þess að leikmenn
okkar voru of bráðir að skjóta á
markið, og við fengum á okkur
hraðaupphlaup.“
Kominn einu
skrefi of langt
„Landsliðs-
þjálfarinn er
eldhugi og
bjartsýnismað-
ur með mjög
mikinn metn-
að og grunn-
hugmyndir
hans era góð-
ar. Hins vegar
tel ég að hann
hafi verið
kominn einu
skrefi of langt,
leikirnir hafi verið lagðir upp
með það að íslenska liðið ætti í
fullu tré við það rússneska og því
verið gerðar óraunhæfar
væntingar til þess. Þegar í ljós
kom að munurinn á liðunum var
meiri en búist var yið voru síðan
íslensku stúlkumar fljótar að
lenda í slæmum stöðum í
leiknum.
Vamarleikurinn gekk þokka-
lega en hins vegar lentu rúss-
nesku stúlkuraar aldrei í telj-
andi vandræðum gegn honum.
Það hefði verið betra að spila 5/1
vöm, koma betur á móti þeim og
reyna að þvinga fram mistök og
fá þannig hraðaupphlaup. Það
var eini ravmhæfi kosturinn til
að standa betur í þeim.
í sóknarleikinn vantaði fyrst
og fremst að línumaðurinn að-
stoðaði miðjumanninn við að
komast fram hjá fremsta varnar-
manni Rússanna og skapa
þannig góð færi. í stað þess var
allt of mikið um þversendingar
yfir völlinn milli íslensku bak-
varðanna, þær rússnesku voru
fljótar að nýta sér það og fengu
mikið af ódýrum hraðaupphlaup-
um. -VS
Ragnar Hermanns-
son, þjálfari
kvennaliös Vals.
Kjalbrahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
gremum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu.
Netfang ritstjórnar er:
dvritst@ff.is