Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 29 Ásgrímur Jónsson er einn frum- herjanna í Listasafni islands. Fjórir frumherjar Síðastliðinn laugardag var Lista- safn opnað aftur eftir breytingar. Var sett upp sýning í sal 3 sem ber heitið Fjórir fhunherjar. Á henni er að fmna listaverk í eigu safns- ins eftir Þórarin B. Þorláksson, Ás- grím Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Safnið er opið frá kl. 11-17 alla daga nema mánu- daga. Kaffistofa og safnbúð eru opin á sama tíma. Sýningar Fallið í stafi í dag verður opnuð sérstök sýn- ing í Skotinu, sýningarsal aldr- aðra í Hæðargarði 31. Nefnist hún Fallið í stafi og er um að ræða innsend verk í opinni samkeppni höfunda í hönnun göngustafa inn- an félagsstöðva aldraðra i Reykja- vík. Ekki var nauðsynlegt að stafirnir hefðu notagildi en þeim mun meira lagt upp úr frumleika og skapandi hugsun og þvi má sjá ýmsar útlistanir á göngustaf. Dómnefnd mun veita viðurkenn- ingar fyrir góða hönnun og frum- leik þegar sýningu lýkur. Sýning- in er opin alla virka daga frá kl. 9-16.30 til 23. febrúar. Fjórði Branden- burgarkonsertinn Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík heldur tónleika í kvöld, kl. 20, í Bústaðakirkju. Á efnis- skránni eru Brandenburgar- konsert nr. 4 eftir Bach og Serena- de op. 48 eftir Tsjaikovskí. Gestir Tónleikar og einleikarar á tónleikunum eru Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu- leikari, Martial Nardeau flautuleikari og Guðrún Birgis- dóttir flautuleikari. Stjórnandi er Mark Reedman. Rauða ljónið: Dans og aftur dans ar til að taka þátt í stórmóti í dansi. Ágóði af sölu á Rauða ljóninu þetta kvöld fer í söfnunina, tekið verður við frjálsum framlögum og seldir verða happadrættismiðar og fleira. Samkvæmt lögum er aldurstakmark inn á Rauða ljónið en það gildir ekki um torgið sjálft þar sem skemmtidagskráin fer fram. Söngkeppni félagsmiðstöðva í kvöld verður söngkeppni félags- miðstöðva haldin i níunda skipti í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Þessi keppni er orðin snar þáttur í starfi félagsmiðstöðva á íslandi og vinsældir hennar ótvíræðar og fara vaxandi. Hundruð unglinga á aldrin- um 13-16 ára af öllu landinu taka þátt í undankeppni sem fer fram í fé- lagsmiðstöðvum landsins en talið er að fjöldi þeirra unglinga sem fram koma á úrslitakvöldinu verði um hundrað manns úr um það bil 35 fé- lagsmiðstöðvum. Einungis eru seldir 1500 miðar en miðasala fer fram í fé- lagsmiðstöðvum. Miöaverði er stillt í hóf. Húsið verður opnað kl. 18.30 og keppnin byrjar svo kl. 19 og er áætl- að að henni verði lokið kl. 23.30. Annað kvöld, á milli kl. 20 og 22, verður efnt til dansskemmtunar á Rauða ljóninu. Bestu dansarar landsins verða með frábær dansat- riði. Þau sem koma fram eru meðal annars dansarar úr Grease, söng- flokkurinn Brooklyn Five, dansarar úr Dirty Dancing í uppfærslu Verzl- unarskóla íslands og leikararnir Halldór Gylfason og Friðrik Frið- riksson. Þá verður almennur dans undir stjóm Jóhanns Arnar dans- kennara. Skemmtanir Skemmtunin er haldin til styrkt- ar íslensku afreksfólki í dansi sem í febrúar heldur til Kaupmannahafn- Dansarar úr Grease mæta á Eiðistorgi annaö kvöld. Veðrið í dag Stormur norð- vestan til Vestur við Hvarf er um 960 mb. lægð sem þokast norðnorðaustur. í dag verður hvöss sunnanátt og rigning vestan til á landinu en lítið hægari um landið austanvert. All- hvöss eða hvöss suðvestanátt síð- degis og sums staðar stormur norð- vestan til. Skúrir sunnan og vestan til en þá léttir nokkuð til um landið norðaustanvert. Hiti viða 4 til 9 stig í dag. Á höfuðborgarsvæðinu verður hvöss suðaustanátt og rigning. Snýst í allhvassa eða hvassa suð- vestanátt með skúrum síðdegis. Hiti 5 til 8 stig í dag en kólnar heldur þegar líður á kvöldið. Sólarlag í Reykjavík: 17.04 Sólarupprás á morgun: 10.15 Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.02 Árdegisflóð á morgun: 5.25 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri Bergsstadir Bolungarvík Egilsstaöir Kirkjubœjarkl. Keflavíkurflv. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Bergen Helsinki Kaupmhöfn Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Þrándheimur Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Halifax Frankfurt Glasgow Hamborg Jan Mayen London Lúxemborg Mallorca Montreal Narssarssuaq New York Orlando París Róm Vín Washington Winnipeg skýjaö 3 rigning 4 rigning 3 -5 rigning 1 rigning 7 alskýjaö 1 rigning 6 rigning og súld 6 hálfskýjaö -3 snjókoma -24 skýjaö -7 léttsicýjaö -17 -13 alskýjaö 4 alskýjaó -6 heiöskírt 11 skýjaö 1 alskýjaö 1 súld á síó. kls. 8 skýjaö -13 rigning og súld 4 snjókoma 0 mistur 3 snjóél 1 léttskýjaö 8 þoka -14 snjókoa -8 þokumóöa 1 hálfskýjaó 17 skýjaö 6 skýjaö 5 snjókoma 0 alskýjað 9 heiöskírt -9 Eve's Bayou Eve’s Bayou sem Bíóborgin sýn- ir gerist sumariö 1962 og hefst í veislu sem Batiste-fjölskyldan heldur. Hin tíu ára Eve (Jumee Smollett) gantast við móður sína Roz (Lynn Whitfield) og frænku sína Mozelle (Debbi Morgan) en faðir hennar, læknirinn Louis Batiste (Samuel L. Jackson), dans- ar við konurnar. Þegar hún sér eldri systur sina Cisely (Meagan Good) dansa við föður þeirra fyllist hún afbrýðisemi og flýr út í vagna- '////////< Kvikmyndir geymslu þar sem hún sofnar. Hún vaknar við hávaða og sér að faðir hennar er þar ásamt einum veislugestinum, Maddy, og daðra þau hvort við annað. Eve segir systur sinni frá því hvað hún hafi séð og fylgjast þær með því þegar faðir þeirra kemur að sækja meira vín og hverfur á braut ásamt Maddy. Þessi atburð- ur hefur mikil áhrif á Evu sem fer að skynja betur hlutina í kringum sig þar sem hjátrúin er mikil og allir eiga sér leyndarmál. Nýjar myndir í kvikmynda- húsum: Bíóhöllin: Enemy of the State Bíóborgin: Ronin Háskólabíó: Spánski fanginn Háskólabíó: Meet Joe Black Kringlubíó: The Waterboy Laugarásbió: Rush Hour Regnboginn: Rounders Stjörnubíó: Stjúpmamma tFrval A NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA f ÁSKRIFX í SÍIN/IA 550 5000 Hlutverk og ábyrgð foreldra við aldarlok Málþing undir yfirskriftinni Hlut- verk og ábyrgð foreldra í ljósi lífs- gilda, trúar og þekkingar verður haldið á morgun, kl. 13.30, í Nor- ræna húsinu. Um þetta mál fjalla í erindum sínum Karl Sigurbjörns- son biskup, dr. Sigrún Júliusdóttir félagsráðgjafi og Jónína Þ. Tryggva- dóttir kennari. Samkomur Háskólafyrirlestur Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir mun flytja erindi um MS-verkefhi sitt: Sameindahermun milli M- prótina streptókokka og keratína í meingerð psoriasis, í boði Rann- sóknamámsnefndar læknadeildar. Erindið flytur hún kl.16.15 í dag í kennslustofu á 3. hæð I Læknagarði. Samavikan Odd Mathis Hætta, dósent við Há- skólann í Finnmörku, heldur fyrir- lestur um pólitíska stöðu Sama og seg- ir frá stofnunum sem stuðla að menn- ingu og þjóðháttum Sama í Norræna húsinu í kvöld, kl. 20. Eftir fyrirlestur- inn verða pallborðsumræður um rétt- inn til óbyggðanna. Þátttakendur: Odd Mathis Hætta, Noregi, Haraldur Ólafs- son prófessor og fleiri. Allgóð vetrarfærð Allir helstu þjóðvegir landsins em færir og er all- góð vetrarfærð á öllum aðalvegum landsins. Hálka leynist víða og sums staðar er talsverð hálka á veg- Færð á vegum um og þá sérstaklega á Norður- og Austurlandi á vegum sem liggja hátt, til að mynda er veruleg hálka í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Ástand Skafrenningur E3 Steinkast E1 Hálka C^) Ófært E Vegavinna-aögát s Öxulþungatakmarkanir □ Þungfært © Fært fjallabílum Dóttir Guðrúnar og Ingólfs Þessi litla stúlka er frumburður Guðrúnar Katrínar Gunnarsdóttur Barn dagsins og Ingólfs Arnars Magn- ússonar. Hún kom í heim- inn 16. janúar á fæðingar- deild Landspítalans. Við fæðingu vó hún 17,5 merkur og var 53 sm. Barn dagsins í dálkinum Barn dagsins eru birtar myndir af ungbörnum. Þeim sem hafa hug á að fá birta mynd er bent á að senda hana í pósti eða koma með myndina, ásamt upplýsingum, á ritstjórn DV, Þverholti 11, merkta Barn dagsins. Ekki er síðra ef barniö á myndinni er í fangi systur, bróður eða foreldra. Myndir eru endur- sendar ef óskað er. Gengið Almennt gengi LÍ 29. 01. 1999 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 69,780 70,140 69,750 Pund 114,820 115,410 116,740 Kan. dollar 45,970 46,260 45,010 Dönsk kr. 10,6960 10,7550 10,9100 Norsk kr 9,2920 9,3430 9,1260 Sænsk kr. 8,9700 9,0190 8,6450 Fi. mark 13,3660 13,4460 13,6540 Fra. franki 12,1150 12,1880 12,3810 Belg. franki 1,9700 1,9819 2,0129 Sviss. franki 49,3700 49,6400 50,7800 Holl. gyllini 36,0600 36,2800 36,8500 Þýskt mark 40,6300 40,8800 41,5000 ít. líra 0,041040 0,04129 0,041930 Aust. sch. 5,7750 5,8100 5,9020 Port. escudo 0,3964 0,3988 0,4051 Spá. peseti 0,4776 0,4805 0,4880 Jap. yen 0,599300 0,60290 0,600100 írskt pund 100,910 101,510 102,990 SDR 96,920000 97,50000 97,780000 ECU 79,4700 79,9500 81,5700 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.