Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Síða 26
26
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
Messur
Ái-bæjarkirkja: Guösþjónusta kl.
11 árdegis. Barnaguösþjónusta kl.
13.
Áskirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11.
Guösþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjöms-
son.
Breiðholtskirkja: Bamaguösþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta á sama
tíma. Tómasarmessa kl. 20. Altar-
isganga. Fyrirbænir og fjölbreytt
tónlist. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguösþjón-
usta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá fyrir
alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi
Matthíasson.
Digraneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Sunnudagaskólinn á sama tíma
í umsjá Steinunnar og Berglindar.
Léttar veitingar eftir messu.
Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
Fella- og Hólakirkja: Guösþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Bamaguðsþjón-
usta á sama tíma. Prestamir.
Glerárkirkja: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Foreldrar, afar og
ömmur eru hvött til að koma með
börnunum. Fundur æskulýðsfé-
lagsins fellur niður vegna ferða-
lags.
Grafarvogskirkja: Sunnudaga-
skóli í Grafarvogskirkju kl. 11. Sr.
Sigurður Amarson. Umsjón Hjört-
ur og Rúna. Sunnudagaskóli í
Engjaskóla kl. 11. Sr. Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir. Umsjón Ágúst og
Signý. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðsprest-
ur prédikar og þjónar fyrir altari.
Prestarnir.
Grensáskirkja: Barnastarf kl. 11.
Munið kirkjubílinn!
Guðsþjónusta kl. 11 í umsjá sr.
Hreins S. Hákonarsonar fanga-
prests. Kirkjukór Grensáskirkju.
Crganisti Árni Arinbjarnarson. Sr.
Ólafur Jóhannsson.
Hallgrímskirkja: Messa og barna-
starf kl. 11. Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur. Organistí Douglas
A. Brotchie. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson.
Tónleikar Schola cantorum kl. 17.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Háteigskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Bryndís Valbjömsdótt-
ir og sr. Helga Soffla Konráðsdótt-
ir.
Messa kl. 14. Organisti Jakob Hall-
grímsson. Sr. Tómas Sveinsson.
Hjallakirkja: Almenn guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. íris Kristjánsdóttir
prédikar. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Prestamir.
Kópavogskirkja: Bamastarf kl. 11
í safnaðarheimilinu Borgum.
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Siguijón Árni Eyjólfsson. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Eragi Skúlason.
Langholtskirkja. Kirkja Guð-
brands biskups:
Messa kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi
Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Stúlknakvartett syngur í
messunni. Kaffisopi eftir messu.
Bamastarf í safnaðarheimilinu kl.
11 í umsjón Lenu Rósar Matthías-
dóttur.
Laugarneskirkja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11.
Prestur sr. Bjarni Karlsson. Org-
anisti Gunnar Gunnarsson.
Kyrrðarstund í Hátúni kl. 13.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Prestur sr.
Bjami Karlsson. Messukaffi í um-
sjá þjónustuhóps.
< Mosfellskirkja: Guösþjónusta kl.
14. Bamastarf í safnaðarheimilinu
kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer
venjulegan hring. Jón Þorsteins-
son.
Neskirkja: Bamasamkoma kl. 11.
Starf fyrir 8-9 ára á sama tíma.
Opið hús frá kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sunnudagaskólinn
kl. 11. Foreldrar hvattir til að
mæta með bömum sínum. Baldur
Rafn Sigurðsson.
Seljakirkja: Krakkaguðsþjónusta
kl. 11. fYæðsla og mikill söngur.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Sóknarprest-
ur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl.
11. Organisti Viera Manasek.
Prestur sr. Sigurður Grétar Helga-
son. Bamastarf á sama tíma.
Afmæli_______________
Jónas Sigurðsson
Jónas Sigurðsson, forseti bæjar-
stjómar í Mofellsbæjar, Hlíðartúni
8, Mosfellsbæ, verður fimmtugur á
morgun.
Starfsferill
Jónas fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann flutti í Mosfellsbæ
1986. Jónas lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1966,
lærði húsasmíði hjá foður sínum,
Sigurði Þorgeirssyni húsasmíða-
meistara, og starfaði við þá iðngrein
til ársins 1975.
Jónas var starfsmaður Iðnnema-
sambands íslands 1975-80, fulltrúi
hjá Iðnfræðsluráði 1980-83, hóf störf
hjá Pharmaco hf. 1983 sem lager-
stjóri og hefur starfað þar síðan.
Jónas sat í stjórn iðnnemasam-
takanna og var formaður þeirra
1970-71, sat í stjórn Æskulýðssam-
bands íslands og var formaður sam-
bandsins 1974-75, stjómarmaður í
Æskulýðsráði ríkisins og formaður
ráðsins 1973-74, formaður Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík 1978-79 og
hefur átt sæti í miðstjóm og fram-
kvæmdanefnd flokksins.
Jónas var varabæjarfulltrúi í
Mosfellsbæ frá 1990 og hefur verið
bæjarfulltrúi þar frá 1993. Hann hef-
ur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Mosfellsbæ, var formaður bæj-
arráðs Mosfellsbæjar 1994-95 og
1996-97, forseti bæjar-
stjórnar Mosfellsbæjar
1995-96 og frá 1997. Þá
hefur hann verið formað-
ur fræðslunefndar bæjar-
ins frá 1994, setið í stjóm
Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu frá
1994 og var formaður
samtakanna 1996-97.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 14.3.
1970 Guðrúnu Skúladóttur, f. 2.11.
1950, bókara hjá Skráningarstof-
unni. Hún er dóttir Skúla Friðriks-
sonar, f. 1920, d. 1981, húsasmíða-
meistara frá Bakka í Bakkafirði, og
Svanfríðar Hjartardóttur, f. 1916,
húsmóður, frá Rauðsdal á Barða-
strönd.
Böm Jónasar og Guðrúnar eru
Svanfríður Linda Jónasdóttir, f.
21.8. 1968, húsmóðir í Mosfellsbæ en
maður hennar er Jón Vigfús
Bjamason verslunarmaður og eiga
þau tvö böm; Gunnhildur Björk
Jónasdóttir, f. 18.8.1971, húsmóðir á
Höfn en maður hennar er Einar
Ólafur Birgisson rafeindavirki og
eiga þau þijú börn; Sigurður Þor-
geir Jónasson, f. 9.4.1973, iðnnemi,
búsettur 1 Mosfellsbæ en kona hans
er Margrét Steinunn Hafsteinsdóttir
húsmóðir og eiga þau tvö börn.
Systkini Jónasar em
Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir, f. 27.4. 1936, hús-
móðir í Reykjavík;
Hildigunnur Sigurðar-
dóttir, f. 17.5. 1940, starfs-
maður á leikskóla, búsett
í Kópavogi; Þráinn Sig-
urðsson, f. 31.8. 1952,
byggingatæknifræðingur
í Reykjavík.
Foreldrar Jónasar eru
Sigurður Þorgeirsson, f.
31.5.1912, húsasmíðameistari í Mos-
fellsbæ, og Hulda Þ. Ottesen, f. 24.12.
1914, bankastarfsmaður.
Ætt
Sigurður er fæddur og uppalinn á
Helgafelli í Helgafellssveit á Snæ-
fellsnesi. Foreldrar hans voru Þor-
geir Jónasson, b. á Helgafelli, og
Ingibjörg Björnsdóttir húsfreyja.
Hulda er uppalin í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Þorlákur G.
Ottesen, verkstjóri og hestamaður,
frá Miðfelli í Þingvallasveit, og Þur-
íður Friðriksdóttir, verkakona úr
Vatnsdal í Húnavatnssýslu.
Jónas og Guðrún taka á móti gest-
um í Hlégarði í Mosfellsbæ á morg-
un, laugardaginn 30.1., milli kl. 17.00
og 19.00.
Jónas Sigurðsson.
Hafdís Gísladóttir
Hafdís Gísladóttir mat-
ráður, Holtagerði 14,
Kópavogi, er fertug í dag.
Starfsferill
Hafdís fæddist i Grund-
arfirði og ólst þar upp.
Hún var Barnaskóla Eyr-
arsveitar og stundaði nám
við Húsmæðraskólann á
Laugarvatni.
Hafdís var búsett á
Akranesi 1980-82, í Grund-
arflrði 1982-86, flutti þá til
Akureyrar og átti þar heima í tvö ár
en hefur verið búsett í Kópavogi frá
1998.
Hafdís hefur stundað ýmis störf,
verið í fiskvinnslu og unnið við
sauma. Hún er nú matráður við Þing-
holtsskóla í Kópavogi.
Fjölskylda
Hafdís giftist 24.10. 1981
Einari Sveini Ólafssyni, f.
10.10. 1957, stöðvarstjóra.
Hann er sonur Ólafs
Valdimars Oddssonar
verktaka, og Ágústu Ein-
arsdóttur forstöðukonu.
Börn Hafdísar og Einars
Sveins era Sigurhanna
Ágústa Einarsdóttir, f. 30.11. 1988;
Guðmundur Grétar Einarsson, f. 20.3.
1990.
Systkini Hafdisar eru Kristín
Gisladóttir, f. 25.9. 1952, bankamaður
á Höfn í Homafirði; Sturlaugur Lax-
dal Gíslason, f. 25.7. 1954, stýrimaður
á Akranesi; Guðrún Gísladóttir, f.
10.11. 1957, verkstjóri á Hellissandi;
Katrín Gísladóttir, f. 11.11. 1963,
bankamaður á Rifl.
Foreldrar Hafdísar era Gísli Krist-
jánsson, f. 21.1.1928, fyrrv. skipstjóri
í Grundarfirði, og k.h„ Lilja Finn-
bogadóttir, f. 5.5. 1930, húsmóðir og
matráðskona í Grandarfirði.
Ætt
Gísli er sonur Kristjáns Jónssonar,
útvegsb. í Móabúð í Eyrarsveit, og
k.h., Kristínar Gísladóttiu- húsfreyju.
Lilja er dóttir Finnboga Laxdal
Sigurðssonar, sjómanns og skipstjóra
á Seyðisfirði, og k.h., Kapitólu
Sveinsdóttur húsmóður frá Borgar-
flrði eystri.
Hafdís og Einar Sveinn eru í
Taílandi um þessar mundir.
Andlát
Kári Tryggvason
Kári Tryggvason rithöfundur,
Kópavogsbraut 1 A, Kópayogi, lést á
Landspítalanum 16.1. sl. Útfór Kára
fór fram á þriðjudaginn var.
Starfsferill
Kári fæddist í Víðikeri í Bárðar-
dal 23.7. 1905. Hann stundaði nám
við Unglingaskólann á Breiðumýri
1923-24, við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar 1924-25, við Héraðsskólann á
Laugum 1925-26 og sótti fjölda kenn-
aranámskeiða, m.a. við HÍ.
Kári var bóndi í Víðikeri 1928-54
og samtímis kennari í Bárðdæla-
skólahéraði, og var kennari og um-
sjónarmaður við barna- og miðskóla
í Hveragerði 1954-70, kennari í
Reykjavík 1970-73 og stundaði
heimakennslu til 1988.
Kári sat í hreppsnefnd Bárðdæla-
hrepps um skeið, var m.a. formaður
sjúkrasamlags Bárðdæla og lestrar-
félags þar.
Barnabækur sem út hafa komið
eftir Kára eru Fuglinn fljúgandi,
1943; Skólarím, 1948; Álfar og rósir,
1950; Dísa á Grænalæk, 1951; Ridd-
aramir sjö, 1951; Suðræn sól, 1952
og 1965 (undir heitinu Jökull og
Mjöll); Dísa og sagan af Svartskegg,
1960; Dísa og Skoppa, 1961; Sísí,
Túkú og apakettirnir,
1961; Skemmtilegir skóla-
dagar, 1962; Palli og Pési,
1963; Ævintýraleiðir,
1963; Dísa og ævintýrin,
1965; Börn og ferð og
flugi, 1970; Úlla horfir á
heiminn, 1973, og Bömin
og heimurinn þeirra,
1977. Þá komu út eftir
hann ijóðabækurnar
Sunnan jökla, 1968, og Til
uppsprettunnar, 1972, auk
þess sem greinar eftir
hann birtust í Náttúrufræðingnum
og fleiri tímaritum.
Kári hlaut Barnabókaverðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir bók-
ina Úlla horfir á heiminn, 1974. Þá
hlaut hann alloft listamannalaun.
Fjölskylda
Kári kvæntist 30.8. 1930 eftirlif-
andi konu sinni, Margréti Björns-
dóttur frá Refstað í Vopnafirði, f.
14.1. 1907. Foreldrar hennar voru
Björn Pálsson, f. 1854, d. 1944, gull-
smiður, og Rannveig Nikulásdóttir,
f. 1875, d. 1954, húsmóðir.
Dætur Kára og Margrétar eru
Hildur, f. 22.8. 1933, gift Gísla Eyj-
ólfssyni og eignuðust þau fjögur
börn; Sigrún, f. 20.8. 1936,
gift Finni Sveinssyni og
eiga þau tvær dætur;
Rannveig, f. 14.11. 1938,
var gift Elíasi Þ. Magnús-
syni og eiga þau einn son;
Áslaug, f. 23.3. 1941, d.
1998, var gift Erlendi
Lárussyni og eignaðist
hún eina dóttur auk þess
sem Erlendur á þrjá syni
frá fyrra hjónabandi.
Systkini Kára urðu níu
en sjö þeirra komust til
fullorðinsára. Systkini Kára sem
komust til fullorðinsára: Helga, f.
1900, d. 1996, húsmóðir í Reykjavík;
Höskuldur, f. 1902, d. 1986, bóndi á
Bólstað í Suður-Þingeyjarsýslu;
Hörður, f. 1909, d. 1993, bóndi í
Svartárkoti 1 Bárðardal; EgUl, f.
1911, d. 1963, bóndi og hreppstjóri í
Víðikeri; Kjartan, f. 1918, bóndi í
Víðikeri; Sverrir, f. 1920, bóndi í
Víðihlíð 1 Mývatnssveit.
Foreldrar Kára voru Tryggvi
Guðnason, f. 9.11.1876, d. 29.10.1937,
bóndi í Víðikeri, og k.h„ Sigrún
Ágústa Þorvaldsdóttir frá Syðri-
Villingadal í Eyjafirði, f. 2.10. 1878,
d. 1959, húsfreyja.
Kári Tryggvason.
DV
Tll hamingju með afmælið 29. janúar
95 ára
Vilhjálmur Jóhannesson, Hringbraut 50, Reykjavík.
85 ára
Margrét Sigurðardóttir, Hvassaleiti 58, Reykjavík.
80 ára
Magnús F. Einarsson, Rauðalæk 71, Reykjavík.
75 ára
María Helga Hauksdóttir, Oddeyrargötu 3, Akureyri. Reynir Lúðvíksson, Efstasundi 3, Reykjavík.
70 ára
Anna Lísa Jóhannesdóttir, Efstasundi 28, Reykjavík. Garðar B. Einarsson, Flyðragranda 18, Reykjavík. Guðrún Guðnadóttir, Sæviðarsundi 70, Reykjavík. Kári Pálsson Þormar, Ölduslóð 46, Hafnarfirði.
60 ára
Helga Þórólfsdóttir, Suðurbyggð 8, Akureyri. Valdimar Ólafsson, Norðurbrún 14, Reykjavík.
50 ára
Anney Alfa Jóhannsdóttir, Vallarási 5, Reykjavík. Ásdis Sigurgestsdóttir, Bleikjukvísl 6, Reykjavik. Halldór I. Stefánsson, Miðvangi 167, Hafnarfirði. Kristján Gestsson, Forsæti 4, Villingaholtshr. Ólöf Jóhannsdóttir, Þórufelli 18, Reykjavík.
40 ára
Bergur Bjarni Karlsson, Hlíðarvegi 14, Bolungarvik. Bjöm Jónsson, Víðilundi 2, Garðabæ. Emilia Kristín Gunnþórsdótdr, Bjarkarstíg 4, Akureyri. Friðrik Bjömsson, Löngubrekku 32, Kópavogi. Guðrún Jóhannsdóttir, Austurbrún 37, Reykjavík. Páll Rafnsson, Sflakvísl 23, Reykjavík. Sigurður Óli Björgólfsson, Eyrarholti 22, Hafnarfirði. Svanur Ólafsson, Ugluhólum 10, Reykjavík. Viðar Eysteinsson, Hátúni 10 A, Reykjavík.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáaugiýsingar
5505000