Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 17
16 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 17 íþróttir E>V íþróttir ^ 8 11 1476-1535 19 7 12 1500-1624 14 19 4 15 1443-1669 8 19 4 15 1495-1654 8 19 2 17 1466-1670 4 URVALSDEILDIN Grindvíkingar hafa unnið alla 14 heimaleiki sina gegn Þór á Akur- eyri í úrvalsdeild. Þeir hafa ennfremur gert 100 stig í 5 af síðustu sex leikjum liðanna. Skagamenn hafa einnig gott tak á Hólmurum en IA hefur unnið alla 5 heimaleiki sína gegn Snæfelli i úrvalsdeild- inni. KFÍ vann sinn 5 útisig- ur í röð í gær en þetta er félgasmet í úrvals- deild. Áður höfðu þeir mest unnið 3 útileiki í röð. KFÍ hefur nú farið í heimsókn til Hauka, Tindastóls, Snæfells, KR og Skallagríms og tekið öll stigin með sér heim. Þórsarar töpuðu sínum 12. leik í röð og eru nú aðeins þremur töpum frá því að jafna miður eftir- sóknarvert félagsmet. Keflvíkingar unnu sinn 17. heimaleik í röð í deildinni og vinni þeir síðasta heimaleik sinn gegn Þór jafna þeir eig- ið félagsmet frá árunum 1994-1996. Siöasta tap Keflvik- inga á heimavelli var 6. nóvember 1997 gegn Haukum eða fyrir 1 ári og 3 mánuðum. Þriggja stiga körfur hafa oft haldið lífi í Valsliðinu og í gær gerðu þær það svo sann- arlega i fyrri hálfleik er liðið gerði jafnmargar körfur innan og utan viö 3ja stiga línuna eða sjö. Friðrik Ragnarsson, fyrirliði Njarðvikur, gerði 23 af 42 stigum liðs- ins í seinni hálfleik. Næstur honum kom Teitur Örlygsson í hálf- leiknum meö 7 stig. Hinrik Gunnarsson Valsmaður gerði afdrifa- rík mistök í lok leiks i gær. Hann náði þá sókn- arfrákasti þegar 5 sek- úndur voru eftir og 3 stiga munur, 85-88, en í stað þess að gefa boltann út á Berg Emilsson galopinn fyrir utan 3 stiga línuna reyndi hann skot sjálfur og möguleiki Valsmanna til aö tryggja sér framlengingu fór því forgörðum. Bergur hafði gert fimm, 3ja stiga körf- ur i leiknum. „Ég er ekki alveg kominn inn í 10 manna hópinn, ég á eftir að sanna getu mína fyrir landsliðsþjálfaran- um og það ætla ég auðvit- að að gera á næstu dög- um,“ sagði Páll Axel Vil- bergsson en hann er i landsliðshópnum sem mætir Bosníu. Vndir lok fyrri hálf- leiksins í leik Keflavikur og KR gerðist það að dæmd var villa á einn leikmann gestanna sem þýddi að Keflvíkingar áttu að fá tvö vítaskot þar sem þeir voru komn- ir með skotrétt. Ekki var Óskar Krist- jánsson, fyrirliði KR, á sama máli og fékk dæmda á sig tæknivillu í kjölfarið. Óskar hélt áfram að „rabba“ viö Björgvin Rúnarsson dómara og lauk því með því að Óskar fékk brott- rekstur og áhorfendum á bandi heimamanna leidd- ist ekki þetta atferli. ÍS tapaði fyrir Stjörn- unni, 66-96, i 1. deild karla i gærkvöld. Njarðvík og ÍR leika í kvöld kl. 20 í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Á morgun leika KR og Grindavík og loks Kefla- vík og ÍS. Leikimir eru í 13. umferð. -ÓÓJ-bb/-BG/-SK Keegan ekki áfram Kevin Keegan undirstrikaði það á blaða- mannafundi I gær að hann ætlaði aðeins að stýra enska landsliðinu í knattspymu í fjór- um leikjum og eftir það mundi hann einbeita sér alfarið að þjálfun Fulham. „Það er enginn möguleiki á að ég haldi áfram með landsliðið hvernig sem svo gengur í þessum fjórum leikj- um. Ég ætla að sjálfsögðu að leggja mig 100% fram í þessu stutta verkefni," sagði Keegan við blaðamenn I gær. -GH Sigurður skorar enn fyrir varalið Walsall Sigurður Ragnar Eyjólfsson, knattspyrnu- maður úr ÍA, er kominn til reynslu til enska C- deildarliðsins Walsall í annað sinn. Hann verð- ur þar í þrjár vikur og byrjaði meö glæsibrag í fyrrakvöld því þá skoraði hann bæöi mörk varaliðs Walsall í 2-1 sigri á Birmingham. -VS „Algjör vitleysa" Ástralskur þingmaður hefur sakaö fjöimiðla i Sydney um að hafa gert heiðursmannasamkomulag við undirbúningsnefnd Ólympíuleikanna i Sydney fyrir sjö árum og lofað að birta ekki fréttir af aðferðum Ástrala við að fá leikana til Sydney á næsta ári. Forráðamenn stærstu fjölmiölanna i Sydney hafa svarað þessum ásökunum mjög harkalega og segja ásakanir þingmannsins tóma vitleysu og i raun séu þær ekki svaraverðar. „Ég hef aldrei tekið mark á þingmönnum og mun aldrei gera eftir þetta,“ sagði einn flölmiðlamaöurinn. -SK Eiður skoraði gegn WBA Eiður Smári Guðjohnsen átti góðan leik með varaliði Bolton i fyrrakvöld sem sigraði WBA, 3-2. Eiöur skoraði eitt mark og var óheppinn að skora ekki annað en skot hans fór í stöng. Daninn Bo Hansen lék sinn fyrsta leik fyrir Bolton. Hann lék í framlínunni meö Eiði Smára og skoraði 2 mörk. Colin Todd, knattspyrnustjóri Bolton, var mjög ánægður með frammistöðu Eiðs og Hansens og sagði þá banka fast á dyr aðalliösins. NBA-DEILDIN Urslitin í nótt Indiana-Philadelphia......99-95 A. Davis 16, Miller 15, Mullin 14 - Iverson 33, Geiger 22, Lynch 16. Toronto-Washington .......88-95 Willis 25, Christie 16, Carter 15 - Richmond 31, Strickland 23, Howard 14. New Jersey-Houston . (frl.) 92-93 Gill 24, Van Hom 18, Kittles 17 - Pippen 26, Olajuwon 21, Dickerson 14. Cleveland-New York ......98-74 Kemp 20, Potapenko 17, Person 14 - Ewing 14, Houston 12, Johnson 11. Utah-Denver..............97-86 Russell 21, Hornacek 19, Malone 14 - Van Exel 19, Fortson 15, Lafrentz 12. Scottie Pippen skoraði mjög umdeilt sigurstig fyrir Houston úr vítaskoti þegar 3 sekúndur voru eftir af fram- lengingu. Houston var líka heppið að jafna i venjulegum leiktíma. -VS Júlíus á toppnum 'h. EHCund Júlíus Jónasson skoraði 2 mörk fyrir St. Ot- mar í stórsigri liðsins á Grasshoppers, 16-28, i úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattieik í fyrrakvöld. St. Otmar er efst þeg- ar 7 umferðum er lokiö með 14 stig. Winterthur kemur næst með 13 stig en liðið burstaði Endingen, 36-18. Suhr kemur svo í þriðja sætinu með 12 stig. Gunnar Andrésson skoraði 3 mörk fyrir Amicitia Ziirich í 20-17 tapi gegn Wacker Thun. Amicitia er í 7. sæti af 8 liðum með 2 stig. Eiríkur og Páll Axel í landsliðshópmn Jón Kr. Gíslason landsliðsþjálf- ari hefur valið 12 manna landsliðs- hóp sinn fyrir komandi landsleiki gegn Bosníu-Hersegovínu og Lit- háen. 10 af 12 leikmönnum koma úr þremur Suðurnesjaliðum, Keflavík, Njarðvík og Grindavík, en helstu breytingar eru að Eiríkur Önund- arson, KR, og Páll Axel Vilbergsson koma inn í hópinn. Bakveröir: Falur Harðarson, Kefla- vík, Eiríkur Önundarson, KR, Herbert Amarson, Grindavík, Teitur Örlygsson, Njarðvík, Hjörtur Harðarson, Keflavík, Friðrik Ragnarsson, Njarðvík. Framherjar: Birgir Örn Birgisson, Keflavík, Hermann Hauksson, Njarðvik, Páll Axel Vilbergsson, Grindavík. Miðverðir: Friðrik Stefánsson, Njarðvík, Guðmundur Bragason, Weis- senfelt og Fannar Ólafsson, Keflavík. Helgi Jónas Guðfinnsson og Páll Kristinsson eru báðir meiddir og Baldur Ólafsson á ekki heiman- gengt frá Bandaríkjunum. Leikim- ir eru við Bosníu-Hersegovinu í Laugardalshöll 24. febrúar og við Litháen í Höllinni 27. febrúar. Frítt fyrir alla í Höllina Körfuknattleikssamband íslands og Lýsing hf. hafa gert með sér samning um að fyrirtækið bjóði öll- um landsmönnum á leik íslands og Bosníu-Hersegovínu á meöan hús- rúm í Höllinni leyfir. Það verður þvi frítt í Laugar- dalshöllina miðvikudaginn 24. febr- úar. Markmiðið er að fylla hana og skapa góða stemningu í húsinu sem virkar sem hvatning á strák- ana í landsliðinu. Þetta er örugglega í fyrsta sinn sem ókeypis verður á evrópuleik landsliða í boltagrein á íslandi. -ÓÓJ Þessar föngulegu stúlkur í listskautadeild Skautafélags Reykjavikur náðu prýðisgóðum árangri á alþjóðlegu móti í Lea Bridge í London. Stúlkurnar, sem kalla sig „ísmolana", kepptu f samæfðum skautadansi og gerðu sér lítið fyrir og lentu í öðru sæti i sínum flokki. Þetta er frábær árangur en geta má þess að stelpurnar æfa aðeins einu sinni í viku í Skautahöllinni og einu sinni í sal. Næst stefna ísmolarnir á Norðurlandamótið og ef stúlkurnar fá meiri tíma til æfinga má eiga von á enn betri árangri í framtíðinni. -SK Altt mogulegt - ísland mætir Króatíu á HM í handbolta í dag Ingibjörg Hinriksdóttir, Osijek, Króatíu: Það er góð stemning í íslenska landsliðshópnum nú þegar innan við sólarhringur er til fyrri leiks liðsins við Króata í undankeppni HM í handknattleik kvenna. „Með smáheppni hefðum við átt að sigra Króatana í Tyrklandi fyrr í vetur. Theódór þjálfari segir þó að hon- um sýnist að nokkrir leikmenn sem voru með 1997 séu komnir aftur inn i liðið en það verður bara að koma í ljós. Mér fmnst að hópurinn núna sé alls ekki slakari heldur en sá sem lék gegn Króötum heima 1997, alla vega ekki sóknarlega séð. En við misstum vissulega mikið varnarlega þegar Herdís og Judit duttu út. Ég hef samt fulla trú á því að okkur takist að ná fram góðum úrslit- um,“ sagði Inga Fríða Tryggvadótt- ir, fyrirliði íslenska liðsins, við DV í gærkvöld. - En það sem helst hefur orðið ykkur að falli eru ákveðin mistök í sóknarleiknum, eigið þið möguleika á að laga þetta fyrir morgundaginn? „Það sem skiptir mestu máli er að hausinn sé í lagi. Við kunnum allar handbolta, við kunnum að kasta og gripa og þetta á ekki að koma fyrir okkur, sérstaklega ekki i landsliðinu. En samæfing liðsins er kannski ekki næg og svo vantar stundum betri hreyfmgu í liðið.“ - Viltu spá um úrslit? „Nei, en ég get sagt þér að við förum að sjálfsögðu í hvem leik til þess aö vinna hann og samkvæmt leiknum í Tyrklandi þá er það ekki eitthvað sem er óyfirstígan- legt. En til þess að svo megi verða verðum við allar að eiga mjög góðan dag,“ sagði Inga Fríða Tryggvadóttir, fyrirliði íslenska liðsins. -ih 19. umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í gærkvöld: Njarðvíkíngar lentu í kröppum dansi gegn Val í gærkvöld og sjást hér ráða ráðum sínum ásamt Friðriki Rúnars- syni, þjálfara liðsins. DV-mynd ÞÖK - Snæfells, IA og Hauka um 8. sætið í úrslitakeppninni Bikarmeistarar Njarðvíkur komust í hann krappan á Hlíðar- enda í gær er þeir rétt mörðu botn- lið Valsmanna, 88-85. Njarðvíkingar geta þakkað fyr- irliða sínum, Friðriki Ragnars- syni, að stigin fóru með suður. Friðrik lék uppi félaga sína í fyrri hálfleik og átti þá 6 stoðsendingar á 10 mínútum en þegar þeir hittu ekki lengur í seinni hálfleik sá hann um þau mál líka og gerði 23 stig i seinni hálfleiknum, þar af vom 5 þriggja stiga körfur. Alls gerði hann 25 stig, sendi 8 stoðsendingar, tók 7 fráköst og hitti úr 8 af 13 skotum sínum. Hjá Val átti Kenneth Richards mjög góðan leik í vörn og sókn. Bergur Emilsson var einnig drjúg- ur líkt og Guðmundur Bjömsson. Bikarmeistarar Njarðvíkur, sem em ósigraðir frá bikarúrslitum, geta þakkað fyrir að sú staðreynd stendur enn eftir þennan leik. Góður sigur Tindastóls Tindastóll gerði góða ferð í Hafnarfjörð þar sem liðið sigraði Hauka, 82-91. Með sigrinum tryggðu Sauðkrækingar sér svo gott sem sæti í úrslitakeppninni en Haukamir féllu niður í 9. sæti og berjast harðri baráttu við Skaga- menn um að komast í úrslitin. John Woods var mjög atkvæða- mikill í liði gestanna og þá einkum í síðari hálfleik, Arnar Kárason gerði marga skemmtilega hluti og foringinn Valur Ingimundarson var traustur að vanda. Roy Hair- stone var öflugur í liði Hauka í fyrri hálfleik og setti þá niður 22 stig en í þeim síðari átti hann í nokkrum vanda og þá átti Óskar Freyr Pétursson mjög góða inn- komu i síðari hálfleik og sýndi skemmtileg tilþrif. Enn von hjá ÍA Skagamenn halda enn í von um sæti í úrslitakeppninni eftir að þeir sigruðu Snæfell frá Stykkis- hólmi á Akranesi, 92-83, í sann- kölluðum Vesturlandsslag. Skagamenn, drifnir áfram af þeim Kurk Lee og Degi Þórissyni ,tóku strax forystuna og héldu henni allt til loka leiksins. Það var fyrst og fremst góð vörn og stórleikur þeirra Dags Þórissonar og Kurks Lee sem skóp sigur Skagamanna, sendingar Lee voru frábærar og samvinna hans og Dags var alveg frábær. Hjá Snæ- fellingum bar mest á Grikkjanum Spyropolus og Bárði. Heppnir ísfirðingar ísfirðingar voru heppnir að sigra hálfvængbrotið lið Skalla- grims í gærkvöld. Þeir Tómas Holton og Hlynur Bæringsson, sem verið hafa bestu menn Skalla- gríms í vetur, léku ekki með liði sínu. Leikurinn var jafn lengst af en ísflrðingar voru sterkari í lokin og það réð úrslitum. Baldur Jónasson og Hrafn Krist- jánsson voru bestu menn KFÍ en hjá Skallagrimi voru þeir Kristinn Friðriksson og Sigmar Egilsson bestir. Létt æfing í Grindavík Grindvíkingar unnu ákaflega auðveldan sigur á Þór í Röstinni í gær. „Þetta var mjög léttur leikur, við héldum að þeir kæmu grimmari til leiks. Við þurftum að rífa okkur upp eftir slæmt tap á Króknum, gerðum það og þvi fór sem fór,“ sagði Páll Axel Vflbergs- son. Páll sagðist aðspurður vera mjög sáttur við að vera kominn í landsliðshópinn með bestu mönn- um landsins, eins og hann orðaði það. Keflavík sýndi styrk sinn Keflvíkingar tóku á móti KR- ingum í gærkvöldi og sigruðu, 89-81. Sigur Keflavíkur var örugg- ari en tölumar gefa til kynna og leiddu þeir um tíma með 22 stig- um. KR-ingar náðu sér ekki á strik i þessum leik og vilja væntanlega gleyma honum sem fyrst. Keith Vassel var sá eini sem spilaði af eðlilegri getu. Keflvíkingar voru ekki að spila sinn besta leik og sín- ir það ákveðinn styrk að sigra jafnsterk lið eins og KR á þokka- legum degi. Damon Johnson fór fyrir sínum mönnum að vanda og Birgir Öm skilaði sínu eins og alltaf. -ÓÓJ/-GH/-DVÓ/-EP/-bb/-BG m URVALSDEILDIN Keflavik Njarðvík KR Grindavík KFÍ Tindastóll Snæfell ÍA 2 1790-1527 34 4 1726-1427 30 6 1624-1533 26 6 1733-1586 26 7 1597-1575 24 9 1592-1561 20 10 1487-1568 18 Haukar Þór, A. Skallagr. Valur Kevin Keegan sagði í gær að hann hefði engar áhyggjur af því að hann ætti erfitt með að fylgj- ast meö leikmönnum i ensku deildinni þrátt fyrir að hann væri fram- kvæmdastjóri hjá Ful- ham. „Ég veit nákvæmlega hvað þessir leikmenn geta og þaö skiptir mig ekki máli hvernig þeir standa sig þennan laug- ardaginn eða hinn. Það sem skiptir máli fyrir enska knattspyrnu er hvernig þessir leikmenn standa sig í landsleikj- um.“ Fyrrverandi leikmenn og framkvæmdastjórar kepptust í gær við að lofa Keegan. Allir virð- ast sammála um að Keegan sé rétti maður- inn til aö taka við lands- liöinu. Hins vegar hafa allir áhyggjur af fram- haldinu eftir leikina fióra undir sfiórn Keeg- ans. Forráóamenn enska knattspymusambands- ins hafa neitað að svara þeirri spurningu hvort leitin að landsliðsþjálf- ara til framtíðar sé haf- in. Fullyrt er að sam- bandið muni reyna til þrautar að fá Keegan til að halda áfram með landsliðið. Derek Fazackerley hef- ur verið boðið að skipa stöðu aðstoðarmanns Keegans. Fazackerley þessi var aðalþjálfari hjá Blackburn áður en Bri- an Kidd var ráðinn stjóri. Þá missti hann vinnuna. Keegan þekkir hins vegar störf hans frá þvi hann var þjálfari hjá Newcastle undir sfiórn Keegans. Forráðamenn Totten- ham eru reiðubúnir að hefia viðræður við Dar- ren Anderton og Sol Campbell og framlengja samning þeirra við félag- ið. Anderton á 12 mán- uði eftir af samningi sín- um en Campbell tvö ár. Ekki er enn vitað hvort þeir vilji vera áfram i herbúðum Tottenham. Það er völlur á Everton þessa dagana. Nú er talið líklegt að Walter Smith kaupi annan leik- manninn í vikunni en það er Daninn Peter Degn. Hann er leikmað- ur með Árhus og er fastamaður í 21 árs liði Dana. Martin O’Neill, stjóri Leicester, var æfareiður á dögunum þegar for- ráðamenn Leicester sögðu að nýr völlur fyrir félagið væri ekki lengur á dagskrá. Búið var að lofa O’Neill vellinum og hann hafði notað nýjan völl sem „gulrót" til að lokka sterka leikmenn til félagsins. Nú hefur forráðamönn- um Leicester snúist hug- ur aftur og segja þeir að allt verði gert til þess að félagið geti tekið nýjan völl fyrir 40 þúsund áhorfendur i notkun á næsta ári. Grindavík (61)101 - Þór (42)70 ÍA (56) 92 - Snæfell (41) 83 Valur (41)85 - Njarövík (46)88 Skallagrímur (42) 75 - KFÍ (45) 80 Keflavík (55)89 - KR (37)81 Haukar (37)82 - Tindastóll (40) 91 15-8, 22-16, 43-31, 54-42, (61-42), 69-50, 87-57, 95-64, 101-70. Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 24, Warren Peebles 19, Herbert Amarson 18, Pétur Guðmundsson 17, Bergur Hin- riksson 12, Guðlaugur Eyjólfsson 8, Rúnar Sævarsson 3. Stig Þórs: Magnús Helgason 13, Brian Reese 12, Davíð Guð- laugsson 10, Einar Aðalsteinsson 8, Siguröur Sigurðsson 7, Óð- inn Ásgeirsson 6, Hafsteinn Lúðvíksson 6, John Gariglia 4, Hermann Hermannsson 4. Fráköst: Grindavík 40, Þór 29. Þriggja stiga körfur: Grindavík 13/32, Þór 3/14. Vítaskot: Grindavík 10/14, Þór 4/9. Dómarar: Jón H. Eðvaldsson, Erlingur Erlingsson. Ágætir. Áhorfendur: Um 250. Maður leiksins: Páll Axel Vilbergsson, Grindavík. 16-5. 29-18, 52-Al, (56-41), 66-49, 79-58, 86-74, (92-83). Stig ÍA: Kurk Lee 31, Dagur Þórisson 27, Alexander Ermonlinski 10, Jón Þ. Þórðarsson 10, Björgvin K. Gunn- arsson 9, Pálmi Þórisson 5. Stig Snæfells: A. Spyropolus 35, Bárður Eyþórsson 15, Rob Wilson 14, Jón Þór Eyþórsson 13, Mark Ramos 6. Þriggja stiga körfur: ÍA 13/23, Snæfell 10/23. Vítanýting: ÍA 7/13, Snæfell 16/23. Fráköst: ÍA 33, Snæfell 30. Dómarar: Leifur Garðarsson og Einar Einarsson, góðir. Áhorfendur: 150. Maður Leiksins: Dagur Þórisson, tvímælalaust einn besti miðherji landsins í dag. 3-0, 3-5, 8-7, 8-20, 15-28, 15-34, 22-34, 26-36, 31-39, 31-42, 39-42, 41-44, (41-46), 43-46, 45-50, 50-50, 54-58, 58-58, 58-62, 63-62, 68 68, 66-73, 74-73, 76-78, 79-83, 81-86, 8566, 85-88. Stig Vals: Kenneth Richards 29, Bergur Emilsson 18, Guðmundur Bjömsson 10, Kjartan Sigurðsson 8, Ólafur Jóhannsson 6, Hjörtur Hjartarson 6, Hinrik Gunnarsson 4, Ragnar Steinarsson 2, Ólafur Hraínsson 2. Stig Njarðvikiu': Friðrik Ragnarsson 25, Teitur Örlygsson 16, Brenton Birmingham 16, Friðrik Stefánsson 14, Ragnar Ragnarsson 9, Guðjón Gylfason 3, Hermann Hauksson 3, Páll Kristinsson 2. Fráköst: Valur 35 (12+23), Njarðvík 23 (3+20). Vítanýting: Valur 15/14, Njarðvík, 36/26. 3ja stiga skot: Valur 20/9, Njarðvík 20/8. Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og Rúnar Gíslason. Ekki nógu öraggir. Áhorfendur: Fáir ems og áður Maður leiksins: Friðrik Ragnarsson, Njarðvik. 8-7, 19-16, 25-26, 33-28, 38-35, (4345), 47-48, 53-55, 61-61, 71-70, 71-74, 75-80. Stig Skallagríms: Kristinn Friðriksson 21, Sigmar Egilsson 19, Erik Franson 14, Finnur Jónsson 13, Jóhann Ólafsson 6, Pálmi Sævarsson 2. Stig KFl: James Cason 23, Baldur Jónasson 22, Hrafn Krist- jánsson 11, Mark Quashie 9, Ray Carter 8, Tómas Hermannsson 4, Pétur Sigurðsson 3. Fráköst: Skallagrímur 29, KFÍ 39. 3ja stiga körfur: Skallagrímur 25/8, KFÍ 19/8. Vítanýting: Skallagrímur 9/2, KFÍ 24/16. Dómarar: Kristinn Albertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson. Áhorfendur: 220. Maður leiksins: Baldur Jónasson, KFÍ, hitti mjög vel. 11-5, 11-10, 25-10, 31-15, 38-19, 41-19, 47-25, 55-33, (55-37), 56-45, 64-49, 72-53, 72-65, 83-65, 83-73, 86-76, 86-81, 89-81. Stig Keflavíkur: Damon Johnson 29, Falur Harðarson 12, Fann- ar Ölafsson 11, Gunnar Einarsson 10, Birgir Birgisson 10, Hjört- ur Harðarson 8, Kristján Guðlaugsson 6, Jón Norðdal 3. Stig KR: Keith Vassel 25, Marel Guðlaugsson 14, Lijah Perkins 14, Eiríkur Önundarson 10, Magni Hafsteinsson 5, Atli Einars- son 4, Sigurður Jónsson 3, Jakob Sigurðsson 3, Eggert Garðars- son 2. Fráköst: Keflavík 33, KR 44 Þriggja stiga körfur: Keflavík 7/27, KR 9/23. Vítanýting: Keflavík 26/33, KR 22/25. Áhorfendur: Um 200 Dómarar: Jón Bender og Björgvin Rúnarsson, stóðu sig ágæt- lega miðað við hversu erfiður leikurinn var. Maður leiksins: Damon Johnson. 06, 2-8, 8-18, 15-18, 21-20, 26-31, (37-40), 39-43, 53-52, 57-64, 68-79, 71-84, 82-91. Stig Hauka: Roy Hairstone 35, Jimmy Stellato 16, Óskar F. Pét- ursson 12, Daníel Ámason 8, Bragi Magnússon 5, Leifur Þ. Leifs- son 5, Ingvar Guðjónsson 1. Stig Tindastóls: John Woods 33, Arnar Kárason 18, Valur Ingi- mundarson 13, Svavar Birgisson 10, Sverrir Sverrisson 8, ísak Einarsson 6, Ómar Sigmarsson 3. Fráköst: Haukar 24, Tindastófl 32. 3ja stiga körfur: Haukar 6/27, Tindastóll 9/21. Vítanýting: Haukar 17/22, Tindastóll 17/23. Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Einar Skarphéðinsson, þokkalegir. Áhorfendur: Um 100. Maður leiksins: John Woods, Tindastóli. * í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.