Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 10
10 lennmg FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 Listauki í hádeginu Ef þig dreymir ekki um að verða kvikmyndaleikstjóri þá elur þú senni- lega í brjósti draum um að slá í gegn sem stjarna í mynd. Þau Ólafur (til- vonandi kvikmyndagúrú) og Berglind (til í margt fyrir framan tökuvélina, en ekki þó hvað sem er) hittast i há- deginu á sviðinu í Iðnó og fara saman yfir málið. Einþáttungur Kristjáns Þórðar Hrafnssonar, „Leitum að ungri stúlku...“ fékk fyrstu verðlaun í leik- ritasamkeppni, sem efnt var til þegar húsið var opnað eftir endurbyggingu. Ætlunin er að sýna nokkur önnur verk úr samkeppninni í hádegisleik- húsinu fram eftir vetri og gefa vinn- andi fólki kost á að njóta listar með súpunni í matartímanum. Leiklist AuðurEydal Leikritið er á léttum nótum og flýt- ur áreynslulaust áfram undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leik- stjóra. Persónumar skýrast eftir því sem á líöur og samspil þeirra opnar innsýn í viðhorf, sem eru kannski ekkert svo ólík þegar upp er staðið, því að bæði sækjast eftir frægð og frama. En á ytra borði eru þau eins og hvítt og svart og þetta notar höfundurinn til þess að búa til snoturlega samskiptafléttu innan þess þrönga ramma sem smáverkið skammtar. stormar inn, fullviss um eig- ið ágæti og með sínar hugmyndir um það hvernig eigi að fara að. Og liggur ekki á því. Gunnar Hansson byggir persónuna upp hægt og síg- andi og nær vel utan um undir- liggjandi kó- míkina í textan- um. Berglind er einlæg og opin og Linda Ásgeirs- dóttir nær skemmtilegum tökum á fasi og likamstján- ingu. í svo knöppu formi, sem hér um ræðir gefst ekki svigrúm til djúpköfunar í sálarlíf persónanna, en meg- ináherslan lögð á að sýna hvernig þessi stutti fundur hefur áhrif á þau bæði. Sviðið gefur ágæta mynd af stúdíói frumbýlingsins, þar sem helstu grunnþörfum er fullnægt og klæðaburður persónanna undirstrikar í hversu ólíkar áttir þau sækja. Hádegisstundin í Iðnó var hugguleg og frumraun Krist- jáns Þórðar sem leikskálds vel heppnuð. Það hlýtur að vera ómetanlegt að fylgjast með því þegar hugverkið fær líf og lögun á sviðinu og raunar hverju leikskáldi nauðsynlegt. Framtak Há- degisleikhússins er ánægjulegt og vonandi að það nái að festa sig. Berglind ætlar að gleðja Ólaf með því að kasta þokkafuilt klæðum en hann verður bara pirraður. DV-myndir Teitur Ólafur er alvarlega þenkjandi og satt að segja orðinn dálítið þreyttur eftir að hafa fengið tólf stúlkur í prufur án þess að fmna þá réttu í hlutverkið. Hann er þess vegna ekkert sérlega uppvægur þegar Berglind Hádegisleikhús Iðnós sýnir: Leitum að ungri stúlku eftir Kristján Þórð Hrafnsson Leikstjórn: Magnús Geir Þórðar- son Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson Lýsing: Ólafur Pétur Georgsson Sköpun á staðnum Ástarsaga allra tíma, sagan af Rómeó og Júlíu, var meginþema tónleika Sinfóníu- hljómsveitar íslands í gærkvöldi, þar sem hún var vegsömuð í tónverkum tveggja rúss- neskra meistara, Tsjækovskýs og Prokofjevs. Verk Tsjækovskýs ber titilinn Fantasíu- forleikur og er eitt hans vinsælasta verk - ef ekki tónbókmenntanna allra. Ósjálfrátt teng- ir maður það þó í dag skautadansi, þar sem hið fallega ástarstef hefur verið rækilega of- notað á þeim vettvangi. En þó maður hafi ekki skautandi pör í tilfmningaþrungnum ástarbríma fyrir framan sig stendur verkið fyllilega eitt og sér, ekki síst í á tónleikunum í gær þar sem leikur hljómsveitarinnar var afar áhrifamikill og hvergi dauðan punkt að fmna. Stjómandinn Dmitry Sitkovetsky, sem einnig er af rússneskum ættum, hafði allt í hendi sér og virtist heilsteypt sveitin lúta vilja hans I einu og öllu. Tónlist Arndís Björk Ásgeirsdóttir í verkinu sem fylgdi á eftir, Fiðlukonsert í G dúr K.207 eftir Mozart, reyndi ekki bara á hæfni hans sem hljómsveitarstjóra heldur fiðluleikara líka. Að stjórna og leika einleik í sama verkinu er hæfileiki sem ekki öllum er gefinn og kannski meira stundað áður fyrr en það er í dag. En með því gefst einleikaranum tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum fram milliliðalaust og verður þá útkoman óneit- anlega meira „hans“. Þetta er afar elskulegt verk, iðandi af æskufjöri, enda Mozart aðeins 19 ára þegar hann samdi það. Sitkovetsky virtist ekki hafa mikið fyrir að hrista einleikspartinn Dmitry Sitkovetsky hafði allt t hendi sér. fram úr erminni og halda utan um hljómsveit- ina í leiðinni. Tónn hans svo hreinn og tær, laus við allt óþarfa vibrato, en samt hlýr eins og kom skýrt fram í hæga þættinum sem var ein- staklega fallega mótaður og persónulegur líkt og konsertinn allur. Hin dýrmæta Stradivarius fiðla hreint og beint lifnaði við í höndunum á honum og leikur hans var svo spontant og ferskur að ég hafði á tilfmningunni að eitt- hvað væri að skapast beint fyrir framan nef- ið á mér. Framlag Prokofjevs til balletttónlistar verður seint ofmetið og má segja að hann hafi tekið við þar sem Tsjækovský hætti. Ballett- inn um Rómeó og Júlíu var frumfluttur í end- anlegri mynd árið 1940 í Leningrad þótt tón- listin hefði verið tilbúin fjórum árum áður og reyndar búið að setja hann einu sinni upp í Brno í Tékkóslóvakíu 1938. Upp úr balletttón- listinni samdi hann svo hljómsveitarsvítur og nokkur píanóstykki. Prokoöev hefur tekist jafnvel betur en Tsjækovský að fanga inni- hald sögunnar og koma því tO skila í tónlist- inni, enda gefur hann sér meira svigrúm. Á efnisskrána í gærkvöldi hafði hljómsveitar- stjórinn valið þætti úr svítum 1 og 2 og raðað þannig að þeir mynduðu sannfærandi heild hvað varðar framvindu sögunnar. Flutning- urinn var svo í ofanálag prýðilegur, kraftmikill og yfirleitt mjög öruggur ef undan er skilinn einhver órói í fjórða og fimmta þætti en dansþátturinn þar á eftir iðandi af fiöri og skemmtileg- heitum. Hrifnust var ég þó af Dauða Tíbalts sem er einhver magnaðasti þátturinn í svítunum tveimur með þessum ótrúlega hljómi sem hamraður er aftur og aftur, og einnig verður að minnast á afbragðsfinan leik sveitarinnar og þá sérstaklega leik Sigrúnar Eðvaldsdóttur i Dansi stúlknanna. í lokaþættinum, Rómeó við gröf Júlíu, komst maður svo ekki hjá þvi enn og aftur að fá hnút í hjartað yfir örlögum elskend- anna tveggja og þar með tilganginum náð, ekki satt ? Tríó Reykjavíkur og Alina Dubik Þriðju tónleikamir í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar verða á sunnudagskvöldið kl. 20. Gestur tríósins að þessu sinni verður mezzosópransöngkonan Alina Dubik sem hefur getið sér gott orð fyrir fagran söng hér heima og erlendis. Á efnis- skránni verða verk Mart- inu, Chopin - en 150 ár eru liðin frá dauða hans í ár, Brahms og Poulenc sem á aldarafmæli í ár. Tríó Reykjavíkur skipa þau Guðný Guðmundsdótt- ir fiðluleikari, sem einnig mun leika á víólu á tón- leikunum, Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleikari. Þumalína Danski leikhópurinn Gadesjakket verð- ur með ævintýralega brúðuleikhússýningu á sögunni sígildu eftir H.C. Andersen um pínulitlu stúlkuna Þumalínu í Gerðubergi á sunnudaginn kl. 14. Pia Gredal og Lars Holmsted leika, syngja-------------- og spila í sýningunni, en með þeim kemur Lene Degett myndlistar- maður og stjórnar listsmiðju fyrir böm sem hefst kl. 13 og verð- ur líka eftir sýninguna. Aðgangur að barnadeginum í Gerðu- bergi er 500 kr. fyrir börn en ókeypis fyrir einn fullorðinn i fylgd með barni. Aðeins komast 50 manns á sýninguna á Þumalínu og er forsala aðgöngumiða í Gerðubergi. Glæsilegar söngkonur Tvær ungar sópransöngkonur, Arndís Halla Ásgeirsdóttir og Hanna Dóra Sturlu- dóttir, syngja á tónleikum Styrkt- arfélags íslensku óperunnar á laugardaginn kl. 14.30. Með þeim leikur á píanó Isabel Femholz. Á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir Schumann, Schubert, Strauss, Atla Heimi Sveinsson og Eyþór Stefánsson. Þá munu þær syngja dúetta og einsöngsaríur úr óperum eftir Mozart, Hoffman, Rossini og Bellini. Amdís Halla og Hanna Dóra hafa numið og starfað í Þýska- landi á síðustu árum. Þær hafa báðar stundað nám við listahá- skólann í Berlín með Frau Anke Eggers sem aðalkennara. Frá því í haust em söngkonumar báðar fast- ráðnar við þýsk óperuhús; Hanna Dóra hjá Neustraeliz óp- erunni í nágrenni Berlínar og Amdís Halla hjá Die Komische Oper í Berlín. Báðar hafa þær líka hlotið fádæma lof fyrir söng sinn á tónleikum hér heima enda einstaklega glæsilegar söngkonur. Hálf milljón bíður Nú em tveir mánuðir eftir af skilafresti í samkeppni um Bókmenntaverðlaun Hall- dórs Laxness. Hann rennur út 1. mai nk. Verðlaunin nema 500 þúsund krónum og em veitt fyrir nýja og áður óbirta íslenska skáldsögu eöa safn smásagna. Samkeppnin er öllum opin og kemur bókin sem verð- launin hlýtur út hjá Vöku-Helgafelli sama dag og þau verða afhent í haust. Verðlaunin voru veitt í þriðja sinn sl. haust; þá hlaut þau Sindri Freysson fyrir skáldsöguna Augun í bænum. Áður hlutu verðlaunin Skúli Bjöm Gunnarsson og Ey- vindur P. Eiríksson. Rúnar í Hásölum Rúnar Óskarsson bassaklarínettleik- ari heldur einleikstónleika í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju á mánudagskvöld- ið kl. 20.30. Hann leikur verk eftir Isang Yun, Elínu Gunnlaugsdóttur, Theo Loevendie, Claudio Ambrosini, Eric Dolphy og Wayne Siegel. Öll era verkin frá þessari öld, hið yngsta eftir Elínu Gunnlaugsdóttur sem samdi það sérstaklega fyrir Rúnar og verður það frumflutt á tónleikunum. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttír

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.