Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Læknar hafa það gott 1 Karlbahafinu:
Vinna hálft árið á
skemmtiferðaskipum
- og hinn helminginn á íslandi - læknaskortur á landsbyggðinni
Skemmtiferðaskip eru nýjasti starfsvettvangur ísienskra lækna.
Gífurlegur skortur er á læknum á
landsbyggðinni og er talið að nú
vanti um 15 til 20 lækna til starfa. 1
sumum bæjum á landsbyggðinni er
ástandið sagt svo slæmt að lækna-
nemar séu látnir leysa af í eina til
tvær vikur í senn, til að skrifa lyf-
seðla og vísa á lækna með réttindi.
Þá eru dæmi um að læknar vinni að
hluta til í Karíbahafinu og að hluta
til á íslandi.
Fólk flýr bæina
Læknaskorturinn hefur komið
einna verst niður á litlum bæjum á
landsbyggðinni þar sem dæmi eru
um að fólk hafi yfirgefið staöina
vegna læknaskortsins _ einna helst
barnafólk og aldraðir sem treysta
sér ekki til þess að búa við slíkar
aðstæður. í Ólafsvík hefur ekki ver-
iö fastráðinn læknir í eitt og hálft
ár, á Djúpavogi hefur vantað lækni
í um tvö ár og á Reyðarfírði í tvö og
hálft ár, svo einhverjir staðir séu
nefndir. Þá vantar fjóra lækna á
Vestfirði. Læknabústaðir í plássun-
um standa svo margir hverjir auðir.
Reyndar þarf ekki að leita lengra en
í Reykjanesbæ, þar sem fjóra lækna
vantar til starfa, og á Selfoss vantar
lækni. Þaðan er aðeins hálftima
keyrsla til
Reykjavíkur, en
enginn hefur
sótt um stöðu
læknis þar í
bæ. Á Seyðis-
firði er tveggja
lækna hérað
þar sem einn
læknir hefur
verið starfandi.
Annar læknir-
inn bættist nú
við fyrir stuttu
og læknamálin
því leyst. Að
sögn forsvars-
manna þar í bæ
eru menn him-
inlifandi yfir að
geta mannað
héraðið eftir
nokkra bið.
En hvar eru
læknamir?
Samkvæmt at-
hugunum sem
gerðar hafa ver-
ið undanfarin
ár, hafa læknar flúið til starfa til
Noregs og annarra landa, vegna
launakjara sem hafa verið tiltölu-
lega bágborin hér á landi. Heilbrigð-
isráðherra sendi landlækni til Nor-
egs í leit að læknum fyrir nokkru.
Hann er sagður hafa farið fýluferð,
þar sem enginn læknir er kominn
til starfa á landinu sem verið hefur
í Noregi. Og nýjasti starfsvettvang-
ur íslenskra lækna er Karíbahafið.
Þar eru nú fjórir læknar að leysa af
á skemmtiferðaskipum. Þeir vinna
að hluta til á Islandi og halda svo til
Karíbahafsins.
Milljón á mánuði
Viðmælendur DV vegna málsins
bentu á að skorturinn á læknum
væri fyrst og fremst sá að launa-
munurinn milli lækna úti á landi og
á höfuðborgarsvæðinu er orðinn til-
tölulega lítill miðað við það sem
áður var. Þó gæti hann verið að
aukast á ný, þar sem erfiðlega geng-
ur að fá lækna út á land. Stjómar-
formaður sjúkrahússins á Neskaup-
stað benti nýlega á það að laun
læknis í bænum væru um milljón á
mánuði. Læknar í Karíbahafmu em
sagðir hafa ágætis laun - svo ekki
sé talað um að fá að sóla sig eftir
vinnudaginn.
Forsvarsmenn sjúkrahúsa og
heilbrigðisstofnana, sem DV ræddi
við, töldu að laun lækna á lands-
byggðinni nú næmu frá 600.000
krónum á mánuði upp í rúma millj-
ón þar sem best væri borgað. Þá eru
ótalin ýmis fríðindi sem læknar fá,
t.d. einbýlishús og bíll til afnota.
„Þetta er eina leiðin til að fá
lækna til starfa," sagði einn fram-
kvæmdastjóri á landsbyggðinni.
Síðastliðið vor vora keyptir um 30
nýir bílar fyrir heilbrigðisstofnanir
úti á landi og fyrst og fremst fyrir
læknana. Þrátt fyrir þetta vilja
læknar, af einhverjum ástæðum,
ekki fara til starfa á landsbyggð-
inni.
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir sagði í samtali við DV
aö hann hefði ekki áhyggjur af því
að missa lækna til starfa í Karíba-
hafinu. „Ég tel ekki að við séum að
missa þá þangað fyrir fullt og allt.
Hef reyndar ekki spurt þá að því en
ég lít svo á að þeir séu að fara í smá
tilbreytingu og menn hafa leyfi til
þess. Það er svoleiðis í öllum starfs-
greinum," sagði hann. -hb
Þrjátíu svona bflar voru keyptir fyrir heilbrigðisstofnanir á
landsbyggðinni.
Sjónvarpsfréttamaður í Ólafsfirði:
Frá stærstu
stöð Brasilíu
- fylgist með brasilískum knattspyrnumönnum hjá Leiftri
DV, Ólafsfiröi:
Brasilískur sjónvarpsfréttamaður,
Luis Nachbin, hefur verið hér í Ólafs-
firði síðan á laugardag. Hann er á
vegum TV Globo, sem er stærsta sjón-
varpsstöðin í Brasilíu, og einnig er
hann að vinna að þætti fyrir Sport
TV sem er kapalstöö. Hann býr í
næststærstu borg Brasilíu, Rio de
Janeiro, og sagði í spjalli við fréttarit-
ara DV að hann sérhæfði sig í öðm-
vísi fréttum, ekki endilega tengdum
íþróttum. Hann orðaði það þannig að
því lengra sem hann þyrfti að fara
því betra.
Luis kom til Ólafsfjarðar vegna
þess að til Leifturs em komnir tveir
ungir Brassar, þeir Alexandre og
Sergio. Luis bjó hjá þeim og fylgdist
með þeim á æfingum, þar á meðal í
sendinni fjöm, á götu úti, heima í
húsi og ekki sfst að horfa á beina út-
sendingu í enska bikamum með öðr-
um Leiftursmönnum. Þá hélt einn að-
alstuðningsmannaklúbburinn í Ólafs-
firði, Blíðfari, þorrablót sitt á laugar-
dag og bauð öllum leikmönnum, þar á
meðal Brössunum og þessum sjón-
varpsfréttamanni, sem fannst margt
athugavert við matinn sem var á
boðstólum.
Luis fór líka til Færeyja, en þang-
að fóru nokkrir Brassar lika Hann
sagðist stefna að því að gera 10 mín-
útna frétt sem yrði send út á TV
Globo, sem hann sagði að væri fjórða
stærsta sjónvarpsstöð í heimi og sú
langstærsta í Brasilíu, og síðan
myndi hann gera 30 mínútna þátt fyr-
ir kapalkerfið. Hann kannaðist svolít-
iö við ísland en vissi þó harla fátt og
um íslenskan fótbolta vissi hann ekk-
ert. Með Luis í fór er brasilískur lög-
fræðingur, Fabio að nafni, en hann er
umboðsmaður Brassanna. -H.J.
HWiíSiliíi,
J
1
Luis Nachbin með myndavélina á Ólafsfirði. DV-mynd Helgi Jónsson
Stuttar fréttir dv i
Leggja niður störf
Sjúkraflutningamenn á Austur-
landi ætla að leggja niður störf á
sunnudagskvöld
hafi Heilbrigðis-
stofnun Austur-
lands ekki samið
við þá fyrir þann
tíma. Á Kirkju-
bæjarklaustri hef-
ur björgunarsveit-
in séð um sjúkraflutninga en þessa
dagana er Ámi Johnsen þingmað-
ur að hafa milligöngu um að við
hana sé samið í takt við gamla
samninginn. Dagur greindi frá.
Umhverfisverkefni
Reykjavík menningarborg Evr-
ópu árið 2000 kynnti í gær nýtt
endurvinnslu- og uppgræðslu-
verkefni, Skil 21, í samvinnu við
fjölmarga aðila atvinnulífsins.
Verkefninu er ætlað að gefa tón-
inn um meðferð úrgangs á nýrri
öld. Vísir greindi frá.
Afmæli bjórsins
Það verður líf og fjör víða um
land í fyrstu viku marsmánaðar
þegar landsmenn fagna tíu ára af-
mæli bjórsins. Samtök ferðaþjón-
ustunnar hafa ákveðið að efna til
góugleði í mat, drykk og menningu
dagana 1. til 7. mars. Gert er ráð
fyrir þátttöku 60-70 veitingahúsa
um allt land. Dagur greindi frá.
Of fáir á Sogni
Evrópunefnd um varnir gegn
illri meðferð á föngum gerir at-
hugasemdir við það hversu fáir
sérmenntaðir starfsmenn starfa á
Sogni sem er stofnun fyrir ósak-
hæfa afbrotamenn. Þetta kemur
fram í skýrslu sem nefndin hefur
skilað íslenskum stjómvöldum.
Ríkisútvarpið greindi frá.
Skattalegt tap
Yfirfæranlegt tap lögaðila sam-
kvæmt framtali 1998, þ.e. í árslok
1997, nam samtals 76.264 milljón-
um króna. Hlutdeild smásölu í
öðm en bílum og vélhjólum var
4.327 milljónir eða tæp 5,7% af
heildarupphæðinni, að því er seg-
ir í Fréttapósti Kaupmannasam-
taka íslands. Viöskiptablaöið
greindi frá.
Byggja gistihús
Sigurbjörn Bárðarson hesta-
maður og samstarfsmaður hans,
Axel Ómarsson,
hyggjast reisa
stórt gistihús að
Oddhóli sem er í
um 9 kílómetra
fjarlægð frá Hellu.
Þar verður gisti-
aðstaða fyrir um
20 manns og veitingaaðstaða. Dag-
ur greindi frá.
Halli í Árborg
Rúmlega 40 milljóna króna
halli verður á rekstri Árborgar á
árinu þrátt fyrir að tekjur bæjar-
ins aukist um nærri 60 milljónir
króna. Helstu skýringar á því era
miklar fiárfestingar i skólamál-
um. Heildartekjur em áætlaðar
um 949 milljónir króna en rekstr-
argjöldin, fiárfestingar og afborg-
anir tæpar 990 milljónir króna.
Dagur greindi frá.
Reiöar vestra
Konur í Sjálfstæðisflokki á
Vestfiörðum eru reiðar yflr því að
engin kona er í áhrifasæti á list-
anum fyrir alþingiskosningamar
í vor. Ríkisútvarpið greindi frá.
Verja skattaafsláttinn
Stjómvöld ætla að veija skatta-
afsláttinn vegna hlutabréfakaupa
sem eftirlitsstofn-
un EFTA telur
ólöglegan. Fjár-
málaráðherra
finnst stofnunin
gera mikið úr
litlu efni. For-
stöðumaður
Markaðsvið-
skipta Búnaðarbankans segir
nauðsynlegt að hvetja til sparaað-
ar með öðrum hætti verði stjórn-
völd að fella niður afsláttinn. Rík-
isútvarpið greindi frá. -SJ
:
I