Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Bókari Vegas kæröur fyrir fjárdrátt:
Kom að peninga-
skápnum galopnum
- segir talsmaöur staöarins
Fyrrum bókari skemmtistaðarins
Vegas í Reykjavík hefur verið kærð-
ur til lögreglu vegna grvms um millj-
óna króna íjárdrátt. Talsmaður stað-
arins sagði í samtali við DV að ekki
væri vitað með fuilkominni vissu
hversu miklu bókarinn hefði skotið
undan en grunur léki á að um nokkr-
ar milljónir króna væri að ræða.
„Hann sá um allt bókhald staðar-
ins þegar ég var erlendis í um viku í
lok janúar. Þegar ég kom svo heim
að utan fór ég inn á skrifstofu okkar
á Vegas og kom að peningaskáp
galopnum," segir talsmaöur staðar-
ins.
„Það getur komið fyrir að fólk
gleymi að loka skápnum og ég hélt
því áfram vinnu minni eins og ekk-
ert hefði ískorist. Svo kom ég aftur
að honum opnrnn tveimur dögum
síðar. Ég reyndi að ná í bókarann en
það tókst ekki. Svo sendi ég honum
símskeyti og hann hringdi til baka
og sagði mér þá i miklum æsingi að
hann væri hættur. Ég sagði þá að ég
vildi fá uppgjör vegna þeirrar viku
þegar ég var frá og hann lofaði að
skila þvi,“ segir talsmaðurinn. Að
sögn talsmannsins hefur hókarinn
Frá Eiðum.
Veitingastaðurinn Vegas.
ekki enn skilað bókhaldinu.
„Mér sýnist, skv. mínum gögnum,
að þessa viku sem ég var frá vanti
1,4 milljónir og í heildina hef ég
grun um að þetta skipti nokkrum
milljónum," sagði hann.
-hb
Eiöar:
Menningarmiðstöð
Austurlands
- rætt viö Vilhjálm Einarsson
DV, Egilsstöðum:
Það er dauft yfír skólastaðnum
Eiðum í vetur. Þar er nú engin
kennsla og enginn veit hvað verður
um þetta sögu-
fræga menntaset-
ur Austfirðinga.
Nokkrir áhuga-
menn stofnuðu sl.
vor félagið Sam-
tök Eiðavina imd-
ir forystu Vil-
hjálms Einarsson-
ar, fyrrverandi
skólameistara.
Við spurðum
hann um félagið
og stöðu mála.
„Félagið okkar hefur nú verið til
i nær ár og okkar störf hafa miðast
við að stuðla að endurreisn Eiöa-
staðar í þágu menningar og athafna-
lífs á Austurlandi. Þessu hyggjumst
við ná með því að afla stuðnings
ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja og
frjálsra félagasamtaka, gefa út
fræðslurit um staðinn og halda
Eiðamót," sagði Vilhjálmur.
En hefur eitthvað áunnist?
„Jú, við höfum gert könnun á
hugsanlegri nýtingu, miðað við að
staðurinn verði rekinn svipað og
heimavistarskóli. Þar kom í ljós
mikill áhugi meðal eldri borgara á
vikudvöl. Verulegur áhugi fyrir-
tækja á helgardvöl eða stuttum
námskeiðum. Fræðslustjóri Aushir-
lands telur að grunnskólinn gæti
haft margvísleg not af Eiðastað, t.d.
fyrir skólabúðir. Þá er rétt að nefna
þær hugmyndir sem komið hafa
upp um stærri not af staðnum, eins
og verkmennta- og handíðaskóla,
mannræktarstöð, alþjóðaflugvöll,
enda örstutt á Egilsstaðaflugvöll, og
fleiri hugmyndir hafa komið fram.“
Er staðurinn ekkert nýttur eins
og er?
„Jú, reyndar. Óperumiðstöð Aust-
urlands, sem æfir nú Töfraflautuna,
hefur fengið afnot af húsnæði Al-
þýðuskólans til æfinga og sýninga.
Það er eitt dæmið um þá margþættu
menningarstarfsemi sem þar gæti
farið fram. Og það er vissulega
margt sem styður þá skoðun okkar
að það beri að hlúa að Eiðum sem
menningarsetri. Þar var höfuðból
áð fomu og nýju. Langt fram eftir
20. öldinni var þar eini framhalds-
skólinn á Austurlandi. Fjöldi máls-
metandi Austfirðinga hlaut þar sína
fyrstu framhaldsmenntun og á Eið-
um er nánast allt sem þarf til að
reka þar fjölþætta menningarstarf-
semi.“
Er líklegt að eitthvað af þessu nái
fram að ganga?
„Á góðum stimdum ræða stjóm-
málamenn gjama um mikilvægi
þess að jafnræði til náms nái til
allra óháð búsetu. Menntastöð á
Eiðum gæti orðið mikil driffjöður í
menningarlífi á Austurlandi og það
er von okkar Eiðavina að í framtíð-
inni geti hvers konar meningarvið-
leitni átt þar skjól og sótt þangað
styrk.“
Einhver lokaorð?
„Ég vil skora á Alþingi og ríkis-
stjóm að sjá til þess að staðnum
verði skapaður rekstrargrundvöll-
ur þannig að hann geti komið að
gagni fyrir unga sem aldna, sem
efni standa til. Við verðum öll að
standa saman um viðreisn Eiða-
staðar. Gerrnn Eiða að menningar-
setri Austurlands," sagði Vilhjálm-
ur Einarsson.