Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999 Messur Árbæjarkirkja: Guösþjónusta kl. 11 árdegis. Altarisganga. Organleikari Pavel Smid. Sókn- amefndarmenn lesa ritningarlestra. Vænst er þátttöku fermingarbama og foreldra þeirra í guösþjónustunni. Bamaguösþjónusta kl. 13. Foreldrar og aörir vandamenn hjartanlega velkomnir meö bömum sínum. Prestamir. Áskirkja: Bamaguösþjónusta kl. 11. Guös- þjónusta kl. 14. KafFi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiöholtskirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11. Guösþjónusta á sama tíma. Organisti Daníel Jónasson. Tómasarmessa kl. 20 í samvinnu viö Félag guöfræöinema og kristilegu skóla- hreyfmguna. Fyrirbænir og fjölbreytt tónlist. Kaffisopi í safnaöarheimilinu aö lokinni messu. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Guösþjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guö- mundsson.Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa og sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Berglind- ar H. Ámadóttur. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Léttar veitingar eftir messu. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organleik- ari Marteinn H. Friðriksson. Föstumessa kl. 14, Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organ- leikari Marteinn H. Friöriksson. Vænst er þátttöku fermingarbama og foreldra þeirra. Æöruleysismessa kl. 21, tileinkuö fólki í leit að bata eftir 12 spora kerfinu. Sr. Karl V. Matthíasson ræöir um trúna í sporunum 12. Léttur söngur og fyrirbæn. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.15. Organisti Kjartan Ólafsson. Guömundur Ósk- ar Ólafsson. Eyrarbakkakirkja: Barnaguösþjónusta kl. li. Úlfar Guömundsson. Fella- og Hólakirkja: Guösþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguösþjónusta á sama tíma. Umsjón Hanna Þórey Guömundsdóttir og Ragnar Schram. Prestamir. Frikirkjan í Reykjavík: Guösþjónusta kl. 14 í safnaöarheimilinu. Bam boriö til skírnar. Organisti Guðmundur Sigurösson. Allir hjart- anlega velkomnir. Hjörtur Magni Jóhannsson. Grafarvogskirkja: Sunnudagaskóli í Grafar- vogskirkju kl. 11. Prestur sr. Anna Sigríöur Fálsdóttir. Umsjón Hjörtur og Rúna. Sunnu- dagaskóli í Engjaskóla kl. 11. Sr. Vigfús Þór Ámason. Umsjón Ágúst og Signý. Guösþjón- usta kl. 14. Skátaguösþjónusta. Skátar úr sKátafélaginu Vogabúum heimsækja söfnuð- inn. Prstur sr. Vigfús Þór Ámason. Ræöumaö- ur Hallfríöur Helgadóttir, form. alþjóðar. Landalags íslenskra skáta. Tónlist öm Amar- son og Guömundur Pálsson. Skátakórinn syngur. Prestamir. Grindavíkurkirkja: Bamastarfið kl. 11. Messa kl. 14. Fermingarböm aöstoöa. Foreldr- ar hvattir til aö mæta. Messukaffí i safnaðar- heimilinu. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Grensáskirkja: Bamastarf kl. 11. Munið kirkjubílinn! Guðsþjónusta kL 11. Bamakór Grensáskirkju syngur 'undir stjóm Margrétar Fálmadóttur. Organisti Ámi Arinbjamarson. Sr. ólafur Jóhannsson. liallgrímskirkja: Fræöslumorgunn kl. 10. í heimsókn til íslenskra fósturbama á Indlandi: Guömundur Hallgrímsson lyfsali. Messa og bamastarf kl. 11. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti Douglas A. Brotchie Sr. Siguröur Pálsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sett inn í embætti af pró- fusti, sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Háteigskirkja: Bamaguösþjónusta kL 11. Sr. Helga Soffla Konráösdóttir og Bryndís Val- bjömsdóttir. Messa kl. 14. Organisti Jakob Fallgrímsson. Sr. Helga Soffla Konráösdóttir. Hjallakirkja: Tónlistarmessa kl. 11. Sr. Magnús Guðjónsson þjónar. Málmblásarak- vintett leikur verk eftir J.S. Bach o.fl. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiöa safnaöar- söng. Organisti Jón ólafur Sigurösson. Bama- guösþjónusta kl. 13. Viö minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir. Hlévangur: Guösþjónusta kl. 13. Baldur Rafn Sigurösson. Kópavogskirkja: Bamastarf kl. 11 í safnaðar- heimilinu Borgum. Guösþjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Stólvers syngja Anna Hafberg og Halldór Bjömsson. Organisti Kári Þormar. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Langholtskirkja: Kirkja Guöbrands biskups. Messa kl. 11. Unglingakór Selfosskirkju syng- ur undir stjóm Margrétar Bóasdóttur. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Bamastarf í safnöarheimili kl. 11. Umsjón Lena Rós Matthíasdóttir. Laugarneskirkja: Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugameskirkju syngur. Organisti Gunnar Gunnarsson. Prestur sr. Bjami Karls- son. Kyrröarstund kl. 13 í Hátúni fyrir íbúa Hátúns 10 og 12. Guðsþjónusta kl. 14. Drengja- kór Laugameskirkju syngur. Organisti Gunn- ar Gunnarsson. Þjónustuhópurinn annast messukafflö. Prestur sr. Bjami Karlsson. Mosfellskirkja: Guösþjónusta kl. 14. Bama- síarf í safnaöarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mos- fellsleiö fer venjulegan hring. Jón Þorsteins- son. Neskirkja: Bamasamkoma kl. 11. Starf fyrir 8-9 ára á sama tíma. Opiö hús frá kl. 10. Guös- þjónusta kl. 14. Organisti Kristín G. Jónsdótt- ir. Sr. Frank M. Halldórsson. Tónleikar kl. 17. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Einleikarar Áshildur Haraldsdóttir og Elísabet Waage. Stjómandi Ingvar Jónsson. Óháöi söfnuöurinn: Þjóölagamessa kl. 14. Bamastarf á sama tima. Maul eftir messu. Selfosskirkja: Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Hádegisbænir þriöjud.-föstud. kl. 12.10. Seljakirkja: Krakkaguösþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfh Óskars- dóttir prédikar. Altarisganga. Organisti Gróa Hreinsdóttir. Guösþjónusta í Skógarbæ kl. 16. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Org- anisti Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur. Seltjamameskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tos- hiki Toma, prestur nýbúa, prédikar. Fundur meö foreldrum fermingarbama strax aö lok- inni messu. Halla Jónsdóttlr kennari heldur fræðsluerindi um samskipti bama og foreldra. Fermingarböm og foreldrar þeirra sérstak- lega hvött til aö mæta í kirkjuna sína þennan dag. Organisti Viera Manasek. Prestamlr. Bamastarf á sama tíma. Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14. Úlfar Guö- mundsson. Ytri-Njarövíkurkirkja: Guösþjónusta kl. 14. Fermingarböm taka þátt í athöfninni. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm Steinars Guömundssonar organista. Simnu- dagaskóli kl. 11. Börn sótt aö safnaðarheimil- inu í Innri-Njarövik kl. 10.45. Foreldrar hvatt- ir til að mæta meö bömum sínum. Ásta, Sara og Steinar leiöa söng og leik. Baldur Rafn Sig- urösson. Afmæli Kristín Sæmundsdóttir Kristín Sæmundsdóttir húsmóö- ir, Sæbóli, Grindavik, er áttræö í dag. Fjölskylda Kristín og Haraldur Harðar Hjálm- arsson, f. 18.2. 1919, d. 1.4. 1989, út- gerðarmaður og lögregluþjónn, hófu búskap 1942. Foreldrar hans voru Hjálmar Guðjónsson og Margrét Sig- urðardóttir. Kristín og Haraldur bjuggu í Nes- kaupstað til ársins 1960 er fjölskyld- an flutti til Flateyrar við Önundar- Qörð. Þar bjuggu þau til ársins 1969 er þau fluttu til Grindavíkur. Krist- ín hefur búið þar síðan. Sonur Kristínar fyrir hjónaband, sem Haraldur gekk í fóður stað, er Gunnar Berg Ólafsson, f. 2.2. 1938. Hann er kvæntur Ólínu Rut Magnús- dóttur. Böm Kristínar og Haraldar em Hjálmar, f. 25.8.1942. Hann er kvæntur Kristínu Ragn- heiði Guðmundsdóttur. Sæmundur, f. 20.9. 1944. Hann er kvæntur Vilborgu Ásgeirsdóttur. Marta Mar- grét, f. 16.7. 1947. Hún er gift Sæþóri Mildinberg Þórðarsyni. Unnur Guð- rún, f. 20.7. 1948. Hún er gift Jóni Eyjólfl Sæmunds- syni. Önundur Gretar, f. 11.10.1952. Hann er kvænt- ur Þorbjörgu Halldórsdótt- ur. Ágúst Sigulaugur, f. 18.3. 1957. Hann er kvænt- ur Sólveigu Óskarsdóttur. Bamaböm Kristínar era 28 og bamabamabömin 26. Faðir Kristínar var Sæmundur Þorvaldsson, f. 4.1. 1882 d. 7.12. 1947, frá Stóru-Breiðuvík, Reyðarflrði, bóndi og verkamaður. Móðir Kristín- ar var Marta Ólína Olsen, f. 11.11. 1891, d. 24.2. 1969, frá Teigagerðisklöpp, Reyðar- firði, húsmóðir. Þau bjuggu á Kaganesi, Helgu- staðahreppi, Reyðarfirði og Neskaupstað. Foreldrar Sæmundar vom Þorvaldur Eyjólfs- son, f. 8.6.1851 að Vöðlum í Vaðlavík, d. 18.6. 1915, og Þuríður Auðimsdóttir, f. 19.3. 1855 að Stóra- Breiðuvík, d. 18.4. 1946. Foreldrar Mörtu voru Jens Olsen, f. 31.12.1850 í Fjellhaugen Bladal í Nor- egi, d. 15.5. 1928, og Anna S. Olsen, f. 21.6. 1861 á Breiðuvíkurstekk, Helgustaðahreppi, d. 7.11. 1928. Kristín tekur á móti ættingjum og vinum í húsi Verkalýðsfélags Grindavíkur frá kl. 16—9 laugardag- inn 27. febrúar. Kristín Sæmunds- dóttir. Dagbjartur Hannesson Dagbjartur Hannesson bóndi, Gljúfurárholti, Ölf- usi, er áttræður i dag. Starfsferill Dagbjartur fæddist að Stóra-Hálsi í Grafningi og þar ólst hann upp. Hann gekk í farskóla eins og þá tíðkaðist. Hann var vetr- armaður á ýmsum stöð- um þ. á m. i Skálholti og Sólheimum. 1936-1937 var hann á vertíð frá Grinda- vik. Dagbjartur hóf búskap að Stíflis- dal i Þingvallasveit og bjó þar 1946-1948. Síðan bjó hann að Úlf- ljótsvatni í Grafningi 1948-1957 en stundaði áfram búskap til 1958. Hann var hreppstjóri 1953-1958 og meðhjálpari við kirkjuna. Dagbjartur keypti jörðina Gljúfurárholt í Ölfusi og bjó þar 1957-1997 er hann fór á hjúkrunar- heimilið að Kumbaravogi. Einnig stundaði hann búskap á jörðinni Hlíð í Grafningi sem hann hafði á leigu 1963-1975. Fjölskylda Dagbjartur var í sambúð með Herdísi Guðmunds- dóttur, f. 3.7. 1920, 1953-1959 og eiga þau eina dóttur. Brynja, f. 25.9. 54, skólaritari. Hún er gift Þorleifi Sigurðs- syni, f. 18.12. 1947, bygg- ingaverktaka. Þau eiga tvö böm. Dag- bjartur, f. 15.11. 1972. Unnusta hans er Helga Björg Þorgeirsdóttir. Þor- leifur, f. 29.6. 1979. Unnusta hans er Anna Huld Guðmundsdóttir. Dóttir þeirra er Harpa Eir, f. 10.3.1998. Þorleifur á tvær dætur frá fyma hjónabandi. Agnes Elsa, f. 21.8.1967, er fósturdóttir Brynju. Maður Agn- esar er Guðmundur H. Halldórsson. Böm þeirra em Anna Kristín, f. 25.10. 1986, og Amór, f. 6.3. 1995. Steinunn, f. 21.12. 1971. Maður hennar er Ingólfur Kolbeinsson. Þau eiga tvö böm. Gunnar Elvar, f. 16.1. 1992. Sonja Björk, f. 6.5. 1994. Systkini Dagbjarts era Jóhann, f. 17.11. 1910, d. 1976. Kona hans var Astrid SkarpEas Hannesson og eignuðust þau tvö böm. Valgerður, f. 18.5. 1912. Hún var gift Snorra E. Gíslasyni, d. 1980, og eignuðust þau tvö böm. Hannes, f. 27.8. 1913, d. 1984. Hann var kvæntur Þorkötlu Hólmgeirsdóttur og eignuðust þau eitt bam. Sigríður, f. 22.5. 1915, d. 1924. Gísli, f. 11.3.1917, d. 1972. Hann var kvæntur Guðbjörgu Runólfs- dóttur og eignuðust þau átta böm. Kjartan, f. 22.9. 1920, d. 1979. Hann var kvæntur Áslaugu Guðmunds- dóttur og eignuðust þau sex böm. Ingólfur, f. 8.1. 1924, d. 1990. Hann var kvæntur Sigríði Runólfsdóttur og eignuðust þau flmmtán böm. Sigurður, f. 16.6.1926, bóndi að Vill- ingavatni, Grafningi. Ársæll, f. 1.1. 1929, bóndi að Stóra-Hálsi, Grafh- ingi. Hann er kvæntur Sigrúnu Þor- steinsdóttur og eiga þau fjögur böm. Hálfsystir Dagbjarts samfeðra er Steinunn, f. 12.7.1900, d. 1991. Foreldrar Dagbjarts vora Hannes Gíslason, f. 30.11. 1882, d. 20.7. 1949, bóndi og Margrét Jóhannsdóttir, f. 7.2.1888, d. 26.3.1965, húsfreyja. Þau bjuggu að Stóra-Hálsi í Grafhingi. Dagbjartur Hannes- son. Tryggvi Pálsson Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækjasviðs i íslands- banka, verður fimmtugur sunnudag- inn 28. febrúar. Starfsferill Tryggvi varð stúdent frá MR 1969 og cand. oecon. frá Háskóla íslands, þjóöhagskjama, 1974, M.Sc. í þjóð- hagfræði frá London School of Economics and Political Science 1975. Hann stundaði framhaldsnám í Queen Mary College við London University 1975-1976. Tryggvi var forstöðumaður hag- fræði- og áætlanadeildar Lands- banka íslands 1976-1984. Fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Lands- banka íslands 1984-1988. Bankastjóri Verslunarbanka íslands 1988-1989. Bankastjóri íslandsbanka hf. frá stofhun bankans 1. janúar 1990 og framkvæmdastjóri þar frá 1993. Tryggvi er nú framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs í íslandsbanka. Tryggvi var stundakennari í hag- fræði við verkfræði- og raunvísinda- deild Háskóla íslands frá september 1977 til janúar 1983 og í almennri þjóðhagfræði við viðskiptadeild Há- skóla íslands frá september 1982. Að- júnkt 1984-1987 og stundakennari um tíma við Queen Mary CoIIege, University of Maryland á Keflavík- urflugveUi og Bankamannaskólann. Tryggvi var formaður sjötta bekkjarráðs MR 1968-1969. Hann var í stjóm Stúdentafélags Há- skóla íslands 1970-1971. í utanríkisnefnd Stúdenta- ráðs Háskóla íslands 1972-1973. í deUdarráði viðskiptadeUdar Háskóla íslands 1973-1974. í stjóm Félags Islendinga í London 1974-1976. í stjóm Félags viðskipta- fræðinga og hagfræðinga 1978-1982, formaður 1980-1982. í stjóm Sfjóm- unarfélags íslands 1980-1982. Ritari starfsskUyrðanefndar 1980-1982. I stjóm Verðbréfaþings íslands 1985-1988. í stjóm Fjárfestingarfélags íslands hf. 1988-1994. í stjóm Kredit- korts hf. frá 1988, formaður frá 1990. í landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins frá 1988. í stjórn Sambands íslenskra viðskiptabanka frá 1990. í fram- kvæmdastjóm Verslunarráðs íslands 1990-1992. í stjóm Féfangs hf. 1992- 1993. Formaður Rótarysjóðsins 1993- 1995 og rannsóknar- og tækja- sjóðs Krabbameinsfélags íslands 1994- 1996. Forseti Rótaryklúbbsins Reykjavík Austurbær 1996-1997. Stjómarformennska Europay ísland 1997, stjómarformaður Glitnis hf. 1997-1998, formaður Rótarysjóðsins 1995- 1997, forseti Rótaryklúbbs Austurbæjar 1996-1997, i stjórn Krabbameinsfélags íslands frá 1998, formaður Bresk-íslenska verslunar- ráösins frá stofhun 1997. Ritstörf Tryggva: Atvinnu- þátttaka frá 1960, Fjármála- tíðindi 21:1 1974; Inflation och Kreditmarknad pa Is- land (ásamt Jónasi H. Haralz), Ekonomisk Revy 25:1 1978; Gjaldeyriskerfi eftirstríðsáranna, Fjár- málatíðindi 31:1 1984. Auk þess hefur Tryggvi skrifað greinar i blöð og tímarit. Fjölskylda Tryggvi kvæntist 3.10. 1970 Rann- veigu Gunnarsdóttur, f. 18.11. 1949, stúdent frá MR 1969, exam. pharm. frá Háskóla íslands 1972, M.Sc. frá Chelsea CoUege við London Uni- versity 1976. Hún er lyfjafræðingur og skrifstofustjóri Lyfjanefndar. Foreldar hennar era Gunnar Krist- ján Björnsson, f. 20.1.1924, efiiaverk- fræðingur og Lovísa Hafberg Bjöms- son, f. 27.2. 1925, húsfreyja. Böm Tryggva og Rannveigar era Gunnar PáU, f. 9.12. 1977, nemi og Sólveig Lisa, f. 24.3. 1980, nemi. Foreldrar Tryggva era PáU Ásgeir Tryggvason, f. 19.2. 1922, hæstaréttarlögmaður og Björg Ásgeirsdóttir, f. 22.2.1925, húsfreyja. Hjónin munu taka á móti vinum og vandamönnum í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11, sunnudaginn 28. febr- úar kl. 17-19. Tryggvi Pálsson. DV Til hamingju með afmælið 26. febrúar 90 ára______________ Eiríkur Jónsson, Gröf 1, Akranesi. 75 ára Andrés Ingibergsson, Álftamýri 26, Reykjavík. Bergur Bárðarson, Hraunbæ 103, Reykjavík. Fanney Halldórsdóttir, Hulduhóli 3a, Eyrarbakka. Þorkell Guðjónsson, Jóruseli 9, Reykjavík. 70 ára Skúli Guðjónsson, Dælengi 1, Selfossi. 60 ára Aðalheiður Sigiu-ðardóttir, Sjávargrand 15b, Garðabæ. Agnar Kárason, Höskuldsstöðum, Húsavík. Frímann Hilmarsson, Hvanneyrarbraut 64, Siglufirði. Gunnlaugur Sigurðsson, Ytra-Hrauni, Kirkjublæjarklaustri. Lindis Kr. Hatlemark, Víðimel 42, Reykjavík. Magnús Kristján Halldórsson, Krummahóliun 6, Reykjavík. Páll Birgir Símonarson, Heimahaga 10, Selfossi. 50 ára Birna Þórðardóttir, Óðinsgötu 11, Reykjavík. Björg Árnadóttir, Hlíðarbyggð 36, Garðabæ. Hermann Gunnar Arnviðarson, Áifhólsvegi 119, Kópavogi. Ingibjörg Sigurðardóttir, Smyrlahrauni 24, Hafiiarfirði. Kristín G. Vigfúsdóttir, Sandholti 32, Ólafsvík. Kristjana S. Bjamadóttir, Breiðagerði 37, Reykjavík. Ólafur Kristjánsson, Geirakoti 2, Selfossi. Ragnar Gunnlaugsson, Hátúni 2, Varmahlíð. Ragnar Sverrisson, Áshlíð 11, Akureyri. Þorsteinn Berg, Ásbraut 19, Kópavogi. 40 ára Ásdís Thoroddsen, Bergstaðastræti 28a, Reykjavík. Björn Harðarson, Helgubraut 10, Kópavogi. Edda Bjömsdóttir, Frostaskjóli 26, Reykjavik. Gunnar Óskarsson, Leirabakka 16, Reykjavík. Hólmfríður H. Einarsdóttir, Týsgötu 4b, Reykjavík. Katrín Björgvinsdóttir, Gullsmára 5, Kópavogi. Magni Þór Rósenbergsson, Búastaðabraut 9, Vestmannaeyjum. Páll Lindberg Björgvinsson, Miðbraut 10, Hrísey. Steinþór Berg Lúthersson, Grænugötu 10, Akureyri. Þórarinn I. Sigvaldason, Hraunbæ 22, Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.