Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1999, Page 26
42
MIÐVKUDAGUR 24. MARS 1999
Afmæli
Guðmundur Elíasson
Guðmundur Elíasson rekstrar-
stjóri, Pétursey, Mýrdal, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Pétursey og
ólst þar upp. Hann var bóndi í Pét-
ursey í félagi við bróður sinn á ár-
unum 1972-86, verkstjóri hjá Ágæti
sf. í Reykjavík 1987 og hefur verið
rekstrarstjóri í Víkurskála í Vík og
fyrir Hótel Vík i Mýrdal frá 1988.
Guðmundur sat í stjórn ung-
'• mennafélagsins Dyrhólaeyjar og
Ungmennasambands Vestur-Skaft-
fellinga í nokkur ár, sat í hrepps-
nefhd Dyrahólahrepps 1978-83 og
síðan í hreppsnefnd Mýrdalshrepps
frá 1986, þar af oddviti 1990-98 er
hann gaf ekki kost á sér
til áframhaldandi setu í
hreppsnefnd. Hann hefur
auk þess setið í ýmsum
nefndum og ráðum á veg-
um Mýrdalshrepps.
Guðmundur er félagi í
Lionskúbbnum Suðra frá
1979. Hann var formaður
framsóknarfélags Vestur-
Skaftfellinga 1986-95, sit-
ur í stjóm kjördæmis-
sambands framsóknar-
manna á Suðurlandi frá
1979 og í miðstjóm Fram-
sóknarflokksins 1994-98.
Guðmundur hefúr mikinn áhuga
á lífrænni ræktun en hann hefur
setið í stjóm Áforms, átaksverkefh-
is um vistvæna og líf-
ræna ræktun.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist
14.6. 1975 Guðrúnu
Brynju Guðjónsdóttur, f.
14.6. 1955, starfsmanni í
Víkurskála. Hún er dóttir
Guðjóns Þ. Þorsteinsson-
ar, fyrrv. verkstjóra
Vegagerðar ríkisins í Vík
í Mýrdal, og Hrannar
Brandsdóttur, fyrrv.
starfsmanns Islandspósts í Vík.
Böm Guðmundar og Guðrúnar
era Sigurður Elias Guðmundsson, f.
Guðmundur
Elíasson.
29.11. 1975, nemi; Guðjón Þorsteinn
Guðmundsson, f. 14.4. 1981; Jóhann-
es Hrannar, f. 2.7. 1982, nemi.
Bróðir Guðmundar er Bergur Elí-
asson, f. 27.3.1953, bóndi í Pétursey.
Foreldrar Guðmundar voru Sig-
urður Elías Guðmundsson, f. 28.2.
1900, d. 1972, bóndi í Pétursey, og
k.h., Berþóra Guðmundsdóttir, f.
28.3.1912, d. 1998, húsfreyja i Péturs-
ey.
Guðmundur og fjölskylda hans
taka á móti gestrnn i veitingasaln-
um Ströndinni í Víkurskála, laug-
ard. 27.3. frá kl. 20.00-23.00.
Björg Elsa Sigfúsdóttir
Björg Elsa Sigfúsdóttir nemi,
Smárahlíð 22 F, Akureyri, er fertug
í dag.
Starfsferill
# Björg Elsa fæddist i Keflavík og
ólst þar upp. Hún flutti til Akureyr-
ar 1983 og hefur átt þar heima síð-
an.
Björg Elsa stundaði nám við öld-
ungadeild VMA og lauk þaðan stúd-
entsprófi 1996. Hún hóf síðan nám
við Samvinnuháskólann að Bifröst
en þaðan lýkur hún BS-prófi í
rekstrarfræði í vor.
Björg Elsa hefur starfað við
Skattstofu Norðurlandskjördæmis
eystra frá 1984. Fyrstu árin starfaði
hún við almennt skattaeftirlit en frá
1989 hefur hún verið deildarstjóri
staðgreiðsludeildar auk þess sem
hún hefur starfað þar í fríum frá
náminu á Bifröst.
Björg Elsa hefur tekið virkan þátt
í félagsstarfi, m.a. í nefhdum á veg-
um SFR, starfsmannafélags skatt-
stofunnar, átti sæti í skólastjóm
VMA, var formaður öldungadeildar-
nema í VMA og gjaldkeri í útskrift-
arfélagi Samvinnuháskólans að Bif-
röst.
Fjölskylda
Synir Bjargar Elsu era Magnús
Bjargarson, f. 20.6.1975, nemi í pípu-
lögnum á Akureyri; Sig-
fús Bjargarson, f. 20.6.
1975, verkamaður á Akur-
eyri, en sonur hans er
Ágúst Freyr Sigfússon, f.
4.7. 1995.
Systkini Bjargar Elsu
era Valgerður Sigfúsdótt-
ir, f. 29.3. 1954, skrifstofu-
maður á Akureyri, gift
Guðmundi Karlssyni og
eiga þau fjögur böm; Sig-
urbjörg Ingunn Sigfús-
dóttir, f. 28.7. 1955, sjúkra-
liði í Keflavík, gift Birgi
Halldóri Pálmasyni og eiga þau tvö
böm; Jóhannes Sigfússon, f. 3.5.
1963, varðstjóri á Akureyri, kvænt-
ur Lára Ágústu Ólafs-
dóttur og eiga þau tvö
böm.
Foreldrar Bjargar Elsu
era Sigfús Jóhannesson,
f. 1.9. 1924, múrari í
Keflavík, og Erla Hulda
Ámadóttir, f. 14.6. 1934,
húsmóðir.
Ætt
Sigfús er sonur Jóhann-
esar Sigfússonar og Val-
gerðar Amoddsdóttur.
Erla Hulda er dóttir Áma
Þorvaldssonar og Sigurbjargar Hálf-
dáncU'dóttur.
Kristín Jóna Þórarinsdóttir
Kristin Jóna Þórarins-
dóttir, aðstoðarmaður
stuðningsfulltrúa í
Hvestu, Fjarðarstræti 6,
ísafirði, er fertug í dag.
Starfsferill
Kristín fæddist i Bol-
ungarvík og ólst þar upp.
Hún gekk í Bamaskóla
Bolungarvíkur og sfrrnd-
aði síðan fiskvinnslu í ís-
Kristín J. Þórarinsd.
húsfélagi Bolungarvíkur.
Kristín flutti til ísaljarð-
ar 1989 og hefur átt þar
heima síðan. Hún starf-
aði í íshúsfélagi ísfirð-
inga til 1994 en hefur síð-
an þá verið aðstoðarmað-
ur stuðningsfulltrúa í
Hvestu.
Fjölskylda
Samhýlismaður Kristínar
Jónu er Gunnlaugur Ingi Ingimars-
son, f. 19.10. 1965, starfsmaður í
Samkaupum á ísafirði.
Systkini Kristínar Jónu eru Sig-
ríður Pálína Þórarinsdóttir, f. 14.7.
1951, sem starfar við heimilishjálp
fyrir aldraðra, búsett á Þingeyri;
Halldóra Jóhanna, f. 24.4. 1953,
starfsmaður við leikskóla, búsett á
Bolungarvík; Hjalti Einar Þórarins-
son, f. 6.12. 1954, verkamaður, bú-
settiu- á ísafirði; Guðmundur Björg-
vin Þórarinsson, f. 4.7. 1956, starfs-
Andlát
maður hjá Katli, búsettur á Bolung-
arvík; Sigurgeir Steinar Þórarins-
son, f. 21.11. 1963, sjómaður, búsett-
ur í Bolungarvík.
Foreldrar Kristínar Jónu era Þór-
arinn Leifur Ámason, f. 16.11. 1910,
lengst af sjómaður í Bolungarvík,
nú búsettur í Skýlinu, sjúkra- og
dvalarheimilinu í Bolungarvík, og
k.h., Jórann Guðmundsdóttir, f.
18.12. 1922, húsmóðir og fyrrv.
verkakona i Bolungarvík.
Tryggvi Ólafsson
Tryggvi Ólafsson, fyrrv. forstjóri
Lýsis hf., Grandavegi 47, Reykjavík,,
lést á Landspítalanum þann 14.3. sl.
Útfor hans fór fram frá Dómkirkjunni
í gær.
Starfsferill
Tryggvi fæddist í Litla-Skarði í
Stafholtstungum í Mýrasýslu. Hann
missti ungur fóður sinn og flutti þá
með móður sinni i Borgames þar sem
hann ólst upp fram að fermingu. Þá
flutti hann til Reykjavíkur, stundaði
nám við VÍ og lauk þaðan prófum
1918.
Tryggvi starfaði hjá Jóni Þorláks-
syni verkfræðingi og hjá Geir Zoega
vegamálastjóra 1918-24.
Tryggvi stofnaði og starfrækti kola-
verksmiðju í Hafnarfirði 1925-28, rak
kolaverslun og togaraútgerð i Reykja-
vík í félagi við Þórð, bróður sinn, og
aðra, 1928-52 en þeir gerðu þá m.a. út
togarana Barðann, Fylki og Belgaum.
Tryggvi stofnaði, ásamt Þórði,
bróður sínum hlutafélagið Lýsi í
Reykjavík 1938. Þeir reistu verk-
smiðju til lýsisbræðslu og vinnslu og
hófú útflutning á meðalalýsi. Tryggvi
var svo forstjóri Lýsis hf. fram á ní-
unda áratuginn.
Auk þess var Tryggvi meðeigandi
og meðstjómandi ýmissa atvinnufyr-
irtækja á sviði fiskvinnslu, útgerðar
og verslunar.
Fjölskylda
Tryggvi kvæntist 13.11. 1926 Guð-
rúnu Magnúsdóttur, f. 28.2. 1904, hús-
móðir. Foreldrar hennar voru Magn-
ús Sæmundsson, f. 27.6.
1870, d. 14.9.1949, kaupmað-
ur og söðlasmiður í Borgar-
nesi og Reykjavík, og k.h.,
Guðrún Guðmundsdóttir, f.
15.9. 1875, d. 26.8. 1954, hús-
móðir.
Böm Tryggva og Guð-
rúnar era Ólafur, f. 16.3.
1928, d. 23.10. 1976, var
kvæntur Rut Ólafsson og
era börn þeirra Eric
Tryggvi, Pétur Friðrik og
Mark Andrew; Erla Guð-
rún, f. 9.7. 1929, var gift Pétri Péturs-
syni en þau skildu og eru böm þeirra
Sigríður Svana, Amdís Erla, Tryggvi
og Katrín; Svana Þórunn, f. 11.3.1931,
var gift Agli Snorrasyni sem lést 1994
og era böm þeirra Ólafur Tryggvi,
Snorri Már og Guðrún
Björg.
Tryggvi var yngstur níu
systkina. Systkini hans
voru Kjartan, f. 16.2. 1887,
d. 22.9. 1930; Kristín, f.
1.10.1888, d. 25.3.1970; Ind-
riði, f. 25.2. 1890, d. 24.5.
1966; Þórður, f. 30.10. 1891,
d. 22.2. 1952; Guðrún, f.
26.11. 1892, d. 22.8. 1939;
Bjöm Ágúst, f. 7.8.1894, d.
19.12. 1984; Eggert, f. 7.2.
1896, d. 26.6.1968; Tryggvi,
f. 25.3. 1898, d. 25.11. 1898.
Foreldrar Tryggva voru Ólafur
Kjartansson, f. 14.9. 1845, d. 22.2. 1906,
bóndi að Litla-Skarði í Stafholtstung-
um, og k.h., Þórunn Þórðardóttir, f.
15.8.1855, d. 24.7.1934, húsfreyja.
Tryggvi Ólafsson.
Afmælisgreinar í páskablað
Upplýsingar vegna afmælisgreina sem birtast eiga í páskablaði DV
þurfa að berast ættfræðideild eigi síðar en föstudaginn 26. mars.
Til hamingju
með afmælið
24. mars
90 ára
Gísli Björgvinsson,
Þrastahlíð, Breiðdalshreppi.
70 ára
Vigdís Jack,
Gullsmára 11, Kópavogi,
Hún tekur á móti gestum að
Gullsmára 13 í Kópavogi á
laugardag milli kl. 14 og 17.
Jón Kristjánsson,
Borgarhrauni 8, Grandarfirði.
Magnea Finnbogadóttir,
Langagerði 50, Reykjavik.
60 ára
Ingibjörg Jónína
Bjömsdóttir,
Smáravegi 8, Dalvík.
Skúii Svavarsson,
Hlíðarbyggð 19, Garðabæ.
50 ára
Elínbjörg Magnúsdóttir,
Skarðsbraut 17, Akranesi.
Guðný Svavarsdóttir,
Smárabraut 7, Höfii.
Hafliöi Aðalsteinsson,
Fífuhjalla 6, Kópavogi.
Matthías Garðarsson,
Seftjöm 3, Selfossi.
40 ára
Albert Einarsson,
Háabergi 15, Hafiiarfirði.
Björg Elsa Sigfúsdóttir,
Smárahlíð 22 F, Akureyri.
Bjöm Þ. Kristjánsson,
Vesturhúsum 3, Reykjavík.
Davíð Bjömsson,
Heiðarlundi 4 I, Akureyrí.
Guðrún Richardsdóttir,
Stallaseli 4, Reykjavík.
Hrafn Stefánsson,
Reykjabyggð 43, Mosfellsbæ.
Oddur Helgi Halldórsson,
Höfðahlíð 10, Akureyri.
Ólína Margrét
Ásgeirsdóttir,
Akurholti 19, Mosfellsbæ.
Páll Halldór Sigvaldason,
Vogabraut 18, Akranesi.
Ragna Margrét
Bergþórsdóttir,
Grenigrund 8, Kópavogi.
Öm Stefánsson,
Logafold 166, Reykjavík.
Smáauglýsinga
deild DV
er opin: m
• virka daga kl. 9-22^
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir
birfingu.
Aííl. Smáauglýsing í
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
o\\f milli hirr>jns
Smáauglýsingar
DV
550 5000