Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 26. MARS 1999
Fréttir
Skoðanakönnun DV um aukin fjárframlög til byggðamála:
Meirihluti fylgjandi
auknum framlögum
Meira fé til byggðamála?
Tóku afstöðu
23,9%
Allt úrtakið
"“JP
21,7%
Mikill meirihluti kjósenda er
fylgjandi auknum fjárframlögum
til byggðamála, samkvæmt skoð-
anakönnun DV sem gerð var á
fimmtudagskvöld í síðustu viku.
Tillaga um að veita að jafnaði 830
milljónir króna á ári til byggða-
mála næstu fjögur árin fær þannig
byr undir báða vængi af hálfu
meirihluta kjósenda.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt á milli höfuð-
borgar og landsbyggðar, sem og
kynja. Hringt var í fólk og spurt:
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur)
auknum fjárframlögum til byggða-
mála.
Þegar svör allra í könnuninni
eru skoðuð kemur í Ijós að 68,8%
eru fylgjandi auknum fjárframlög-
um til byggðamála, 21,7% andvíg
en 9,5% óákveðin eða neituðu að
svara. Yfir 90% aðspuröra tóku
því afstöðu til þessarar spurning-
ar. Ef einungis eru skoðaðir þeir
sem afstöðu tóku voru 76,1% fylgj-
andi en 23,9% andvíg.
Fyrir skömmu komu fram tillög-
ur nefndar, undir forsæti Einars
K. Guðfinnssonar alþingismanns,
þar sem lagt er til að 2 milljarðar
króna fari í vegagerð á lands-
byggðinni á fjögurra ára tímabili.
Síðan er á þremur árum gert ráð
fyrir 900 milljóna króna framlagi í
húshitunarkostnað á landsbyggð-
inni og lækkun námskostnaðar og
100 milljónum króna vegna lækk-
unar á endurgreiðslu námslána.
Fleiri fylgjandi úti á landi
Töluverður munur er á afstöðu
kjósenda á höfuðborgarsvæðinu
annars vegar og landsbyggðinni
hins vegar. Á landsbyggðinni eru
92,1% kjósenda fylgjandi auknum
fjárframlögum til byggðamála, þ.e.
þegar einungis eru taldir þeir sem
afstööu tóku, en einungis 59,1%
kjósenda á höfuðborgarsvæðinu.
Karlar og konur á eru hins vegar
á svipuðum nótum á landsvísu þar
sem 75% karla og 77,1% kvenna eru
fylgjandi í þessari könnun. Andstað-
an við aukin fjárframlög til byggöa-
mála er mest meðal karla á höfuð-
borgarsvæðinu en minnst meðal
landsbyggðarkvenna.
Mest andstaða sjálfstæðis-
manna
Þegar niðurstöðurnar eru greind-
ar eftir stuðningi við flokka kemur
í ljós að andstaðan við aukin fjár-
framlög til byggðamála er mest í
röðum sjálfstæðismanna eða 32%.
28,3% stuðningsmanna Samfylking-
arinnar eru andvíg. Andstaðan er
engin meðal stuðningsmanna
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs og einungis 7,1% meðal
framsóknarmanna.
Athygli vekur að allir andstæð-
ingar aukinna fjárframlaga til
byggðamála meðal framsóknar-
manna eru af höfuðborgarsvæðinu.
Rúm 83% andvígra úr röðum sjálf-
stæðismanna eru af höfuðbogar-
svæðinu og 88% andvígra samfylk-
ingarmanna.
Stuðningur við aukin fjárframlög
til byggðamála er mestur hjá stuðn-
ingsmönnum Vinstrihreyfmgarinn-
ar - græns framboðs, 91,3%, og
framsóknarmönnum 88,6%. -hlh
Meirihluti kjósenda er fylgjandi auknum fjárframlögum til byggðamála sem
ætlað er að styrkja byggð í dreifbýli og koma í veg fyrir fólksf lutninga þaðan.
Landsbyggðin fær tvo milljarða:
Þingmenn skipta vegafénu
DV, Akureyri:
Þingmenn landsbyggðarkjör-
dæmanna munu nú á næstu dög-
um setjast yfir það að ráðstafa því
viðbótarfé til vegamála sem ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að veita á
næstu fjórum árum. Um er að
ræða 500 miUjónir króna á ári
næstu fjögur árin. Ekkert viðbót-
arfé var veitt af þessari upphæð til
samgöngumannvirkja í Reykjavík
og á Reykjanesi.
Hæsta upphæðin fer til Austur-
lands, 446 milljónir á næstu fjór-
um árum eða tæplega 112 milljón-
ir árlega. Egill Jónsson, þingmað-
ur Austurlands, sagðist í samtali
við DV sjá fyrir sér að hægt verði
að ljúka við brýnustu málin í kjör-
dæminu ef jarðgangagerð er und-
anskilin og nefndi Egill í því sam-
bandi veg um Berufjörð, veginn
milli Djúpavogs og Hornafjarðar,
framkvæmdir í Hofsdal í Vopna-
firði og stórframkvæmdir á Jökul-
dal.
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra og þingmaður Norðurlands
eystra, sem fær 414 milljónir eða
rúmlega 103 milljónir á ári, segir
að í kjördæm-
inu hafi menn
horft mjög til
vegarins um
Tjörnes og til
annarra fram-
kvæmda í N-
Þingeyjarsýslu.
Vegurinn um
Tjörnes hefur
verið hreint af-
leitur undanfar-
in ár og oft
beinlínis hættu-
legur vegfarendum og þar fyrir
austan er víða pottur brotinn í
vegamálum.
Þingmenn Vestfjarða ætluðu að
hittast í gær og skoða tillögur um
hvernig 418 milljónum veröur var-
ið þar á næstu fjórum árum, en
þar er m.a. horft til svæða sem búa
við vetrareinangrun, s.s. í Barða-
strandarsýslu og í Árneshreppi.
Þau tvö kjördæmi til viðbótar
sem fá viðbótarvegafé eru Suöur-
land með 256 milljónir og Vestur-
land með 326 milljónir króna.
Nokkrar gagnrýnisraddir hafa
heyrst varðandi það að Suðurland
og Norðurland vestra fái samtals
um 400 milljónir eða um 20% af
fjárveitingunni. Einn þingmanna
Vestfjarða orðaði það þannig að
þar sem í megindráttum ætti aö
vinna gegn vetrareinangrun þætti
Sjö reykvískir skólastjórar héldu
á sunnudag vestur um haf til
Bandaríkjanna í árlega námsferð
sína. Að sögn Steinunnar Stefáns-
dóttur hjá Fræðslumiðstöð Reykja-
víkur, fóru skólastjórarnir til
Minnesota og er fyrirhugaö að þeir
skoði þar skóla og ræði við yfirvöld
fræðslumála. Skólastjóramir eru úr
Austurbæjarskóla, Breiðagerðis-
skóla, Selásskóla, Engjaskóla, Mela-
skóla, Hamraskóla og Vesturhliðar-
skóla. í ferðinni er einnig Gerður
sér hæpið að vera með fjárveit-
ingu til Suðurlands og Norður-
lands vestra, en sjálfsagt hafi ekki
verið friður um annað.
-gk
Óskarsdóttir, fræðslustjóri í Reykja-
vík, auk forstöðumanns rekstrar-
sviðs Fræðslumiðstöðvarinnar, en
sérstakur fararstjóri er Elín G. Ósk-
arsdóttir.
Enn er fólki í fersku minni þegar
skólastjóramir fóra til Singapúr og
snem heim með sláandi samanburð
á námsárangri nemenda þar og hér
heima. Þessi ferö er grein af sama
meiði endurmenntunar skólastjór-
anna.
-EIR
Eglll Jónsson:
„Náum landl með
brýnustu málln.“
Sjö skólastjórar
í Ameríkuferð
- þrír ráðgjafar fylgja
Stuttar fréttir i>v
Benedikt endurkjörinn
Á aðalfundi
Kaupmannasam-
taka íslands var
í gær samþykkt
með yfirgnæf-
andi meirihluta
að þau gerðust
stofnfélagi í nýj-
um samtökum
verslunar og þjónustu. Benedikt
Kristjánsson var endurkjörinn for-
maður með lófaklappi. Birgir Rafn
Jónsson hafði boðið sig fram gegn
sitjandi formanni til að koma í veg
fyrir inngönguna í nýju samtökin.
RÚV sagði frá.
Slys í Bláfjöllum
Ungur drengur slasaðist á baki
og í andliti í skíðabrekku í Bláfjöll-
um í gær. Hann var ásamt félögum
sínum að renna sér niður brekku á
uppblásinni vörubílslöngu sem ekki
er leyft á skíðasvæðinu. Starfsmenn
þess höfðu vísað þeim i burt án ár-
angurs þegar slysið varð. Vísir.is
sagði frá.
Húmanistar vilja hætta
Húmanistaflokkurinn hefur
sent frá sér fréttatilkynningu þar
sem loftárásir NATO á Júgóslavíu
em fordæmdar. Húmanistar
krefjast þess að aðgerðimar verði
stöðvaðar án tafar.
Óháðir fordæma
Þingflokkur óháðra fordæmir
harðlega árásir herafla NATO á
Júgóslavíu. í frétt frá þingflokknum
segir aö hernaðaraðgerðir leysi
ekki þau alvarlegu vandamál sem
við sé að etja í Kosovo-héraði.
Hækkun fagnaö
Þingflokkur Samfylkingarinnar
hefur sent frá sér yfírlýsingu þar
sem fagnað er þeirri ákvörðun
ríkisstjómarinnar að hækka
grunnlífeyri almannatrygginga-
kerfisins. Hún sé þó of lítil og
komi fullseint.
Greiðsluvandi áfram
Greiðsluvandamál landsmanna
virðast ekki hafa minnkað þrátt
fyrir góðæri og minna atvinnu-
leysi, heldur breyst. Þetta kemur
fram í Degi í samtali við forstöðu-
mann Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna.
Forsetinn í Eyjafjörö
Ólafur Ragn-
ar Grímsson,
forseti islands,
fer í opinbera
heimsókn til
Eyjafjarðar dag-
ana 18. til 20.
maí nk. Heim-
sóknin nær til
byggða Eyjafjarðar og hefur
sýslumaðurinn á Akureyri óskað
eftir því við sveitarstjórnir á
svæðinu að þær tilnefni fulltrúa
sína til að undirbúa móttökur.
Ný kjördæmaskipan
Alþingi samþykkti í gær breyt-
ingu á stjórnarskrá um nýja kjör-
dæmaskipan. Að atkvæðagreiðsl-
unni lokinni var þing rofið þar tO
fjórum vikum eftir kosningarnar í
vor þegar nýkjörið þing á að koma
saman.
Keypti jörð
Þýskur auðkýfmgur og áhuga-
maður um íslenska hestinn hefur
keypt jörðina Kvisti í Holta- og
Landsveit. Kaupverð var 20 milij-
ónir, að sögn Sunnlenska frétta-
blaðsins.
Flogið til Grænlands
íslandsflug
byrjar í næstu
viku að fljúga
vikulega til
Grænlands.
Grænlandsflug
hefur flogið
tvisvar í viku
milli Nuuk og
annarri ferðinni hefur verið milli-
lent á Constable Pynt. Það er sú
ferð sem íslandsflug hefur nú tekið
að sér að fljúga fyrir Grænlands-
flug. Framkvæmdastjóri íslands-
flugs er Ómar Benediktsson. -SÁ