Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
Fréttir
Grunnskólakennari frá Pristina sem er einn af kosovo-albönsku flóttamönnunum:
Svaf rólegur í fyrsta
skipti í tæp 20 ár
- finnst íslensk myndlist og menning um margt minna sig á björgun
Fagnaðarfundir urðu í Leifsstöð þegar hjónin Zejnje og Osman Haziri hittust aftur eftir að konan hafði verið skilin
eftir á Korfu með dóttur þeirra í vikunni, þegar eiginmaðurinn og hin tvö börnin fóru til íslands. Zejnje hafði kennt
sér meins í brjóstholi í fyrstu flugferð sinni með Gæsluvélinni TF-SÝN á milli Skopje og Korfu. DV-mynd Sveinn
„Slöustu tvær nætur eru þær
fyrstu 1 tæp 20 ár sem ég hef getað
sofið alveg rólegur - án þess að
vakna upp eða dreyma um ofbeldi og
ógnanir," sagði kosovo-albanski
grunnskólakennarinn frá Pristina,
Osman Haziri, í samtali við DV á
gistiheimilinu í Borgartúni í gær,
þar sem 23 flóttamenn búa um þess-
ar mundir. Osman segist vilja búa
áfram hér á landi - hann geti ekki
hugsað sér að fara aftur til Kosovo:
„Það má segja að ófriður hafi ver-
ið í heimalandi okkar frá 1981. Frá
þeim tíma hefur kötturinn verið að
leika sér að fiskinum. Um daginn
vorum viö síðan knúin til að fara frá
heimilum okkar. Her og lögregla um-
kringdu hverfið sem heitir
Novaberda. Mér fannst eignirnar
okkar og húsið engu skipta í því
sambandi. Maður hugsaði ekki
þannig. Við vorum bara að bjarga
lífi okkar.
Vissulega er maður tilbúinn að
gefa blóð fyrir Kosovo. Kannski vilja
börnin okkar fara aftur en ég vil það
ekki,“ sagði Osman sem er eiginmað-
ur Zejnje, konunnar sem var skilin
eftir á Korfu en kom til íslands á
laugardag ásamt dóttur þeirra hjóna,
einu af þremur börnum þeirra.
íslensk menning minnir á
björgun
Osman vakti athygli blaðamanns
á því að þegar hann fór í skoðunar-
ferð um Reykjavík í gær hefði ís-
lensk myndlist og minnismerki um
margt minnt sig á björgun - íslensk-
ur andi endurspeglaðist í menning-
unni.
„Mér finnst samlíkingin vera sú
að íslenskt fólk er að bjarga okkur.
íslendingar eru mjög vingjarnleg
þjóð. Við erum bara ein af þúsund-
um sem hafa þjáðst en það verður
ekki öllum bjargað. Ég dáist að ís-
lendingum - þeir eru friösamt fólk.“
Sem kennari kvaðst hann vissu-
lega hafa vitað sitthvað um ísland
áður. „En nú veit ég miklu meira.
Við höfum séð leikhús, söfh og stofn-
anir. Mér fannst athyglisvert að sjá
hluti hér í Reykjavík frá því i byrjun
aldarinnar," sagöi Osman.
Hann kveðst hræddur um að ef
stríðið á Balkanskaga verði ekki
stöðvað á næstu vikum muni fleiri
þjóðir blandast í ófriðinn.
„Þjóðirnar eru svo lengi búnar að
bitast innbyrðis," sagði Osman
Haziri. -Ótt
DV fylgdist með þegar Kosovo-Albani fékk skyndilega gleðifréttir:
Systir mín er á lífi!
Farsími Nusrets hringdi. Hann var að fá fréttir frá
Balkanskaga um systur sem hafði verið saknað í tíu
daga. DV-mynd JAK
„Ég var að fá stórkostlegar fréttir.
Systir mín er á lífi! Og það er allt í
lagi með hana. Ég hafði ekkert frétt
af henni í tíu daga. Það hafði ríkt al-
DV, Ólafsvik:
Katrín Rós Baldursdóttir, 18 ára
snót frá Akranesi, var kjörin fegurð-
ardrottning Vesturlands á samkomu
í félagsheimilinu Klifl í Ólafsvík á
laugardagskvöld. Húsfyllir var, enda
vel að keppninni staðið, og mikil
gjör óvissa um hana,“ sagði Kosovo-
Albaninn Nusret Hoti sem er orðinn
íslenskur ríkisborgari eftir átta ára
búsetu hér á landi. Hann vann í
spenna þegar nær dró úrslitunum.
Alls tóku 13 stúlkur þátt í keppn-
inni. Skagamenn geta verið hreykn-
ir þar sem Katrín Rós var einnig
kjörin ljósmyndafyrirsæta Vestur-
lands. Sportlegasta stúlkan var kjör-
in Hrönn Sigvaldadóttir en hún er
einnig frá Akranesi. -PSJ
Hampiðjunni í 7 ár en
um eitt ár í Piast-
prenti. Hann var að
ræða við landa sína,
flesta karlmennina í
hinum 23 manna
flóttamannahópi frá
síðustu viku, þegar
farsíminn hans
hringdi skyndilega.
Hann var þá nýbúinn
að segja blaðamanni
að fjölskylda hans
væri tvístruð á
Balkanskaga. Verst
væri að hann vissi
ekkert um systur sína
- hvort hún væri lífs
eða liðin.
Þegar Nusret hafði
svarað í símann færð-
ist breitt bros yfir and-
lit hans. Hann fór af-
síðis og hélt áfram að
tala. Að nokkrum mín-
útum liðnum kom
hann aftur og sagði
blaðamanni fréttirnar
- systirin var á lífi og í
öruggu skjóli.
„Ég er hættur að vinna hjá Plast-
prenti núna þvi ég er búinn að vera
að vinna að því að undanfórnu að fá
fólkið mitt hingað til íslands á minn
eigin kostnað - foreldra mína, þrjár
systur, eiginmenn þeirra og böm.
Fólkið er ýmist í Albaníu eða
Montenegro núna. Ég er að fara til
Balkanskaga á næstunni. Reyndar
er ég tilbúinn að fara og berjast fyr-
ir málstað okkar. Við höfum í raun-
inni verið þrælar í okkar eigin
heimalandi. Þess vegna höfum við
verið að berjast fyrir rétti okkar.
Það eru Serbar sem hafa notið þess
sem þetta gjöfula land gefur af sér.“
Nusret hafði sérstaklega orð á því
hvernig viðtökur landar hans hefðu
fengið hér á landi á síðustu dögum.
„Ég get sagt þér að þetta fólk trú-
ir því varla enn þá hve vel hefur
verið tekið á móti því . Það á ekki
til orð.“ -Ótt
Katrín Rós Baldursdóttir frá Akranesi er hér krýnd fegurðardrottning Vestur-
lands í félagsheimllinu Klifi. DV-mynd PSJ
Fegurðarsamkeppni Vesturlands:
Katrín Rós fegurst
Stuttar fréttir jdv
Álagningu mótmælt
VSÍ hefur sent
félagsmálaráð-
herra bréf þar
sem sambandið
mótmælir mis-
munandi for-
sendum við
álagningu fast-
eignaskatts á
landsbyggðinni og höfuðborgar-
svæðinu. Morgunblaðið greindi frá.
Klámhundur laus
Maður sem grunaður er um að
hafa fjölfaldað og selt um 2.000 klám-
spólur sem lögreglan lagði hald á á
föstudag var látinn laus á laugar-
dag. Stóran lögreglubíl þurfti undir
spólurnar en fyrir áramót var lagt
hald á um 1.000 spólur. RÚV
greindi frá.
Lágt menntunarstig
Kennarasamband íslands lýsir
yfir áhyggjum vegna menntunar-
stigs leiðbeinenda í grunnskólun-
um. Tæp 40% þeirra sem mennta-
málaráðherra veitti undanþágu til
kennslu hafa litlu meiri menntun
en nemendur þeirra.
Kísilgúrvinnslu hætt
Steingrímur J. Sigfússon segir
að vinnslu á kísilgúr úr Mývatni
muni ljúka skömmu eftir aldamót
vegna hráefnisskorts. Ekki komi til
greina að opna ný námasvæði
nema ný tækni komi til. Hann seg-
ir stjómvöld hafa flotið sofandi að
feigðarósi með því að sinna ekki
annarri atvinnuuppbyggingu á
svæöinu. RÚV greindi frá.
Hálfur sannleikur
Tannlæknafélag íslands segir að
tryggingatannlæknir segi aðeins
hálfan sannleikann þegar hann seg-
ir að öll tannlæknisþjónusta við
fatlaða undir 30 þúsundum sé
greidd af Tryggingastofnun ríkis-
ins. Tannlæknar séu með fjölda
reikninga sem TR hafi ekki greitt.
Tekjutengingin mistök
Finnur Ing-
ólfsson, ráð-
herra Fram-
sóknarflokks-
ins, sagði í
stjórnmálaum-
ræðum í Sjón-
varpinu að það
hefðu verið mis-
tök að tekjutengja bamabætur. Það
hefði verið gert að kröfu verkalýðs-
hreyfmgarinnar. RÚV greindi frá.
Líkleg sameining
Auknar likur eru á sameiningu
Landsbjargar og Slysavarnafélags
Islands eftir að fulltrúaráð félag-
anna funduðu um helgina. RÚV
greindi frá.
Krabbameinsrannsókn
Ný íslensk rannsókn sýnir að
óþarfi sé að ráða konum, sem
greinst hafa með brjóstakrabba-
mein, frá því að eignast böm. Stöð
2 greindi frá.
Enginn kjördæmakjörinn
Samkvæmt skoðanakönnun
Gallups kæmi Vinstri hreyfingin -
grænt framboð ekki kjördæma-
kjörnum manni að i Reykjavík.
RÚV greindi frá.
Snertibanki
SPRON hefur kynnt til sögunnar
Snertibankami sem getur sinnt Qestu
því sem gjaldkerar og þjónustufulltrú-
ar SPRON gera i dag. Allar aðgerðir
em framkvæmdar með því að snerta
skjáinn. Bankinn er gerður með ís-
lenskri höimun og hugviti. Fyrst um
sinn fá viðskiptavinir Snertibankans
50 krónur þegar þeir greiða reikninga
með bankanum.
Fresta Sundabraut
Ögmundur
Jónasson, efsti
maður á lista
Vinstri hreyfing-
arinnar - græns
ffamboðs í
Reykjavík, sagði
i stjórnmálaum-
ræðum í Sjón-
varpinu að hugsa ætti út í þann
möguleika að fresta lagningu
Sundabrautar og leggja fjármagnið
í að bæta kjör öryrkja. RÚV greindi
ffá. -sm