Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1999, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 12. APRÍL 1999
Fijálst, óháð dagblað
útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar plmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREVRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF,
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblaö 230 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgialds.
Skyldur við flóttamenn
„Það er hræðilegt að þurfa að yfirgefa föðurland sitt
með þessum hryllingi. Fyrir fram getur maður ekki
ímyndað sér hvað það er erfitt að upplifa allar þær hörm-
ungar sem fylgja svona ofbeldi - að svipta fólk frelsinu,
eignum sínum og tengslum við sitt fólk. Því er ekki hægt
að lýsa.“
Þessi orð Selims Porochica, 35 ára bókbindara frá
Pristina, hér í DV skömmu eftir komu flóttamannanna
frá Kosovo síðastliðinn fimmtudag gefa nokkra innsýn í
þann hrylling sem hann og aðrir hafa upplifað síðustu
vikur og mánuði. En orð gefa okkur, sem erum svo gæfu-
söm að búa í frjálsu landi friðar, aðeins takmarkaða
mynd af lífreynslu þessa fólks - við munum aldrei skilja
þau að fuilu. Enginn nema sá er reynir getur að fullu
skilið þá angist og þjáningar sem flóttamenn upplifa.
Við íslendingar berum, eins og aðrar þjóðir, siðferði-
lega ábyrgð á því að gera allt sem hægt er til að bjarga
þeim þúsundum flóttamanna sem hrakist hafa frá heim-
ilum sínum undan glæpahyski Serba, undir stjórn
Slobodans Milosevics, forseta Júgóslavíu. Við berum
ábyrgð á þeim sem enn eru innikróaðir af serbneskum
hersveitum. Til skamms tíma er markmiðið að bjarga lífi
þessa ógæfusama fólks en til lengri tíma verður að
tryggja að þeir sem svo kjósa geti snúið aftur til síns
heima í öryggi og friði og fái notið frelsis til að ráða sín-
um málum.
íslendingar og allir íbúar Vesturlanda verða að axla
þessa ábyrgð, ekki aðeins vegna þess að þannig erum við
trú þeim kristilega kærleika sem okkur er í blóð borinn
heldur ekki síður vegna þess að við gerðum Slobodan
Milosevic kleift að halda völdum í Júgóslavíu.
Stefna Vesturlanda hefur öðru fremur tryggt völd
Slobodans Milosevics. Fyrir nær átta árum lýstu Banda-
ríkin yfir stuðningi við sameinaða Júgóslavíu og þar
með við Milosevic. Alla tíð hefur hyski Milosevics sýnt
nágrönnum sínum yfirgang og ofbeldi. Vopnasölubann
Sameinuðu þjóðanna gerði Serbum kleift að fara með
ófriði gegn fyrrum löndum sínum og koma upp dauða-
búðum fyrir Króata og múslíma. Og Dayton-friðarsam-
komulagið gerði ekki annað en festa Milosevic í sessi.
Skiptar skoðanir á réttmæti loftárása NATO á
Júgóslavíu breyta í engu þeim skyldum sem Vesturlönd
hafa gagnvart Kosovo-Albönum. Árangur eða árangurs-
leysi hemaðaraðgerða gegn Serbum leysa Vesturlönd
ekki undan þeirri kvöð að tryggja hag þeirra sem hrak-
ist hafa frá heimilum sínum.
Furðulegustu röksemdimar gegn því að reynt sé að
tryggja þúsundum flóttamanna frá Kosovo ömggt skjól
eru að með því nái Milosevic tilgangi sínum - að hrekja
Albana frá heimilum sínum í Kosovo fyrir fullt og allt.
Þjóðernishreinsanir Serba skili því árangri. Þeir sem
halda slíku fram hafa ekki skynjað þá gleði sem ríkti á
Reykjavíkurflugvelli síðastliðinn fimmtudag. Þeir munu
aldrei geta sett sig í fótspor þeirra sem búa við stöðuga
ógnun, yfirgang og hörmungar.
Við íslendingar eigum ekki sérlega glæsilega sögu þeg-
ar kemur að því að bjóða flóttamenn velkomna til lands-
ins. Á síðustu 42 árum höfum við aðeins boðið 308 flótta-
menn velkomna hingað til lands. Framkoma okkar í garð
gyðinga á fjórða og fimmta áratug aldarinnar þolir ekki
mikla skoðun. Það var því ánægjulegt hve skjótt íslensk
stjórnvöld brugðust við að þessu sinni en betur má ef
duga skal.
Óli Björn Kárason
Þingflokkur SamfyIkingarinnar stofnaður. „Um þessar mundir fara frambjóðendur S-listans um byggðarlögin og
kynna stefnumið og framtíðarsýn Samfylkingarinnar. Og það er góður samhljómur í forystusveitinni," segir í
grein Guðmundar Árna Stefánssonar.
Þess vegna
Samfylkingin?
og aftur þúsundum
stuðningsmanna í
opnu prófkjöri.
Þá reyndu óvinir
Samfylkingarinnar að
telja fólki trú um að
allt logaði í ilideilum
vegna málefnavinnu.
Það reyndist bull og
þvæla þegar skýr og
afdráttarlaus kosn-
ingastefnuskrá Sam-
fylkingarinnar var
kynnt í sátt og sam-
lyndi allra aðstand-
enda. Um þessar
mundir fara frambjóð-
endur S-listans um
byggðarlögin og
kynna stefnumið og
framtíðarsýn Sam-
„Samfylkingin stendur fyrírjöfn■
uð, réttlæti og raunverulegt
frelsi. / þessum þremur orðum er
að fínna grunntónana í stefnu
Samfylkingarínnar, sem stýra
síðan stefnu og verklagi í við-
fangsefnum samtímans
Kjallarinn
Guðmundur Árni
Stefánsson
alþingismaður
„Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag munu aldrei ná saman.“
„Kvennalistinn verður aldrei
með og fer í fýlu.“
„Þessir Samylkingarflokkar
verða aldrei sammála um menn og
málefni."
„Stefnuskrá Samfylkingarinnar
er svo óljós.“
„Stefnumið Samfylkingarinnar
eru of róttæk og munu setja hér
allt í bál og brand.“
„Það eru laumukommar og
íhaldskratar í Samfylkingunni og
brjálaðar kvennalistakonur. Þetta
lið er bræðingur, sem brennur við
á örfáum mánuðum.“
Á þessum nótum hafa „frasarn-
ir“ verið af hálfu andstæðinga
jafnaðar- og félagshyggjufólks síð-
ustu misserin, eða allt frá því að
stefnan var sett á sameiginlegt
framboð Alþýðuflokksins, Alþýöu-
bandalagsins, Kvennalista og
óháðra vegna alþingiskosning-
anna í maí ‘99. Og engar þessar
hrakspár hafa staðist. Allt hefur
verið afsannað.
Góður gangur
Fyrst var viðlagið það, að sam-
starf þeirra flokka sem standa að
Samfylkingunni myndi aldrei
verða að veruleika. Sögulegar
ástæður yrðu til þess. Sú spásögn
reyndist röng. Viljinn til að sam-
eina kraftana í baráttunni fyrir
betra og réttlátara þjóðfélagi
reyndist öllu öðru yfirsterkara.
Síðan var reynt að halda því
fram að allt færi í háaloft vegna
framboðsmála. Sú forsögn fauk út
í veður og vind, því sterkir fram-
boðslistar birtust hver af öðrum,
flestir þeirra valdir af þúsundum
fylkingarinnar. Og það er góður
samhljómur í forystusveitinni.
Að breyta - rétt
Þegar síðan andstæðingar okkar
samfylkingarmanna á jaðrinum,
hvort heldur er til vinstri eða
hægri, sáu að mættur var til leiks
öflugur valkostur meirihluta ís-
lenskra kjósenda, sem ennþá bíða
þess að góðærið sæki
það heim, þá var
reynt að gera einstök
stefnumið Samfylk-
ingarinnar tortryggi-
leg. Stundum var því
haldið fram að orða-
lag væri óljóst, en
jafnoft var kúvent og
sagt að áform Sam-
fylkingarinnar væru
of róttæk. Þannig fór
gagnrýnin í kross.
Samfylkingin er
komin tÚ að vera - og
til að gera.
Stjórnmál eru ekki
flókin. Þau eru þvert
á móti einfóld. Póli-
tískur vilji er allt sem
þarf. í þessum kosn-
ingum eru línur
skýrari en oftast
áður. Samfylkingin
stendur fyrir jöfnuð,
réttlæti og raun-
verulegt frelsi. í
þessum þremur orð-
um er að finna
grunntónana í
stefnu Samfylking-
arinnar, sem stýra
síðan stefnu og
verklagi í viðfangs-
efnum samtímans.
Samfylkingin ér afl almennings
til breytinga á gömlum og slitnum
úrræðum, sem hafa aukið
tekjumun í þjóðfélaginu og við-
haldið völdum örfárra. Við sam-
fylkingarfólk viljum réttlætið til
öndvegis í íslensku samfélagi.
Nú er tími til að breyta - breyta
rétt.
Guðmundur Árni Stefánsson
Skoðanir annarra
Hungurlús
„Svokallaðar „endurbætur" á Reykjavíkurflug-
velli eru einfaldlega það ódýrasta, sem ríkissjóður
býður fram, en borgaryfirvöld eru sofandi yfir því
hverjar afleiðingarnar eru og kostnaður fyrir borg-
arbúa. Afstaða flugmálastjóra í þessari stöðu er skilj-
anleg. Hann veit að ef hann þiggur ekki þessa hung-
urlús, þá fær hann ekki neitt eins og fyrri daginn."
Jóhann J. Ólafsson í Mbl. 9. apríl
Umræður í sjónvarpssal
„Þetta kom glögglega fram t.d. í þeim þætti um-
ræðnanna, sem sneri að fískveiðistjómun. Fólk var
engu nær um afsöðu flokkanna til þeirra álitamála,
sem uppi hafa verið. Það kom fram, sem áður hefur
komið fram, að stjómarflokkamir era tilbúnir til
þess að beina umræðum um þessi málefni í nýjan
farveg. En stjórnmálamennirnir ræddu einstök efn-
isatriði ekki með þeim hætti að fólk fengi einhverj-
ar viðbótarupplýsingar um málefnin.“
Úr forystugrein Mbl. 9. apríl
Góðærishjalið
„Athafnamennimir sem einlægt eru að mæla fyr-
ir munn aldraðra tala undantekningarlítið um bless-
un vinnustaöarins og hvílík eftirsjón sé af þeirri lífs-
fyllingu sem hann á að veita. Það ömurlega er, að
forsvarsmenn lífeyrisréttinda söfnunarsjóða eru
innilega á sama máli. Og pólitíkusar með skamm-
tímaminni leita nú frama síns meðal þeirra sem
ávallt gleymast í góðærishjalinu."
Oddur Ólafsson í Degi 9. april