Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 7
Karl Sigurbjörnsson biskup íslands „Á þriðja þúsund einstaklingar þurftu að þiggja aðstoð Hjálpar- starfs kirkjunnarfyrir nýliðin jól, og það í mesta góðæri íslands- sögunnar. Þetta fólk er flest öryrkjar sem ættu samkvæmt viðurkenndum grundvallarsið- gildum okkar þjóðar að njóta velferðar og stuðnings samfél- agsins. Eitthvað er nú að." Úr nýárspredikun, janúar 7999. Október 1998. Ólafur Ólafsson fyrrv. landlæknir „Upplýsingar um örorku- greiðslur hér á landi eru ekki til að fara með í aðra hreppa, þær eru svo lágar, þrátt fyrir að við höfum verið ein tekju- hæsta þjóð í heimi í áratugi." „Hafa menn gleymt tilgangi almannatrygginga?" Desember 1998. Bengt Lindquist umboðsmaður fatlaðra hjá Sameinuðu þjóðunum „Þó að íslenska ríkisstjórnin hafi verið ein sú fyrsta sem lét þýða Grundvallarreglur Sameinuðu Djóðanna um málefni fatlaðra, 3á er ekki nóg að þýða þær. Það Darf líka að framfylgja þeim." Desember 1997. Úr fréttabréfi Biskupsstofu: „Helmingur skjólstæðinga Hjálparstarfsins eru öryrkjar. Eru þetta sæmandi kjör í velferðarsamféiagi á tímum hagvaxtar og afgangs á fjárlögum? Vissir þú að öryrkjar á íslandi eru aðeins 7.776 talsins? Getur verið að það sé hagkerfinu ofviða að bæta kjör þessa hóps?" Janúar 1999. Úr forystugrein Dags: „Aðeins lítið brot af öllum þeim milljörðum sem ríkissjóður hefur bætt við sig í skatttekjum á þessu ári og því næsta myndi duga til að gera hér nauðsynlegar úrbætur." Desember 1998. Ellert B. Schram forseti ÍSÍ „Verstur er þó hlutur öryrkj- anna, sem aldrei hafa beðið um sína örorku en eru háðir þeim smánarskammti sem hrekkur af borðum allsnægt- arinnar." Úr yfirlýsingu Rauða kross íslands: „Við íslendingar erum meðal auðugustu þjóða heims og getum tryggt að þeir sem standa höllum fæti vegna sjúkdóma, atvinnumissis, örorku, aldurs eða annarra aðstæðna njóti ekki síður en aðrir mannsæmandi lífskjara." Desember 1998. Úr forystugrein Morgunblaðsins: „í Ijósi réttsýni og sanngirni er tímabært, að ekki sé fastar að orði kveðið, að endurskoða stöðu öryrkja, sérstaklega þeirra sem urðu öryrkjar ungir." Desember 1998. Úr fréttatilkynningu Hjálparstofnunar kirkjunnar: „Hjálparstofnun kirkjunnar hvetur ráðamenn til þess að bæta svo net almannatrygginga að þeir sem þurfa á því að halda geti skapað sér mannsæmandi líf." Október 1998. Oryrkjabandalag Islands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.