Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1999, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1999
7
Fréttir
Álver Noröuráls:
Þetta er aðeins byrjunin
- sagði Kenneth Peterson, eigandi og forstjóri CVC
DV, Grundartanga:
Efnt var til hátíðarhalda 24. apríl
í tilefni þess að álver Norðuráls á
Grundartanga er að fullu tekið til
starfa. Það er hið eina sinnar teg-
undar í heiminum sem er í eigu
einkaðila og heimsmet var sett í
byggingu þess. Fyrsta skóflustung-
an að álverinu var tekin 29. mars
1997 og steypuvinna hófst í júní
1997. Byggingu kerskála var lokið í
apríl 1998 og þá fóru væntanlegir
starfsmenn til þjálfunar til Þýska-
lands. Fyrsta starfsemi var 8. júní
1998 og fyrsta álið var flutt frá
Grundartangahöfn í ágúst 1998.
Gangsetningu allra 120 keranna var
að fullu lokið 15. janúar 1999.
Hið nýja álver Norðuráls er á
Grundartanga, i 50 km fjarlægð frá
Reykjavík. Framleiðslugeta þess nú er
60.000 tonn á ári, en stefnt er að 180.000
þúsund tonna framleiðslu. Gert er ráð
fyrir þremur áfongum - annar áfangi
er aukning um 30.000 tonn á ári og
þriðji um 90.000 tonn á ári.
Margir fluttu ávarp á laugardag:
Björn Högdahl álversstjóri, Kenn-
eth D. Peterson, eigandi og for-
stjóri Columbia Ventures Cor-
poration, Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra, Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi og Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar. Álver
Norðuráls er dótturfyrirtæki Col-
umbia Ventures í eigu Kenneth
Peterson. Hann sagði að þetta
væri aðeins byrjunin. Nú væri
unnið að því að auka framleiðsl-
una um 50% og síðan tvöfalda
hana frá því. „Það stendur ekki á
okkur að byrja framkvæmdir, það
ræðst einvörðungu af framboði á
orku og ég bind vonir við það að
þessi stækkun geti orðið eftir um
það bil tvö ár,“ sagði Peterson. Hjá
Norðuráli vinna nú um 150
manns. -DVÓ
Frá vinstri: Kenneth Peterson, eig-
andi Norðuráls á Grundartanga,
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, Har-
aldur Sturlaugsson, forstjóri HB,
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, Þórður Friðjónsson,
ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðu-
neyti, Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar. DV-mynd DVÓ
Garðyrkjuskólinn 60 ára:
Sextugt en síungt
afmælisbarn
- sagði skólastjórinn, Sveinn Aðalsteinsson
DV, Hverageröi:
í ár heldur
Garðyrkju-
skóli rikisins
í Ölfusi upp á
sextugsaf-
mæli sitt með
veglegri af-
mælisdag-
skrá. Hátíðin
hófst á sum-
ardaginn
fyrsta og auk
almennrar
kynningar á
starfsemi
skólans og ís-
lenskri garð-
yrkju sáu
nemar skólans um ýmsar uppákom-
ur. Afmælishátíðin stóð í fjóra daga
að þessu sinni í tilefni stórafmælis-
ins. Þann 23. apríl heimsóttu nem-
endur grunnskólans í Hveragerði
skólann og kynntu sér og unnu við
ýmis verkefni tengd umhverfismál-
um og garðyrkju, svo sem að greina
tegundir og aldur trjáa, hvaða gróð-
ur hentaði best og hvar.
Eftir hádegi kom forseti íslands,
Ólafur Ragnar, og heilsaði upp á
yngri grunnskólanema sem stóðu
með íslenska fánann í höndum. Að
ávarpi forsetans loknu fengu bömin
ís frá „lífvörðum forsetans“.
Sveinn Aðalsteinsson, skólastjóri
garðyrkjuskólans, ávarpaði gesti,
forseta, viðstadda alþingismenn,
eldri borgara og aðra og ræddi um
Ólafur Ragnar forseti flytur ræðu á afmælishátíðinni.
DV- mynd Eva
starfsemi skólans. Sagði hann m.a.
að Garðyrkjuskóli ríkisins væri öfl-
ugur fjárfestir á sviði heilbrigðis-
mála á íslandi. Efasemdir hefðu ver-
ið uppi hér áður fyrr um hvort skól-
inn gæti staðið undir nafni en nú
dyldist engum að hér væri um mjög
þarft skólastarf að ræða. Forseti ís-
lands hélt síðan stutta tölu þar sem
hann m.a. óskaði aðstandendum
skólans og öðrum íslendingum til
hamingju með afmælið.
Að loknum ræðuhöldum skoð-
uðu gestir sig um i þessu fagra um-
hverfi á einum besta degi ársins. 25.
apríl var dagur umhverfisins og
dagskrá hans spunnin út frá því.
-eh
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Suður-Mjódd, breyting á
aðalskipulagi og deiliskipulagi
í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016.
Landnotkun í Suður-Mjódd breytist annars vegar að hluta til úr blöndu af
verslunar-, þjónustu- og stofnanasvæðum í útivistarsvæði til sérstakra nota og
hins vegar að hluta til úr almennu útivistarsvæði og útivistarsvæði til sérstakra
nota í blöndu verslunar- og þjónustu og útivistarsvæðis til sérstakra nota.
Jafnframt fellur niður tengibraut neðan Þverársels frá Skógarseli að
Fífuhvammsvegi í Kópavogi og ný tengibraut verður lögð í framhaldi af
Álfabakka, um undirgöng undir Breiðholtsbraut, samsíða Reykjanesbraut og
tengist Fífuhvammsvegi.
Þá er í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga auglýst tillaga að
deiliskipulagi Suður-Mjóddar, þar verður íþróttasvæði, almennt útivistarsvæði,
stofnanasvæði, verslun, þjónusta og íbúðir.
Ofangreind tillaga er til kynningar í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í
Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:15 frá 28. apríl til 26. maí 1999.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags
Reykjavíkur, eigi síðar en 9. júní 1999.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillöguna.
Kleppsvík, deiliskipulag
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér með auglýst til
kynningar tillaga að deiliskipulagi í Kleppsvík
Deiliskipulagið nær yfir lóðirnar Skútuvogur 3,7,9 og Kjalarvogur 14 og 16.
Ofangreind tillaga er til kynningar í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í
Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:15 frá 28. apríl til 26. maí 1999.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags
Reykjavíkur, eigi síðar en 9. júní 1999.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillöguna.
SHARP
ER-A150
Sjóövél
SHARP
AL-1000
10 eintök á mínútu
Stafrœn
iNINiSLA
Ljósnitunarvélar, faxtæki og sjóövélar
BetPi tæki enu vandfundin!
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar |
B R Æ Ð U R N I Rj
Lágmúla 8 • Sími 533 2800