Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Side 28
3
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Aldin hf. í
gjaldþrot
Forráðamenn Aldins hf. á Húsa-
vík munu óska eftir úrskurði um
gjaldþrot fyrirtækisins í dag. Þá
ákvörðun átti að kynna starfs-
mönnum i morgun. Rekstur fyrir-
tækisins hefur gengið afar illa og
það safnað 130 milljóna króna
skuldum við Kaupfélag Þingey-
inga. Þær skuldir eiga sinn þátt í
erfiðleikum KÞ sem er á leið í
greiðslustöðvun. Lætur nærri að
tap síðasta árs nemi um 100 millj-
ónum króna.
Aldin, sem hefur flutt inn trjá-
boli frá Ameriku, sagað þá niður í
borð og þurrkað með jarðhita, hóf
starfsemi vorið 1997. Fyrsta árið
var 39 milljóna króna halli á
rekstri fyrirtækisins. Á síðari
hluta árs í fyrra var ljóst að eigið
fé Aldins, um 100 milljónir króna,
var uppurið. Fjármagnaði Kaupfé-
* lag Þingeyinga þá reksturinn, einn
hluthafa. Kaupfélagið á stærstan
hlut í Aldini, 31,7%, Nýsköpunar-
sjóður atvinnulífsins 23,3%, KEA
20,5% og aðrir minna.
Sjá fréttaljós um vantmat á
mjólkursamlagi KÞ á bls. 6. -hlh
Hörniungar
i stríðsins
p.
I “
Hörmungar
stríðsins
í Helgarblaði DV verður viðtal við
Auðun Bjarna Ólafsson, sem hefur
verið yfirmaður uppbyggingarstarfs á
stríðshrjáðum svæðum i Bosníu en
mun brátt halda til Kosovo þar sem
mörg brýn verkefni bíða hans. Viða-
mikill myndaþáttur verður einnig frá
ferðalagi um flóttamannabúðir í
Makedóníu. Birt verða úrsht skoðana-
könnunar DV um áhrifamesta ein-
stakling veraldarsögunnar og hulunni
svipt af því hverjir verða í fríðu fóru-
neyti Selmu Björnsdóttur th Jerúsal-
em. Nærmynd verður af Ehud Barak,
nýkjömum forsætisráðherra ísraels,
og i innlendu fréttaljósi er ljósi varp-
að á langa sögu vandræða í rekstri
* kaupfélaga á landsbyggðinni.
Fjórir íturvaxnir búa sig undir orkumótið í kraftlyftingum, Sæmundur Sæmundsson, Auðunn Jónsson, Hjalti Úrsus
Árnason og Andrés Guðmundsson. DV-mynd Hilmar Þór
Alþjóöa gjaldeyrissjóðurinn sendir íslendingum viövörun:
Skattahækkanir
eða aðhald í op-
inberum rekstri
- er eina leiöin til aö viðhalda stööugleika
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, IMF,
segir að íslendingar verði að beita
ríkisfjármálum til að viðhalda stöð-
ugleika og minnka eftirspum. Mjög
mikill hagvöxtur og kaupmáttar-
aukning undanfarinna ára sé nú
farin að segja til sín og nú sé nauð-
synlegt að bregða skjótt við. í þessu
felst að hið opinbera verði að draga
saman seglin, hækka skatta eða
minnka útgjöld. Nauðsynlegt er að
hið opinbera sé rekið með afgangi
til að greiða niður skuldir og koma
böndum á viðskiptahahann.
Þótt Seðlabankinn hafi beitt
vaxtahækkunum til að slá á þensl-
una er hann kominn að útmörkum í
beitingu peningamálastefnu og því
verði ríkið að grípa inn í.
IMF bendir á að örar breytingar á
fjármálamörkuðum og einkavæðing
Úármálafyrirtækja sé ein af ástæð-
um þessarar þenslu þvi hún hafi í
for með sér mikla aukningu á láns-
fjármagni. Þetta er meðal annars
ástæða hinnar miklu þenslu á fast-
eignamarkaði. IMF tekur undir orð
Finns Ingólfssonar viðskiptaráð-
herra, að frekari einkavæðing ríkis-
fyrirtækja, sérstaklega bankanna,
muni slá á þessa þenslu því það
dragi úr peningamagni í umferð og
ráðstöfunartekjum. Slíkt hefur
spamað í for með sér, bæði hjá rík-
inu og einkaaðilum, en kjaminn í
skilaboðum IMF er að hið opinbera
verði að gripa inn í og auka spam-
að sinn. -BMG
Spáð þriðja sæti
Selma Björnsdóttir er
talin þriðji líklegasti
sigurvegari Evrópsku
söngvakeppninnar í ár
ef marka má skoðana-
kannanir á Netinu. Lag-
ið „All out of Luck“ er
nú i þriðja sæti en þar fyrir ofan
era lög frá Kýpur og Króatíu. Á
heimasíðum forfallinna áhuga-
manna um keppnina er íslenska lag-
ið sagt minna á lög sjö-
unda áratugarins en þó
með nýtískulegum takti
og útsetningu. Laginu
er spáð mikilli vel-
gengni og hugsanlega
sigri ef frammistaða
Selmu á úrslitakvöldinu verður
góð. Þá er einnig sagt að lagið sé
besta lagið sem komi frá Norður-
löndunum i ár.
Kio laus
Héraðsdómari féllst í morgun á
rök verjanda Kios Briggs um að
sleppa honum úr gæsluvarðhaldi á
meðan héraðsdómur tekur aftur
■ fýrir mál hans.
Maðuinn verður
þvi laus en er úr-
skurðaður í far-
bann til 15. sept-
ember..
Verjandi Kios
mótmælti gæslu-
varðhaldinu og
Kio Alexander fór fra” á að
Briaas hann ^01 ernung-
is úrskurðaður í
farbann - hann mætti ganga laus á
meðan dómstólar fjalla um mál
hsms.
„Við munum ganga í að þetta
mál verði tekið fyrir sem fyrst aft-
ur,“ sagði Ragnheiður Harðardótt-
ir hjá ríkissaksóknaraembættinu
við DV í morgun þegar hún var
spurð um hvort útlit væri fyrir að
Héraðsdómur Reykjavíkur taki
mál Kios aftur fyrir á næstu vik-
um. Málinu var vísað heim í hér-
að í gær þar sem héraðsdómur tók
ekki mið af framburði aðalvitnis,
tiltekins Guðmundar, sem Kio bjó
hjá á Spáni áður en hann fór til ís-
lands með e-töflur.
„Ég er vongóður um að skjól-
stæðingur minn verði sýknaður í
nýjum réttarhöldum enda eru fjöl-
mörg atriði önnur en framburður
Guðmundur Inga sem varpa veru-
legum vafa á sekt hans í málinu,"
sagði Helgi Jóhannesson, verjandi
Kios. -Ótt
Gæs í arnar-
hreiörinu
Jón Sveinssonar iðnrekandi,
sem Fuglaverndarfélagið hefur
kært fýrir að brenna sinu og spilla
meintu arnarhreiðri á hólma í
landi Miðhúsa í Reykhólasveit,
segir DV að vettvangsrannsókn
Þórólfs Halldórssonar, sýslu-
manns á Patreksfirði, hafi leitt i
ljós að búið var að verpa í hið
meinta arnarhreiður. Þar sé þó
ekki um arnarhjón að ræða heldur
gæs. Þegar komið var að hreiðrinu
á miðvikudag hafi gæs legið á
flmm eggjum í hreiðrinu.
Jón Sveinsson hefur ritað dóms-
málaráðherra bréf og óskað eftir
því að hann hlutist til um að hann
fái réttláta málsmeðferð. Hann
segir í bréflnu að samskipti hans
við sýslumanninn á Patreksfirði í
tengslum við kæru Fuglavemdar-
félagsins á hendur sér hafi verið
þannig að sér sé orðið ljóst að
hann fái ekki réttláta málsmeðferð
hjá sýslumannsembættinu á Pat-
reksfirði. Hann óskar því eftir að
ráðuneytið taki málið af sýslu-
manni og fái það í hendur óvilhöll-
um aðila, t.d. ríkislögreglustjóra
-SÁ
Veðrið á morgun:
Úrkoma um
allt land
Á morgun verður norðvestan-
kaldi eða stinningskaldi suðvest-
an til, en mun hægari á Norður-
og Austurlandi. Skúrir eða
slydduél verða á vestanverðu
landinu en annars rigning eða
súld með köflum. Hiti verður á
bilinu 1 til 9 stig, svalast á Vest-
fjörðum.
Veðrið í dag er á bls. 29.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PO RÆÐUR FERÐINNI
5
UJ
>
a
z
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA