Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1999, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
27
!
Sviðsljós
Lucas hrifinn
af Zeta-Jones
George Lucas, maðurinn á bak
við nýju Stjörnustriðsmyndina, er
ástfanginn af Catherine Zeta-Jones,
ef marka má skrif tímaritsins Star
Magazine. Sögusagnir um ástarsam-
band þeirra fóru á flug eftir þau
komu komu nýlega saman í partí
fyrir frægt fólk.
Samkvæmt Star Magazine er það .
ekkert leyndarmál að George, sem
er 55 ára og einstæður faðir þriggja
kjörbarna, vilji ganga í hjónaband á
ný. Samt sem áður misstu flestir
andlitið þegar hann birtist með
Catherine, sem er 29 ára, upp á arm-
inn. Nokkrir gestanna i fyrrnefndu
partíi þóttust hins vegar vita að þau
hefðu hist nokkrum sinnum að und-
anfómu. Að sögn þessara heimildar-
manna Star Magazine ætlaði George
alveg að éta Catherine og hún á
ekki að hafa litið af honum heldur.
Hin fagra Catherine er sögð vera
veik fyrir eldri mönnum og áhuginn
er gagnkvæmur. Hún segir að Sean
Connery, sem hún leikur á móti í
myndinni Entrapment, sé kyn-
þokkafyllsti maður sem hún hefur
séð. Hún tekur Connery og Anthony
Hopkins fram yfir unga fola eins og
Antonio Banderas. Og nú mun hún
sem sagt hafa heillast af George
Lucas. Eiginkona George yfirgaf
hann eftir að hafa hitt annan mann
rétt eftir að þau höfðu ættleitt
dóttur árið 1982. George ættleiddi
sjálfur tvö börn til viðbótar.
!
I
Charlotte Nilsson, fulltrúi Svíþjóðar í Evrópusöngvakeppninni, er vinsæl.
Eurovision- Charlotte
er kynþokkafyllst Svía
Charlotte Nilsson er kynþokka-
fyllsta kona Svíþjóðar. Því er ekki
furða að hún sé í uppáhaldi blaða-
manna og Ijósmyndara sem fylgjast
með Evrópusöngvakeppninni í ísra-
el. Charlotte er jú fulltrúi Svía og
ætlar sér stóra hluti, eins og sagt er.
„Þetta hefur engin áhrif á starf
mitt en það var æðislegt," segir
Charlotte um nafnbótina. Og bætir
hæversklega við, í viðtali við VG
hið norska, að til séu margar miklu
flottari stelpur en hún í Svíaríki.
Charlotte hefur lagt gjörva hönd á
margt. í eina tíð sýndi hún undirföt
en núna leikur hún aðallega í aug-
lýsingamyndum, auk þess sem hún
syngur, að sjálfsögðu.
Charlotte hefur æft af kappi und-
anfama daga en í fyrradag gerði
hún smáhlé á púlinu, fækkaði föt-
um og fékk sér sundsprett í 28 stiga
heitu Dauðahafinu. Þar með rættist
langþráður draumur
„Það var algjört æði,“ segir
Charlotte söngkona.
með öllu, ek. 15 þús. km, dekurbíll, sem nýr.
Upplýsingar í síma 566 7363
og á kvöldin í síma 566 7196.