Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1999, Síða 36
r miðvikudaginn
Vin
26.05. 99
3
30
Fjöldi
< Vinningar vinninga Vinningóupphœð
80.521.260
2.5 at 6A.
2.066.770
3-5 at 6
111.150
■ 4at 6
214
2.240
541
HetldarvinningAupphœð
83.828.720
Á íólandi
3.307.460
UTTl
i
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 27. MAI 1999
Vel tekið á
móti flótta-
fólkinu
DV, Akureyri:
Dalvíkingar tóku vel á móti 23
flóttamönnum sem komu þangað í
gær frá Eiðum, en þar hafa þeir
dvalið síðan 8. maí þegar þeir
komu til landsins. Annar svipaður
hópur hélt frá Eiðum til Reyðar-
fjarðar í gær.
Á Dalvík var efnt til móttökuhá-
tíðar í Víkurröst en fólkið hélt síð-
an til heimkynna sinna, en fimm
íbúðir höfðu verið standsettar og
búnar húsgögnum og öllum nauð-
synjum fyrir komu fólksins þang-
að. í hópnum eru 17 konur og 6
karlar á aldrinum 2-48 ára. Þetta
“eru tvær stórfjölskyldur og aðrar
minni og strax í dag verður hafist
handa við að kynna fólkinu bæinn
og næsta nágrenni auk þess sem
við tekur íslenskukennsla og ann-
að til að undirbúa fólkið fyrir lífið
á nýjum stað.
-gk
Sfokus
Góðærið og
gervikynfærin
I Fókusi sem fylgir DV á morgun
leiðir Þór Mýrdal, eigandi Rómeó og
Júlíu, lesendur í gegnum frumskóg
hrágúmmísins. Helgi Björns spáir í
framtíðina og sér sig jafnvel á
Wembley eftir tíu ár, Stones hita upp.
Fókus fer síðan á fætur með fimm
landsþekktum morgunhönum, Sigur-
rós talar út um neysluna og Bíbí, fyrr-
um Bellatrixa, sleikir sólina. Þá varar
Fókus við öllum hættunum sem leyn-
ast i góðærinu og birtir ítarlegan leið-
arvísi um hvernig halda skuli glór-
unni í þessum hræringum. Popp, bíó,
^gleði og glens á sínum stað eins og
vanalega. Lífið eftir vinnu er ná-
kvæmur leiðarvísir um skemmtana-
og menningarlífið.
HUN VALTAR YFIR HANN'
Á MÓTÓRHJÓLINU!
Glaðbeitt á blaöamannafundinum.
Selma í sjokki
DV, Jerúsalem:
Reyðfirðingar og Dalvíkingar tóku á móti flóttamönnunum frá Eiðum í gær. Reyðfirðingar slógu upp grillveislu.
DV-mynd ÞH
„Viðbrögðin komu mér algerlega
í opna skjöldu. Ég er í sjokki,“ sagði
Selma Björnsdóttir Eurovision-
stúlka eftir frábæran blaðamanna-
fund sem hún hélt ásamt fylgdarliði
í Jerúsalem siðdegis í gær. Blaða-
mannafundur Selmu var sá fjöl-
mennasti sem haldinn hefur verið
af þátttakendum í Eurovision í
þetta sinn og voru flestir blaða- og
fréttamenn á fundinum á einu máli
um að Selma mundi bera sigur úr
býtum. Á spálistanum á Netinu er
Selma fallin úr fyrsta í annað sætið.
Kýpur hefur tekið forystuna og H9I-
lendingar eru rétt á hælunum á ís-
landi. jkp/-EIR
Stj órnarmyndunarviöræðurnar:
Framsóknarforyst
an vill Pál P. út
- Siv Friöleifsdóttir hugsanlega á leið í félagsmálaráöuneytið
Fomaður og varaformaður Fram-
sóknarflokksins gengu síðdegis í gær
á fund Páls Péturssonar og tjáðu hon-
um að það væru meiri líkur en minni
á því að hann yrði ekki í ríkisstjórn-
inni. Páll Pétursson sagðist í morgun
í samtali við DV ekki hafa hugmynd
um það hver viðbrögð við þessu yrðu
af hálfu sinni eða samherja sinna í
Norðurlandskjördæmi vestra. „Ég hef
svo sem enga niðurstöðu séð í þvi
máli,“ sagði Páll við DV. Magnús
Ólafsson á Sveinsstöðum, formaður
kjördæmisráðs flokksins í kjördæm-
inu, sagði í morgun að þetta mál og
ríkisstjórnarþátttaka flokksins yrði
rædd á miðstjórnarfundi flokksins í
kvöld. Hvað þar gerist ætti eftir að
koma í ljós. Mikil ólga er meðal fram-
sóknarmanna í kjördæminu eftir að
málið spurðist út í gærkvöld. Búast
má við að allir miðstjórnarmenn
flokksins úr kjördæminu mæti á fund-
inn i kvöld.
I nýju ríkisstjórninni verða tólf ráð-
herrar. Yflrgnæfandi likur eru á því
að hvor flokkur um sig verði áfram
með sömu ráðuneyti og í fyrra stjóm-
arsamstarfínu og þeir af núverandi
ráðherrum sem áfram sitja í ríkis-
stjóm yrðu að mestu með sömu ráðu-
neytin áfram að Páli Péturssyni frá-
töldum. Davíð Oddsson verður forsæt-
isráðherra, Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra, Björn Bjamason
menntamálaráðherra, Finnur Ingólfs-
son viðskipta- og iðnaðarráðherra,
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og
Halldór Blöndal samgönguráðherra.
Þar voru hins vegar blikur á lofti í
gær því að Valgerður Sverrisdóttir
krafðist þess að fá samgönguráðuneyt-
ið. Menn í innsta valdahring Fram-
sóknarflokksins sögðu við DV í gær-
kvöld og morgun að þær Valgerður og
Siv stæðu eindregið saman að því að
Siv yrði ráðherra. Krafa Valgerðar
um samgönguráðuneytið hefði verið
sett fram í því skyni að valda upp-
námi. Þegar það hefði gengið eftir
hefði Valgerður dregið kröfuna til
baka gegn því að Siv yrði ráðherra og
í framhaldinu hefði formaður og vara-
formaður flokksins séð þann kost
vænstan að fórna Páli til að halda
friðinn við Halldór Blöndal og öflugan
stuðningsmannahóp hans.
Tvö ný ráðherraefní Sjálfstæðis-
flokks eru Árni M. Mathiesen, sem
líklegast verður sjávarútvegsráð-
herra, og Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra. Sturla Böðvarsson hef-
ur verið nefndur sem ráðherraefni en
samkvæmt þessari uppstillingu er
hann líklegastur til að verða forseti
Alþingis. Hin nýju ráðherraefni
Framsóknarflokksins eru Guðni
Ágústsson, sem verður landbúnaðar-
ráðherra, og Valgerður Sverrisdóttir
sem líklega verður umhverfisráð-
herra og Siv Friðleifsdóttir félags-
málaráðherra. -SÁ
Veðrið á morgun:
Bjart um
allt land
Á morgun veröur fremur hæg
suðvestlæg eða breytileg átt og
bjart veður í öllum landshlutum.
Hiti verður á bilinu 5 til 13 stig
yflr daginn, hlýjast inn til lands-
ms.
Veðrið í dag er á bls. 37.
-M3
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
BhH
SIMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
i