Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1999
9
Utlönd
í
V
Friösælar kosningar í Suður-Afríku í gær:
Útlit fyrir stórsigur
Afríska þjóðarráðsins
Útlit er fyrir að Afríska þjóðar-
ráðið hafi unnið stórsigur í þing-
kosningunum í Suður-Afríku í gær.
Kosningarnar, sem fóru friðsamlega
fram, marka kaflaskil í sögu lands-
ins þar sem Nelson Mandela forseti
lætur af embætti og við tekur vara-
forseti hans, Thabo Mbeki. Hann
verður settur formlega í embætti
þann 16. júní.
Þegar búið var að telja um sex
milljónir atkvæða í morgun, eða 39
prósent af áætluðum greiddum at-
kvæðum, hafði Afríska þjóðarráðið,
sem hefur farið með stjórn Suður-
Afríku frá því fyrstu lýðræðislegu
kosningarnar voru haldnar fyrir
fimm árum, fengið 57 prósent. Lýð-
ræðisflokkurinn hafði þá skotist
upp í annað sætið, fram úr Nýja
þjóðarflokknum, gamla stjórnar-
flokki hvítu kynþáttaaðskilnaðar-
stjórnarinnar.
Frelsisflokkur Inkatha, flokkur
zúlúmanna, var í fjórða sæti en eft-
ir kosningarnar 1994 var hann
þriðji stærsti flokkur landsins.
Að sögn formanns yfirkjörstjóm-
ar benti allt til að kjörsókn hefði
verið 85 prósent.
Sterkari til sveita
Fyrstu atkvæðin sem talin voru
komu aðallega úr borgum og bæj-
um. Afríska þjóðarráðið sækir hins
Stuðningskona Afríska þjóðarráðsins í Suður-Afríku dansar af kæti með sína
menn í gær, enda næsta víst að flokkurinn færi með sigur af hólmi f þingkosn-
ingunum. Símamynd Reuter
vegar mesta fylgið sitt í sveitir
landsins og því er ekki búist við
öðru en að flokkurinn eigi eftir að
sækja í sig veðrið þegar síðar dreg-
ur i talningunni.
Kjörstöðum var opinberlega lok-
að klukkan 21 að staðartíma en mik-
ill fjöldi manna beið enn eftir að
geta greitt atkvæði sitt þegar gráma
tók af degi í morgun. Hermenn
fylgdust með mannfjöldanum, þess
albúnir að kæfa öll vandræði í fæð-
ingu.
Yfirvöld sögðu að allir sem voru
mættir á kjörstað fyrir klukkan 21
fengju að kjósa.
Allt í góðu lagi
Ekki urðu nein vandræði sem orð
er á gerandi í kosningunum í gær,
andstætt því sem gerðist í kosning-
unum 1994 þegar endi vsir bundinn
á kynþáttaaðskilnaðarstefnuna.
David Steel, forseti skoska þings-
ins, sem fer fyrir hópi eftirlits-
manna frá fyrrum breskum nýlend-
um, lýsti yfir ánægju sinni með
framkvæmd kosninganna.
„Ég var hér fyrir fimm árum og
munurinn er alveg greinilegur,
bæði í undirbúningi kosninganna
og því hve þær voru lausar við of-
beldi og hótanir. Þetta staðfestir að
lýðræðið er að festa sig i sessi,“
sagði David Steel.
Sænskur lög-
reglumorðingi
á Costa Rica
Meintum morðingja tveggja
lögreglumanna í Svíþjóð, Tony
Olsson, er nú i felum á Costa
Rica, að því er sænskir fjölmiðl-
ar greina frá. Margt þykir benda
til að hann hafi farið úr landi
nokkrum klukkustundum eftir
að hafa rænt banka ásamt
tveimur félaga sinna og myrt
tvo lögreglumenn. Greint hefur
verið frá því að rlögreglumenn-
irnir hafi verið skotnir í hnakk-
an með eigin vopnum.
Samkvæmt heimildarmönn-
um Aftonbladet yfirgaf Olsson
Svíþjóð undir eigin nafni.
Sænsku lögregluna grunar nú
að Olsson beri ábyrgð á sjö rán-
um í suðausturhluta Svíþjóðar
síðasta hálfa árið. í hvert skipti
sem hann fékk leyfi frá fangels-
isvistinni var framið rán á þess-
um slóðum.
Tony Olsson var dæmdur í
sex ára fangelsi 1995 fyrir dráps-
tilraun. Hann þótti fyrirmynd-
arfangi og fékk þess vegna oft
leyfi.
Hollywood-risar
reiðir út í
Bill Clinton
Peningafurstar í Hollywood
eru öskureiðir út i Bill Clinton
Bandaríkjaforseta vegna her-
ferðar hans gegn ofbeldisdýrkun
skemmtanabransans. Daginn
eftir að forsetinn tilkynnti um
rannsókn á markaðsvæðingu of-
beldisins i skemmtanabransan-
um var hann sakaður um
nornaveiðar.
Air Zoom Italia
F.G.
Lóllii <|iíití o<j miiLiitíkOi
mófí KNG 100 ioðri <)<j hoiliim
Zoom Aíi loHtiól.-i i ínnlttijCjí.
ViOmiOiin.ti vim'A i tiiiiátiólu
kr. 13.490
Mercurial S.G.
I öllíi <|) 'iltti kii
IttOmtjiíititikói mttO KNG 100
otni tit-iiii (liökkui okki í *.i*j
v.iln
Ronaldo skórinn
VÍOmiöiiiiiiivoi0 i •iiiiíi-iólii
kr. 13.990
Tiempo
kr. 4.990