Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1999, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
23
%!önd
Öldungadeildarsæti fyrir New York lokkar og laðar:
Hillary gerir sig klára
jrtðL* falleg og sterk
Le,y samkomutjöld
Leigjum borð, stóla,
ofna o.fí.
Tjaldaleigan
Hún hefur ekki sagt það enn. Fátt
bendir þó til annars en að Hillary
Rodham Clinton, forsetafrú í Banda-
ríkjunum, ætli að hella sér út í har-
áttu fyrir annað sæti New York í
öldungadeild Bandaríkjaþings á
næsta ári.
Bill, eiginmaður hennar og for-
seti Bandaríkjanna, var öllu afdrátt-
arlausari á dögunum þegar hann
sagðist hlakka til að verða eigin-
maður öldungadeildarþingmanns,
eða eitthvað í þá veruna.
Og nánir samverkamenn forseta-
frúarinnar þykjast sannfærðir um
að hún ætli að bjóða sig fram.
Það sem þykir renna hvað
styrkustum stoðum undir þá kenn-
ingu er sú staðreynd að forsetahjón-
in og dóttirin Chelsea ætla að eyða
að minnsta kosti hluta af sumarleyfi
sínu í New York-ríki, þvi þriðja
stærsta í Bandaríkjunum.
Fram að þessu hefur forsetafjöl-
skyldan kosið að skoða sig um í
hrikalegri náttúru Wyoming eða
umgangast annað frægt og ríkt fólk
á sumarleyfiseyjunni Vínekru
Mörtu, eða Martha’s Vineyard í
Massachusetts. Ekki þar fyrir að
náttúruunnendur ættu sosum ekki
að vera sviknir af því sem fmna má
í New York.
Nefnd til að skoða
Þess verður ekki langt að bíða að
Hillary taki fyrsta skrefið í átt til
formlegrar yfirlýsingar um framboð
til öldungadeildarinnar. í næsta
mánuði ætlar hún að setja á laggim-
ar sérstaka nefnd til að kanna hvaða
möguleika hún hefur. Um leið getur
hún byrjað að safha í kosningasjóð
til að fjármagna ferðir til New York.
Og það ætlar Hillary að gera.
„Ég ætla að verja miklum tíma í
New York til að hlusta á fólk og ég
hlakka til,“ sagði forsetafrúin í við-
tali við morgunþátt bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar ABC á dög-
unum.
Ef Hillary gerir alvöru úr því að
bjóða sig fram verður það í fyrsta
skipti í sögu Bandaríkjanna sem
forsetafrú sækist eftir mikilvægu
pólitísku embætti og það á meðan
eiginmaður hennar situr enn í
Hvíta húsinu.
Hillary hefur heimsótt New York
níu sinnum á skömmum tíma. Enn
eitt merkið um að hún ætli í fram-
boð, að sögn stjómmálaskýrenda.
Hún lætur það heldur ekki hræða
sig að vinsældir hennar í skoðana-
könnunum eru ekki eins miklar nú
og fyrst eftir að nafn hennar var
nefnt í sömu andrá og öldungadeild-
arsætið. Fyrir dyrum er því hörð
barátta við Rudolph Giuliani, borg-
arstjóra í New York, sem ætlar sér
að verða frambjóðandi repúblikana-
flokksins.
Eins og kjölturakkar
Viðvaranir um að kosningabar-
átta í New York sé óvægnari og erf-
iðari en kosningabarátta annars
staðar í Bandaríkjunum virðast
heldur ekki bíta á forsetafrúnni.
Vinir Hillary segja að hún hafi
þurft að ganga i gegn um svo mikl-
ar hremmingar undanfarin misseri
að aðgangsharðir fréttamenn fjöl-
miðlanna í New York verði nánast
eins og kjölturakkar.
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum, og fjölskylda hennar,
Bill forseti og dóttirin Chelsea, ætla að eyða sumarfríi sínu í New York-ríki.
Það þykir til marks um að forsetafrúin hyggi á pólitískan frama þar um slóð-
ir og muni bjóða sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir New York.
Enn sem komið er hefur Hillary þó ekki tekið af skarið.
Pólitískur lukkuriddari
Víst þykir að repúblikanar muni
núa Hillary Clinton því um nasir að
hún hafi aldrei búið í New York og
að hún sé því ekkert annað en póli-
tískur lukkuriddari. En Hillary get-
ur bent á fordæmi og það ekki af
verri endanum. Robert Kennedy
fékk ekki heimilisfang í New York
fyrr en örfáum dögum áður en hann
var kjörinn til setu í öldungadeild-
inni árið 1968.
Væntanlegur andstæðingur Hill-
ary hefur æmar ástæður til að vera
áhyggjufullur. Það hafa líka fleiri,
og þá kannski helst A1 Gore varafor-
seti sem sækist eftir forsetatilnefn-
ingu demókrata. Að minnsta kosti
hefur Hillary sjálf áhyggjur af því
að framboð hennar muni skyggja á
baráttu Gores fyrir Hvíta húsinu.
Ætli hann sér að fá lyklavöldin á
þeim bæ verður hann að vinna í
New York. Forsetafrúin er líka álit-
in frjálslyndari en Gore og gæti það
komið honum i vandræði í
nokkmm ríkjum.
Gore kann þó að græða sitthvað á
framboði Hillary, sér í lagi 'ef
repúblikanar eyða miklu af púðri
sínu á hana. Slíkt mundi gera hon-
um leikinn auðveldari.
Á hinu leikur víst enginn vafi að
íbúar New York munu njóta upp-
gjörsins milli forsetafrúarinnar og
borgarstjórans, þegar og ef að því
kemur.
Byggt á Jyllands-Posten o.fl.
Skemmtilegt hf.
Hefur neysla
afengis annf a
verknn lyfisins?
www.lyfja.is
Bjóðum nú næstu daga hitakúta,
rafmagnsofna, eldavélar, kæliskápa,
ryksugur, matvinnsluvélar, sjónvörp,
hljómflutningstæki og margtfleira
í sumarbústaðinn á
sérstöku tilboðsverði.
srömens kælisképut - KS 28V03
Smekklegur kæliskapur.
194 I kælir, 54 I frystir.
H x b x d = 155 x 55 x 60 sm.
Siomcns cldcvöt ■ HN 38023
Sannkölluð gæðaeldavél
með óvenju-rúmgóðum ofni.
H x b x d = 85 x 50 x 60 sm.
Fínn hiti og heítt vatn I
sumarbústaðinn.
Traustir og margreyndir
rafmagnsofnar og
hitakútar frá Siemens,
Dimplex og Nibe.
RYMINGARSALA
W á nokkrum gerðum
f hljómtækja og
' sjónvarpstækja!
50% afsláttur
Siemcns - MK 30201
Fjölhæf matvinnsiuvél.
8m700 kstm stgr.
Vandaðar vörur,
gott verð og góð þjónusta
Gríptu gæsina
meðan hún gefst.
Siemen» - VS S1A20, rauö
1300 W ryksuga.
Tiivaiin í sumarbústaðinn!
&8.900 kr.n
Torgið
Akran®*: Akurayri:
Rafþjónustð SíQurdórs Ljósgjafínn
Borgarnes; *'
Glitnír
Snœfetlsbær.
Blómsturvoliír
Grundarijðrdur:
Guðni Hollgrímsson
Stykkishólmun
Vlk í Myrdal:
Klakkur
Vestmannaeyjar:
Tróvork
Hvolsvðllur.
Rafmagnsverlcst. KR
Hella:
Gilsé
-------- Satfoss;
Neskaupstaður: Árvlrkinn
Pafalda Grindavðí:
Reyðarijörður: Rafborg
Rafvélaverkst. Garður:
Árna E. Raftaakjav. Sig Inflvnrs*.
Egilsstsðir Keflavík:
Sveínn Guómundsson Ljósboginn
Breiðdalsvík: Hafnsrfjðrður.
Stefán N. Stefánsson Rafbúð Skiíla,
Hófn (Hornafifði: Álfaskeíði
Któm ofl hvítt
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Búðardalur:
Ásubúð
ísafjórður.
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Sauðárkrókur:
Rafsjá