Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 6
6 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 AjV iútlönd stuttar fréttir Vill miðla málum Hosni Mubarak, forseti Eg- yptalands, sem nú er staddur í Bandaríkjunum, hefur lýst yfir vilja sínum til að miðla málum ísraela og nágranna þeirra. Hann hyggst á næstunni hitta leiðtoga ísraels, Sýrlands og Palestinu. Serbía fái aðstoð Martii Ahtisaari, forseti Finn- lands, sagði í gær að aðstoð við Serbíu ætti ekki að vera háð því að Slobodan Milosevic forseti afsalaði sér völd- um. Hann sagði jafnframt að fengju Serbar ekki hjálp myndi það bitna á saklausum borgurum auk þess sem það myndi tefja fyr- ir lýðræðisþróun í landi. Hátíðarhöldum frestað Tíbetskir útlagar á Indlandi hafa ákveðið að slá á frest hátíð- arhöldum vegna afmælis andlegs leiðtoga þeirra, Dalai Lama. | Ástæðan er átök Indverja og skæruliða í Kasmír. Kanar í Skotapils Skotar eru glaðir þessa dagana vegna hins nýstofnaða þings. En þeir vilja leyfa fleirum að njóta og hafa nú hannað Skotapils úr ameríska fánanum. Þeir telja víst að Bandaríkjamenn með skoskt blóð í æðum vilji ólmir klæðast slíkum pilsum á hátíðisdögum. Fjórir létust í þyrluslysi Fjórir írskir hermenn létu lífið í gær þegar þyrlu þeirra hlekkt- ist á í lendingu á suðurströnd Ir- lands í gær. Mikil þoka byrgði mönnum sýn. Talaði við Arafat í síma Ehud Barak, sem tekur við embætti forsætisráðherra ísraels í næstu viku, ræddi við Ara- fat, leiðtoga Palestínu- manna, í síma í gær. Leiðtog- arnir urðu ásáttir um að hittast fljótlega eftir embættistöku Baraks en slík- ur leiðtogafundur hefur ekki ver- ið haldinn um sjö mánaða skeið. Hálshöggnir Tveir eiturlyfjasmyglarar voru hálshöggnir í Sádi-Arabíu í gær. Þar með hafa 49 verið teknir af lífi i ríkinu á þessu ári. Andæfa dauðadómum Laurent Fabius, forseti franska þingsins, réðst harkalega að íran í ræðu í gær. Sagði hann Frakk- land myndu slíta allt samband við landið yrðu tólf gyðingar, sem íranar gruna um njósnir fyr- j ir ísrael, teknir af lífi. Fleiri vest- ræn ríki hafa hvatt írana til að þyrma lífi gyðinganna. Danskir stúdentar: Meiri verkfræðiáhugi Áhugi á verkfræði- og tækni- fræðimenntun meðal danskra stúd- enta hefur greinilega aukist eftir áratuga áhugaleysi. Eftir að skrán- ingarfrestur til náms við danska tækniháskóla rann út í vikunni kom i ljós að 13-28% fleíri hafa skráð sig í slíkt nám en í fyrra. Margra ára áhugaleysi á tækni- og raungreinanámi virðist því úr sög- unni í Danmörku. Á þeim áratug sem nú er að líða hafa um helmingi færri stúdentar lokið verkfræðinámi en síðasta ára- tug. Þetta áhugaleysi hefur orðið til þess aö mikill hörgull er nú á verk- fræðingum í landinu. Yfirmaður rannsóknardeildar samtaka iðnað- arins í Danmmörku' segir við Jyllands-Posten að þessi aukni áhugi sé mjög gleðilegur. Hver verk- fræðingur í starfi skapi fjölmörg ný störf og auknar tekjur bæði fyrir- tækja og samfélagsins í heild. -SÁ Heimastjórn í sjónmáli á N-írlandi: Afvopnun IRA hefst innan fárra daga „Báðir flokkar hafa samþykkt tillögur okkar," sagði Tony Blair, forsætisráðherra Breta, eftir að sáttafundi stríðandi fylkinga á N- írlandi lauk í gærkvöld. Stífir fundir hafa verið síðastliðna fimm daga í Stormont- kastala. Mikil spenna ríkti á N- írlandi í dag enda ljóst að annað- hvort næðu menn samkomulagi eða friðarsamkomulagið frá í fyrra myndi renna út í sandinn. Tony Blair sagði meðal annars í ávarpi sínu að með samþykkt tillagnanna væri von til þess að friður gæti ríkt á N-írlandi eftir áralanga tíð ofbeldis og hryðjuverka. Helsta ágreiningsefni deilenda varðaði afvopnun öfgahópa í héraðinu. David Trimble, leiðtogi Sambandssinna, krafðist þess að írski lýðveldisherinn hæfi afvopnun þegar í stað, annars yrði ekkert úr myndun heimastjórnar. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, sagðist aðeins geta heitið afvopnun en IRA fékkst ekki til að gefa skriflega yfirlýsingu þess efnis. í drögunum sem samþykkt voru í dag er skýrt tekið fram að IRA hefji afvopmm innan fárra daga og að henni skuli lokið fyrir maimánuð árið 2000. Skýrsla Kanadamannsins, John De Chastelain, staðfesti að afvopnun öfgahópa gæti hafist þegar í stað. Þá er í drögunum greint frá því að þann 15. júlí næstkomandi muni báðir flokkar tilnefna ráðherra og þremur dögum síðar verði mynduð heimastjórn með aðsetur í Belfast. Hún muni þó aðeins hafa takmörkuð völd fyrst í stað. Leiðtogarnir tveir, David Trimble fyrir hönd Sambandssinna, og Gerry Adams, fyrir Sinn Fein, hétu því báðir að standa við alla þætti tillagnanna. Enda sagði Tony Blair að ef svo yrði ekki gert myndi breska stjómin grípa hratt til ráðstafana. . ? WW I 1 : 1 m : \ 1 jm m í \ 1 Kfi % \ '. 1: 1 Bk ■i j msm. m | SÍÍr\ - ; Æ 1 & • n 1 fBp * *4 f {r f 1 RmM iJ jKlfx ' 11'v ■ jHékKA - é M Ili Japönsk kona horfir á klukkur í verslun íTokyo. Japanskir þingmenn undirbúa nú frumvarp sem kveður á um sumar- og vetrartíma. Kosturinn við sumartíma að mati þingmannanna felst einkum í orkusparnaði en Japanir sjálfir óttast að breytingin muni hafa í för með sér lengri vinnutíma. Símamynd Reuter Júgóslavneskir hermenn teknir höndum í Kosovo Friðargæsluliðar NATO tóku í gær höndum fimm hermenn júgóslavneska hersins sem voru enn í Kosovo þrátt fyrir gildandi sam- komulag um brottflutning herliðs Júgóslava frá héraðinu. Handtakan átti sér stað í grennd við landamæri Kosovo i norðri. Her- mennirnir voru iklæddir einkennis- búningum og sögðust tilheyra hópi friðargæsluliða. Að sögn Jans Joostens, talsmanns friðargæsluliðsins, handtóku hol- lenskir friðargæsluliðar auk þess sex manns sem liggja undir grun um að vera fyrrum starfsmenn júgóslav- nesku lögreglunnar. í húsi sexmenn- inganna, skammt frá bænum Ora- hovac í suðurhluta Kosovo, fannst mikið magn vopna auk fjarskipta- tækja. Talsmaðurinn sagði að yflr- völd í Belgrad yrðu krafin skýringa á veru hermannanna í héraðinu. Þá var varað formlega við því í gær að hugsanlega væru fleiri vopnaðar sveitir á vegum Júgóslava í Kosovo. Um hálf milljón Kosovo-Albana hefm' snúið heim á síðustu tveimur vikum. Rúmlega 200 þúsund bíða flutnings til Kosovo. Hjá Flótta- mannastofnun SÞ blasa hins vegar við fjárhagsörðugleikar. Að sögn Dennis McNamara erindreka ramb- ar stofnunin á barmi gjalþrots og verði ekkert að gert muni starfsem- in lamast að tveimur vikum liðnum. Kauphallir og vöruverð erlendis Sykur ■ Kaffi 2000 1500' 204/• ******* íooo 500 ■ ■ u F M A M Vt F M A M Ekki samið umdauðadóm Öcalans Bulent Ecevit, forsætisráð- j herra Tyrklands, varaði í gær við þvi að of mikill þrýstingur Vest- urlanda vegna dauðadómsins yf- ir kúrdíska leiðtoganum Öcalan a gæti snúist upp í andhverfu sína. Allt frá því Öcalan var dæmd- ui' til dauða síðastliðinn þriðju- dag hefúr fjöldi þjóða, einkum | innan Evrópusambandsins, hvatt j tyrknesk yfirvöld til að fullnægja ekki dauðadómnum. Þjóðverjar sögðu til að mynda að aftaka Öcalans myndi draga úr líkum á að Tyrkjum yrði veitt aðild að | Evrópusambandinu. „Þrýstingur Evrópulanda get- ur auðveldlega komið málum í s koll. Það verður ekki samið um j dauðadóm Öcalans og Tyrkir | sjálflr hljóta sjálfir að vega og meta hvað sé rétt að gera í þeim j efnutn. Við munum andæfa hvers kyns tilraunum til að gera dóm- inn að pólitísku máli,“ sagði Ecevit á blaðamannafundi I gær. Áður en fyrirhuguð aftaka fer J fram þurfa bæði áfrýjunardóm- stóll og tyrkneska þingið að sam- j þykkja það. Uppþot hafa verið tíð í Tyrk- landi frá uppkvaðningu dómsins og 22 kúrdískir skæruliðar auk | þriggja hermanna fallið í valinn. Færeyingar kaupa fleiri bíla en nokkru sinni Innflutningur á nýjum bílum til Færeyja hefur aukist gífurlega j í ár. Allt bendir því til að metsala verði á nýjum ökutækjum. Dag- I blaðið Dimmalætting skrifar að þó að bílainnflutningur síðastlið- in tvö ár hafi verið tífalt meiri en á kreppuárunum 1993 og 1994 hafi innflutningurinn fyrstu 5 fimm mánuði þessa árs aukist um 50 prósent frá því í fyrra. Færeyingar eru sem sé famir að 1 skipta út gömlu bílunum sínum sem þeir hafa ekið þar til þeir j? hafa verið úr sér gengnir. Arne Larsen, formaður ráð- gjafarnefndar Pauls Nyrups Rasmussens forsætisráðherra, j hefur varað við þenslunni í Fær- eyjum. Karsten Hansen, sem er fjármálaráðherra færeysku 3 landsstjórnarinnar, segir vel < fylgst með efnahagsþróuninni. Enn sé ekki ástæða til að grípa inn í. Hansen segir að verið sé að vinna að áætlun um skyldu- greiðslu almennings í lífeyris- sjóð. Plastkýr urðu þjófum að falli Maður nokkur búsettur í Winnipeg kom upp um þjófa með nokkuð sérstökum hætti á dögun- um. Maðurinn ætlaði að hrekkja bróður sinn með- því að setja 40 plastkýr á lóðina hjá honum. Þeg- ar plastkýrnar voru komnar á , sinn stað klifraði maðurinn upp í tré og hugðist taka ljósmyndir af viðbrögðum bróðurins. Á meðan | hann beið vakti athygli hans að I dularfullir menn voru í óðaönn að Ibera út búslóðina í næsta húsi. Þjófarnir sluppu en lögreglan í Winnipeg segir eftirleikinn auð- veldan enda með ljósmyndir af hinum grunuðu. Leikur breyttist í harmleik Sá voðalegi atburður átti sér stað í vikunni aö 7 ára piltur í Dallas varð valdur að dauða 3 ára : bróður sins þegar hann stældi 1 glímubrögð sem hann hafði séð í 1 sjónvarpinu. Pilturinn, sem er frávita af sorg, bar því við að hann hefði oftsinnis horft á fjölbragðaglímu í sjónvarpinu og sig hefði langað : að prófa glímubrögðin. Hann hefði alls ekki ætlað sér aö meiða litla bróður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.