Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 ifþgurð Ingvar Sigurðsson. uga til samstarfs við sig. Við eigum auðvelt með að afsaka eða réttlæta gerðir fallega fólksins en erum snögg að dæma þá sem ófríðir eru og gera þeim upp nei- kvæða eiginleika, eins og leti eða græðgi. Við vitum auðvitað að það eru engin tengsl milli fegurðar og góðsemi en viðbrögð okkar stjórn- ast ekki alltaf af rökhugsun. En hvort sem fegurðin er góð eða ekki, þá kallar hún fram góðmennsku hjá öðrum. Við viljum þóknast fallegu fólki án væntinga um að það svari í sömu mynt. Fallegt fólk er líklegra til að sigra i rökræðum og fá fólk á sitt band. Við treystum því frekar fyrir leyndarmálum og almennt nýt- ur fallegt fólk jákvæðari framkomu frá öðrum. Lífið leikur við fallega fólkið Fallegt fólk er öruggara með sig, af- slappað innan um aðra og óttast síður neikvæða afstöðu en ófrítt fólk. Það er líklegra til að álíta sig hafa stjóm á lífi sínu og óttast síður að verða fórnarlamb aðstæðna. í einni rann- sókn var fólk beðið að taka þátt með því að fara í viðtal til sálfræðings. í miðju viðtalinu var annar sálfræðing- ur látinn koma inn til að trufla. Fal- lega fólkið lét þetta yfir sig ganga að meðaltali í þrjár mínútur og tuttugu sekúndur áður en það kvartaði en ófríða fólkið beið í níu mínútur áður en það kom með athugasemdir. Við reiknum með því að fallegt fólk sé betra í öllu, hvort heldur sem það er að stjórna flugvélum eða í rúminu. Við höldum að hjónaböndin þeirra séu betur lukkuð, þau hafi skemmti- legri vinnu og búi við betra andlegt jafnvægi og líkamlegt heilsufar. Við teljum það almennt betra í öllu sem það tekur sér fyrir hendur. Mismununin byrjar strax í bam- æsku. í einni könmm, sem gerð var í Missouri í Bandaríkjunum, voru kennarar í fiögur hundruð bekkjar- deildum fengnir til að meta börn í fimmta bekk. Mjög ítarleg skýrsla fylgdi hverjum nemanda þar sem fram komu upplýsingar um einkunn- ir, ástundun, hegðun og mætingu en við hverja skýrslu var hengd mynd af röngum nemanda. Þrátt fyrir ítarleg- ar upplýsingar hafði útlit nemend- anna áhrif á mat kennaranna. Þeir álitu fallegu nemendurna greindari, skemmtfiegri og vinsælli. Þetta kem- ur heim og saman við rannsóknir sem sýna að faUegt fólk er almennt talið greindara. FaUegt fólk er líklegra tU að kom- ast upp með hvað sem er, allt frá búðahnupli og prófsvindli tU alvar- legri glæpa. Það er ólíklegra að tU- kynnt sé um brot þeirra og ef það er tilkynnt er ólíklegra að það verði kært eða fái dóm. Fallegt fólk álitið spennandi bólfálagar Þegar kemur að samskiptum kynjanna verður útlitið seint ofmet- ið. Jafnvel böm velja sér helst fal- lega vini. Á unglingsámnum er reiknað með því að faUega fólkið sé vinsæUa og öruggara með sig. Það er líka álitið spennandi bólfélagar, reyndara og ævintýragjarnara. Karlmenn reikna með áð fagrar konur hafi mikla kynorku og vilji miklar tUbreytingar í kynlífi. Það er almennt álitið að faUegt fólk af báð- um kynjum hafi meiri sjéns, verði oftar ástfangið og byrji snemma að lifa kynlífi. Hins vegar er það svo að faUegt fólk hefur engan einkarétt á fjöl- breytni í kynlífi, þótt það hafi vissu- lega fleiri tækifæri tU að stunda það og hafi því meiri reynslu, enda kem- ur fram í rannsóknum að faUegir karlmenn em líklegri til að full- nægja konum sem þeir eru með en þeir sem ófríðari eru. Ekkert rangt við að vera fallegur En munum við einhvern tímann hætta æskudýrkuninni? Það er auðvitað mannlegt að vUja vera gimUegur og mannlegt að vUja ekki muna fifil sinn fegri. Konur hafa reynt að halda í æskuljómann á öllum tímum og gengur það betur í dag en nokkurn tímann áður. Ein ástæðan fyrir því er að konur vita að karlmenn hafa mikla ánægju af því að horfa. Það er eðlislægt og því hvorki gott né slæmt. Hins vegar verðum við að skUja fegurðina og hvað ræður mati okk- ar tU þess að verða ekki ofurseld henni. Við eigum að véfengja þá fullyrðingu að faUegt sé gott sem gerir fátt annað en að veita fólki réttlætingu á því að laðast að feg- urð. Slíkt er höfnun á þeirri fiöl- breyttu flóru sem mannlífið er. Þó verðum við að varast að heimfæra fegurð upp á það sem vont er. Það er ekkert félagslega rangt við að vera faUegur og metinn fyrir það. í stað þess að tala niðrandi um þennan eina þátt á valdsviði kvenna, væri skynsamlegra fyrir femínista að nýta sér hann í baráttunni. Sú skoð- un að fegurðin skipti ekki máli eða sé einhver tUbúningur ber vott um fordóma frá andstæðingum fegurð- armats og felur í sér afneitun á eðl- islægri kynhegðun karla og kvenna. Það kostar tíma og peninga að rækta fegurð og konum er umbunað ríkulegar fyrir útlit en annað sem þær hafa til að bera. EðlUegast væri að þær notuðu sínar aðferðir tU þess að leggja rækt við fegurðina. AUt tal um að konur myndu ná lengra ef þær þyrfti ekki að eyða tíma í útlitið er buU. Konur munu ná lengra þegar þær hafa náð laga- legum og fiárhagslegum réttindum á við karlmenn, að ekki sé talað um forréttindi - þar með meira valdi og ánægju - en ekki þegar þær hafa út- rýmt fegurðinni. AUar konur munu njóta fegurðarinnar meira þegar þær fara að líta á hana sem einn af þeim þáttum sem þeim er umbunað fyrir. Unnið upp úr bókinni „Prettiest" eftir Nancy Etcoff. og rúmlega það! ftHSÍl afsláttur Nú rýmum við fyrir nýjum vörum og seljum því allt að 1.000 vörutegundir með 30-70% afslætti meðan birgðir endast. . Nú gerir þú afbragðsgóð kaup - og rúmlega það! OPIÐ ALLA DAGA 10:00- 18:30 VIRKA DAGA 10:00 - 17:00 LAUGARDAGA 12:00 - 17:00 SUNNUDAGA - fyrir alla muni Guðrún Bjarnadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.