Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1999
Húsdýragarðurinn:
Aðgangseyrir
barna hækkar
M um helming
Nýskipuð rekstrarnefnd Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins í Laugardal kom
saman í fyrsta sinn í síðustu viku. Á
þeim fundi var ákveðið að hækka að-
gangseyri í garðinn. Að sögn Sigrúnar
Thorlacius, rekstrarstjóra Plölskyldu-
garðsins, var ákveðið að hækka gjald
fyrir 6-13 ára höm úr 200 krónum í 300
krónur og fyrir 13 ára og eldri úr 300
krónum upp í 400 krónur. -hb
Lagt af stað í útilegu.
Straumur í Þórsmörk:
Eftirlit með
fíkniefnum
1 Búist er við straumi fólks í Þórs-
mörk um helgina eins og undanfarin ár
en hefð hefur skapast að ungt fólk safn-
ist þar saman fyrstu helgina í júlí. Skv.
upplýsingum frá lögreglunhi á Hvols-
velli voru um 3.000 manns í Þórsmörk
fyrstu helgi júlímánuðar í fyrra. Lög-
reglan hefur fengið sérstakan liðsauka
víðs vegar af landinu til að fylgjast með
að skemmtunin fari fram eftir settum
reglum. Umferðardeild ríkislögreglu-
stjóra verður með eftirlit auk þess sem
sérþjálfaðir flkniefnalögreglumenn
verða á staðnum. Þá verður læknir i
Húsadal. Lögreglan á Hvolsvelli vill
benda ökumönnum á að fara varlega í
ámar í Þórsmörk. -hb
Pantið í tíma
27
da^ai í Þjóðhátíð
FLUOFÉLAG ÍSLANDS
570 3030
Bandaríkjamaðurinn Gregory Schorr, til vinstri á myndinni, og íslandsmeistarinn í vaxtarrækt, Smári Harðarson, munu
leggjast til sunds í Vestmannaeyjahöfn á morgun, sunnudag, íklæddir nærbuxum einum fata. DV-mynd Ómar
Veðmál Keikómanna:
Synda yflr
Friðarhöfn á
nærbuxunum
DV-Vestmannaeyjum:
Bandaríkjamaðurinn Gregory
Schorr og íslandsmeistarinn í vaxtar-
rækt, Smári Harðarson, munu leggjast
til sunds í Vestmannaeyjahöfn á morg-
un, sunnudag, iklæddir nærbuxum ein-
um fata.
Báðir mennimir starfa við gæslu á
kví Keikós í Klettsvík í Eyjum. Sund-
spretturinn er tilkominn vegna veð-
máls þar sem Smári og Gregory urðu
að láta í minni pokann fyrir Jeff Fost-
er sem hefur yfirumsjón með þjálfun
Keikós. Dagsetningin er engin tilviljun
því sunnudaginn ber upp á 4. júlí sem
er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna.
Það er því ljóst að niðurlæging íslands-
meistarans er algjör.
„Eftir að hafa orðið að láta í minni
pokann fyrir Jeff í keppni ákváðum við
þrír að keppa í golfl,“ sagði Smári í sam-
tali við DV. „Við áttum það ailir sameig-
inlegt að hafa aldrei snert golfkylfu og á
einhvem óskiljanlegan hátt tókst Jeff að
sigra. Síðan var ákveðið að þeir tveir
sem töpuðu skyldu synda í höfhinni í
Vestmannaeyjum á nærbuxunum og
engu öðra. Orð skulu standa og munum
við Gregory uppfylla okkar hlut á morg-
un,“ sagði Smári og ætlar hann sér ekk-
ert nema sigur. -ÓGAÓtt
Starfsmaður virðisaukaskattsdeildar skattstjóra í 10,8 milljóna króna svikamáli:
Mataði skattkerfið
- og var í sjálfstæðum rekstri. „Áfall,“ segir skattstjórinn á Reykjanesi
Starfsmaður virðisaukaskatts-
deildar skattstjórans á Reykjanesi
var í gær úrskurðaður í viku gæslu-
varðhald vegna fjársvikamáls.
Málið kom tiltölulega fljótt upp á í
síðustu viku, að sögn skattstjórans.
Maðurinn er grunaður um að hafa
notfært sér aðstöðu sína og matað j
skattkerfið skipulega á tilhæfu- -»|1
lausum upplýsingum um skatt-
skil tiltekins fyrirtækis. Hann
tengist umræddu fyrirtæki með
því að hafa verið frámkvæmda-
stjóri þess og í varastjóm, sam-
hliða því að starfa hjá skattstjór-
anum. Maðurinn er grunaður um
brot í opinberu starfi og fjársvik
upp á 10.869.321 krónu.
Fyrirtækið er fiskvinnslufyrir-
tæki sem þurrkar fisk til útflutn-
ings, samkvæmt heimildum DV.
Fyrirtækið er í svokölluðum bráða-
birgðaskilum. Þannig þaif fyrirtæk-
ið að skila virðisaukaskattsskýrsl-
um einu sinni í viku. Skattstjórinn
sagði við DV í gær að málið sé
vissulega áfall en vildi
ekki tjá sig um það hvort
það sé áfellisdómur yfir
_ skattayfirvöldum
- að tiltekin
háttsemi eigi
sér stað í ár án
þess að eftir sé
tekið.
Þegar skýrsl-
um var skilað
yfir innkaup á hráefni myndaðist
inneign fyrirtækisins hjá ríkissjóði.
Siðan leiddu skýrslurnar - sem
náðu yfir eins árs tímabil - til end-
urgreiðslu upp á tæpar 11 milljónir
króna - nokkuð sem átti sér ekki
stoð i raunveruleikanum.
Jón H. Snorrason, saksóknari og
yfirmaður efnahagsbrotadeildar,
segir að málið sé upplýst varðandi
fjárhæð og aðferð. Hins vegar sé um
mikla peninga að ræða þannig að
svigrúm þurfi til að kortleggja mál-
ið og freista þess að ná aftur ein-
hverju af því fé sem svikið var út úr
ríkissjóði. -Ótt/EIS
13
o
0
14
'3 ^
15
j
0
15
15
(0 í
t
0
15
/T 9 9
9
V
Upplýslngar frá Veöurstofu Islands
0 v
0 v
Sunnudagur
Veðriö á sunnudag og mánudag:
Léttskýjað en hætta á þokubökkum við ströndina
Á morgun verður fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Víða bjart veður en dálítil súld við austurströndina og sums staðar síðdegisskúrir suð-
austanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan- og vestanlands.
Á mánudaginn verður hæg breytileg átt eða hafgola, víða léttskýjað en þokubakkar við ströndina, hiti 8 til 18 stig, hlýjast í innsveitum.
Veðrið í dag er á bls. 57.