Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 25
DV LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 fréttir Bogi Pétursson hefur unnið við sumarheimilið að Ástjörn í 53 sumur: Þakka fyrir hvert ár Það er oft fjör í matsalnum á Ástjörn þegar krakkarnir koma í mat og kaffi. DV-mynd gk DV. Akureyri:_________________________ í 53 ár hefur verið rekið sumarheim- ili fyrir drengi á aldrinum 6-12 ára við Ástjöm í Kelduhveríi í Öxarflrði. Lengi vel gengu þessar sumarbúðir undir nafninu „Drengjaheimihð að Ástjöm“, en það er ekki réttnefni lengur þar sem stúlkur hafa einnig verið á staðnum nokkur undanfarin ár. Bogi Pétursson, forstöðumaður að Ástjörn, hefur starf- að þar öll 53 árin sem heimilið hefur verið starfrækt, og er fyrir löngu orð- inn hluti af umhverfinu og öllu starf- inu sem þar fer fram. „Þetta er auðvitað ekkert arrnað en bilun, en ég hef notið þess ákaflega að vera hér allan þennan tima og þakka fyr- ir hvert ár sem ég hef fengið að vera hér,“ sagði Bogi þegar DV kom við að Ástjöm á dögunum. Bogi var innivið með krökkum sínum, enda rok og rign- ing utandyra, og kaffltíminn að hefjast. „Það var ekki haldið nákvæmt bók- hald fyrstu árin yflr fjölda þeirra stráka sem dvöldu hér, en eftir að ég tók við hef ég haldið slíkt bókhald og það hafa farið hér í gegn á þeim tíma 4-6 þúsund krakkar. Það segir þó ekki alla söguna, því margir hafa komið ár eftir ár, og sumir jafnvel oftar en einu sinni á ári. Nú skiptum við örar og höfum há- markstíma fyrir hvem og einn á hveiju ári, og hingað koma um 300 böm árlega. Lengi vel var heimilið hér einungis fyr- ir drengi, en fyrir nokkrum árum fómm við að taka hingað stúlkur líka og það hefur gefist mjög vel. Kynin eiga mjög vel saman og það er best að byrja á því sem fyrst að hafa þau saman,“ segir Bogi kíminn á svip. Forréttindi „Það em forréttindi og mikið ævin- týri að fá að taka þátt í því sem hér fer fram, en þetta er mikið starf. Á veturna þarf að vinna skipulagsvinnu, skrá væntanlega Ástiminga, fá starfsfólk og þess háttar. Ég hef verið einstaklega heppinn með samstarfsfólk hér, það hefúr beinlínis sópast að mér gott hjálparfólk sem hefur fómað bæði tíma og peningum til að geta verið hér.“ Bogi er 74 ára og hann segist mjög oft vera spurður að því hvort hann sé farinn að huga að því að hætta þessu starfl. „Ég hef verið svo ótrúlega hepp- inn að heilsan hefur alltaf verið mjög góð og ég vona að ég fái að vera hérna áfram. Ég veit að börnin héma biðja þess að ég fái að vera hér lengur, mér hefur alltaf þótt afskaplega vænt um böm og að geta orðið þeim að liði, og ég flnn vel ylinn sem ég fæ til baka frá þeim og þakklætið." Samtökin sem reka heimilið að Ás- Bogi ásamt nokkrum ungum „Ástirningum". DV-mynd gk tjöm eru kristileg samtök og Færeying- ar hafa komið mjög að því starfi. Börn- in læra m.a. að fara með bænir, og mörg þeirra koma sér upp bænarjóðr- um í skóginum sem umlykur Ástjörn. „Bömin leita nokkuð á þessa staði, sér- staklega á kvöldin áður en þau fara að sofa, en þá vill hugurinn gjaman leita heim. Þau biðja fyrir foreldrum sínum og öðrum ástvinum og jafhvel himdun- um og köttunum, og þau biðja líka fyr- ir landinu sínu og umhverfinu og em hugsanlega einu íslendingamir sem það gera reglulega." Undrast náttúmfegurðina Bogi segir velvilja fólks til heimilis- ins að Ástjörn mikinn. „Við urðum t.d. mikið varir við það í vetur, en við urð- um fyrir því óláni að 11 manna bifreið í eigu heimilisins eyðilagðist sL sumar. Margir bmgðust vel við, og nú erum við komin með 12 manna bíl sem við eigum skuldlaust, og notum mikið, t.d, þegar farið er í sund, í Ásbyrgi eða í Hjóðakletta, svo eitthvað'sé nefnt". Náttúrufegurð að Ástjöm er mikil, tjömin umlukin skógi vöxnum ásum á allar hliðar og þar er mjög kyrrlátt. Og Bogi kann vel að meta. „Eftir því sem ég eldist rmdrast ég æ meir þá miklu náttúrufegurð sem hér , er. Arthur Gook sem stofnaði heimilið hér á sín- um tíma ásamt Sæmundi G. Jóhann- essyni kallaði staðinn „Disneyland ís- lands“ og það segir ýmislegt.“ Heimilið tók til starfa árið 1946 og Bogi var strax með í starfinu. En datt honum einhvem tíma í hug að hann yrði höfuðpaurinn í starfmu alveg fram á nýja öld? „Það eina sem mér datt í hug var að ég yrði að reyna að losna héðan, því ég óttaðist að ef það gerðist ekki fljótlega yrði ég háður staðnum og það gekk eft- ir. En ég er þakklátur fyrir það að ég fór ekki. Það eina neikvæða við þetta er að vera fjarvistum frá fjölskyldu sinni yfir sumarmánuðina. En það er ýmislegt sem bætir það upp, hér er yf- irleitt ríkjandi mikil gleði og ánægja, en ég hef orðað það svo að sú gleði sé oft vökvuð með támm. Sumir eiga stundum í erfiðleikum fjarri foreldrum sínum, en það er hlutur sem við höndl- um á nærfærinn hátt og reynum að gera gott úr öllu sarnan." -gk Boccia boltar 600 kr. Portmarkaður Kani fatnaður - ótrúleg verð 3. - 4. sr anábHlein uxur i_andnian gr«» 1.500 kr. 1.900 kr. , al>ren P Vinnuhanskar 800 kr. Á meðan birgðir endast Vinnnskvrtur oa-i Vefdi- •ttflrá leiHf 01,9 50 kr. tego Frá 500 kr. Stýrissleðar sett 2.000 kr. 800 kr. Hoppukastali Andlitsmálun Kuran Swing Grill, gos, ís. Dri Wash bílahón á hálfvirði I portinu bak við Skeljungsbúðina Suðurlandsbraut 4, Reykjavík. Opið frá kl. 12 -18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.