Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1999 21 Minnie Driver er hvorki lúser né lúsablesi og kærir sig ekki um með- aumkun. Ekki aumingja ég! Minnie Driver sem svo eftir- minnilega var sagt upp af lúsables- anum Matt Damon í þætti Oprah Winfrey á dögunum er búin að fá sig fullsadda af matreiðslu fjölmiðla af málinu. „Það rétta í málinu er að ég slysaðist til að vera með leikara um tíma og það samband gekk ekki upp. Síðan hafa fjölmiðlar verið að reyna að klína þvi á mig að ég sé svo mislukkuð í karlamálum og í endalausri ástarsorg yfir hinum og þessum en það er bara alls ekki rétt. Mér finnst þetta vera frekar þreyt- andi málflutningur og vona að hon- um fari að linna. Ég þarf enga með- aumkun." Minnie er núna með Josh Brolin, sem er bara frægur fyrir að vera sonur mömmu sinnar, hennar Bör- bru Streisand, og segir Minnie hverfandi líkur á því að hann muni segja sér upp í beinni útsendingu líkt og Matt forðum: „Josh er allt of heiðarlegur og laus við biturleika til að gera slíkt - og að auki ekki nógu frægur til að komast í þátt hjá Oprah.“ Fer Oliver Stone í steininn? Leikstjórinn Oliver Stone var á dögunum tekinn til yfirheyrslu vegna gruns um ölvun við akstur en vera má að hann sé í enn dýpri skít þar eð kvis- ast hefur út að í fórum hans hafi einnig fundist ótiltekið magn af hassi. Orð verj- anda hans þykja renna stoðum undir orðróminn en hann sagði Stone mundu svara til saka fyr- ir dómstólum „ef og þegar“ kærur væru lagðar fram og bað fólk um að líta á málið „með opnum huga“. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem orðrómur kemst á kreik um eitur- lyfjanotkun leikstjórans en í bók- inni Killer Instinct, sem fjallar um gerð myndarinnar Natural Born Killers, er Stone lýst sem eiturlyfja- sjúkum vinnufikli og er þar m.a. lýst hvemig Stone gerði tilraun til að fljúga, undir áhrifum eiturlyfja, um auðnir Nýju Mexico af eigin rammleik. Sú tilraun mistókst. Oliver Stone er í fremur vondum málum þessa dagana. Toifæran / TORFÆRU Þriðjja umferð Islandsmótsins í Torfæru verður haldið undir hlíðum Akrafjalls laugardaginn 3. júlí. . • \ " Keppnin hefst klukkan 11 og þá verða eknar tvær þrautir. \\ \ . 1 Síðan verður gert hlé og keppnin hefst afftur klukkan 13, inaus Þríðja umferð \ ■ . \ ■ /§ £;;;? • \ |\ V" ?■-; ; •' Í'; \ ' - ' íf \ / ■'ll ' ■. \ i! '\\ ■ \ v ; ' i : III þarf ekki að kosta meira Bræðurnir Ormsson hafa opnað glæsilegan sýningarsal með HTH innréttingum. Með því að auka fjölbreytni í þjónustu okkar viljum við spara húseigendum dýrmætan tíma og fjármuni. Það hefur ótvíræða kosti að geta gengið að gæðunum vísum á sama stað - hvort sem um er að ræða heimilistæki, innréttingar - eða allt hitt sem Bræðurnir Ormsson hafa upp á að bjóða. Líttu inn í Lágmúla 8, 3 hæð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.