Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 DV
54
Mfmæli
* *
Til hamingju með
afmælið 3. iúlí
90 ára
Jónas Stefánsson,
Stóru-Laugum, Húsavík.
85 ára
Ingimundur Einarsson,
Skólavöllum 8, Selfossi.
Ingólfur Sveinsson,
Kópavogsbraut la, Kópavogi.
80 ára
Helga Hjálmarsdóttir,
Lindasíðu 4, Akureyri.
Hulda Sigurjónsdóttir,
Miðvangi 16, Hafnarfirði.
Magnús Árnason,
Hringbraut 47, Reykjavík.
Ragnhildur Jónsdóttir,
Ægisgrund 14, Skagaströnd.
75 ára
Atli Halldórsson,
Sæviðarsundi 25, Reykjavík.
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Veghúsum 31, Reykjavík.
70 ára
Dóróthea Daníelsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
Hannes Þór Sigurðsson,
Miðleiti 12, Reykjavík.
Óttar Björnsson,
Garðsá, Akureyri.
60 ára
Kristján Ámason,
Norðurgötu 39b, Akureyri.
50 ára
Eygló Eyjólfsdóttir,
Víðigrund 29, Kópavogi.
Hrefna Hilmisdóttir,
Bröttugötu 39,
Vestmannaeyjum.
Hörður Hafsteinsson,
Hrísrima 4, Reykjavík.
Ingvar Ingvarsson,
Heiðarholti 34c, Keflavík.
Karl Olgeirsson,
Hátúni 12, Reykjavík.
Magnús H. Jóhannesson,
Króki, Selfossi.
Ormur Þórir Georgsson,
Hringbraut 71, Keflavík.
Óskar Björnsson,
Sævangi 27, Hafnarfirði.
Örn Jóhannesson,
Löngumýri 39, Garðabæ.
40 ára
Einar Þór Jörgensen,
Laugavegi 27a, Reykjavík.
Gísli Magnús Sæmundsson,
Birkimel 9, Varmahlíð.
Guðmundur Dýri Karlsson,
Vesturtúni 23,
Bessastaðahreppi.
Guðrún Hilmarsdóttir,
Skálatúni, Lönguhiíð.
Helgi Jóhannsson,
Sílastöðum, Akureyri.
Ingimar Jón Þorvaldsson,
Sunnubraut 23, Garði.
Magnús E. Arthúrsson,
Víkurbraut 50, Grindavík.
Svanfríður Sigurðardóttir,
Þverholti 2, Akureyri.
Sveinbjörn Öm Arnarson,
Álfheimum 64, Reykjavík.
Sigurður Geirdal
Sigurður Asgrímur Geirdal Gísla-
son, bæjarstjóri Kópavogs, er sex-
tugur á morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Grímsey.
Hann tók próf frá Samvinnuskólan-
um á Bifröst 1959 og stúdentspróf
frá Mennstaskólanum við Hamra-
hlíð árið 1980 og varð viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla íslands árið 1985.
Árið 1959 fór hann í starfsnám í
Hamborg í Þýskalandi og einnig í
Kaupmannahöfn, tveimur árum síð-
ar.
Sigurður varð verslunarstjóri
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga
1960 og vann fyrir KRON 1962-68.
Hann var sölumaður hjá Vestfirsku
harðfisksölunni 1969. Sigurður varð
framkvæmdastjóri Ungmennafélags
íslands 1970-86 og Framsóknar-
flokksins 1986-1990. Hann hefur ver-
ið bæjarstjóri Kópavogs frá árinu
1990 fyrir Framsóknarflokkinn.
Hann hefur gegnt fjölda trúnaðar-
starfa hjá ungmennafélagshreyfing-
unni. Hann var formaður UBK og
frjálsíþróttadeildar sama félags
1965-72 og starfaði í ýmsum nefnd-
um á vegum félagsins á sama tíma.
Hann var í stjórn Glimusambands
íslands frá stofnun þess, 1965, til
1968 og í stjórn íslenskra getrauna
1971-1987. Hann hefur setið í stjóm
Menningarsjóðs félagsheimila og
Ungmennasambands Norðurlanda.
Hann var í landsmótsnefndum UM-
FÍ 1975, 1978, 1981 og 1984. Sigurður
hefur starfað mikið á vegum Fram-
sóknarflokksins. Hann var varafor-
maður Sambands ungra framsókn-
armanna 1963-64 og í miðstjórn
Framsóknarflokksins. Hann var for-
maður félags ungra framsóknar-
manna í Kópavogi 1963-66. Þá hefur
hann setið í nefndum á vegum
Kópavogsbæjar, í íþróttaráði og fé-
lagsmálaráði. Hann var varabæjar-
fulltrúi 1970-74.
Sigurður skrifaði kandídatsrit-
gerð árið 1986 sem nefndist Trúnað-
armenn verkalýðshreyfinganna og
hefur víða birt ljóð og lausavísur.
Auk þess hefur hann skrifað blaða-
og tímaritsgreinar um
þjóðfélagsmál, iþrótta- og
æskulýðsmál, hagfræði og
fleira.
Hann var liðtækur
frjálsíþróttamaður og
keppnismaður í glímu á
sjöunda áratugnum. Sig-
urður var keppnismaður f
júdó 1975-76 og hlaut verð-
laun á landsmótum, ís-
landsmeistaramótum, hér-
aðsmótum og víðar, eink-
um fyrir frjálsar íþróttir
en einnig fyrir glímu, júdó
og sund. Hann fékk gull-
merki ÍSÍ, gullmerki FRÍ og silfur-
merki GLf. Þá hefur hann hlotið
viðurkenningar fyrir félagsstörf frá
UMSK og UBK og ýmsum fleiri ung-
mennafélögum. Einnig viðurkenn-
ingar frá ungmennafélögum á Norð-
urlöndum og samtökum þeirra.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist Ólafíu Ragn-
arsdóttur verslunarmanni, f. 10.1.
1946. Hún er dóttir Jó-
hönnu Friðriksdóttur,
f. 19.5. 1919, húsmóður
og Ragnars Pálssonar,
f. 10.4. 1920, húsvarð-
ar. Börn Sigurðar og
Ólafíu eru Ragnheið-
ur, f. 30.5. 1968,
verslunarmaður,
Gísli, f. 13.9. 1970,
pípulagningamaður,
Ragnar, f. 23.4. 1974,
nemi, og Jóhann Örn,
f. 10.6. 1975, nemi. Sig-
urður á eitt barn með
Áslaugu Sverrisdótt-
ur, Sigurjón Birgi (Sjón) rithöfund,
f. 27.8. 1962.
Systkini Sigurðar eru Öm, f. 30.9.
1940, jámsmiður, Eygló Ágústa, f.
18.1. 1944, hjúkrunarfræðingur, Æg-
ir, f. 4.5.1946, verkamaður, Steinólf-
ur Sævar, f. 6.5. 1948, sjómaður, og
Jóhann Gísli, f. 15.11. 1952, kennari.
Hálfbróðir Sigurðar, sammæðra, er
Svanur Geirdal, f. 16.9. 1935, lög-
reglumaður.
Sigurður Geirdal.
Elís G. Þorsteinsson
Elís G. Þorsteinsson, fulltrúi á
véladeild í Reykjavík, Vogatungu
24, Kópavogi, verður 70 ára þann
fimmta júlí.
Starfsferill
Elís fæddist í Þrándárkoti, Laxár-
dal, Dalasýslu. Hann lauk fullnaðar-
prófi frá Klébergsskóla 1943 og hef-
ur síðan tekið ýmis námskeið í
tengslum við vinnu sína. Hann
vann við vegagerð á sumrin á árun-
um 1945-47. Hann gerðist síðan bif-
reiðarstjóri hjá Kaupfélagi
Hvammsfjarðar 1947-53. Þá var
hann afgreiðslumaður og verkstjóri
árin 1953-59. Hann var veghefils-
stjóri hjá Vegagerðinni 1959-72.
Hann gerðist síðan rekstrarstjóri í
Búðardal 1972-87. Loks var hann
fulltrúi á véladeild 1989-99.
Elís var um skeið formaður ung-
mennafélagsins Ólafs pá og verka-
mannafélagsins Vals í Dalasýslu.
Hann sat í hreppsnefnd Laxárdals-
hrepps og var í stjóm veiðifélaga
Laxdæla og Kaupfélags Hvamms-
fjarðar. Hann sat á aðal-
fundum SÍS og er nú í
stjórn S.F.R. og stjórn
Breiðfirðingafélagsins.
Fjölskylda
Elís kvæntist Emilíu
Lilju Aðalsteinsdóttur, f.
12.1. 34, húsfreyju í
Brautarholti. Foreldrar
hennar vora Aðalsteinn
Baldvinsson, f. 12.9.1897,
að Hamraendum, d. 21.9.
80, kaupmaður og bóndi
að Brautarholti í Dalasýslu, og Ingi-
leif Sigríður Björnsdóttir, f. 15.6.
1899, að Hömrum í Haukadal, d.
14.6. 1977. Aðalsteinn var sonur
Halldóru Guðmundsdóttur, hús-
freyju að Hamraendum, en faðir Að-
alsteins og maður Halldóra var
Baldvin Baldvinsson, bóndi að
Hamraendum í Möðdölum. Ingileif
var dóttir Guðrúnar Ólafsdóttur,
húsfreyju í Borgamesi, og manns
hennar, Bjamar Jónssonar, kaup-
manns í Borgamesi.
Elís G. Þorsteinsson.
Börn Elísar og Emilíu
era Leifur Steinn, f. 19.6.
51 í Búðardal, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Visa
á íslandi. Maki hans er
Sveinbjörg Júlía Svav-
arsdóttir og eiga þau
fjögur böm, Elfu Dögg,
Unni Mjöll, Sindra Snæ
og Silju Ýr; Bjamheiður,
f. 13.5. 54 í Búðardal,
tryggingaráðgjafi. Maki
hennar er Kári Stefáns-
son og börn þeirra eru
Ernir og Elísa; Alvilda Þóra, f. 21.1.
57 í Búðardal, bankaritari. Maki
hennar er Svafar Jensson og eiga
þau fjögur börn, Fjólu Borg, Elís,
Emil og Sif; Gilbert Hrappur, f. 23.9.
58 í Búðardal, vinnuvélastjóri. Maki
hans er Valgerður Ásta Emilsdóttir
og eiga þau tvö börn saman, Sigurð
Bjarna og Þórönnu Hlíf. Gilbert á
tvö börn með fv. sambýliskonu
sinni, Rakel Hlíf og Emilíu Lilju;
Guðrún Vala, f. 28.11. 66 í Reykja-
vík, skólastjóri. Maki hennar er
Arnþór Gylfi Arnason og eiga þau
þrjú böm, Sölva, Nökkva og Sal-
vöru Svövu.
Elís er hálfbróðir Magnúsar
Rögnvaldssonar, d. 1972, sem var
verkstjóri Vegagerðarinnar í Búðar-
dal.
Foreldrar Elísar eru Þorsteinn
Gíslason, f. 25.11. 1873 í Stykkis-
hólmi, d. 9.12. 40, og Alvilda María
Friðrika Bogadóttir, f. 11.3.1887 að
Vindhæli, Vindhælishreppi, d. 22.3.
56. Foreldrar Þorsteins vora Gisli
Þorsteinsson, daglaunamaður í
Stykkishólmi, og Ingveldur Jóns-
dóttir, húsfreyja í Stykkishólmi.
Foreldrar Alvildu voru Sigríður
Guðmundsdóttir, vinnukona á
Blönduósi, og Bogi Sigurðsson,
kaupmaður í Búðardal.
Elís og Emilía hyggjast taka á
móti skyldfólki, vinum og kunningj-
um á morgun, sunnudag, á milli kl.
16 og 19 að Gjábakka, félagsheimili
aldraðra í Kópavogi.
Erlendur Björgvinsson
Erlendur Björgvinsson,
bóndi í Fellsási, Breiðdal
í Suður-Múlasýslu er 75
ára í dag.
Starfsferill
Erlendur fæddist að
Hlíðarenda í Breiðdal og
ólst þar upp við öll al-
menn sveitastörf. Hann
gekk í Héraðsskólann í
Reykholti, Borgarfirði, í
þrjá vetur.
Auk bústarfanna hefur
Erlendur unnið við smíð-
ar og stundað almenna
mannavinnu. Hann er
nú hættur búskap og
smíðar minjagripi í frí-
tíma sínum. Þá hefur
hann verið mikill
áhugamaður um íþrótt-
ir og skógrækt.
Fjölskylda
Erlendur kvæntist
10.11. 1969 Friöbjörgu
Midjord, f. 18.6. 1943,
Erlendur Björgvinsson. húsmóður. Hún er dótt-
ir Níels og Kathinar
Midjord frá Hofi á Suð-
verka- urey í Færeyjum.
Börn Erlends eru: Hafsteinn,
íþróttakennari á Akureyri; Sigur-
björn, bankamaður á Ólafsfirði;
Nína Midjord, húsmóðir á Egilsstöð-
um; Sigurbjörg, húsmóðir á Höfn í
Hornafirði; Sóley, húsmóðir á Höfn
í Homafirði; Rósa, hárgreiðsludama
í foreldrahúsum; Björgvin, nemi í
foreldrahúsum.
Erlendur er yngstur níu systkina.
Foreldrar Erlends voru Björgvin
Jónasson, bóndi á Hlíðarenda í
Breiðdal, og kona hans, Sigurbjörg
Erlendsdóttir húsfreyja. Erlendur
tekur á móti gestum á heimili sínu
á afmælisdaginn eftir kl. 15.
Jóhannesson
Heimir Jóhannesson, Króki,
Biskupstungum, er fimmtugur
í dag. Af því tilefni tekur hann
á móti vinum, kunningjum og
skyldfólki á heimili sínu í
kvöld frá kl. 21.
Þelr flska sem roa
Þelr flska sem rna... Þelr flska sem roa... Þ>elr
//v //v //v > /v
FYRSTUR MEO FRETTIRN AR
IJrval
- 960 síður á ári -
fróðleikur og skenuntim
sem lifír mánuðum og
árum sampn