Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Page 27
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
27
mik
Harmoníkutvíburarnir Yuri og Vadim:
Lærðu brögðin
ípartíi
Hvemig sjáið þið fyrir ykkur dansi-
böll hjá rússneska hemum? Kannski
alla í kósakkadansi?
Eitt er nú vitað; meðan tvíburabræð-
umir Yuri og Vadim Fjodorov gegndu
herþjónustu var þar látlaust leikið á
tvær harmoníkur.
Bræðumir em fæddir og uppaldir í
Pétursborg, sem reyndar hét Leníngrad
á fæðingartíma þeirra. Frá sex ára
aldri hafa þeir leikið á þetta hressilega
hljóðfæri úti um allan heim. Þeir era
sprenglærðir i harmoníkuleik og hafa
unnið til verðlauna í íjölda keppna.
Auk þess kunna þeir lika brögð sem
þeir sýna þakklátum áhorfendum.
Yuri og Vadim kunna reyndar
einnig að spila á píanó, en það er hara
smávegis. Nikkan er númer eitt. En af
hverju nikkan? Em það ekki bara gam-
aimenni sem hlusta á harmoníkuleik?
„Ja, ætli það sé ekki frekar fólk um
miðjan aldur,“ segja bræðurnir og
brosa. „Annars er það misjafnt eftir því
á hvaða stað við erum. Stundum spil-
um við í háskólum og þá er náttúrlega
ekki mikið um öldunga."
En nú erað þið greinilega grafalvar-
legir tónlistarmenn. Af.hverju fórað
þið að vera með trúðslæti eins og að
láta glas með áfengi í standa á hljóðfær-
inu meðan spilað er með bundið fyrir
augu?
„Ég hafði einhvem tima séð þetta
gert í partíi, þar sem spilarinn lét bjór-
glas standa á nikkunni meðan hann
spilaði," segir Vadim. „Mér fannst
þetta flott og æfði mig nokkra hríð þar
tO ég ég náði tökunum. Einhvem tíma
á tónleikum vorum við klappaðir upp
svo oft að ég greip til þessa bragðs.
Þetta vakti stormandi lukku.“
Lumið þið á fleiri trixum?
„Jaaaa,“ segja bræðumir með herpt-
an samsærissvip og vilja ekkert gefa
upp. Enda aldrei gott að spila út öllum
trompunum í einu.
Rússnesku tvíburarnir Yuri og Vadim segja að maður þurfi að vera í góðu líkamlegu formi til þess að geta ráðið al-
mennilega við nikkuna. Tvíburarnir eru nú staddir hér á landi og ætla að halda ferna tónleika. DV-mynd E.ÓI.
Alltaf tími fyrir konur
Aðaláhugamál strákanna er austræn
hardagalist sem þeir æfa báðir af kappi.
„Ef í hart færi með tónlistarbransann
væri draumurinn að snúa sér að
kennslu á þeirri list,“ segja tvíburamir
og reyna að útskýra í hveiju hún er fólg-
in. Hún heitir flóknu kínversku nafni og
byggist bæði á þvi að þjáifa andann og
líkamann.
„Að æfa harmoníkuleik íjóra tíma á
dag krefst likamlegra krafta. Hljóðfærið
er þungt og til þess að ná að beita sér að
fúllu þarf að vera í góðu formi,“ segir
Vadim og bætir við að í þetta eyði þeir
miklum tíma. En er tími fyrir kærastur
i heimshomaflakkinu?
„Það er alltaf tími fyrir konur," segir
Yuri eldsnöggt og þeir hlæja mikið.
„Vadim á kærustu sem ætlaði að koma
með okkur til íslands, en gat það ekki
vegna þess að hún lenti í veseni með ,
vegabréfið sitt. Ég er hins vegar oftast
einhleypur."
„En tekur gríðarlegar rispur inn á
miili," bætir Vadim við með áherslu.
-þhs
Sumarmyndakeppni DV:
Ljósmyndirnar
streyma inn
Sigurmynd síðasta sumars.
Það sem gerir þessa mynd
svo einstaka er hversu vel
hún nær sumarstemning-
unni. Myndin er knappt
skorin og það styrkir mynd-
ina að sjá svipbrigði og
gleði stúlknanna. Sannköll-
uð sumarsæla.
Sumarmynda-
keppni DV stendur
nú sem hæst og
fyrsta verðlauna-
mynd sumarsins
hefur verið valin.
Hún kemur frá Þor-
lákshöfn og send-
andi hennar var
Elin Erna Magnús-
dóttir. Ein mynd
verður valin hvern
mánuð í sumar, sem
hlýtur sérstök verð-
laun, og í lok sumars
verður svo ljósmynd
sumarsins valin. Það
er ljóst að keppnin í ár verður
hörð enda hafa margar góðar
myndir borist DV. Glæsilegar
myndavélar eru í verðlaun fyrir
þá sem standa sig best.
Deildarstjóri Ijósmyndadeildar
DV, Gunnar V. Andrésson, mun
leiðbeina lesendum og keppend-
um. Hann mun kenna fólki að taka
góða ljósmynd og segja frá helstu
mistökum sem mönnum hættir til
að gera.
Helstu mistök við
Ijósmyndun:
Það er algengt að sjá
það hjá byrjendum þeir
standa of langt frá við-
fangsefninu þegar þeir
ljósmynda. Myndir verða
betri gæti menn að þvi að
vera ekki of fjarri
myndefninu.
Þegar mynd er tekin á
að nota allt auga mynda-
vélarinnar. Með því að
líta vel í glugga vélarinn-
ar ákvarðar maður mynd-
skurðinn í myndatökunni.
í myndatöku gildir lögmálið að
flýta sér hægt. Ljósmyndir hjá
byrjendum eru oft hreyfðar og
þess vegna þarf að gæta þess að
vera stöðugur þegar smellt er af.
Ljósmæling er grundvallaratriði
og við hana þarf að sýna aðgát.
Ljósnæmi filmu þarf að vera rétt
stillt í myndavélina. Af þessu þarf
þó ekki að hafa miklar áhyggjur ef
fólk á nýjustu myndavélarnar,
Gunnar V. Andrés-
son, deildarstjóri
Ijósmyndadeildar.
Hér má sjá mynd mánaðarins en hana tók Elín Erna Magnúsdóttir í Þorláks-
höfn. Myndin hefur allt sem góð sumarljósmynd þarf að hafa. Hún er björt
og hlý og sýnir sumar, sand og sól.
áþekkar verðlaunavélum keppn-
innnar, sem lesa ljósstyrk
filmunnar af filmuhylkinu.
Fókusinn er augljóst atriði en
það er nú einu sinni svo að mönn-
um hættir til að líta fram hjá því
augljósa. Menn verða að gæta þess
að fókusera áður en smellt er af.
Hérna hjálpar einnig að vera með
nýja myndavél því þær eru með
sjálfstillandi fókus. Sjálfur fókus-
neminn þarf þó að nema myndefn-
ið.
Eitt af hjálpartækjum mynda-
vélarinnar er flassið en það þarf
að stilla eftir ljósnæmi filmunnar í
vélinni. Þessar stillingar eru inn-
byggðar í nýjustu vélum.
Að lokum hvetjum við alla til
þess að vera duglegir að taka ljós-
myndir. Minningamar varðveitast
best á myndum.
ekinn 37 þús. km, fullhlaðinn aukahlutum.
Bæði harðtoppur og blæja.
Uppl. í síma 893 6337
M. Benz SL 500 árg. 1994