Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 49
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
Eitt verkanna á sýningunni í Ráðhúsinu.
Vindurinn blæs hvar
sem hann vill
í dag verður opnuð sýningin
Vindurinn blæs hvar sem hann vill
í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjamarsal.
Á sýningunni eru collage-myndir
með blandaðri tækni eftir tólf kon-
ur. Hópurinn sem þarna sýnir á það
sameiginlegt að hafa áhuga á sköp-
un og myndlist og hafa verið á nám-
skeiðum i helgimyndagerð hjá Öldu
Ármönnu Sveinsdóttur myndlistar-
- , ;------------kennara. Kon-
Syn I nga r urnar hafa starf-
-----------------að mismikið að
myndsköpun og gegna margvísleg-
um störfum í þjóðfélaginu. Nokkrar
em myndlistarmenn, aðrar kennar-
ar eða hjúkrunarfræðingar og enn
aðrar starfa í ýmsum þjónustu-
greinum.
Auk kennarans, Öldu Ármönnu,
sýna Auður Bergsteinsdóttir, Elín
Birna Hjörleifsdóttir, Guðrún Ragn-
arsdóttir, Gunnhildur Eldjárnsdótt-
ir, Hilda Sigurðardóttir, Kristín
Jónsdóttir, Margrét Guðmundsdótt-
ir, Sesselja Magnúsdóttir, Sigurlaug
Jónsdóttir, Vigdís Steinþórsdóttir
og Þorbjörg Guðjónsdóttir.
Tráskurðarsýning
Tréskurðarsýning verður haldin
í Listamiðstöðinni í Straumi á
morgun klukkan 13-17. Þar mun
kennarinn Sigga á Grund sýna list-
muni sína ásamt nemendum en hún
hefur að undanfómu haldið nám-
skeið í listgreininni. Verkin bjóða
þeim sem áhuga hafa að fylgjast
með öllu tréskurðarferlinu, þ. e. frá
óhefluðu borði með teikningu á að
margræðu listaverki.
Heyrnarlausir munu fjölmenna f
messu í Viðey á morgun.
Gönguferð og messa
fyrir heyrnarlausa
Gönguferðin í Viðey á morgun
er á þá leið að kl. 14.15 verður
gengið um vestureyna. Farið
verður að Viðeyjarhlaði, fram hjá
Klausturhóli, um Klifið, yflr Eiðið
og síðan að suðurströnd Vestur-
eyjar. Áfangar, listaverk Serra,
verður skoðað og
útskýrt, einnig
tveir steinar með
áletrun frá 1810 og
1842. Á sunnudag kl. 14 verður
messa á vegum Kirkju heymar-
lausra. Prestur hennar, sr. Miya-
ko Þórðarson, messar og Tákn-
málskórinn syngur. Eftir messu
verður staðarskoðun, sem verður
túlkuð á táknmáli. Sérstök ferð
verður með kirkjugesti kl. 13.30.
Söguganga
Minjasafnið á Akureyri stend-
ur fyrir sögugöngu um Óddeyrina
sunnudaginn 4. júlí. Lagt verður
upp frá Gránufélagshúsunum,
Strandgötu 49, kl. 14. Gera má ráð
fyrir að gönguferðin taki um einn
og hálfan tíma. Leiðsögumaður
verður Guðrún Kristinsdóttir,
safnstjóri Minjasafnsins. Ókeypis
þátttaka, allir velkomnir.
Afmæli Næturgalans
Næturgalinn í Kópavogi heldur
upp á tveggja ára afmæli sitt um
helgina. í kvöld leikur hljómsveit-
in Cantabile frá Akin'eyri og ann-
- ------------;— að kvöld
Skemmtanir verður af
—---------------mælisdans-
leikurinn frá kl. 22-3. Þá leika
Hilmar Sverrisson og Anna Vil-
hjálmsdóttir.
Utivera
Léttskýjað á höfuðborgarsvæðinu
Austur við Noreg er 1005 mb lægð
sem fjarlægist en norður af Jan
Mayen er heldur vaxandi 1015 mb
hæð sem þokast suður.
í dag verður austan- og norðaust-
anátt, 5-8 m/s. Súld með köflum við
austur- og suðausturströndina, en
bjartviðri annars staðar, hiti 8 til 18
stig, hlýjast suðvestanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustan 5-8 m/s og léttskýjað,
hiti 8 til 11 stig I nótt en 12 til 18 á
morgun.
Sólarlag í Reykjavík: 23.54
Sólarupprás á morgun: 03.10
Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.31
Árdegisflóð á morgun: 09.57
Veðrið kl.12 á hádegi í gær:
Akureyri léttskýjaö 13
Bergsstaöir hálfskýjað 13
Bolungarvík skýjaö 15
Egilsstaöir 13
Kirkjubæjarkl. alskýjaö 11
Keflavíkurflv. þokumóöa 10
Raufarhöfn skýjaö 9
Reykjavík þoka í grennd 10
Stórhöfði þoka 8
Bergen rign. á síö. kls. 11
Helsinki skýjaö 24
Kaupmhöfn skýjaó 18
Ósló skúr 15
Stokkhólmur 19
Þórshöfn alskýjaö 11
Þrándheimur skýjaó 15
Algarve heióskírt 27
Amsterdam skýjaö 20
Barcelona léttskýjaó 28
Berlín skýjaö 22
Chicago hálfskýjaö 19
Dublin skúr á síð. kls. 19
Halifax þokumóöa 17
Frankfurt skýjaö 23
Hamborg rigning 20
Jan Mayen léttskýjaö 7
London skýjaö 22
Lúxemborg skýjaó 23
Mallorca léttskýjaö 34
Montreal 23
Narssarssuaq hálfskýjaö 12
New York skýjaö 25
Orlando skýjaö 23
París léttskýjaö 28
Róm léttskýjað 28
Vín skýjaö 27
Washington alskýjaó 23
Winnipeg léttskýjaö 12
Veðríð í dag
■
i
I
Utidjass á Jómfrúrtorgi
Sunna Gunnlaugsdóttir leikur á Jómfrúrtorginu í dag.
Sumardjass tónleikaröð veit-
ingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu heldur áfram í dag kl.
16. Á fjórðu tónleikunum kemur
fram tríó píanóleikarans Sunnu
Gunnlaugsdóttur en Sunna hefur
búið í New York undanfarin ár við
nám og störf. Með Sunnu leika að
þessu sinni Hilmar H. Jensson á
gítar og Tómas R. Einarsson á
----------------;— kontra-
Skemmtamr hassa. tóh-
--------------------leikaranir
eru utandyra á Jómfrúrtorgi, svo
framarlega sem góða veðrið helst,
annars verða þeir inni á Jóm-
frúnni. Aðgangur er ókeypis.
8-villt á Patreksfirði
Hin léttleikandi átta manna
hljómsveit, 8-villt, leggur land
undir fót og skemmtir á Patreks-
flrði í kvöld. Leikur sveitin á
dansleik í Félagsheimilinu.
OFL á Húsavík
Hljómsveitin OFL verður stödd
á Húsavík laugardagskvöldið 3.
júlí þar semhún leikur í fyrsta
skipti. Þar mun hún reyna á hljóð-
himnur Húsvíkinga og nágranna á
; stórdansleik í Hlöðufelli. Á
prógrammi sveitarinnar eru sí-
gildir cover-smellir í bland við eig-
ið efni. Hljómsveitina skipa Bald-
vin Árnason, Guðmundur Karl
Sigurdórsson, Helgi Valur Ás-
geirsson, Leifur Viðarsson og Þór-
hallur Reynfr Stefánsson.
dagsönn *
Rússnesku tvíburarnir sem leika á
nikkurnar sína í Salnum.
Rússneskir harm-
oníkusnillingar
Einstæðir tónleikar verða
haldnir í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs á morgun, kl. 16. Þetta
eru rússnesku harmoníkuleikar-
arnir og eineggja tvíburarnir Yuri
og Vadim Fjodorov. Þeir voru að-
eins sex ára gamlir þegar þeir
hófu nám í harmoníkuleik. Frá
árinu 1996 hafa þeir Fjodorov-
bræður stundað nám hjá prófess-
or Elsbeth Moser í Hochschule fúr
Musik und------;----------
Theater í Tonleikar
Hannover í----------------
Þýskalandi en Elsbeth er eigin-
kona harmoníkuleikarans Hrólfs
Vagnssonar. Á undanfornum
árum hafa þeir Yuri og Vadim
Fjodorov leikið á ógrynni tónleika
á meginlandinu viö miklar vin-
sældir. Þeir hafa einnig tekið þátt
í og unnið til fjölda verðlauna á
flestum helstu harmoníkukeppn-
um.
Miðsumartónleikar í
Hveragerðiskirkju
Á morgun verða tónleikar í
Hveragerðiskirkju á vegum Tón-
listarfélags Hveragerðis og Ölfuss.
Þar leika Hildigunnur Halldórs-
dóttir á fiðlu og Sólveig Anna
Jónsdóttir á píanó. Efnisskráin er
létt og sumarleg en þar má meðal
annars finna Vorsónötu Beet-
hovens og íslensk þjóðlög og
sönglög. Tónleikanir hefjast kl.
16.30.
Orgelverk á kirkjulistahátíð
Á fimmtu tónleikum kirkju-
listahátfðar á morgun í Hall-
grímskirkju, kl. 20.30, flytur Mark
A. Anderson frá Bandaríkjunum
einstaklega
áhugaverð org-
elverk. Á efnis-
skránni eru
verk eftir Clé-
rambault og
Bach frá
barokktímabil-
inu, rómantísk
verk eftir
Reger og Vier- Mark A. Ander-
ne og aðgengi- son organisti.
legt nútímaverk eftir enska tón-
skáldið Simon Preston sem starf-
að hefur sem organisti Westminst-
er Abbey. Lokaverkið á tónleikun-
um eru tveir þættir úr 3. sinfóníu
Louis Vierne, sérstaklega litríku
og sjaldheyrðu verki. Tónskáldið
var organisti í Notre Dame þegar
hann samdi verkið. Mark A. And-
erson kennir orgelleik við orgel-
deOd háskólans í Westminster og
er organisti og kórstjóri við Öld-
ungakirkjuna í Chestnut Hill í
Fíladelfíu.
Gengið
Almennt gengi LÍ 02. 07. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 74,520 74,900 74,320
Pund 117,330 117,930 117,600
Kan. dollar 50,660 50,980 50,740
Dönsk kr. 10,2580 10,3150 10,3860
Norsk kr 9,4530 9,5050 9,4890
Sænsk kr. 8,7660 8,8150 8,8190
Fi. mark 12,8278 12,9049 12,9856
Fra. franki 11,6274 11,6972 11,7704
Belg. franki 1,8907 1,9021 1,9139
Sviss. franki 47,5000 47,7600 48,2800
Holl. gyllini 34,6100 34,8180 35,0359
Þýskt mark 38,9965 39,2308 39,4763
(t. lira 0,039390 0,03963 0,039870
Aust. sch. 5,5428 5,5761 5,6110
Port. escudo 0,3804 0,3827 0,3851
Spá. peseti 0,4584 0,4611 0,4640
Jap. yen 0,615400 0,61910 0,613200
írskt pund 96,843 97,425 98,035
SDR 99,250000 99,85000 99,470000
ECU 76,2700 76,7300 77,2100
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270