Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 Spurningin Spilar þú í spila- kössum? Eyvindur Eggertsson plötusnúð- ur: Ég hef gert það en ég geri það ekki lengur. Anna Dís Guðbergsdóttir versl- unarmaður: Nei, aldrei. Gísli Jóhannesson verkamaður: Aldrei nokkurn tímann. Jón Bjarnason gæslumaður: Nei, en ég gerði það einu sinni. Elísabet Jóhanna Sigurbjörns- dóttir heimavinnandi: Nei, ég kann ekki á þá. Gunnar Hallgrímsson, vinnur hjá Náttúrufræðistofnun: Nei, það hef ég aldrei gert. Lesendur Ferðaþjónusta á Vestfjörðum - möguleikar fáir, ekki vanmetnir Mikil náttúrufegurð er á Vestfjörðum, en dugir hún án mikilla vegabóta? Við Dynjandisfoss á samnefndri heiði. Mynd GVA Guðmundur Gíslason skrifar: Mikið er nú ritað og rætt þessa dagana um vanda vestfirskra byggða. Það er að vonum. Sjaldan höfum við verið nær því að leggja af byggðir í dreifbýli í svo ríkum mæli sem nú. Það hefur heldur ekki ver- ið svo langt frá skoðunum margra landsmanna að brýnt sé að grisja byggð í dreifbýlinu, að rjúka þurfi upp á nef sér þótt þetta verði að veruleika. Byggðir á Vestfjöröum liggja auðvitað vel við höggi að því leyti að þar er fátt til bjargar annað en sjávarútvegurinn, sem líka er að leggja upp laupana. - Það þýðir lítið að tala um hina og þessa möguleika á atvinnu og framkvæmdum þegar byggðir eru jafneinangraðar og á Vestfjörðum. Það stoðar heldur ekki að benda mönnum á hitt og þetta til bjargar, svo sem ferðaþjónustu, þegar menn komast vart til byggðanna vestra nema sem fuglinn fljúgandi. Ekki eru lengur samgöngur á sjó sem dugðu vel fyrir fáeinum áratugum og þúsundir manna sigldu kringum landið með innlendum farþegaskip- um. Það var líf í tuskunum þegar þessi skip komu fullhlaðin farþegum og stór hluti þeirra fór í land í hin- um ýmsu byggðum og dvaldi daglangt eða hafði þar viðdvöl þar til skip kom að viku liðinni á leið til Reykjavíkur. Þetta voru allt aðrir og betri tímar en nú eru upp runnir. í annars ágætri kjallaragrein Kristjáns Pálssonar alþingismanns í DV mánud. 12. júlí, þar sem hann sendir Vestfirðingum baráttukveðj- ur, segist hann undrast hve ferða- þjónusta á Vestfjörðum sé vanmet- in. Hann segist trúa því að á Vest- fjörðum sé mikil framtíð þrátt fyrir aðsteðjandi erflðleika, og trúa að ís- lendingar allir vilji taka á þeim erf- iðleikum. Örugglega er ekki ofmælt, þetta með að landsmenn vilji taka á erfiðleikum Vestfirðinga með þeim. Hitt er sönnu nær að allt til bjargar byggðum Vestfjarða byggist á betri samgöngum, og það margfalt betri. Komist Vestfirðir ekki í mun betra vegasamband (eða með siglingum með farþega) er ekkert sem getur bjargað þessum byggðum frá algjöru hruni. Hvort verður talið hag- kvæmara fyrir þjóðfélagið skal ég ekki fullyrða. Ég fullyrði þó að með nútímatækni, sem aðrar þjóðir nota ótæpilega, er auðvelt að yfirstíga samgönguerfiðleika með jarðgöngum í gegnum Dynjandisheiði og Hrafns- eyrarheiði. Það yrði miklu meiri að- stoð við íbúa á norðurfjörðum Vest- fjarða, allt frá Bíldudal, en mörg skyndilán frá Byggðastofnun. Óþolandi þjófnaðir í verslunum Þórhildur Sigurðardóttir skrifar: Það færist í vöxt að fólk sé rænt inni í verslunum. Nærtækt dæmi er í versluninni Bónusi í Hafnarfirði. Ég varð fyrir þvi óhappi þann 18. maí sl. aö ótrúlega bífræfinn þjófur rændi mig veskinu í þessari versl- un, þegar ég beygði mig eftir varn- ingi i frystikistu! Tvær manneskjur gætu hafa staðið að verki, kona sem leiddi athygli mína að tiltekinni vöru í kistunni, og karlmaður sem tók veskið mitt á því augnabliki. Ég hafði strax samband við versl- unarstjórann og bað hann um að loka búðinni og kalla í lögregluna. En því miður sýndi hann því engan áhuga, þótt ég væri þama að tapa umtalsverðum fjármunum, eða rúmlega 50 þúsund krónum og ýms- um skilríkjum. - Það var því aum manneskja sem fór gjörsamlega tómhent úr versluninni Bónusi í Hafnarfirði þennan eftirminnilega dag. Samkvæmt frétt í DV þ. 5. júlí sl. endurtók þessi saga sig í þessari sömu verslun, að segja má í smáat- riðum. Hvort verslunarstjórinn brást eins við í það skipti er mér ókunnugt um, en þjófurinn eða þjófamir virðast vera orðnir hagv- anir í þessari verslun og vita ná- kvæmlega hvað þeir geta leyft sér, án þess að þurfa að óttast starfsfólk- ið. Ef rottur finnast í matvöruversl- unum er rokið upp, allt kapp lagt á að uppræta ósómann og ekkert til sparað. Mér finnst að það sama eigi að gilda um þjófa sem vaða uppi í verslunum. Svona Guðbjörg Gunnarsdóttir skrifar: Varðandi nýjustu hækkanir á far- gjöldum SVR mundi ég skyndilega eftir grein sem Helgi Hjörvar borg- arráðsmaður skrifaði í Mbl. í sept- ember 1995 og bar yfirskriftina „Svona gerir maður ekki“. Ég fann þessa grein og er hún í meginatrið- um svona: „Fyrir borgarráði í dag liggur til- laga um verulegar hækkanir á strætisvagnafargjöldum frá stjórn SVR. Ekki er það fyrsta skatta- hækkun okkar í Reykjavíkurlistan- um á Reykvíkinga. Án efa þó hin ógeðfelldasta, einkum þeim sem trúðu á Reykjavíkurlistann sem val- kost í borgarmálum. Það er stundum eins og álög á okkur í félagshyggjunni, að þegar við náum völdum glatast öll sýn, þverr okkur þróttur. Eins og við þjónusta allan sólarhringinn Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem bírt verða á lesendasíðu gerir maður ekki Svo mörg voru þau orð núverandi forseta borgar- stjórnar sem aö mati bréfaritara lýsti sjálfum sér fjögur ár fram í tímann. - Helgi Hjörvar, forseti borg- arstjórnar Reykjavíkur. verðum samdauna kerfinu og fyrr en varir hefur bæst við ný sveit embættismanna, nefnilega við. Við höldum að við séum að reka af okk- ur slyðruorð um óráðvendni, verð- um óskaplega „fagleg" og „ábyrg“ og hikum ekki við að taka „óvinsæl- ar ákvarðanir". Við erum að taka til eftir íhaldið, segjum við þá iðulega. Einmitt í því stað- festum við ímynd okkar. Við höfum engar lausnir, enga sýn, en sendum borgumum reikn- inginn fyrir getu- leysinu. Þeim sömu borgurum og við fullvissuðum um að við gætum gert hlut- ina betur... Það að leggja sér- stakar álögur á þá hópa sem minnstar tekjur hafa og eignir eiga, það er skatta- stefna einhvers ann- ars en félagshyggju. Það kunna að vera erfíðir tíma i fjár- málum borgarinnar. En að leggja sér- staka skatta á far- þega SVR umfram aðra borgara er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Ég skora á borgarráð að vísa slíkri tillögu frá, því svona gerir maður ekki.“ Svo mörg voru þau orð núverandi forseta borgarstjórnar. Ég læt les- endum eftir að dæma hvort hér sé um að ræða heimsmet stjómmála- manns, að lýsa sjálfum sér fjögur ár fram í tímann. Ekki fleiri seðla- bankastjóra Árni Einarsson hringdi: Ég er þess fullviss að yrði gerð skoðanakönnun um hvort ráða ætti fleiri bankastjóra við Seðlabank- ann myndi niðurstaðan verða gegn ráðningu fleiri bankastjóra. Þótt núverandi lög segi að þama skuli sitja þrír bankastjórar er einfalt mál að breyta lögunum í haust og geyma ráðningu bankastjóra sem nýlega yfirgaf Landsbanka íslands og þar áður Útvegsbankann sáluga eöa annarra verði hann ekki ráð- inn. Ég held að ráðamenn og ríkis- stjórnin í heild ættu nú að láta að vilja almennings og hafa aðeins einn aðalbankastjóra Seðlabank- ans. Bara í þetta eina sinn. Nóg er gengið fram hjá vilja almennings þrátt fyrir það. Blekkingar Þórarins V. Gunnar Árnason hringdi: Þórarinn V. Þórarinsson, tals- maður Landssímans og Vinnuveit- endasambandsins, hefur ekki spar- að stóm orðin að undanfórnu. Hann -kvartaði meðal annars yfir því að Landssíminn hefði fengið úr- skurð Samkeppnisstofnunar í hendur á eftir fiölmiðlum. En síðan kom í Ijós að Landssíminn hafði fengið úrskurðinn beint frá sam- gönguráðuneytinu, löngu á undan fiölmiðlum og Tali! Þetta voru sem sé blekkingar hjá Þórami. Rang- færslur hans uni vinnubrögð Sam- keppnisstofnunar er niðurlægjandi fyrir Landssímann, fyrirtæki sem við eigum öll. Hvaða „Rauði her“? Sólveig Vagnsdóttir á Þingeyri hringdi þetta inn: Ekki veit ég hverjir fundu upp þetta nafn, „Rauði herinn", á fólkið á Þingeyri. Eitt veit ég þó, að „her“ er ekki notaður nema í stríði, og þá í sókn og vöm. Yfirleitt verður mannfall í þannig stríði. Að líkja saklausu verkafólki við „her“ finnst mér ámælisvert. Þingeyring- ar eru fólk eins og aðrir. Þegar fréttamenn koma til Þingeyrar eða hafa samband við Þingeyri er ávallt litið á það versta eða léleg- asta í hverju tilviki. Ketill Helga- son er þó búinn að halda uppi vinnu hér á Þingeyri í tvö ár. Og í aUri þessari umræðu er bara minnst á Pólverja, en ekki á íslend- inga. Segja má að nú sé svo komið að Pólverjar hafi endanlega valtað yfir Þingeyringa. - En umfram aUt: Burt með „rauðahers“-nafnið. Nóg er komið af slíku. Náttúran og stóriðja Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Við þjóðernissinnar krefiumst þess að íslenska þjóðin geri sér glögga grein fyrir því hvað svoköll- uð stóriðja þýðir fyrir ísland. Að taka þátt 1 að eyðileggja náttúru landsins með því að byggja upp aUs konar iðnaðarvanda hér á landi að fmmkvæði erlendra aðUa eru hrein landráð. Þeir sem fylgja kap- ítalisma í dag verða kommúnistar á morgun. Kapítalískt/kommúnískt fyrirbæri sá til þess að Aralvatnið, stærsta stöðuvatn jarðarinnar, var eyðilagt. Áframhald í þá veru er ógnvænlegt. Hjúkrunarkonur og piparsveinar Regína Thorarensen hringdi frá Eskifirði: Þær Birna Ólafsdóttir og Gunn- hildur Kristinsdóttir eru nýkomnar hingað í Hulduhlíð tU að leysa yfir- hjúkrunarkonur af svo að þær geti farið í frí. Þetta era tvær myndar- stúlkur, hjúkrunarfræðingar, og aUir ánægðir með þær. En pipar- sveinamir á Eskifirði eru ekki eins ánægðir. Þeir vUja fá þær ógiftar. En önnur þessara kvenna er gift. - Heilsufar er annars gott á Eskifirði, enda læknisþjónusta frábær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.