Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
49
Sport
Bland í poka
48.000 áhorfendur mættu á alþjóðlegan
leikvang Japana á mánudagskvöld til
að kveðja einn fremsta knattspymu-
mann sinn. hinn 42 ára gamla miðherja
Ruy Ramos.
Ramos lék þar kveðjuleik en hann er
sannkölluð þjóðhetja í Japan. Hann
fæddist í Brasilíu en flutti til Japan
árið 1977 og gerðist japanskur ríkis-
borgari 1989 og hefur síðan spilað 32
landsleiki fyrir þjóð sina.
■ Leeds reynir nú af
fremsta megni að kaupa
framheija sem hæfa
myndi liðinu. Leeds fékk
12 milljónir punda fyrir
Jimmy Floyd Hassel-
baink, til vinstri, þegar
hann var seldur til Atlet-
ico Madrid fyrr á tímabil-
inu og á því nóg af peningum til að
kaupa staðgengil fyrir hann.
Leeds gerði meðal annars tilboö i
Robbie Fowler á dögunum en Liver-
pool-menn sögðu hann ekki vera til
sölu.
Dwight Yorke hjá
Manchester United, til
hægri, og Emile Heskey
eru markahæstir i ensku
úrvalsdeildinni með fjög-
ur mörk nú er flest lið
hafa lokið 4 leikjum.
Næstir á eftir þeim koma
Michael Bridges (Leeds), Hamilton
Ricard (Middlesbrough), Carl Court
(Wimbledon), Dion Dublin (Aston
Villa) og Kevin Phillips (Sunderland),
allir með þrjú mörk.
KR leikur gegn Kilmarnock í síðari
viðureign liðanna í Skotlandi á morgun
í Evrópukeppninni. Enn er óvíst hvort
Sigursteinn Gíslason og Bjarni Þor-
steinsson geta leikið með en þeir
meiddust í leik gegn Breiðabliki um
síðustu helgi.
Einn besti vamarmaður Kilmamock,
Kevin McGowne, er meiddur á kálfa og
óvist hvort hann getur leikið með gegn
KR. Að auki hefur framherjinn Paul
Wright átt við meiðsli að stríða en ljóst
er að hann leikur gegn KR.
veröur með beina útsend-
ingu frá leiknum og hefst
hún með upphitun kl.
17.00. Kristinn Kjœrne-
sted og Andri Sigþórs-
son, til vinstri, munu
lýsa leiknum en honum
verður einnig útvarpað á
KR-vefnum.
Golfklúbbur Sandgeróis hélt opna
Sandgerðismótið sunnudaginn 22. ágúst
og urðu úrslit þessi:
Án forgjafar:
1. Helgi B. Þórisson, GK.............70
2. Davíð Jónsson, GS ................74
3. Þröstur Ástþórsson, GS............75
Með forgjöf:
1. Óskar Þórhallsson, GSG ...........63
2. Auðunn Gestsson, GSG..............67
3. Gústaf Alfreðsson, GR.............68
Christian Ziege, hinn nýi liðsmaður
Middlesbrough, hefur verið valinn í
landsliðshóp Þjóðveija að nýju fyrir
leikina gegn Finnum og N-írum í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða. Ziege,
sem gekk í raðir Middlesbrough frá AC
Milan í sumar, hefur byijað leiktíðfna
vel. Hann hefur skorað tvö mörk í leikj-
um Boro í A-deildinni og lagt upp eitt.
Einn nýliði er í þýska landsliðinu,
hinn 19 ára gamli Sebastian Deisler
sem leikur með Herthu Berlin. Thomas
Hássler fann ekki náð fyrir augum Er-
ichs Ribbecks landsliðsþjálfara en mik-
il umræða hefur verið hjá þýskum
sparkspekingum um að velja þennan
knáa leikmann í landsliðið að nýju.
Ronny Johnsen, til
hægri, vamarmaðurinn
sterki hjá Manchester
United, vonast til að geta
verið oröinn leikfær um
áramótin en hann hefur á
skömmum tima gengist
undir aðgerð á báðum
hnjám.
Hollenska knattspyrnuliðið Ajax hef-
ur keypt rúmenska vamarmanninn
Chrn Chivu frá rúmenska félaginu
Universitatea Craiova. Chivu er 18 ára
gamall og hefur leikið einn landsleik
fyrir Rúmeníu.
Enn eitt heimsmetið féll í sundi á
kyrrahafsleikunum sem nú standa yfir
í Sydney. ígær sló Bandarikjamaður-
inn Lenny Krayzelburg heimsmetið í
100 metra baksundi þegar hann kom í
mark á 53,60 sekúndum. Gamla metið
átti Jeff Rouse, 53,86, sem hann setti á
Ólympíuleikunum í Barcelona árið
1992. -ÍBE/GH
Útvarp KR
DV DV
Sport
Sleggjukast kvenna:
1. Mihaela Melinte, Rúmeníu . . 75,20
2. Olga Kuzenkova, Rússlandi . 72,56
3. Lisa Misipeka, Amerisku Samóa 66,06
4. Katalin Divos, Ungveijalandi 65,86
5. Debbie Sosimenko, Ástraliu . 65,52
Þrístökk kvenna:
1. Paraskevi Tsimita, Grikkl. . . 14,88
2. Yamile Aldama, Kúbu........14,61
3. Olga-Anastasia Vasdeki, GrikkL 14,61
4. Tatyana Lebedeva, Rússlandi 14,55
5. Iva Prandzheva, Búlgaría ... 14,54
1500 metra hlaup karla:
1. Hicham E1 Guerrouj, Marakkó 3,26:65
2. Noah Ngeny, Kenía........3,28:73
3. Reyes Estevez, Spáni.....3,30;57
4. Fermin Cacho, Spáni......3,31;34
5. Andres Diaz, Spáni.......3,31:83
800 metra hlaup kvenna
1. Ludmila Formanova, Tékkl. 1,56:68
2. Maria Mutola, Mósambik . 1,56:72
3. Svetlana Masterkova, Rússl. 1,56:93
4. Jearl Miles-Clark, Bandar. . 1,57:40
5. Natalya Gorelova, Rússlandi 1,57:81
Hicham El
Guerrouj
vann 1500
metra hiaup
karla.
Golfævintýri
- hjá Golfklúbbnum Setbergi sem komst upp í 1. deild á 5 árum
Golfklúbburinn Setberg er aðeins
fimm ára gamall en þrátt fyrir það
færðist hann úr 2. deild og upp í 1.
deild í sveitakeppninni sem haldin
var nýverið. Frá þvi að klúbburinn
var stofnaður árið 1994 hefur hann
færst upp á milli deilda á hverju ári.
Aðeins einn golíklúbbur, Golfklúbb-
ur Garðabæjar og Kópavogs, hefur
unnið sig jafnhratt upp í 1. deild.
Golfklúbburinn Setberg hefur þó
nokkra sérstöðu þar sem hann er
fremur lítill, í honum eru aðeins um
280 félagar og auk þess er hann
einkarekinn.
„Við erum náttúrlega bara búnir
að vera heppnir með góða kylfmga
og svo getum við ekki tapað í þess-
um leikjum. Við vorum undir í
tveimur leikjum í ár og Nesið þurfti
að auki að vinna til aö við ynnum
deildina þannig að þetta er búið að
vera alveg ótrúlegt,“ sagði Högni
Friðþjófsson, formaður klúbbsins.
Fremstu kylflngar Setbergs koma
úr öðrum klúbbum enda ógerlegt að
ala upp svo góða kylfinga á fimm
árum. Tryggvi Traustason, Gunn-
steinn Jónsson, Ólafur Jóhannes-
son, Guðbjöm Ólafsson og Kristján
Kristjánsson skipa A-sveitina.
Tryggvi hefur þó mikla
keppnisreynslu og spilaði til
nokkurra ára fyrir Golfklúbbinn
Keili.
Mikill stuðningur
Klúbburinn er með öflugt
unglingastarf og upp em að koma
mjög góðir spilarar „Elstu
spilaramir sem eru uppaldir hjá
okkur eru bara 15 og 16 ára gamlir
og þeir eru mjög efnilegir margir,"
sagði Högni.
Leikgleði og stuðningur hefur
einkennt þennan litla klúbb úr
Hafnarfirðinum og í sveitakeppn-
inni fylgdi þeim fjöldi áhorfenda.
„Það er alveg æðislega góður
mórall í sveitinni og búið að vera
rosalega gaman að þessu. Ég held að
það sé líka mikið atriði að það hef-
ur alltaf fullt af fólki stutt við bakið
á þeim. Það er alltaf einhver að
ganga með okkar sveit og ég held að
það hafi mikið að segja og spilararn-
ir flnni það,“ sagði Högni
Golfklúbburinn Setberg er per-
sónulegur klúbbur og alltaf er tekið
vel á móti kylfingum á Setberginu í
Hafnarfiröinum.
„Við höfum verið alveg rosalega
heppin með fólk i klúbbnum okkar.
Þetta er bara mjög gott fólk sem hef-
ur komið og hefur náð alveg ein-
staklega vel sarnan," sagði Högni
að lokum. -ÍBE
A-sveit Golfklúbbsins Setbergs sem vann sig upp í 1. deild í síðustu sveitakeppni. Frá vinstri: Högni Friðþjófsson
liðsstjóri, Tryggvi Traustason, Guðbjörn Ólafsson, Kristján Kristjánsson, Ólafur Jóhanneson og Gunnsteinn
Jónsson.
1. deild kvenna í körfubolta:
Gréta í KR
- Qórar ÍR-stúlkur hafa yfirgefiö liðiö
Gréta María Grétarsdóttir hefur ákveðið að leika með tslands- og
bikarmeisturum KR-inga í 1. deild kvenna í körfu næsta vetur. Gréta, sem
er í íslenska landsliðinu, hefur verið burðarás ÍR-liðsins en hún verður
fjórði leikmaðurinn sem yfirgefur ÍR frá síðasta tímabili. Hinar fjórar eru
systumar Hildur og Guðrún Arna Sigurðardætur, sem fylgja Grétu í KR,
og Þórunn Bjarnadóttir sem fer yfir í lið ÍS.
Framtíð ÍR-liðsins hefur verið nokkuð á reiki vegna þessa mikla missis
en fyrir eru þó enn margir frambærilegir leikmenn og þar að auki efnilegar
stúlkur sem ættu að geta staðið fyrir sínu í vetur. Það væri sárt að sjá á
eftir ÍR-liðinu sem hefur vaxið og dafnað ár frá ári og átt meðal annars
fjóra bestu nýliða deildarinnar á síðustu 6 árum. -ÓÓJ
465
. :
Fjóröi dagur HM í frjálsumí Sevilla: yrs|jf £ j gevilia
Gullum hlaðin
Egypska sundkonan Rania Alwan
sýndi og sannaði að hún er besta
sundkona arabaheimsins þegar hún
vann tíu gullverðlaun í sundkeppni
arabaleikanna sem fara fram jyessa
dagana í Amman. Alwan vann 50 m og
100 m flug, 100 m skrið, 50 m bak, 200
m fjórsund, 100 m bak, 50 m bríngu
auk þríggja sigra í boðsundum.
Tveir Skagamenn til Englands?
Skagamennimir Unnar Valgeirsson og Ragnar Hauksson fara til
reynslu hjá enska D-deildar liðinu
Peterbrough eftir leik ÍA gegn
Grindavík þann 1. september. Þeir
verða til skoðunar hjá enska liðinu í
vikutíma og standi þeir sig vel er
hugsanlegt að Skagamenn leigi þá til
Peterbrough i vetur. Akurnesingar
eiga ekki að spila á meðan þeir
Ragnar tvímenningar verða erlendis enda er Unnar
Hauksson. frí vegna landsleikja íslendinga gegn Valgeirsson.
Andorra og Úkraínu sem háðir verða 4.
og 8. september. Einn íslendingur er hjá Peterbrough en það er hinn 19
ára gamli Helgi Daníelsson sem gerði þriggja ára samning við liðið á
síðasta ári eins og DV greindi frá á sínum tíma. -GH
Hinn 16 ára lan Thorpe frá Ástralíu
setti þriðja heimsmetið á þremur
dögum í gær á Kyrrahafsmeistara-
mótinu þegar hann synti 200 metra
skriðsund á 1 mínútu og 46 sekúnd-
um sléttum.
Enski boltinn í gær:
Sannfærandi sigur
Aston Villa stöðvaði sigurgöngu
nýliða Watford meö 0-1 sigri í ensku
A-deildinni i gær og það var vamar-
maðurinn Mark Delaney sem tryggði
Villa sigurinn og þar með annað sæt-
ið í deildinni. Jóhann B. Guðmunds-
son kom inn á sem varamaður á 77.
minútu hjá Watford.
Leicester vann sannfærandi, 0-3,
útisigm- á Middlesbrough í leiknum í
gær en heimamenn gátu komist á
toppinn með sigri. Emile Heskey
skoraði tvö mörk fyrir Leicester og
Tony Cottee en Amar Gunnlaugsson
kom ekkert við sögu hjá Leicester
sem fyrr í vetur. -ÓÓJ
Siggi og Eiður
skoruðu báðir
Sigurður Ragnar Eyjólfsson skoraði í
sínum fyrsta leik í byrjunarliði Walsall
þegar liðið vann
Plymouth, 4-1,1 enska
deildabikamum í gær.
Walsall vann þvi sam-
tals 8-2 en Siguröur
skoraði tvisvar í fyrri
leiknum eftir að hafa
komið inn á sem vara-
maður. Bjarnólfur
Lárusson lék ekki
með, Eiðuri Smári
Guðjohnsen j skoraði
’ fyrsta mark Bolton
strax á 5. mínútu i 5-3
sigri á Darlington en
Bolton komst áfram,
6-4 samanlagt. -ÓÓJ
Li
sigurður
9agnar
Eyjólfssori.
- hefur 36 stiga forustu á Bretann Macey
Heimsmethafinn i tugþraut,
Tékkinn Tomas Dvorák, hefur for-
ustu eftir fyrri dag keppninnar.
Dvorák, sem náði sínum besta ár-
angri í fyrstu þremur greinum dags-
ins, hefur 36 stiga
forustu á Bretann Dean
Macey sem hefur komið
mjög á óvart. Margir
biða spenntir eftir því
hvort Dvorák nái að
bæta við 8994 stiga
heimsmet sitt sem hann
setti i sumar og verða
jafnvel sá fyrsti í 9000
stigin enda er hann í
feiknaformi.
Haile Gebreselassie
sýndi enn og sannaði að
hann er besti langhlaup-
ari sögunnar er hann
- >>
Haile Gebreselassie
vann 10.000 metra hlaup
á fjórða HM í röð
Bandaríkjamanna á mótinu.
Ludmila Formanova kom sér og
öðrum á óvart er hún vann 800
metra hlaup kvenna. Hún stakk sér
fram úr Mariu Mutola í blálokin og
vann bæði heimsmeistara-
titilinn inni og úti í ár.
Marokkómaðurinn Hicham
E1 Guerrouj vann 1500
metra hlaupið með glæsi-
brag, sinn annan HM-titil í
þessari grein 1 röð.
Rúmenski sleggjukastar-
inn Mihaela Melinte vann
fyrsta heimsmeistaratitil
kvenna í greininni, bætti
sig þrisvar i keppninni og
endaði á öðru lengsta kasti
sögunnar, 75,20 m. Hún á
nú 8 af tíu lengstu köstum
sögunnar og heimsmetið
vann 10 þúsund metra hlaupið en
hann er ósigraðm á hringjunum 25
síðustu sex árin og ennfremur á síð-
ustu 4 HM.
Bandaríkjamaðurinn Anthony
Washington kom í veg fyrir enn einn
sigur Þjóðverja í kastgreinum og
ennfremur að Lars Riedel næði að
vinna á 5. HM í röð. Washington
tryggði sér sigur með glæsilegu
lokakasti en þetta var fimmta gull
sem hún setti í maí er 75,97 metrar.
Michael Johnson gaf góð fyrirheit
fyrir úrslitahlaupið í 400 metrum á
fimmtudag er hann hljóp á 43,95 sek-
úndum. Hann gaf sér tíma til að
skoða andstæðinga sína og slaka á í
lokin þrátt fyrir að næstu sex menn
hefðu allir sett hin ýmsu met. John-
son segist vera i heimsmetsformi og
það verður gaman að sjá hvað hann
gerir á fimmtudaginn. -ÓÓJ
Stóra myndin er af Tomasi Dvorák en á þeir#r\v
litlu er gríska stúlkan Paraskevi Tsimita semr
varð heimsmeistari kvenna í þrístökki.
Úrvalsdeildin í knattspyrnu:
McMillan farinn heim
Alister McMillan, einn þriggja Skota sem
úrvalsdeildarliði Grindvíkinga í sumar, er farinn
heim til Skotlands.
„Þjálfarinn sagði yfir hópinn að ég gæti æft með
liðinu en ég léki ekki meira fyrir Grindavík, sem
mér þótti afar leitt því hér er gott að vera. Síðan
dró hann í land og sagði að ég fengi mín tækifæri.
Ég hef ekki hugmynd um hvað þjálfarinn hafði á
móti mér én við þessar aðstæður ákvað ég að fara
heim og leika knattspymu þar eða í Englandi,“
sagði McMillan við DV skömmu áður en hann hélt
af landi brott. -bb
leikið hafa með
Alister McMillan.
Jon Arnar Magnusson i tugþrautinni:
- mikil vonbrigði er Jón Arnar hætti keppni í gær, síðastur íslendinganna
Jón Arnar Magnússon hætti í gær
keppni í tugþraut á Heimsmeistara-
mðtinu í Sevilla á Spáni. Jón Amar
vaknaði lasinn í morgun og var þvi
hálfslappur er keppni hófst. Hann
byrjaði vel i 100 metra hlaupinu, sem
var fyrsta grein tugþrautarinnar, og
var fyrstur um sinn. Hann dróst síðan
aftur úr um mitt hlaupið þar sem
hann tognaði á vöðva í nára. Jón
Arnar kom síðastur í mark í sínum
riðli á tímanum 10,94 sekúndur sem
er lakasti tími hans í fimm ár.
Þriðja HM í röð
Þetta er þriðja heimsmeistaramótið
í röö sem Jón Amar neyðist til að
hætta keppni en hann tilkynnti að
hann væri hættur áður en önnur
grein tugþrautar hófst sem var lang-
stökk og keppti því
aðeins i einni grein
tugþrautar á þessu
heimsmeistaramóti.
Þar með lauk keppni
íslensku keppend-
anna á þessu móti.
Vaknaði slappur
„Hann vaknaði
bara slappur í morg-
un en fékk nú lækn-
ingu við því og þeg-
ar á leið þá komust
við við illan leik á
völlinn með sjúkra-
bil því það var fljót-
legasta leiðin og við
heimtuðum það. Síð-
an bara tognaði
Jón Arnar Magnússon, keppti
síðastur íslendinga í gær.
hann á læri í 100
metra hlaupinu
eða fékk sting í
nárann þannig að
hann gat ekki
hlaupiö á fullum
hraða. Hann byrj-
aði mjög vel fyrstu
30-40 metrana og
það leit allt mjög
vel út en svo bara
fékk hann tak í fót-
inn. Hann fór strax
í meðferð en
treysti sér ekki til
að hlaupa lang-
stökksatrennuna
og hætti við að
reyna það meira að
segja,“ sagði Gísli
Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars.
Verið getur að lasleiki Jóns Arnars
hafi haft áhrif á líkamsstarfsemina og
hann tognað vegna þess. „Auðvitað
vill maður skella skuldinni á eitthvað
svoleiðis. Það var ekkert við því
gert,“ sagði Gísli.
Eltingarleikur við vandræði
„Þetta er bara eitthvað sem maður
verður að taka á þegar maður stendur
frammi fyrir svona hlutum. Þetta hef-
ur verið eltingarleikur við vandræði
og meiðsli eftir heimsmeistaramótið
innanhúss og þetta er bara svona
áframhald á því sem við erum búin að
berjast við í sumar. Það er svo sem
ekkert hægt að lýsa líðan minni öðru-
vísi en það að ég náttúrulega stend
við bakið á mínum íþróttamanni og
geri það sem ég get til þess að ná ár-
angri og passa upp á meiðsli og ég
hélt að þetta væri komið fyrir þetta
mót,“ sagði Gísli ennfremur. -ÍBE
10 þúsimd metra hlaup karla:
1. Haile Gebrselassie, Eþíópu 27,57:27
2. Paul TRergat, Kenía..... 27,58:56
3. Assefa Mezgebu, Eþíópu . . 27,59:15
4. Girma Tolla Eþíópu...... 28,02:08
5. Antonio Pinto, Portúgal . . 28,03:42
Kringlukast karla:
1. Anthony Wshington, Bandar. 69,08
2. Jergen Schult, Þýskalandi .. 68,18
3. Lars Riedel, Þýskalandi .... 68,09
4. Virgilijus Alekna, Litháen .. 67,53
5. Vaclavas Kidykas, Litháen .. 65,05
Efstu menn eftir fyrri dag í tugþraut:
1. Tomas Dvorák, Tékklandi ... 4582
2. Dean Macey, Bretlandi....... 4546
3. Chris Huffins, Bandaríkin . . 4462
4. Erki Nool, Eistlandi .......4416
5. Lev Lobodin, Rússlandi .... 4356
6. Chiel Wamers, Hollandi .... 4345
m
3. DEILD KARLA
8-liða úrslit, síðari leiklr:
(Samtals úrslit eru innan sviga og
liöið sem fór áfram er undirstrikað)
KÍB-Hvðt................1-1 (3-3)
Pétur G. Svavarsson - Hörður
Guðbjörnsson.
Maeni-Aftureldlng.......1-2 (2-3)
Haraldur Logi Hringsson - Halldór
Halldórsson 2.
Reynir, S-Huginn/Hðttur 1-0 (1-4)
Daði Berþórsson.
Hallur K. Ásgeirsson gerði öll fjögur
mörk Hugins/Hattar í fyrri leiknum.
Þróttur, N-Niarðvík .... 1-2 (2-6)
Dragan Stojanovic - Sævar
Eyjólfsson, Þórarinn Ólafsson.
Afturelding og Huginn/Höttur
mætast f öðrum undanúrslitunum en
Njaróvik og KÍB í hinum.
Danski landsliðsmaðurinn Thomas
Helveg gæti verið á leið til meistara
Manchester United frá ítalska liðinu
AC Milan. Sir Alex Ferguson, stjóri
United, er reiöubúinn að greiða 750
milljónir fyrir Helveg sem er 28 ára
gamall varnar- og miöjumaður.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn
hjá United. Varnarmennirnir Wes
Brown, Gary Neville og Ronny
Johnsen eru á sjúkralistanum og það
hefur komið Ferguson til að líta í
kringum sig.
Svíinn Benny Lennartsson verður
að öllum líkindum næsti þjálfari
norska A-deildar liðsins Viking en
það er liðið sem þeir Rikharður
Daðason og Auð-
un Helgason
leika með. Lenn-
artsson hefur ver-
ið efstur á blaði
forráöamanna
Viking um aö
taka við þjálfun liðsins og þar á eftir
Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari.
Lennartsson kemur til samningavið-
ræðna við Viking um næstu helgi.
Man. United-klúbburinn á íslandi
og Úrval-Útsýn standa fyrir ferð á
leik Man. Utd og Aston Villa 29.-31.
október. Flogið veröur beint til
Manchester og gist i miðborginni.
Verðið er frá 32.400 krónum fyrir
klúbbmeðlimi og frá 37.900 kr. fyrir
aðra. Nánari upplýsingar veitir
íþróttadeild ÚÚ í síma 585-4000.
West Ham komst í gær inn i Evrópu-
keppni félagsliða með því að vinna
franska liðið Metz i einum af þremur
úrslitaleikjum Inter-totkeppninnar.
West Ham, sem tapaði fyrri leiknum,
0-1, vann 3-1 á útivelli og skoruðu
þeir Trevor Sinclair, Frank
Lampard og Paulo Wanchope
mörkin fyrir Lundúnaliðið. Juventus
og Montpellier komust einnig inn í
UEFA-keppnina i gær, franska liöið
eftir vítakeppni gegn Hamburger og
Juventus eftir 2-2 jafntefli viö
franska liðið Rennes. GH/ÓÓJ
jÆgb Firma-og hópakeppni
Vplf Hauka í knattspynnu
fer fram á Ásvöllum
28.-29. ágúst nk.
Upplýsingar og skráning í síma 897 0143.
K
*
T