Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 Viðskipti___________________________________________________________________________________________________pv Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 984 m.kr. ... Mest með húsbréf 745 m.kr. ... Hlutabréf 139 m.kr. ... Mest með FBA 29 m.kr. og hækkaði gengið um 1,2% ... íslandsbanki 25 m.kr. og lækkun upp á 0,9% ... Marel 18 m.kr. og 1,1% hækkun ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,33% og er nú 1.263,1 ... SÍF lækkaði mest, 1,6% ... Verjum hagsmuni viö- skiptavina í hvívetna - „fullyrðingar Davíðs rangar,“ segir Sigurður Einarsson Kaupþing sendi í gær frá sér yfir- lýsingu þess efnis að fyrirtækið harmaði mjög að forsætisráðherra, Davíð Oddsson, skuli hafa dregið eignastýringu Kaupþings inn í um- ræðu um sölu Scandinavian Hold- ings á bréfum FBA til Orca. „Við höfum ekki brugðist um- boðsskyldu okkar gagnvart neinum viðskiptavini okkar. Við verjum hagsmuni þeirra í hvívetna og full- yrðingar um annað eiga ekki við rök að styðjast. Því fer einnig víðs- fiarri að við höfum brotið lög. Ég veit ekki hver er uppspretta þessar- ar umræðu," segir Sigurður Éinars- son, forstjóri Kaupþings, um ásak- anir Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra. Kaupþing blóraböggull? Ekki verður dregin dul á það að Davíö Oddssyni gremst sú staða sem komin er upp i eignarhaldi á FBA. Því er eðlilegt að spyrja Sig- urð hvort Davíð sé gera Kaupþing að blóraböggli úr því að einkavæð- ingaráform rikisstjómarinnar, eins og hún setti þau fram upphafi, eru fyrir bí? „Ekki verður annað séð en ein- hver pólitík sé hlaupin í málið sem við hér í Kaupþingi skiljum ekki. Við tökum ekki þátt í pólitískri um- Alþjóðlegur fundur um verðvísitölur Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings. og aðrar fiármálastofnanir og fylgt þeim reglum sem settar hafa verið af stjómvöldum. í þessum sem og öðrum viðskiptum hefur fyrirtækið haft hagsmuni viðskiptavina sinna að leiðarljósi, enda hafa þeir hagn- ast á þeim. Kaupþing tekur á hverj- um tíma ákvarðanir með hag við- skiptavina aö leiðarljósi eftir bestu vitund og í ljósi þeirra upplýsinga og væntinga sem fyrir liggja. Vegna þeirrar áhættu sem er í rekstri fiár- festingarbanka, einkum og sér í lagi eins og mál horfðu sl. haust þegar fiármagnsmarkaðir heimsins vora í uppnámi, mat starfsfólk eignastýr- ingar það svo að hagsmunum margra þeirra eignasafna, sem í umsjá Kaupþings voru, væri betur borgið með því að selja hluta þeirra bréfa sem keypt höfðu verið í FBA. Ákvörðun um sölu á hluta FBA- bréfa úr eignasöfnum var tekin eft- ir mati á hverju eignasafni fyrir sig, þar sem m.a. var tekið tillit til stærðar, áhættuþols og samsetning- ar. Skoðun á þessum viðskiptum hefur leitt í ljós að faglega var að matinu staðið í öllum tilvikum." -bmg ræðu. Við stundum viðskipti á fiár- hagslegum grundvelli. Það eina sem gerst hefur er að fyrir ári síðan keyptum við hlutabréf í Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins og nú ári síðar seldum við þau aftur til hæst- bjóðanda sem í þessu tilfelli var Orca. Þannig ganga hluta- bréfaviðskipti fyrir sig og hafa alltaf gert. Áfram munu menn kaupa og selja hlutabréf og sækjast í þeim eftir hagnaði með hags- muni viðskiptavina að leiðarljósi," segir Sigurður Einarsson. Mun ekki skaða okkur „Kaupþing hefur hingað til notið mikils trausts viðskiptavina sinna. Ég hef þá trú ac þetta upphlaup nú muni ekki rýra traust viðskiptavina á okkur. Það er hins vegar svo að illt umtal er alltaf til þess fallið að draga úr trausti en ég trúi því ekki að það takist í þessu tilfelli. Ég vona bara að þessu máli sé lokið og menn átti sig á að hér era menn einfaldlega á villigöt- um. Þeir sem uppi hafa þessar ásakanir verða að skýra sjálfir hvað þeir hafa fyrir sér en frekari rök- stuðningur fyrir okkar máli kem- ur fram í tilkynn- ingu frá okkur,“ segir Sigurður að lokum. Hagsmunir að leiðarljósi I yfirlýsingu Kaup- þins vegna málsins segir: „Kaupþing hef- ur tekið þátt í einkavæðingu ríkisbanka eins Afkoma Sæplasts hf: Betri afkoma og góöar horfur í dag hefst hér í Reykjavík fundur alþjóðlegs vinnuhóps, svo- kallaðs Ottawahóps, um verðvísi- tölur. Vinnuhópur þessi var sett- ur á laggimar í borginni Ottawa í Kanada árið 1994 í því skyni að vera vettvangur athugana og um- ræðna um helstu vandamál við mælingar á verðbreytingum. Hóp- urinn hefur fiallað um fræðilega hlið þessa viðfangsefnis en þó einkum beint sjónum sínum að hagnýtum rannsóknum á sviði neysluverðsvísitalna. Vinnuhóp- inn mynda um 25 sérfræðingar frá hagstofum og háskólum í nokkram löndum og frá alþjóða- stofnunum. Hagstofa íslands á að- ild að þessum hópi og er fulltrúi hennar Rósmundur Guðnason, yf- irmaður vísitöludeildar Hagstof- unnar. Fundur Ottawahópsins í Reykjavík er hinn fimmti í röð- inni en hópurinn kemur nú sam- an ár hvert. Fundurinn er skipu- lagöur af Hagstofu íslands og stjómamefnd hópsins. Á fundin- um verður fiallað um tilgang og viðfangsefni neysluverðsvísitalna, gæðaleiðréttingar við útreikninga þeirra og um undirbúning alþjóð- legrar handbókar um neyslu- verðsvísitölur. Fundinn sækja um 30 sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum. -bmg Skipamiðlunin Bátar & Kvóti Sín.i! %<,H mo uad& Sæplast hf. á Dalvík. um 19 milljónn króna. Heildareignir samstæðunnar námu 1.420 milljónum króna í lok júní. Bókfært eigið fé nam 359 milljón- um króna og eiginfiárhlutfall er því 25%. Arð- semi eigin fiár á tímabilinu var um 12%, en var 4% fyrir sama tímabil 1998. Veltufiárhlutfall samstæðunnar er 2,29. Veltufé frá rekstri nam tæp- um 63 milljónum króna en var 26,8 milljónir króna fyrri hluta árs 1998. Sæplast hf. á Dalvík og dótturfélög skiluðu 21 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrstu 6 mánuðum árs- ins 1999, samkvæmt árshlutareikn- ingi. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstrinum tæpar 7 milljónir króna. Afkoman batnar því um tæpar 15 milljónir króna milli tímabila sem er að mestu fólgin í bættri afkomu móðurfélagsins á Dal- vík. Þannig skilar móðurfélagið rúm- um 26 milljónum í hagnað fyrir skatta á móti tæpum 8 milljónum fyr- ir sama tímabil árið 1998. Viðsnún- ingur hér er því upp á rúmar 18 millj- ónir króna, eða um 250% milli tíma- bila. Meginskýringin á betri afkomu er enn meiri lækkun rekstrargjalda í kjölfar þeirra aðhaldsaðgerða sem gripið var til á síðasta ári. Félagið greiðir nú tekjuskatt í fyrsta sinn í langan tíma. Heildartekjur samstæðunnar á Góð afkoma var hjá SPRON á fyrri hluta ársins 1999 eins og fram kemur í árshlutareikningi 30. júní. Hagnað- ur af rekstri á fyrstu sex mánuðum ársins nam 91,6 milljónum króna á móti 66,7 milljónum króna á sama tíma árið áður. Hagnaður eftir skatta var 61,4 milljónir króna og hefur hagnaðurinn aukist um 19% miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður- inr. svarar til þess að arðsemi eigin fiár SPRON hafi verið 9,5%. Sam- kvæmt árshlutauppgjörinu hækkuðu heildartekjur uin 29% milli ára og vora 1,4 milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur vora 678,8 milljónir og hafa því hækkað um 44% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Framlag i afskriftareikning útlána er 48,0 millj- tímabilinu era tæpar 354 milljónir króna. Heildartekjur móðurfélagsins á tímabilinu janúar til júní sl. námu 254 milljónum króna sem er um 4% aukning miðað við sama tímabil árið áðm-. Samanburður á milli tímabila gefur ekki að öllu leyti rétta mynd, þar sem félagið seldi á síðari hluta ársins 1998 röradeild og rekstur hennar, en heildartekjur röradeildar á tímabilinu janúar til júní 1998 voru ónir kr. sem er svipað og á sama tíma í fýrra. Aukning í umsvifum Að undanfomu hafa umsvif SPRON aukist mjög mikið. Á síðasta ári vora opnuð tvö ný útibú og í janúar á þessu ári var opnað nýtt og glæsilegt útibú í Spöng- inni i Grafarvogi. Afgreiðslutími þar er óhefðbundinn en opið er virka daga frá kl. 12.00 til kl. 18.30 og á laugardögum frá kl. 12.00 til 16.00. 1 mars kynnti SPRON nýtt kreditkort, veltukreditkort, sem er nýjung á íslenskum kortamarkaði. Þá kynnti SPRON í maí snertibankann, sem er bylting i bankaþjónustu. Snertibank- inn er sjálfafgreiðslutæki sem getur sinnt flestu því sem gjaldkerar og þjónustufull- trúar gera i dag. -bmg Aukin erlend umsvif Miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarna mánuði í rekstri Sæplasts hf. en félagið tók formlega við rekstri tveggja verksmiðja í lok júní sem keyptar voru af norska fyr- irtækinu Dynoplast A/S. Sæplast hf. er því í dag eigandi að fiórum verk- smiðjum þ.e. á Dalvík, í St. John í New Brunswick-fylki í Kanada, í Sa- langen i Tromsfylki í Noregi og í Ahmadabad í Gujarat-fylki á Ind- landi. Áhrif þessara dótturfélaga á samstæðureikning eru fyrst og fremst vegna afkomu verksmiðjunn- ar í Kanada. 110 af 150 starfsmönnum Sæplasts starfa á erlendri grund. Gengi hlutabréfa í félaginu hefur hækkaði um 57% fyrstu 6 mánuði ársins. Bréfin hækkuðu sérstaklega mikið eftir að tilkynnt var um kaup Sæplasts á öðrum plastverksmiðjum. Útlit er fyrir að reksturinn verði áfram I góðu jafnvægi það sem eftir er árs og stefnt er að hlutafiárútboði i haust. -bmg Góð afkoma SPRON Sjávarafurðir á Saga Class lofaðar Svo virðist sem einhverjir blaða- menn hafi fengið góða þjónustu á Saga Class hjá Flugleiðum. Á fréttavef CNN er frétt þess efnis að maturinn um borð hafi verið mik- ið lostæti og rétturinn „Catch of the Day“ væri veiði dagsins í bók- staflegum skilningi. Blaðamaður sagði í fréttinni að það væri örugg- lega ekkert flugfélag í heiminum sem byði upp á eins ferskan fisk í háloftunum og Flugleiðir. NTV opnar útibú í Kópavogi Útibú frá Nýja tölvu- og við- skiptaskólanum, NTV, opnar í Hlíðarsmára 9 í Kópavogi á morg- uh, 26. ágúst. Þar er tölvubúnaður og aðstaða eins og best verður á kosið og uppfyllir ströngustu kröf- ur um aðbúnað. PC-tölvur NTV- skólanna eru alls 120 talsins og eru tengdar saman á neti sem stýrist af öflugri IBM AS-400-tölvu. NTV býð- ur upp á námskeið í kerfisfræði og forritun, þjálfún undir sölu og skrifstofustörf, margvísleg grafisk námskeið og almennt tölvunám fyrir byrjendur. Enn fremur er boðið upp á sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir. Titringur á mörkuðum FTSE 100 lækkaði í gær um 0,11%, eða 7 stig, og er nú 6.315,1 stig. FTSE-heildarvísitalan lækkaði lítiilega og stendur í 2.963,25 stig- um. DAX-vísitalan hækkaði hins vegar um 1,33%, eða tæp 70 stig, og er nú 5.324 stig. Vextir voru hækk- aðir í Bandaríkjunum í gær um 25 punkta og endurspegluðust við- skipti dagsins þar í landi af ótta við að vextir yrðu hækkaðir meira en væntingar stóðu til. Áhrif lausafjárreglna I hagtölum mánaðarins í ágúst metur Seðlabanki íslands áhrif lausafiárreglna sem settar vora í vor. Að mati bankans eru að- gerðimar á góðri leið með að ná þeim mark- miðum að bæta lausafiárstöðu lánastofnana, lækka erlendar skammtímaskuldir og draga úr miklum vexti útlána. Aukinn viðskiptahalli Viðskiptahalli í Bretlandi jókst töluvert í júní eða um 298 milljarða íslenskra króna. Þetta er töluvert meiri aukning en menn bjuggust við. Hollendingar smeykir Vísitala sem mælir bjartsýni manna á viðskiptalífið féll um 1,4 stig í júlí frá 2,4 stigum í júni. Mæl- ingin er vísbending um að menn séu ekki eins bjartsýnir á efnahags- horfúr og oft áður. UBS fellur Hlutabréf í næststærsta banka Evrópu, UBS í Sviss, féllu mikið í verði í gær eftir að afkomutölur voru birtar. Ekki það að tölumar hafi verið slæmar heldur voru væntingar manna um hagnað svo miklar að bankinn náði ekki að standa undir þeim. Neysluverð hækkar lítið Tölur yfir vísitölu neysluverðs vora birtar víða í gær. í Þýskalandi og Ítalíu var hækkunin aðeins 0,1% og svo virðist sem miklar ol- íuverðshækkanir hafi ekki mjög mikil áhrif þar. -bmg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.