Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
Viðskipti___________________________________________________________________________________________________pv
Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 984 m.kr. ... Mest með húsbréf 745 m.kr. ... Hlutabréf 139 m.kr. ... Mest
með FBA 29 m.kr. og hækkaði gengið um 1,2% ... íslandsbanki 25 m.kr. og lækkun upp á 0,9% ... Marel 18 m.kr.
og 1,1% hækkun ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,33% og er nú 1.263,1 ... SÍF lækkaði mest, 1,6% ...
Verjum hagsmuni viö-
skiptavina í hvívetna
- „fullyrðingar Davíðs rangar,“ segir Sigurður Einarsson
Kaupþing sendi í gær frá sér yfir-
lýsingu þess efnis að fyrirtækið
harmaði mjög að forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, skuli hafa dregið
eignastýringu Kaupþings inn í um-
ræðu um sölu Scandinavian Hold-
ings á bréfum FBA til Orca.
„Við höfum ekki brugðist um-
boðsskyldu okkar gagnvart neinum
viðskiptavini okkar. Við verjum
hagsmuni þeirra í hvívetna og full-
yrðingar um annað eiga ekki við
rök að styðjast. Því fer einnig víðs-
fiarri að við höfum brotið lög. Ég
veit ekki hver er uppspretta þessar-
ar umræðu," segir Sigurður Éinars-
son, forstjóri Kaupþings, um ásak-
anir Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra.
Kaupþing blóraböggull?
Ekki verður dregin dul á það að
Davíö Oddssyni gremst sú staða
sem komin er upp i eignarhaldi á
FBA. Því er eðlilegt að spyrja Sig-
urð hvort Davíð sé gera Kaupþing
að blóraböggli úr því að einkavæð-
ingaráform rikisstjómarinnar, eins
og hún setti þau fram upphafi, eru
fyrir bí?
„Ekki verður annað séð en ein-
hver pólitík sé hlaupin í málið sem
við hér í Kaupþingi skiljum ekki.
Við tökum ekki þátt í pólitískri um-
Alþjóðlegur
fundur um
verðvísitölur
Sigurður Einarsson,
forstjóri Kaupþings.
og aðrar fiármálastofnanir og fylgt
þeim reglum sem settar hafa verið
af stjómvöldum. í þessum sem og
öðrum viðskiptum hefur fyrirtækið
haft hagsmuni viðskiptavina sinna
að leiðarljósi, enda hafa þeir hagn-
ast á þeim. Kaupþing tekur á hverj-
um tíma ákvarðanir með hag við-
skiptavina aö leiðarljósi eftir bestu
vitund og í ljósi þeirra upplýsinga
og væntinga sem fyrir liggja. Vegna
þeirrar áhættu sem er í rekstri fiár-
festingarbanka, einkum og sér í lagi
eins og mál horfðu sl. haust þegar
fiármagnsmarkaðir heimsins vora í
uppnámi, mat starfsfólk eignastýr-
ingar það svo að hagsmunum
margra þeirra eignasafna, sem í
umsjá Kaupþings voru, væri betur
borgið með því að selja hluta þeirra
bréfa sem keypt höfðu verið í FBA.
Ákvörðun um sölu á hluta FBA-
bréfa úr eignasöfnum var tekin eft-
ir mati á hverju eignasafni fyrir sig,
þar sem m.a. var tekið tillit til
stærðar, áhættuþols og samsetning-
ar. Skoðun á þessum viðskiptum
hefur leitt í ljós að faglega var að
matinu staðið í öllum tilvikum."
-bmg
ræðu. Við stundum viðskipti á fiár-
hagslegum grundvelli. Það eina sem
gerst hefur er að fyrir ári síðan
keyptum við hlutabréf í Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins og nú ári
síðar seldum við þau aftur til hæst-
bjóðanda sem í þessu tilfelli var
Orca. Þannig ganga hluta-
bréfaviðskipti fyrir sig og
hafa alltaf gert. Áfram
munu menn kaupa og
selja hlutabréf og
sækjast í þeim eftir
hagnaði með hags-
muni viðskiptavina
að leiðarljósi," segir
Sigurður Einarsson.
Mun ekki skaða
okkur
„Kaupþing hefur
hingað til notið mikils
trausts viðskiptavina
sinna. Ég hef þá trú ac
þetta upphlaup nú
muni ekki
rýra
traust viðskiptavina á okkur. Það er
hins vegar svo að illt umtal er alltaf
til þess fallið að draga úr trausti en
ég trúi því ekki að það takist í þessu
tilfelli. Ég vona bara að þessu máli
sé lokið og menn átti sig á að hér
era menn einfaldlega á villigöt-
um. Þeir sem uppi hafa
þessar ásakanir verða
að skýra sjálfir hvað
þeir hafa fyrir sér
en frekari rök-
stuðningur fyrir
okkar máli kem-
ur fram í tilkynn-
ingu frá okkur,“
segir Sigurður að
lokum.
Hagsmunir að
leiðarljósi
I yfirlýsingu Kaup-
þins vegna málsins
segir: „Kaupþing hef-
ur tekið þátt í
einkavæðingu
ríkisbanka
eins
Afkoma Sæplasts hf:
Betri afkoma og góöar horfur
í dag hefst hér í Reykjavík
fundur alþjóðlegs vinnuhóps, svo-
kallaðs Ottawahóps, um verðvísi-
tölur. Vinnuhópur þessi var sett-
ur á laggimar í borginni Ottawa í
Kanada árið 1994 í því skyni að
vera vettvangur athugana og um-
ræðna um helstu vandamál við
mælingar á verðbreytingum. Hóp-
urinn hefur fiallað um fræðilega
hlið þessa viðfangsefnis en þó
einkum beint sjónum sínum að
hagnýtum rannsóknum á sviði
neysluverðsvísitalna. Vinnuhóp-
inn mynda um 25 sérfræðingar
frá hagstofum og háskólum í
nokkram löndum og frá alþjóða-
stofnunum. Hagstofa íslands á að-
ild að þessum hópi og er fulltrúi
hennar Rósmundur Guðnason, yf-
irmaður vísitöludeildar Hagstof-
unnar.
Fundur Ottawahópsins í
Reykjavík er hinn fimmti í röð-
inni en hópurinn kemur nú sam-
an ár hvert. Fundurinn er skipu-
lagöur af Hagstofu íslands og
stjómamefnd hópsins. Á fundin-
um verður fiallað um tilgang og
viðfangsefni neysluverðsvísitalna,
gæðaleiðréttingar við útreikninga
þeirra og um undirbúning alþjóð-
legrar handbókar um neyslu-
verðsvísitölur. Fundinn sækja um
30 sérfræðingar víðs vegar að úr
heiminum. -bmg
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sín.i! %<,H mo
uad&
Sæplast hf. á Dalvík.
um 19 milljónn
króna.
Heildareignir
samstæðunnar
námu 1.420
milljónum
króna í lok júní.
Bókfært eigið fé
nam 359 milljón-
um króna og
eiginfiárhlutfall
er því 25%. Arð-
semi eigin fiár á tímabilinu var um
12%, en var 4% fyrir sama tímabil
1998. Veltufiárhlutfall samstæðunnar
er 2,29. Veltufé frá rekstri nam tæp-
um 63 milljónum króna en var 26,8
milljónir króna fyrri hluta árs 1998.
Sæplast hf. á Dalvík og dótturfélög
skiluðu 21 milljóna króna hagnaði
eftir skatta á fyrstu 6 mánuðum árs-
ins 1999, samkvæmt árshlutareikn-
ingi. Á sama tímabili í fyrra var
hagnaður af rekstrinum tæpar 7
milljónir króna. Afkoman batnar því
um tæpar 15 milljónir króna milli
tímabila sem er að mestu fólgin í
bættri afkomu móðurfélagsins á Dal-
vík. Þannig skilar móðurfélagið rúm-
um 26 milljónum í hagnað fyrir
skatta á móti tæpum 8 milljónum fyr-
ir sama tímabil árið 1998. Viðsnún-
ingur hér er því upp á rúmar 18 millj-
ónir króna, eða um 250% milli tíma-
bila. Meginskýringin á betri afkomu
er enn meiri lækkun rekstrargjalda í
kjölfar þeirra aðhaldsaðgerða sem
gripið var til á síðasta ári. Félagið
greiðir nú tekjuskatt í fyrsta sinn í
langan tíma.
Heildartekjur samstæðunnar á
Góð afkoma var hjá SPRON á fyrri
hluta ársins 1999 eins og fram kemur
í árshlutareikningi 30. júní. Hagnað-
ur af rekstri á fyrstu sex mánuðum
ársins nam 91,6 milljónum króna á
móti 66,7 milljónum króna á sama
tíma árið áður. Hagnaður eftir skatta
var 61,4 milljónir króna og hefur
hagnaðurinn aukist um 19% miðað
við sama tímabil í fyrra. Hagnaður-
inr. svarar til þess að arðsemi eigin
fiár SPRON hafi verið 9,5%. Sam-
kvæmt árshlutauppgjörinu hækkuðu
heildartekjur uin 29% milli ára og
vora 1,4 milljarðar króna. Hreinar
vaxtatekjur vora 678,8 milljónir og
hafa því hækkað um 44% miðað við
sama tímabil á síðasta ári. Framlag i
afskriftareikning útlána er 48,0 millj-
tímabilinu era tæpar 354 milljónir
króna. Heildartekjur móðurfélagsins
á tímabilinu janúar til júní sl. námu
254 milljónum króna sem er um 4%
aukning miðað við sama tímabil árið
áðm-. Samanburður á milli tímabila
gefur ekki að öllu leyti rétta mynd,
þar sem félagið seldi á síðari hluta
ársins 1998 röradeild og rekstur
hennar, en heildartekjur röradeildar
á tímabilinu janúar til júní 1998 voru
ónir kr. sem er svipað og á sama
tíma í fýrra.
Aukning í umsvifum
Að undanfomu hafa umsvif SPRON
aukist mjög mikið. Á síðasta ári vora
opnuð tvö ný útibú og í janúar á þessu ári
var opnað nýtt og glæsilegt útibú í Spöng-
inni i Grafarvogi. Afgreiðslutími þar er
óhefðbundinn en opið er virka daga frá
kl. 12.00 til kl. 18.30 og á laugardögum frá
kl. 12.00 til 16.00. 1 mars kynnti SPRON
nýtt kreditkort, veltukreditkort, sem er
nýjung á íslenskum kortamarkaði. Þá
kynnti SPRON í maí snertibankann, sem
er bylting i bankaþjónustu. Snertibank-
inn er sjálfafgreiðslutæki sem getur sinnt
flestu því sem gjaldkerar og þjónustufull-
trúar gera i dag. -bmg
Aukin erlend umsvif
Miklar breytingar hafa átt sér stað
undanfarna mánuði í rekstri
Sæplasts hf. en félagið tók formlega
við rekstri tveggja verksmiðja í lok
júní sem keyptar voru af norska fyr-
irtækinu Dynoplast A/S. Sæplast hf.
er því í dag eigandi að fiórum verk-
smiðjum þ.e. á Dalvík, í St. John í
New Brunswick-fylki í Kanada, í Sa-
langen i Tromsfylki í Noregi og í
Ahmadabad í Gujarat-fylki á Ind-
landi. Áhrif þessara dótturfélaga á
samstæðureikning eru fyrst og
fremst vegna afkomu verksmiðjunn-
ar í Kanada. 110 af 150 starfsmönnum
Sæplasts starfa á erlendri grund.
Gengi hlutabréfa í félaginu hefur
hækkaði um 57% fyrstu 6 mánuði
ársins. Bréfin hækkuðu sérstaklega
mikið eftir að tilkynnt var um kaup
Sæplasts á öðrum plastverksmiðjum.
Útlit er fyrir að reksturinn verði
áfram I góðu jafnvægi það sem eftir
er árs og stefnt er að hlutafiárútboði
i haust. -bmg
Góð afkoma SPRON
Sjávarafurðir
á Saga Class lofaðar
Svo virðist sem einhverjir blaða-
menn hafi fengið góða þjónustu á
Saga Class hjá Flugleiðum. Á
fréttavef CNN er frétt þess efnis að
maturinn um borð hafi verið mik-
ið lostæti og rétturinn „Catch of
the Day“ væri veiði dagsins í bók-
staflegum skilningi. Blaðamaður
sagði í fréttinni að það væri örugg-
lega ekkert flugfélag í heiminum
sem byði upp á eins ferskan fisk í
háloftunum og Flugleiðir.
NTV opnar útibú í Kópavogi
Útibú frá Nýja tölvu- og við-
skiptaskólanum, NTV, opnar í
Hlíðarsmára 9 í Kópavogi á morg-
uh, 26. ágúst. Þar er tölvubúnaður
og aðstaða eins og best verður á
kosið og uppfyllir ströngustu kröf-
ur um aðbúnað. PC-tölvur NTV-
skólanna eru alls 120 talsins og eru
tengdar saman á neti sem stýrist af
öflugri IBM AS-400-tölvu. NTV býð-
ur upp á námskeið í kerfisfræði og
forritun, þjálfún undir sölu og
skrifstofustörf, margvísleg grafisk
námskeið og almennt tölvunám
fyrir byrjendur. Enn fremur er
boðið upp á sérsniðin námskeið
fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Titringur á mörkuðum
FTSE 100 lækkaði í gær um
0,11%, eða 7 stig, og er nú 6.315,1
stig. FTSE-heildarvísitalan lækkaði
lítiilega og stendur í 2.963,25 stig-
um. DAX-vísitalan hækkaði hins
vegar um 1,33%, eða tæp 70 stig, og
er nú 5.324 stig. Vextir voru hækk-
aðir í Bandaríkjunum í gær um 25
punkta og endurspegluðust við-
skipti dagsins þar í landi af ótta við
að vextir yrðu hækkaðir meira en
væntingar stóðu til.
Áhrif lausafjárreglna
I hagtölum mánaðarins í ágúst
metur Seðlabanki íslands áhrif
lausafiárreglna
sem settar vora í
vor. Að mati
bankans eru að-
gerðimar á
góðri leið með að
ná þeim mark-
miðum að bæta
lausafiárstöðu
lánastofnana,
lækka erlendar skammtímaskuldir
og draga úr miklum vexti útlána.
Aukinn viðskiptahalli
Viðskiptahalli í Bretlandi jókst
töluvert í júní eða um 298 milljarða
íslenskra króna. Þetta er töluvert
meiri aukning en menn bjuggust
við.
Hollendingar smeykir
Vísitala sem mælir bjartsýni
manna á viðskiptalífið féll um 1,4
stig í júlí frá 2,4 stigum í júni. Mæl-
ingin er vísbending um að menn
séu ekki eins bjartsýnir á efnahags-
horfúr og oft áður.
UBS fellur
Hlutabréf í næststærsta banka
Evrópu, UBS í Sviss, féllu mikið í
verði í gær eftir að afkomutölur
voru birtar. Ekki það að tölumar
hafi verið slæmar heldur voru
væntingar manna um hagnað svo
miklar að bankinn náði ekki að
standa undir þeim.
Neysluverð hækkar lítið
Tölur yfir vísitölu neysluverðs
vora birtar víða í gær. í Þýskalandi
og Ítalíu var hækkunin aðeins
0,1% og svo virðist sem miklar ol-
íuverðshækkanir hafi ekki mjög
mikil áhrif þar.
-bmg