Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
41
4
Vít og strít
Helgi Jóhannesson hefur stundað karate í átján ár.
Vinsæl sjáIfsvarnaríþrótt:
Þúsund manns
í karate
- slagsmálahundar gefast fljótt upp á æfingunum
Karate er sjálfsvarnaríþrótt sem stunduð hefur verið víða um
heim við miklar vinsældir undanfarna áratugi. ísland er þar
engin undantekning og nýtur karate stöðugt vaxandi vin-
sæla að sögn Helga Jóhannessonar, formanns Karatefélags-
ins Þórshamars í Reykjavík. Hann segir að opinberar tölur
segi að um eitt þúsund manns leggi stund á karate að stað-
aldri hér á landi.
„í okkar félagi erum við með átta
kennara og starfað er í byrjenda-
hópum og framhaldshópum. Það
eru allt frá fimm ára börnum sem
koma til okkar að æfa og upp í sex-
tuga menn,“ segir Helgi. „Það er
boðið upp á stutt byrjendanámskeið
sem taka þrjá mánuði og ef fólk vill
síðan halda áfram fer það í fram-
haldshópa. Ég er búinn að stunda
þetta frá fjórtán ára aldri, eða í
átján ár, en samt er ég rétt að byrja.
Sumir nota karate sem hreina lík-
amsrækt en aðrir kannski sem
keppnisíþrótt. Það er misjafnt eftir
hverju fólk er að sækjast en við
reynum að verða við óskum þess.
Karateþjálfunin er byggð á þrepum
sem einkennd eru með níu lituðum
beltum, einn litur fyrir hvert þrep,
sem líka er kallað Dan, og svart fyr-
ir tiunda þrepið. Fyrsti Dan ber
þannig gult belti, en meistaragráð-
an, sem er 10. Dan, er með svart
belti. Hér á landi er enginn með
svart belti en einn er með 4. Dan og
þrír einstaklingar eru með 3. Dan.“
Fyrst og fremst
sjálfsvarnaríþrótt
Það liggja því mörg ár og mikil
þjálfun að baki svörtu belti. Helgi
segir að æft sé allt árið um kring og
í sumar voru t.d. 50 manns við æf-
ingar hjá Þórshamri. Hann segir að
karate sé sjálfsvarnaríþrótt sem
byggist á mikilli ögun. Lögð sé mik-
il áhersla á þaö að besta vömin sé
alltaf að labba í burtu frá slagsmál-
um. Það sé engin skömm að slíku,
en karate beiti menn aðeins í neyð.
: - Fá karatefélögin þá ekki til sín
slagsmálahunda sem vilja læra að
berja mann og annan?
„Auðvitað fáum við til okkar
slíka einstaklinga. Þeir sem era
með þannig hugarfar hætta þó fljótt,
því þeim er ekki kennd nein flókin
bardagatækni til að byrja með. í
fyrstu er aðeins byggður upp grann-
ur sem síðan er byggt ofan á. Þá
felst þetta líka í að breyta hugsunar-
hætti fólks auk þess sem menn fá
góða útrás fyrir tilfinningar og fara
heim afslappaðir og góðir. Þeir sem
ef til vill hafa komið inn í upphafi
með rangt hugarfar breytast þegar
haldið er lengra og era í framhald-
inu bara ánægðir meö lífið og tilver-
una.“
Helgi segir karate oft geta komið
í stað annarra íþrótta. Margir hafi
komið í þessa grein úr öðrum
íþróttum og líkamsræktarstöðvum.
Þá era sumir sem æfa karate sem
keppnisíþrótt af mikilli alvöra.
Námsflokkar Hafnarfjarðar:
Náið samstarf við
skólana í bænum
Nú í haust verður tekið upp
náið samstarf á milli Náms-
flokka Hafnarfjarðar og Flens-
borgarskóla og Iðnskólans í
Hafnarfirði. Þar er gert ráð fyrir
að boðið verði upp á sameigin-
lega hluti sem hafi í för með
sér aukið framboð fyrir nem-
endur og hinn almenna borg-
ara.
Þetta mun vera í fyrsta skiptið
sem slíkt er reynt og verður þetta
samstarf kynnt úánar í sérstökum
bæklingi. Námsflokkar Hafnarfjarð-
ar bjóða upp á mikinn fjölda nám-
skeiða í ólíklegustu greinum. Þar
má nefna stuðningskennslu í hefð-
bundnum greinum, eins og stærð-
fræði, ensku, dönsku og íslensku, og
námskeið í kinverskri hreyfilist.
Saumaskapur, fluguköst, smíðar og
matargerð era þar líka á lista og má
t.d. nefna að i vor var góð aðsókn að
námskeiði í ítalskri matargerð og
matarmenningu. Þar var lögð
áhersla einfalda, ódýra og holla
ítalska matargerð með pasta, græn-
meti og saltfiski. Vegna mikillcir eft-
irspumar verður aftur boðið upp á
slíkt námskeið nú í haust. Þá er ver-
ið að skoða möguleika á fleiri nýj-
ungum á þessu sviði og áhugi er fyr-
ir að reyna að koma á fót námskeiði
í grískri matargerð.
www.visir.is
NÝR HEIMUR Á NETINU