Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Side 29
X>"Vr FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
29
Skemmtilegar og ólíkar persónur
einkenna söngleikinn.
Litla hryllingsbúðin
Leikfélag Reykjavíkur hefur sýnt
að undanfórnu í Borgarleikhúsinu
Litlu hryllingsbúðina við miklar
vinsældir og er næsta sýning í
kvöld. Litla hryllingsbúðin er söng-
leikur og fjallar um Auði og Bárð,
sem eru afskaplega saklaus og sæt,
og illu plöntuna sem spillir á milli
þeirra. Upprunalega var Litla hryll-
ingsbúðin ódýr B-kvikmynd sem
fljótt varð að neðanjarðarklassík í
kvikmyndaheiminum. Upp úr
myndinni var síðan saminn söng-
leikurinn vinsæli sem einu sinni
áður hefur verið settur upp hér, í ís-
--------------- lensku óperunni.
Leikhús Kvikmyndin var
_______________ síðan endurgerð
fyrir nokkrum árum. Ný þýðing
verksins er eftir Gísla Rúnar Jóns-
son og Megas samdi söngtextana.
í aðalhlutverkunum eru Þórunn
Lárusdóttir sem leikur Auði, Valur
Freyr Einarsson leikur Baldur,
Bubbi Morthens plöntuna og radd-
irnar þrjár eru Selma Björnsdóttir,
Hera Björk Þórhallsdóttir og Regína
Ósk Óskarsdóttir og Stefán Karl
Stefánsson leikm- tannlækninn.
Anna Richardsdóttir hreinsaði göt-
ur á menningarnótt í Reykjavík.
Anna hreinsar
í síðasta sinn
í dag er Anna Richardsdóttir búin
að þrífa eitt ár í göngugötunni á Ak-
ureyri. „Ár er mjög kvenlegt tímabil
þvi það fer i spíral. Byrjar og endar
samhliða en ekki alveg á sama
punkti. Ég hef, eins og ég lærði þegar
ég var lítil, þriflð vikulega og aÚtaf á
sama tíma, á fóstudögum kl. 16.30.
Þrif i sjálfu sér eru heilagt fyrir-
bæri en leið venjulegrar konu, eins
og ég er, til heilagleikans í þrifunum
hefur reynst mér þymum stráð. Þá
hef ég meðal annars verið að dansa í
götunni. Þrif og hreinsun tákna jú
fleira en skúringar,“ segir Anna.
Nú er komið að síðasta hreinsun-
ardegi Önnu sem er í dag. „Þennan
* síðasta hrein-
Utivera gjörning í göngu-
________________götunni vil ég
tileinka öllum sem þrífa; þvi vil ég
bjóða Akureyringum, nærsveitung-
um og öllum sem vettlingi geta vald-
ið að mæta og hjálpa mér að þrífa
göngugötuna. Ég vil biðja ykkur að
taka uppáhalds þrifáhaldið ykkar
með til að nota við athöfnina. Tón-
listarfólk sem vill hjálpa til með því
að tóna undir vil ég bjóða velkomið.
Tónlistin er eins og góður vinur fyr-
ir dansarann, gefur honum kraft og
fer með hann á flug.“
Barn dagsins
í dálkinum Barn dagsins eru
birtar myndir af ungbörnum.
Þeim sem hafa hug á að fá birta
mynd er bent á að senda hana í
pósti eða koma með myndina,
ásamt upplýsingum, á ritstjóm
DV, Þverholti 11, merkta Barn
dagsins. Ekki er síöra ef barnið á
myndinni er í fangi systur, bróður
eða foreldra. Myndir em endur-
sendar ef óskað er.
Hlaðvarpinn:
Górilluleikhús
Blues Express
á Punktinum
í kvöld verður górilluleiksýning í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum og
er það í fyrsta sinn sem slík spuna-
sýning er sett upp hér á landi. Gór-
illuleikhús er ein af spunaaðferðun-
um sem teljast til leikhússports, að-
ferð sem íslendingum hefur aldrei
verið boðið upp á áður. Leikhópur- Sturludóttur, sem sér um leikhljóð,
inn samanstendur af------------------------------hljóð og tónlist og Mart-
leikurunum Laufeyju CLommtanÍr in Geijer sem kennir
Brá Jónsdóttur, Guð- formið og leikstýrir.
mundi Inga Þorvalds- Martin kennir leikhús-
syni, Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, sport í Kramhúsinu, hann setti upp
Agnari Jóni Egilssyni, Oddnýju hina vinsælu Hnetuna, geimsápu,
sem sýnd var í Iðnó síð-
astliðinn vetur. Spuninn
hefst kl. 21.
Leikhópurinn sem verður með górillusýninguna í Hlaðvarpanum.
Hin hressa blússveit
Blues Express ætlar að
leika á Punktinum,
Laugavegi, í kvöld og
annað kvöld. Þetta verður
síðasta helgi Ingva Rafns
Ingvasonar, trommara
með Blues Express, í bili
en hann er á leið til
útlanda í tónlistarnám.
Blues Express skipa:
Matthías Stefánsson á gít-
ar, Ingvi Rafn Ingvason á
trommur, Gunnar Eiríks-
son, söngur og munn-
harpa, Atli Freyr Ólafs-
son á bassa.
// /
///
/f-
// / ^F/ /
////7///
',/////
/M/
/////fWf/ / O /•
Y/ /',///,//
Víða skúrir eða rigning
Suðvestan og sunnan 5-8 m/s, en
8-13 allra austast. Víða skúrir eða
rigning, en þurrt að kalla norðaust-
Veðrið í dag
antil. Hiti 9 til 15 stig yfir daginn,
hlýjast á Austurlandi.
Höfuðborgarsvæðið: Suðvestan
5-8 m/s og skúrir eða dálítil rign-
ing, en sunnan 3-5 í kvöld og nótt.
Hiti 6 til 11 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.38
Sólarupprás á morgirn: 06.17
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.33
Árdegisflóð á morgun: 00.33
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri úrkoma í grennd 7
Bergsstaóir úrkoma i grennd 7
Bolungarvík skýjaö 5
Egilsstaöir 5
Kirkjubœjarkl. skúr 5
Keflavíkurflv. skýjaö 6
Raufarhöfn léttskýjaö 4
Reykjavík skýjaó 6
Stórhöföi úrkoma í grennd 8
Bergen þokumóöa 17
Helsinki alskýjaö 17
Kaupmhöfn þoka í grennd 16
Ósló skýjaó 16
Stokkhólmur 18
Þórshöfn rigning 9
Þrándheimur skýjaó 15
Algarve Amsterdam skýjaö 13
Barcelona rigning 24
Berlín léttskýjaó 13
Chicago léttskýjaó 21
Dublin súld á síö. kls. 15
Halifax léttskýjaö 18
Frankfurt léttskýjaö 12
Hamborg léttskýjaö 12
Jan Mayen skýjaö 4
London lágþokublettir 16
Lúxemborg heiöskírt 12
Mallorca skýjaö 21
Montreal heiöskírt 20
Narssarssuaq léttskýjaö 0
New York hálfskýjaö 20
Orlando heiöskírt 19
París léttskýjaö 13
Róm skýjaö 17
Vín rigning 13
Washington skýjaó 18
Winnipeg alskýjaö 11
Helstu vegir um
hálendið færir
Helstu vegir um hálendið eru nú færir. Það skal
áréttað að þótt vegir um hálendið séu sagðir færir
er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum og öðr-
um vel útbúnum fjallabílum.
Færð á vegum
Vegirnir um Kjöl, Kaldadal og yfir í Landmanna-
laugar frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum.
Ástand vega
Skafrenningur
E3 Steinkast
O Hálka
Qó Ófært
® Vegavinna-aögát H Öxulþungatakmarkanir
□ Þungfært © Fært flallabllum
Davíð Þór
Litli drengurinn sem er
með bróður sínum á
myndinni heitir Davíð
Þór. Hann fæddist á fæð-
Barn dagsins
ingardeild Landspítalans
7. maí síðastliðinn. For-
eldrar hans eru María Ed-
ith Magnúsdóttir og Bald-
ur Örn Baldursson. Stóri
bróðir heitir Birkir Þór
og er tveggja ára gamall.
Stantey Kubridds
Full Metal Jacket er ein fjögurra
eldri Kubrick-mynda á Kvik-
myndahátíð.
Fjórar Kubrick-
myndir
Aðsókn hefur verið mjög góða á
Kvikmyndahátíð DV í Reykjavík
og er greinilegt að borgarbúar eru
í miklum kvikmyndahug. Meðal
einkenna kvikmyndahátíðarinnar
er að minning Stanleys Kubricks,
hins nýlátna meistara kvikmynd-
anna, er í heiðri höfð og eru fjór-
ar eldri kvikmynda hans sýndar á
hátíðinni og það hefur komið á
óvart hversu aðsókn hefur verið
góð að myndunum en þær eru
sýndar í Bíóborginni. Myndirnar
fjórar eru Full Metal Jacket,
Barry Lyndon, The Shining og
The Clockwork Orange.
Stanley Kubrick byggir
Clockwork
Orange á
skáldsögu eft-
ir Anthony
Burgess um
samfélag þar
sem ofbeldi
hefur tekið völdin. Barry Lyndon
er af mörgum talinn ein fallegasta
kvikmynd sem gerð hefur verið. í
þetta sinn er Kubrick í klassík-
inni og er myndin byggð á skáld-
sögu Thackerays. Hver sá sem séð
hefur The Shining gleymir ekki
Jack Nicholson í hlutverki rithöf-
undarins sem smám saman
brjálast i einverunni og verður
fjölskyldu sinni hættulegur. Full
Metal Jacket er Vietnam-kvik-
mynd Stanleys Kubricks sem í
raun fékk aldrei þá athygli sem
hún átti skilið því um er að ræða
einstaklega sterka og áhrifamikla
kvikmynd.
Krossgátan
1 2 3 4 5 7
8 9
10 11
12 13 j 14
15 16 I 17
18 19
20 21
Lárétt: 1 þrjót, 8 hreyfa, 9 risa, 10
brún.ll ólga, 12 vogir, 15 stór, 17
skoða, 18 svelgur, 19 ólgaði, 20 una,
21 heiður.
Lóðrétt: 1 afstyrmi, 2 hlýðin, 3
gráti, 4 ílát, 5 liða, 6 ríkur, 7 angur,
13 grandi, 14 stjórna, 16 ílát, 19 átt.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 skelk, 6 ær, 8 víða, 89 oki,
10 oka, 11 spik, 12 nikkan, 15 afli, 17
rói, 18 hross, 19 nn, 20 ráf, 21 teig.
Lóðrétt: 1 svona, 2 kíki, 3 eða, 4
laskist, 5 kopars, 6 æki, 7 rikling, 13
klof, 14 nóni, 16 frá, 18 hr.
Gengið
Almennt gengi LÍ 03. 09. 1999 kl. 9.15
Einini)___________Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 72,110 72,470 73,680
Pund 116,070 116,670 117,050
Kan. dollar 48,120 48,420 49,480
Dönsk kr. 10,3770 10,4340 10,3640
Norsk kr 9,2320 9,2830 9,2800
Sænsk kr. 8,8280 8,8770 8,8410
Fi. mark 12,9820 13,0600 12,9603
Fra. franki 11,7671 11,8379 11,7475
Belg.franki 1,9134 1,9249 1,9102
Sviss. franki 48,3400 48,6100 48,0900
Holl. gyllini 35,0261 35,2366 34,9676
Þýskt mark 39,4653 39,7024 39,3993
(t líra 0,039860 0,04010 0,039790
Aust. sch. 5,6094 5,6431 5,6000
Port. escudo 0,3850 0,3873 0,3844
Spá. peseti 0,4639 0,4667 0,4631
Jap. yen 0,656000 0,65990 0,663600
írskt pund 98,007 98,596 97,844
SDR 99,140000 99,74000 100,360000
ECU 77,1900 77,6500 77,0600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270